Fotbolti.net
Premier League
Coventry
Coventry
0 - 0
Crystal Palace
Crystal Palace
Fyrir leik
Frank segir mikla vinnu framundan - „Hef trú á strákunum“

Danski þjálfarinn Thomas Frank var í vikunni ráðinn nýr stjóri Crystal Palace. Frank tekur við af Pierre Sage, sem var rekinn eftir aðeins sextán leiki í öllum keppnum á tímabilinu, en Palace er í neðsta sæti ensku úrvalsdeildarinnar.

„Hópurinn þarf að mínu mati, að endurheimta sjálfstraustið, trúna og orkuna. Ég og mitt teymi þurfum að leggja á okkur gríðarlega vinnu. Það eru góðir leikmenn til staðar en þeir þurfa að hafa trú á sjálfum sér," segir Frank, sem stýrði síðast Tottenham. „Við fáum á okkur allt of mörg mörk, þannig að við þurfum að vinna í varnarleiknum, bæði hvað varðar skipulag og hugarfar. Við þurfum að bæta leik okkar í föstum leikatriðum, á báðum endum vallarins."

Fyrsti leikur Frank með stjórnartaumana hjá Palace verður útileikur gegn nýliðum Coventry. Frank staðfesti að Takehiro Tomiyasu og Ismaila Sarr yrðu ekki með í leiknum.

„Ég get sagt að Tomiyasu snýr aftur til æfinga í næstu viku. Þetta eru nárameiðsli hjá Sarr svo við þurfum að fara varlega,“ sagði Frank á fréttamannafundi fyrir leikinn. „Þetta verður erfiður leikur en ég hef mikla trú á strákunum. Ég veit að þeir munu standa sig á laugardaginn. Hlutirnir þurfa að falla með okkur."

Thomas Frank
EPA
Fyrir leik
Dagskráin

Laugardagur
15:00 Aston Villa - Sunderland
15:00 Bournemouth - Nott. Forest
15:00 Chelsea - Leeds
15:00 Coventry - Crystal Palace
15:00 Tottenham - Ipswich Town
17:30 Newcastle - Arsenal

Sunnudagur
14:00 Hull City - Brighton
16:30 Liverpool - Man Utd

Mánudagur
20:00 Brentford - Everton

Fyrir leik
Coventry
EPA
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.