Man Utd hefur áhuga á Yoro - Osimhen í forgangi hjá Chelsea - Napoli, Juve og Atletico hafa áhuga á Greenwood
   mið 01. maí 2024 15:42
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Mjólkurbikar kvenna: Fram með öruggan sigur
Fram er komið áfram
Fram er komið áfram
Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Fram 5 - 1 ÍH
1-0 Þórey Björk Eyþórsdóttir ('2 )
2-0 Alda Ólafsdóttir ('36 )
3-0 Murielle Tiernan ('48 )
4-0 Eyrún Vala Harðardóttir ('49 )
4-1 Rakel Eva Bjarnadóttir ('83 )
5-1 Eva Stefánsdóttir ('84 )


Fram er komið áfram í 16 liða úrslit Mjólkurbikars kvenna eftir sigur á ÍH í dag.

Fram var með tveggja marka forystu í hálfleik en liðið gerði endanlega út um leikinn með tveimur mörkum strax í upphafi seinni hálfleiks.

Rakel Eva klóraði í bakkann fyrir ÍH áður en Eva Stefánsdóttir negldi síðasta naglann í kistu ÍH.

Fram er annað liðið til að tryggja sér sæti í 16 liða úrslitunum eftir að Grótta vann Hauka í gær.  Umferðinni lýkur í kvöld.


Athugasemdir
banner
banner
banner