Man Utd hefur áhuga á Yoro - Osimhen í forgangi hjá Chelsea - Napoli, Juve og Atletico hafa áhuga á Greenwood
banner
   mið 01. maí 2024 11:05
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Tuchel harðorður í garð Kim - „Giskaði bara"
Mynd: EPA

Kim Min-jae átti erfiðan dag á skrifstofunni í gær þegar Bayern gerði jafntefli við Real Madrid.


Thomas Tuchel gagnrýndi miðvörðinn harkalega eftir 2-2 jafntefli liðanna en Vinicius Junior skoraði bæði mörk Real Madrid, það síðara úr vítaspyrnu.

„Hann var of gráðugur tvisvar. Hann fór full snemma af stað í fyrsta markinu gegn Vinicius og Toni Kroos hnappaði hann svo út úr stöðu," sagði Tuchel.

„Hann giskaði bara og var of aggressívur. Í seinni markinu gerði hann því miður önnur mistök. Við vorum fimm á móti tveimur. Það var engin ástæða til að verjast svona harkalega gegn Rodrygo. Dier var við það að aðstoða hann en þá braut Kim á Rodrygo. Því miður er okkur refsað fyrir svona mistök gegn Real Madrid, svona gerist og við höldum áfram."


Athugasemdir
banner
banner
banner