Man Utd hefur áhuga á Yoro - Osimhen í forgangi hjá Chelsea - Napoli, Juve og Atletico hafa áhuga á Greenwood
   fös 03. maí 2024 07:30
Brynjar Ingi Erluson
Chelsea undirbýr nýtt tilboð í 'Messinho'
Mynd: EPA
Chelsea er að undirbúa nýtt og endurbætt tilboð í brasilíska leikmanninn Estevao 'Messinho' Willian, sem er á mála hjá Palmeiras í Brasilíu.

Willian er 17 ára gamall og er enn einn efnilegi leikmaðurinn sem kemur úr röðum Palmeiras.

Á síðasta ári samdi undrabarnið Endrick við Real Madrid, en hann mun ganga í raðir spænska félagsins í sumar.

Nú er röðin komin að Willian, sem hefur verið að heilla í heimalandinu.

UOL greinir frá því að Chelsea sé að undirbúa 55 milljóna punda tilboð í leikmanninn en Palmeiras hefur þegar hafnað tveimur tilboðum frá félaginu.

Arsenal, Barcelona og Paris Saint-Germain eru meðal þeirra félaga sem eru að berjast við Chelsea um kappann, en hann mun ekki geta spilað í Evrópu fyrr en í fyrsta lagi næsta sumar þar sem hann hefur ekki náð 18 ára aldri.
Athugasemdir
banner
banner
banner