Man Utd hefur áhuga á Yoro - Osimhen í forgangi hjá Chelsea - Napoli, Juve og Atletico hafa áhuga á Greenwood
   lau 04. maí 2024 08:15
Elvar Geir Magnússon
Lokaumferð Championship í dag - Ipswich stigi frá deild þeirra bestu
Ipswich er á barmi þess að komast upp.
Ipswich er á barmi þess að komast upp.
Mynd: Getty Images
Líklegast er að Leeds endi í umspilinu.
Líklegast er að Leeds endi í umspilinu.
Mynd: Getty Images
Arnór Sigurðsson er á meiðslalista Blackburn.
Arnór Sigurðsson er á meiðslalista Blackburn.
Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
Lokaumferð Championship-deildarinnar fer fram í dag laugardag en allir tólf leikirnir verða spilaðir á sama tíma og flautað til leiks klukkan 11:30.

Leicester City hefur þegar tryggt sér sigur í deildinni og sæti í úrvalsdeildinni. Liðið sem endar í öðru sæti fylgir þeim beint upp og þar er Ipswich Town í bílstjórasætinu.

Baráttan um að fylgja Leicester beint upp
11:30 Ipswich Town - Huddersfield
11:30 Leeds - Southampton

Ipswich endar í öðru sæti og fer beint upp ef liðið forðast tap gegn Huddersfield, eða ef Leeds mistekst að vinna Southampton.

Til að Leeds komist beint upp þarf liðið að vinna Southampton og treysta á að Huddersfield vinni Ipswich.

Baráttan um að komast í umspilið
11:30 Birmingham - Norwich
11:30 Plymouth - Hull City
11:30 West Brom - Preston NE

Liðin í sætum 3-6 munu mætast í umspili sem endar með úrslitaleik um síðasta lausa sætið í ensku úrvalsdeildinni. Leeds eða Ipswich munu enda í 3. sætinu og öruggt er að Southampton mun enda í fjórða sætinu. En það verður barist um fimmta og sjötta sætið.

Norwich kemst í umspilið ef liðið forðast tap gegn Birmingham. West Brom kemst í umspilið ef það það forðast tap gegn Preston. Hull kemst í umspilið ef liðið vinnur og annað hvort West Brom tapar eða Norwich tapar með átta marka sveiflu.

Fallbaráttan
11:30 Birmingham - Norwich
11:30 Leicester - Blackburn
11:30 Plymouth - Hull City
11:30 Sunderland - Sheff Wed
11:30 Ipswich Town - Huddersfield

Rotherham er fallið og Huddersfield svo gott sem líka. Birmingham er í 22. sæti en þrjú önnur lið eru líka í fallhættu.

Huddersfield á aðeins tölfræðilega möguleika á að bjarga sér, ekki raunhæfa. Liðið mun halda sæti sínu með sigri ef Plymouth tapar með sextán marka sveiflu auk þess sem Birmingham tapi.

Birmingham fellur ef liðið tapar. Liðið mun aðeins bjarga sér með sigri ef annað hvort Blackburn tapar, Sheff Wed tapar eða Plymouth nær ekki sigri. Liðið mun halda sér uppi með jafntefli ef Plymouth tapar með fimm marka mun.

Plymouth mun falla ef liðinu mistekst að vinna og Birmingham vinnur. Plymouth fellur einnig ef liðið tapar með fimm marka mun og Birmingham gerir jafntefli. Plymouth er öruggt með sæti sitt ef það vinnur.

Sheff Wed fellur ef liðið tapar og Birmingham og Plymouth vinna. Liðið er öruggt með sæti sitt ef það forðast fall.

Arnór Sigurðsson er á meiðslalista Blackburn sem mun falla ef liðið tapar, Birmingham og Plymouth vinna og Sheff Wed forðast fall. Blackburn er öruggt með sæti sitt ef liðið forðast tap.

Aðrir leikir í dag:
11:30 Coventry - QPR
11:30 Middlesbrough - Watford
11:30 Rotherham - Cardiff City
11:30 Stoke City - Bristol City
11:30 Swansea - Millwall
Stöðutaflan England Championship - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Leicester 46 31 4 11 89 41 +48 97
2 Ipswich Town 46 28 12 6 92 57 +35 96
3 Leeds 46 27 9 10 81 43 +38 90
4 Southampton 46 26 9 11 87 63 +24 87
5 West Brom 46 21 12 13 70 47 +23 75
6 Norwich 46 21 10 15 79 64 +15 73
7 Hull City 46 19 13 14 68 60 +8 70
8 Middlesbrough 46 20 9 17 71 62 +9 69
9 Coventry 46 17 13 16 70 59 +11 64
10 Preston NE 46 18 9 19 56 67 -11 63
11 Bristol City 46 17 11 18 53 51 +2 62
12 Cardiff City 46 19 5 22 53 70 -17 62
13 Millwall 46 16 11 19 45 55 -10 59
14 Swansea 46 15 12 19 59 65 -6 57
15 Watford 46 13 17 16 61 61 0 56
16 Sunderland 46 16 8 22 52 54 -2 56
17 Stoke City 46 15 11 20 49 60 -11 56
18 QPR 46 15 11 20 47 58 -11 56
19 Blackburn 46 14 11 21 60 74 -14 53
20 Sheff Wed 46 15 8 23 44 68 -24 53
21 Plymouth 46 13 12 21 59 70 -11 51
22 Birmingham 46 13 11 22 50 65 -15 50
23 Huddersfield 46 9 18 19 48 77 -29 45
24 Rotherham 46 5 12 29 37 89 -52 27
Athugasemdir
banner
banner
banner