Man Utd hefur áhuga á Yoro - Osimhen í forgangi hjá Chelsea - Napoli, Juve og Atletico hafa áhuga á Greenwood
   þri 30. apríl 2024 21:59
Brynjar Ingi Erluson
Elskar að spila með Gallagher - „Hann er vél“
Mynd: Getty Images
Ekvadorinn Moises Caicedo segist njóta þess að spila með enska leikmanninum Conor Gallagher á miðsvæði Chelsea.

Caicedo, sem er dýrasti leikmaður í sögu úrvalsdeildarinnar, hefur verið að spila á miðjunni með Gallagher og Enzo Fernandez á tímabilinu.

Á köflum hafa þeir spilað frábærlega saman en Caicedo hrósar Gallagher í hástert á heimasíðu Chelsea.

„Conor er eins og vél. Mér finnst gaman að spila með Conor og Enzo, en Conor er með öðruvísi eiginleika. Enzo er sóknarsinnaðri á meðan Conor er fremur varnarsinnaður og hjálpar mér mikið þegar við þurfum að endurheimta boltann. Það er geggjað að spila með þeim báðum,“ sagði Caicedo.

Tímabilið hjá Chelsea hefur verið vonbrigði til þessa. Annað árið í röð er liðið að missa af Meistaradeildarsæti og þá tapaði það úrslitum enska deildabikarsins gegn Liverpool í febrúar.
Athugasemdir
banner
banner
banner