Önnur umferð Mjólkurbikars kvenna hefst í kvöld með einum leik en umferðinni lýkur á morgun.
Haukar fær Gróttu í heimsókn í kvöld en heimakonur lögðu ÍR af velli í fyrstu umferð. Grótta vann HK í vítaspyrnukeppni eftir markalausan leik.
Haukar fóru ekki lengra í keppninni á síðustu leiktíð þar sem liðið tapaði í 2. umferð gegn Grindavík 6-1.
Grótta fór hins vegar einni umferð lengra en lenti þar á vegg gegn Stjörnunni og tapaði 9-1.
Leikur dagsins
Mjólkurbikar kvenna
17:30 Haukar-Grótta (BIRTU völlurinn)
Athugasemdir