Man Utd hefur áhuga á Yoro - Osimhen í forgangi hjá Chelsea - Napoli, Juve og Atletico hafa áhuga á Greenwood
   þri 30. apríl 2024 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Stefán Jón framlengir við Keflavík
Lengjudeildin
Stefán Jón í leik með Þrótti Vogum á síðustu leiktíð
Stefán Jón í leik með Þrótti Vogum á síðustu leiktíð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stefán Jón Friðriksson hefur framlengt samning sinn við Keflavík til ársins 2026.


Stefán er tvítugur miðjumaður og er uppalinn hjá Keflavík. Hann var sendur á lán til Þróttar Vogum síðasta sumar þar sem hann lék alla 22 leikina í 2. deild og skoraði tvö mörk.

Hann á að baki 46 leiki í meistaraflokki og hefur skorað fimm mörk.

Hann kom Keflvíkingum á bragðið með marki í 3-2 sigri gegn Víkingi Ólafsvík í 2. umferð Mjólkurbikarsins fyrr í þessum mánuði og spilaði allan leikinn þegar liðið vann frábæran sigur á Breiðablik í bikarnum á dögunum.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner