Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
banner
fimmtudagur 25. apríl
Mjólkurbikar karla
sunnudagur 21. apríl
Besta-deild karla
Besta-deild kvenna
föstudagur 19. apríl
Besta-deild karla
þriðjudagur 16. apríl
Meistarar meistaranna konur
mánudagur 15. apríl
Besta-deild karla
föstudagur 12. apríl
Besta-deild karla
þriðjudagur 9. apríl
Undankeppni EM kvenna
mánudagur 8. apríl
Besta-deild karla
föstudagur 5. apríl
Undankeppni EM kvenna
mánudagur 1. apríl
Meistarar meistaranna
sunnudagur 31. mars
Enska úrvalsdeildin
föstudagur 29. mars
Úrslitaleikur Lengjubikars kvenna
miðvikudagur 27. mars
Úrslitaleikur Lengjubikarsins
þriðjudagur 26. mars
Umspilsleikur um EM sæti
U21 karla - EM 25 undankeppni
fimmtudagur 21. mars
EM umspilið
miðvikudagur 20. mars
Lengjubikar karla - Undanúrslit
sunnudagur 10. mars
Enska úrvalsdeildin
þriðjudagur 27. febrúar
Landslið kvenna - Þjóðadeild umspil
föstudagur 23. febrúar
fimmtudagur 1. febrúar
Úrslitaleikur Reykjavíkurmótsins
fimmtudagur 18. janúar
Vináttulandsleikur
sunnudagur 14. janúar
fimmtudagur 14. desember
Sambandsdeild UEFA
föstudagur 8. desember
Úrslitaleikur Bose-mótsins
þriðjudagur 5. desember
Þjóðadeild kvenna
mánudagur 4. desember
Umspil fyrir HM U20
föstudagur 1. desember
Þjóðadeild kvenna
fimmtudagur 30. nóvember
Sambandsdeild UEFA
sunnudagur 19. nóvember
Undankeppni EM
fimmtudagur 9. nóvember
Sambandsdeild UEFA
þriðjudagur 31. október
Landslið kvenna - Þjóðadeild
föstudagur 27. október
fimmtudagur 26. október
Sambandsdeild UEFA
miðvikudagur 18. október
Forkeppni Meistaradeildar kvenna
þriðjudagur 17. október
Undankeppni EM
föstudagur 13. október
þriðjudagur 10. október
Meistaradeild kvenna
sunnudagur 8. október
Besta-deild karla - Efri hluti
fimmtudagur 5. október
Sambandsdeild UEFA
mánudagur 2. október
Besta-deild karla - Efri hluti
sunnudagur 1. október
Besta-deild karla - Neðri hluti
Besta-deild karla - Efri hluti
Besta-deild karla - Neðri hluti
föstudagur 29. september
Fótbolti.net bikarinn
þriðjudagur 26. september
Landslið kvenna - Þjóðadeild
mánudagur 25. september
Besta-deild karla - Efri hluti
sunnudagur 24. september
Besta-deild karla - Neðri hluti
Besta-deild karla - Efri hluti
Besta-deild karla - Neðri hluti
Lengjudeild karla - Umspil
laugardagur 23. september
Besta-deild karla - Neðri hluti
Fótbolti.net bikarinn
föstudagur 22. september
Landslið kvenna - Þjóðadeild
fimmtudagur 21. september
Sambandsdeildin
miðvikudagur 20. september
Besta-deild karla - Efri hluti
Lengjudeild karla - Umspil
Besta-deild karla - Neðri hluti
mánudagur 18. september
föstudagur 19. apríl
Super League - Women
Brighton W - Everton W - 18:00
Division 1 - Women
Paris W 0 - 1 Saint-Etienne W
Bundesligan
Eintracht Frankfurt - Augsburg - 18:30
Bundesliga - Women
RB Leipzig W - Bayer W - 16:30
Serie A
Cagliari - Juventus - 18:45
Genoa - Lazio - 16:30
Toppserien - Women
Lyn W - Lillestrom W - 16:00
Úrvalsdeildin
FK Krasnodar - Fakel - 16:00
La Liga
Athletic - Granada CF - 19:00
Damallsvenskan - Women
Norrkoping W - Djurgarden W - 17:00
Elitettan - Women
Umea W - Sunnana W - 17:00
fös 14.apr 2017 12:00 Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Magazine image

Spá Fótbolta.net - 10. sæti: ÍA

Skagamenn enduðu í 8. sæti í fyrra en ef spá okkar rætist verða þeir neðar í ár. Fréttaritarar spá í deildina en þeir raða liðunum upp í röð og það lið sem er í efsta sæti fær 12 stig, annað sæti 11 og svo koll af kolli niður í tólfta sæti sem gefur eitt stig. ÍA endar í 10. sæti í spánni.

Garðar Gunnlaugsson tók gullskóinn í fyrra.
Garðar Gunnlaugsson tók gullskóinn í fyrra.
Mynd/Fótbolti.net - Ingunn Hallgrímsdóttir
Tryggvi Hrafn skapaði sér nafn í fyrra.
Tryggvi Hrafn skapaði sér nafn í fyrra.
Mynd/Fótbolti.net - Ingunn Hallgrímsdóttir
Arnar Már Guðjónsson, miðjumaður ÍA.
Arnar Már Guðjónsson, miðjumaður ÍA.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ingvar Kale er kominn í markið.
Ingvar Kale er kominn í markið.
Mynd/Sævar Geir Sigurjónsson
Albert Hafsteinsson með boltann.
Albert Hafsteinsson með boltann.
Mynd/Fótbolti.net - J.L.
Gulir og glaðir.
Gulir og glaðir.
Mynd/Fótbolti.net - Ingunn Hallgrímsdóttir
Þórður Þorsteinn Þórðarson.
Þórður Þorsteinn Þórðarson.
Mynd/Fótbolti.net - J.L.
Spáin:
1. ?
2. ?
3. ?
4. ?
5. ?
6. ?
7. ?
8. ?
9. ?
10. ÍA 24 stig
11. Grindavík 19 stig
12. Víkingur Ólafsvík 10 stig

Um liðið: Skagamönnum hefur verið spáð fallbaráttu fyrir síðustu tvö tímabil. Í bæði skiptin hafa þeir hins vegar blásið á hrakspár og ekki verið í fallhættu undir lok móts. Tímabilið hjá ÍA var kaflaskipt í fyrra en að lokum endaði liðið í 8. sæti í Pepsi-deildinni.

Þjálfari – Gunnlaugur Jónsson: Gunnlaugur er Skagamaður út í gegn en hann spilaði lengi í vörn ÍA. Þjálfaraferill hans hófst á flakki en hann þjálfaði Selfoss, Val, KA og HK áður en hann tók við ÍA haustið 2013. Gunnlaugur kom ÍA upp úr 1. deildinni árið 2014 og hefur fest liðið í sessi í Pepsi-deildinni.

Skagahjartað ríkt í liðinu

Styrkleikar: Skagamenn hafa spilað vel á sínum styrkleikum undanfarin ár og Gunnlaugur hefur náð öllu út úr liðinu. Skagahjartað er ríkt í liðinu en margir uppaldir leikmenn eru að spila og samfélagið á Akranesi fylkir sig á bak við liðið. Í vetur tefldi ÍA meðal annars fram leikmannahópi í leik í Lengjubikarnum sem var einungis skipaður uppöldum leikmönnum. Skagamenn hafa markakónginn Garðar Gunnlaugsson innan sinna raða en hann og Tryggvi Hrafn Haraldsson mynda mjög öflugt sóknarteymi.

Veikleikar: Varnarleikurinn er risastórt spurningamerki fyrir sumarið. Ármann Smári Björnsson hefur verið algjör burðarás í vörninni undanfarin ár en hann lagði skóna á hilluna í vetur. Ármann hefur einnig verið fyrirliði og í stóru hlutverki í föstum leikatriðum sóknarlega. Fleiri breytingar hafa orðið á vörninni í vetur auk þess sem markvörðurinn Árni Snær Ólafsson sleit krossband. Fleiri leikmenn þurfa að skora og létta undir með Garðari en hann skoraði helming af mörkum liðsins í fyrra.

Lykilmenn: Garðar Gunnlaugsson og Ingvar Þór Kale. Garðar varð markakóngur í Pepsi-deildinni í fyrra en hann hefur dregið vagninn í sóknarleiknum hjá Skagamönnum undanfarin ár. Ingvar, sem hefur unnið bæði Íslands og bikarmeistaratitil á ferlinum, kemur inn í markið fyrir Árna Snæ og mikið mun mæða á honum í sumar.

Gaman að fylgjast með: Tryggvi Hrafn Haraldsson. Tryggvi kom sprækur inn í lið ÍA síðastliðið vor eftir að hafa byrjað tímabilið á láni hjá Kára á meðan hann var að koma til baka eftir meiðsli. Tryggvi skoraði einungi eitt mark en var duglegur að leggja upp og skapa hættu. Í vetur spilaði Tryggvi sinn fyrsta leik með íslenska landsliðinu og hann verður í stóru hlutverki í liði Skagamanna í sumar.

Spurningamerkið: Hversu vel ná Skagamenn að fylla skarð Ármanns Smára í vörninni? Pólski varnarmaðurinn Robert Menzel er mættur á Skagann og hans bíður stórt hlutverk í sumar.

Völlurinn: Þegar maður kemur á Akranesvöll myndast ávallt nostalgíutilfinning enda risaleikir í sögu íslenska boltans þar farið fram. Það er alltaf gaman að kíkja á völlinn á Skaganum en sérstaklega þegar sólin skín og maður getur legið í brekkunni. Enda margir heimamenn sem taka brekkuna alltaf fram yfir stúkuna þó ágæt sé.

„Mikil gerjun og bjartsýni hjá ungu strákunum."

Formaðurinn segir – Magnús Guðmundsson
„Ég tel að Skagamenn muni koma á óvart í sumar. Þeir hafa verið að byggja sig upp með heimamönnum og það mun koma fólki á óvart hversu vel ÍA mun ganga í sumar. ÍA endaði í áttunda sæti í fyrra og ég tel ekki nokkur spurning að liðið getur endað ofar eftir að hafa séð til þeirra í æfingum og leikjum í vetur. Það er mikil gerjun og bjartsýni hjá ungu strákunum og það mun skila okkur.“

Sjá einnig:
Gulli Jóns: Veturinn erfiður varðandi áföll
Hin hliðin - Tryggvi Hrafn Haraldsson
Ef þið tapið, þá getur þú einbeitt þér að þessum gítar!

Komnir:
Aron Ýmir Pétursson frá HK
Guðmundur Böðvar Guðjónsson frá Fjölni
Ingvar Þór Kale frá Val
Ragnar Mar Lárusson frá Kára
Rashid Yussuff frá Arka Gdynia
Robert Menzel frá Podbeskidzie Bielsko-Biala
Stefán Ómar Magnússon frá Hugin

Farnir:
Arnór Sigurðsson til Norrköping
Ármann Smári Björnsson hættur
Ásgeir Marteinsson í HK
Darren Lough til South Shields á Englandi
Eggert Kári Karlsson í Kára
Iain Williamson hættur
Jón Vilhelm Ákason

Leikmenn ÍA sumarið 2017:
1 Páll Gísli Jónsson
3 Aron Ingi Kristinsson
4 Arnór Snær Guðmundsson
5 Robert Menzel
6 Albert Hafsteinsson
7 Tryggvi Hrafn Haraldsson
8 Hallur Flosason
9 Garðar Bergmann Gunnlaugsson
11 Arnar Már Guðjónsson
12 Árni Snær Ólafsson
13 Sindri Snæfells Kristinsson
14 Ólafur Valur Valdimarsson
15 Hafþór Pétursson
16 Þórður Þ. Þórðarsson
17 Ragnar Már Lárusson
18 Rashid Yussuf
20 Gylfi Veigar Gylfason
21 Guðfinnur Leósson
22 Steinar Þorsteinsson
23 Aron Ýmir Pétursson
24 Árni Þór Árnason
26 Hilmar Halldórsson
27 Stefán Ómar Magnússon
29 Guðmundur Böðvar Guðjónsson
30 Guðmundur Sigurbjörnsson
31 Stefán Teitur Þórðarson
33 Ingvar Þór Kale

Leikir ÍA 2017:
30.apríl ÍA – FH
8.maí ÍA – Valur
14.maí KR – ÍA
22.maí ÍA – Grindavík
27.maí ÍBV – ÍA
5.júní ÍA – Breiðablik
4.júní KA – ÍA
19.júní ÍA – Fjölnir
24.júní Stjarnan – ÍA
10.júlí ÍA – Víkingur R
17.júlí Víkingur Ó – ÍA
23.júlí FH – ÍA
31.júlí Valur – ÍA
8.ágúst ÍA – KR
14.ágúst Grindavík – ÍA
20.ágúst ÍA – ÍBV
27.ágúst Breiðablik – ÍBV
10.sept ÍA – KA
14.sept Fjölnir – ÍA
17.sept ÍA – Stjarnan
24.sept Víkingur R – ÍA
30.sept ÍA – Víkingur Ó

Spámennirnir: Arnar Daði Arnarsson, Alexander Freyr Einarsson,
Brynjar Ingi Erluson, Elvar Geir Magnússon, Hafliði Breiðfjörð, Kristófer Kristjánsson, Magnús Már Einarsson, Magnús Þór Jónsson.
Athugasemdir
banner
banner