Real Madrid sýnir Mac Allister áhuga - Greenwood eftirsóttur - Mourinho til Tyrklands? - Slot vill fá Silva
   fim 09. maí 2024 07:00
Brynjar Ingi Erluson
Chelsea búið að ná munnlegu samkomulagi við 'Messinho'
Mynd: EPA
Chelsea hefur náð munnlegu samkoumlagi við Estevao 'Messinho' Willian, leikmann Palmeiras í Brasilíu. Fabrizio Romano greinir frá þessu.

Brasilíumaðurinn er einn sá efnilegasti í heimalandinu en hann er aðeins 17 ára gamall.

Á þessu tímabili hefur hann komið að 10 mörkum í 18 leikjum, en hann er sérstaklega góður að rekja boltann og með einstaklega mikinn hraða.

Enska félagið Chelsea hefur verið að leiða baráttuna um hann síðustu mánuði. Félagið hefur verið í viðræðum við Palmeiras síðasta hálfa árið, en það hafnaði tveimur tilboðum frá félaginu.

Fabrizio Romano segir að Chelsea hafi nú náð munnlegu samkomulagi við Estevao um kaup og kjör. Þá eru viðræður við Palmeiras komnar langt á veg.

Talið er að Chelsea þurfi að greiða um 47 milljónir punda fyrir leikmanninn.

Hann verður annað undrabarnið sem Palmeiras selur á innan við ári en félagið seldi Endrick til Real Madrid fyrir áramót.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner