Víkingar þurftu að gera sér að góðu 2-1 tap á heimavelli í Víkinni í dag þegar liðið beið lægri hlut fyrir Þór/KA á Heimavelli hamingjunar í Fossvogi í dag en leikurinn var liður í fjórðu umferð Bestu deildar kvenna. Selma Dögg Björgvinsdóttir fyrirliði þeirra var til viðtals við Fótbolta.net eftir leikinn. Aðspurð að því hvort færanýting hafði einna helst orðið Víkingsliðinu að falli í dag svaraði Selma.
Lestu um leikinn: Víkingur R. 1 - 2 Þór/KA
„Við fengum mjög mörg góð færi og klárlega hefðum við átt að nýta þau betur.“
Víkingsliðið kom af krafti inn í leikinn eftir að hafa mátt þola skell gegn Val í síðustu umferð. Fannst Selmu liðið koma vel gírað inn í leikinn?
„Já algjörlega, við tókum tapið gegn Val með okkur inn í þennan leik og ætluðum að mæta tvíefldar til leiks. Þór/KA er mjög gott lið og við stóðum í þeim. Þetta var mjög kaflaskiptur leikur og við áttum eins og við erum búin að nefna mjög góð færi.“
Sigurborg Katla Sveinbjörnsdóttir var ekki með liði Víkinga í dag eftir að hafa þurft að fara af velli gegn Val eftir höfuðhögg. Inn í markið í hennar stað var mætt Birta Guðlaugsdóttir. Um hennar frammistöðu sagði Selma.
„Birta var bara geggjuð, ég held að hún hafi lent í nótt. Það er bara frábært að hafa átt Birtu inni og eiginlega bara sem betur fer. Í síðasta leik vorum við ekki með varamarkmann og það er sterkt fyrir okkur að fá Birtu inn. “
Sagði Selma en allt viðtalið við hana má sjá hér að ofan
Athugasemdir