Real Madrid sýnir Mac Allister áhuga - Greenwood eftirsóttur - Mourinho til Tyrklands? - Slot vill fá Silva
   fim 09. maí 2024 15:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Tchouameni tæpur fyrir úrslitaleik Meistaradeildarinnar
Mynd: EPA

Aurelien Tchouameni miðjumaður Real Madrid verður líklega ekki með liðinu í úrslitaleik Meistaradeildarinnar þegar liðið mætir Dortmund þann 1. júní næstkomandi.


Tchouameni var í byrjunarliðinu þegar Real Madrid lagði Bayern í undanúrslitunum í gær en hann var tekinn af velli þegar rúmar tuttugu mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma vegna meiðsla.

Spænska félagið hefur greint frá því að það séu ansi litlar líkur á því að hann geti tekið þátt í úrslitaleiknum en hann verði að öllum líkindum klár í slaginn með Frakklandi á EM í Þýskalandi í sumar.

Real Madrid á eftir að spila gegn Alaves, Villarreal og Real Betis í deildinni en liðið hefur þegar tryggt sér spænska titilinn.


Athugasemdir
banner
banner
banner