Allegri orðaður við Man Utd - Modric að framlengja við Real Madrid
banner
   mið 20. september 2017 20:38
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Danmörk: Hjörtur spilaði í 5-1 sigri Bröndby
Mynd: Fótbolti.net - Jónína Guðjörg Guðbjartsdóttir
Ledoje-Smorum 1 - 5 Bröndby
1-0 S. Rasmussen ('30)
1-1 L. Vigen ('33)
1-2 B. Halimi ('56)
1-3 K. Wilczek ('71)
1-4 Sjálfsmark ('78)
1-5 L. Vigen ('86)

Hjörtur Hermannsson stóð vaktina í varnarlínu Bröndby í dönsku bikarkeppninni í kvöld.

Bröndby mætti Ledoje-Smorum í leik sem þeir áttu að vinna.

Bröndby lenti hins vegar 1-0 undir. Þeir voru þó fljótir að svara og unnu að lokum frekar öruggan 5-1 sigur.

Bröndby er ekki eina Íslendingaliðið sem komst áfram í dönsku bikarkeppninni í kvöld. Randers og Lyngby komust einnig áfram, en Kjartan Henry Finnbogason og félagar hans í Horsens eru úr leik.
Athugasemdir
banner
banner
banner