Allegri orðaður við Man Utd - Modric að framlengja við Real Madrid
Úlfur: Þetta var scrappy leikur
Dragan: Má ekki gleyma að okkur var spáð 12. sæti
Fúsi: Sýnum hverjir eiga Breiðholtið ennþá
Arnar Helgi: Stundum þarf maður bara að vinna þessa iðnaðarsigra
Árni Freyr: Hefði verið sanngjarnt ef hvorugt lið hefði fengið stig
SIgurvin: Mjög sárt að fá þessa tusku í andlitið
Gunnar Heiðar: Við erum stórhættulegir í skyndisóknum
Maggi: Stoltur af því hvernig við tækluðum þennan leik
Rúnar Kristins: Vinnum ekki fleiri leiki ef við spilum svona
Addi Grétars um dómsmálið við KA: Ég vona bara að menn láti hér við sitja
Ekkert helgarfrí í fyrsta sinn á árinu - „Verðum þar í hádeginu stelpur“
Adam Páls: Ég er Valsari dauðans
Brynjar Björn ánægður með frammistöðuna: Breytir því ekki að við dettum út úr bikarnum
Mörkin gáfu þeim sjálfstraust - „Við ætluðum að keyra meira á þá“
Pirraður Gregg Ryder: Það þurfa 11 leikmenn að stíga upp
Ari hefur aldrei tapað bikarleik: Erum með sigurvegara í þessu liði
Rúnar Páll: Þetta var kærkomið
Besta frammistaða sumarsins - „Það skellihlógu allir“
Arnar hatar þessa leiki: Ef ég vissi svarið þá væri ég milljarðamæringur
„Þurftum að fá svör og láta þá spreyta sig á móti góðu liði og ákváðum að nota bikarinn í það."
banner
   sun 21. júní 2015 22:20
Tómas Meyer
Kaplakrikavelli
Heimir Guðjóns: Erfitt að segja um það Tómas Meyer
Heimir Guðjónsson þjálfari FH.
Heimir Guðjónsson þjálfari FH.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Mér líður ágætlega yfir því að hafa fengið eitt stig, en ekkert yfir spilamennskunni," sagði Heimir Guðjónsson þjálfari FH eftir 1-1 jafntefli gegn Breiðablik á heimavelli í kvöld.

Kassim Doumbia skoraði jöfnunarmarkið fyrir FH á 94. mínútu með skalla eftir hornspyrnu.

Lestu um leikinn: FH 1 -  1 Breiðablik

„Það er aldrei spurt að því í fótbolta, hvað þú átt skilið og hvað ekki. Við héldum áfram eftir að Breiðablik skoraði. Við sýndum smá karakter og komum til baka," sagði Hemir sem var eins og fyrr segir, ekkert rosalega ánægður með spilamennsku sinna manna í leiknum.

„Við héldum ekki boltanum nægilega vel innan liðsins. Í fyrri hálfleik fannst mér eins og boltinn væri eldhnöttur. Við vorum að missa boltann of langt frá okkur og náðum engu floti í spilinu okkar. Það voru aðal vandræðin. Blikarnir náðu auðveldlega að loka á það sem við vorum að gera," sagði Heimir Guðjónsson þjálfari FH.

Viðtalið í heild sinni er hægt að sjá í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner