Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   mið 27. júlí 2011 23:33
Alexander Freyr Tamimi
Umfjöllun: Fjörugar lokamínútur í Grafarvogi
Jafnt var í leik Fjölnis og BÍ/Bolungarvíkur í kvöld.
Jafnt var í leik Fjölnis og BÍ/Bolungarvíkur í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Torfi Jóhannsson
Tomi Ameobi fékk nokkur góð færi en komst þó ekki á blað í kvöld.
Tomi Ameobi fékk nokkur góð færi en komst þó ekki á blað í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Torfi Jóhannsson
Fyrirliðinn Gunnar Már Elíasson á hér skalla sem fór rétt framhjá.
Fyrirliðinn Gunnar Már Elíasson á hér skalla sem fór rétt framhjá.
Mynd: Fótbolti.net - Torfi Jóhannsson
Mynd: Fótbolti.net - Torfi Jóhannsson
Fjönir 1 – 1 BÍ/Bolungarvík
0-1 Nicolas Deverdic (´81)
1-1 Marínó Þór Jakobsson (´90)

Jafntefli var niðurstaðan í baráttuleik Fjölnis og BÍ/Bolungarvíkur í 1. deild karla í kvöld í Grafarvoginum. Bæði lið þurftu helst á sigri að halda til að blanda sér inn í baráttuna um úrvalsdeildarsæti en þurftu að sætta sig við sitt stigið hvort.

Gestirnir byrjuðu leikinn betur og pressuðu að marki Fjölnismanna. Þeir áttu nokkra hættulega bolta inn í teiginn og úr einum þeirra varð hornspyrna. Boltinn kom inn í teiginn og datt fyrir sóknarmann BÍ/Bolungarvíkur en Fjölnismenn náðu með naumindum að bjarga.

Fjölnismenn fengu líka ágætis færi eftir góða fyrirgjöf frá Guðmundi Karli Guðmundssyni en þeim tókst ekki að gera sér mat úr því þrátt fyrir frábæran undirbúning hjá Guðmundi.

Annars var heldur lítið að gerast í leiknum. Vestfirðingar byrjuðu betur en eftir stundarfjórðung tæpan fór leikurinbn að jafnast og Fjölnismenn komust betur í takt við það sem var að gerast. Í raun tóku þeir bara völdin eftir því sem leið á hálfleikinn og vantaði oft bara hársbreidd til að fullkomna sóknir sínar.

Það voru hins vegar BÍ/Bolungarvík sem fengu færi leiksins fram að þessu á 26. mínútu þegar Tomi Ameobi átti frábæra fyrirgjöf inn í teiginn sem fyrirliðinn Gunnar Már Elíasson skallaði naumlega framhjá úr dauðafæri.

Skömmu síðar komst Tomi Ameobi nánast einn gegn Steinari Erni Gunnarssyni í markinu en skot Ameobi fór yfir markið. Steinar Örn var að spila sinn fyrsta leik fyrir Fjölni eftir að hafa verið kallaður til baka úr láni frá Aftureldingu.

Á 36. mínútu áttu Fjölnismenn frábæra sókn sem endaði með því að boltinn barst til Illuga Þórs Gunnarssonar en skot hans var slakt og fór beint á Þórð Ingason í markinu.

Staðan var enn markalaus þegar flautað var til leikhlés en bæði lið höfðu átt ágætis færi til að ná forystunni, færi Vestfirðinganna voru þó betri.

Eftir rúmar átta mínútur í seinni hálfleik fengu Fjölnismenn sannkallað dauðafæri þegar Kristinn Freyr Sigurðsson átti aukaspyrnu við hliðarlínuna. Boltinn var frábær og fór inn í teiginn þar sem mikið klafs átti sér stað, en yfir marklínuna vildi boltinn ekki.

Í næstu sókn gestanna átti Skástrikið svo einnig fínt færi en þá átti Kevin Brown þrumuskot en Steinar í markinu varði glæsilega.

Leikurinn var aðeins farinn að opnast og skömmu síðar átti Otto Marínó Ingason þrumuskot úr ágætis færi fyrir utan teiginn en boltinn fór rétt yfir mark gestanna.

Eftir rúma klukkustund fengu heimamenn aukaspyrnu á stórhættulegum stað rétt fyrir utan vítateig, fyrir brot sem virtist reyndar vera framið inni í teignum. Spyrnan var hins vegar ekki góð og var aldrei á leiðinni á markið.

Fjölnismenn sóttu vel í sig veðrið eftir því sem leið á seinni hálfleik og voru nánast einvaldir með boltann. Þeir hefðu mögulega átt að fá vítaspyrnu þegar það var keyrt inn í Kristin Frey inni í teignum en ekkert var dæmt.

Skömmu síðar átti Ómar Hákonarson skot í hliðarnetið úr dauðafæri eftir fína sókn heimamanna, sem virtust ákveðnari en gestirnir í að taka stigin þrjú.

Gestirnir voru hins vegar hársbreidd frá því að taka völdin þegar Colin Marshall átti lúmskt skot sem fór naumlega framhjá marki heimamanna með viðkomu í varnarmanni. Úr hornspyrnunni náði Tomi Ameobi skot sem fór naumlega framhjá.

Gestirnir náðu hins vegar forystunni með einu flottasta skoti sumarsins fram að þessu, en Nicolas Deverdic átti þá góðan sprett upp völlinn áður en hann þrumaði knettinum í netið. Stórglæsilegt skot og gersamlega óverjandi fyrir Steinar í marki Fjölnis.

Örfáum mínútum síðar átti Deverdic annað þrumuskot eftir klaufagang í vörn heimamanna en Steinar varði glæsilega í hornspyrnu.

Þegar tvær mínútur voru eftir átti varamaðurinn Matthías Kroknes Jóhannsson að tvöfalda forystu Skástriksins þegar hann komst einn í gegn og stakk varnarmenn Fjölnis af á frábærum spretti. Skot Matthíasar geigaði hins vegar og fór beint á Steinar í markinu.

Á lokamínútu leiksins urðu Fjölnismenn bálreiðir þegar Kristinn Freyr Sigurðsson átti þrumuskot í slána og niður, en þeir vildu meina að boltinn hefði farið yfir marklínuna. Leiknir Ágústsson dómari og Andri Vigfússon aðstoðardómari voru þó ekki sammála því og því var staðan enn 1-0 fyrir BÍ/Bolungarvík.

Fjölnismönnum tókst þó að jafna metin í uppbótartíma en þá skoraði varamaðurinn Marínó Þór Jakobsson flott mark með þrumuskoti utan teigsins. Glæsilegt mark hjá Marínó og ekki mátti seinna vænna, því að Leiknir Ágústsson dómari flautaði til leiksloka um leið og gestirnir tóku miðjuna.

Lokatölur voru því 1-1, sem má kannski segja að hafi verið sanngjörn úrslit. Eftir þennan leik fer Fjölnir upp í 6. sætið þar sem þeir eru með 20 stig, BÍ/Bolungarvík er hins vegar enn í 4. sætinu með stigi meira.

Fjölnir 4-4-2:
Steinar Örn Gunnarsson
Gunnar Valur Gunnarsson - Geir Kristinsson - Bergsveinn Ólafsson - Kolbeinn Kristinsson
llugi Þór Gunnarsson - Ottó Marinó Ingason - Halldór Fannar Halldórsson - Guðmundur Karl Guðmundsson
Ómar Hákonarson - Kristinn Freyr Sigurðsson

Skiptingar:
Marínó Þór Jakobsson inn fyrir Halldór Fannar Halldórsson (´69)
Bjarni Gunnarsson inn fyrir Guðmund Karl Guðmundsson (´82)
Felix Hjálmarsson inn fyrir Ómar Hákonarson (´90)


BÍ/Bolungarvík 4-5-1:
Þórður Ingason
Loic Mbang Ondo - Atli Guðjónsson - Zoran Stamenic - Kevin Brown
Gunnar Már Elíasson Sigurgeir Sveinn Gíslason - Hafþór Atli Agnarsson - Nicholas Deverdics
Colin Marshall
Tomi Ameobi

Skiptingar:
Michael Abnett inn fyrir Zoran Stamenic (´42)
Matthías Kroknes Jóhannsson inn fyrir Hafþór Atla Agnarsson (´74)

Gul spjöld: Halldór Fannar Halldórsson (Fjölni)

Dómari: Leiknir Ágústsson, sæmilegur

Aðstæður: Ekkert sérstakt veður.
banner
banner
banner
banner