sun 11. mars 2012 22:28
Daníel Freyr Jónsson
Heimild: Sky Sports 
Luis Suárez: Ég gæti farið til PSG
Mynd: Getty Images
Luis Suárez, framherji Liverpool, hefur verið orðaður við PSG í Frakklandi undanfarnar vikur. Hann segir sjálfur að hann gæti farið til liðsins ef honum byðist það. Hjá PSG myndi Suárez hitta samlanda sinn frá Úrúgvæ, Diego Lugano, en það lýst framherjanum vel á.

,,Já, ég gæti farið til PSG, líkt og til margra stórra liða," segir Suárez. 

,,Það eru mörg félög sem eru mikils metin sem vilja byggja upp lið og PSG er eitt af þeim. Þeir kaupa til að styrkja liðið."

,,Ég myndi elska ef við (hann og Lugano) gætum spilað saman," sagði Suárez að lokum.

Þrátt fyrir áhuga PSG og þessi orð Suárez segir Kenny Dalgslish, stjóri Liverpool, hann þó ekki til sölu.

,,Enginn hefur talað við okkur, en það myndi líka ekki breyta neinu. Við myndum ekki svara þeim (PSG) ef það kæmi símtal," sagði Dalglish. 
Athugasemdir
banner
banner
banner