Man Utd hefur áhuga á Yoro - Osimhen í forgangi hjá Chelsea - Napoli, Juve og Atletico hafa áhuga á Greenwood
   fös 09. maí 2014 17:30
Magnús Már Einarsson
BÍ/Bolungarvík fær Þjóðverja og Kýpverja (Staðfest)
Jörundur Áki Sveinsson þjálfari BÍ/Bolungarvíkur.
Jörundur Áki Sveinsson þjálfari BÍ/Bolungarvíkur.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
BÍ/Bolungarvík hefur fengið liðsstyrk fyrir átökin í 1. deildinni í sumar en Andreas Pachipis og Fabian Broich hafa gengið til liðs við félagið.

Broich er þýskur markvörður en hann hefur leikið í háskólaboltanum í Bandaríkjunum.

Pachipis er miðjumaður frá Kýpur en hann hefur verið í U19 ára landsliði þeirra.

Í vetur hefur hann æft með Blackpool á Englandi.

Báðir leikmennirnir eru komnir til landsins og verða í leikmannahópi BÍ/Bolungarvíkur þegar liðið fær Tindastól í heimsókn í 1. umferðinni í 1. deildinni á morgun.
Athugasemdir
banner
banner
banner