Ingibjörg Sigurðardóttir, miðvörður Breiðabliks, spilaði við ásamt liðsfélögum sínum við Rosengard í seinni leik liðanna í 32-liða úrslitum Meistaradeildarinnar.
Rosengard komsst áfram úr einvíginu eftir 1-0 sigur á Kópavogsvelli en leikurinn í dag endaði markalaus.
Marta, besta knattspyrnukona allra tíma leikur með Rosengard en hún hefur fimm sinnum verið kosin leikmaður ársins.
Eitthvað fór sú brasilíska í taugarnar á Ingibjörgu því hún tísti eftir leik að hún hafi sagt „What the fuck is wrong with you," eða „Hvað í andskotanum er að þér," við Mörtu. Ekki fylgir sögunni, hvers vegna þessi orðaskipti áttu sér stað.
Sagði „what the fuck is wrong with you" við bestu fótboltakonu allra tíma áðan......😎
— Ingibjörg Sigurðar. (@ingibjorg25) October 12, 2016
Athugasemdir