Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   lau 23. nóvember 2019 22:40
Brynjar Ingi Erluson
Bale fékk óblíðar móttökur frá stuðningsmönnum Real Madrid
Gareth Bale og Martin Ödegaard í leiknum í kvöld
Gareth Bale og Martin Ödegaard í leiknum í kvöld
Mynd: Getty Images
Velski landsliðsmaðurinn Gareth Bale fékk óblíðar móttökur er hann kom inná í 3-1 sigri Real Madrid á Real Sociedad í spænsku deildinni í kvöld.

Bale fagnaði EM-sæti Wales á dögunum með því að dansa með fána sem vísaði í forgangsröðun Bale.

Á fánanum stóð "Wales. Golf. Madrid - In That Order" sem vísaði í forgangsröðunina en Bale hafði gaman af.

Hann kom inná sem varamaður í leiknum gegn Sociedad í kvöld og stuðningsmenn Real Madrid bauluðu á hann og voru með skilti sem vísaði í þeirra forgangsröðun.

Þeir kjósa frekar að hafa Rodrygo, Vinicius Junior og Lucas Vazquez á undan Bale í goggunarröðinni en hægt er að sjá myndband af því er Bale kom inná í kvöld.


Athugasemdir
banner
banner