Real Madrid og Liverpool hafa áhuga á Olise - Tottenham á eftir Wharton
Víkingur R.
1
2
Stjarnan
0-1 Emil Atlason '1
0-2 Hilmar Árni Halldórsson '54
Nikolaj Hansen '57 1-2
Nikolaj Hansen '87
30.07.2020  -  20:00
Víkingsvöllur
Mjólkurbikar karla
Aðstæður: Sólin skín, hægur vindur og aðstæður prýðilegar
Dómari: Þorvaldur Árnason
Maður leiksins: Brynjar Gauti Guðjónsson
Byrjunarlið:
1. Ingvar Jónsson (m)
Sölvi Ottesen
Halldór Smári Sigurðsson ('45)
Kári Árnason ('90)
7. Erlingur Agnarsson ('77)
10. Óttar Magnús Karlsson
17. Atli Barkarson
20. Júlíus Magnússon (f) ('77)
22. Ágúst Eðvald Hlynsson
23. Nikolaj Hansen
24. Davíð Örn Atlason
- Meðalaldur 33 ár

Varamenn:
8. Viktor Örlygur Andrason ('45)
9. Helgi Guðjónsson ('77)
11. Dofri Snorrason
28. Halldór Jón Sigurður Þórðarson ('90)
77. Atli Hrafn Andrason
80. Kristall Máni Ingason ('77)
- Meðalaldur 26 ár

Liðsstjórn:
Arnar Gunnlaugsson (Þ)
Einar Guðnason (Þ)
Hajrudin Cardaklija (MÞ)
Fannar Helgi Rúnarsson
Þórður Ingason
Guðjón Örn Ingólfsson
Ísak Jónsson Guðmann

Gul spjöld:
Nikolaj Hansen ('45)

Rauð spjöld:
Nikolaj Hansen ('87)
Skýrslan
@SEinarsson Sverrir Örn Einarsson
Skýrslan: Bikarmeistararnir úr leik
Hvað réði úrslitum?
Víkingar virtust hreinlega ekki hafa tekið eftir því að Þorvaldur hafi flautað leikinn á fyrr en eftir að Emi Atlason hafði skorað eftir rétt um mínútu. Tvenn klaufaleg varnarmistök leiddu af sér mark og að gefa liði eins og Stjörnunni forgjöf veit aldrei á gott. Stjarnan spilaði leikinn af skynsemi og er heilt yfir sanngjarn sigurvegari.
Bestu leikmenn
1. Brynjar Gauti Guðjónsson
Eins og klettur í vörn Stjörnunar í kvöld með sárabindið sitt sem hann fékk eftir viðskipti við Kára Árnason. Skilið virkilega góðu dagsverki í vörninni.
2. Alex Þór Hauksson
Gríðarleg vinnsla fyrst og fremst og ataðist í miðjumönnum Víkinga og drap niður tempóið í þeirra spili,
Atvikið
Rauða spjald Nikolaj Hansen var síðasta hálmstráið fyrir Víkinga sem höfðu legið talsvert á Stjörnunni í aðdraganda þess. Í lýsingunni tala ég um réttmætt gult spjald en eftir endursýningar sýnist mér að Þorvaldur hafi gert mistök. Niko er vissulega með hendurnar út frá sér þegar hann kassar boltann niður en í algjörlega náttúrulegri stöðu fyrir því. Réði alls ekki úrslitum en reyndist Víkingum en erfiðara að ætla sér að brjóta niður vörn Stjörnunar manni færri.
Hvað þýða úrslitin?
Stjarnan er áfram í Mjólkurbikarnum en Víkingar ekki. Bikarinn fær því annað heimili en Víkina í haust.
Vondur dagur
Halldór Smári Sigurðsson átti í basli í fyrri hálfleiknum og var tekin af velli í hálfleik. Ekki við hann að sakast um það þar sem hann er að stíga upp úr meiðslum og virkaði einfaldlega ekki klár.
Dómarinn - 5
Þorvaldur var á fínni braut í 70 mínútur í leiknum ef frá er talið olnbogi frá Hilmari Árna sem átti alltaf að vera spjald. Algjört óviljaverk hjá Hilmari þó sem er prýðisdrengur. Eftir 70 mínútur virkaði Þorvaldur hins vegar örþreyttur og línan fór í furðulegar áttir hjá honum sem bitnaði þó á báðum liðum. Set spurningarmerki við það að setja dómara sem er að ná sér í gang aftur á svona high intensity leik.
Byrjunarlið:
Brynjar Gauti Guðjónsson
Haraldur Björnsson
Hilmar Árni Halldórsson
2. Heiðar Ægisson
3. Jósef Kristinn Jósefsson ('82)
5. Guðjón Pétur Lýðsson ('82)
8. Halldór Orri Björnsson ('67)
9. Daníel Laxdal
11. Þorsteinn Már Ragnarsson
22. Emil Atlason (f) ('74)
29. Alex Þór Hauksson
- Meðalaldur 31 ár

Varamenn:
23. Vignir Jóhannesson (m)
4. Jóhann Laxdal ('82)
18. Sölvi Snær Guðbjargarson ('74)
20. Eyjólfur Héðinsson ('67)
21. Elís Rafn Björnsson ('82)
77. Kristófer Konráðsson

Liðsstjórn:
Ólafur Jóhannesson (Þ)
Rúnar Páll Sigmundsson (Þ)
Rajko Stanisic (MÞ)
Þórarinn Ingi Valdimarsson
Halldór Svavar Sigurðsson
Björn Berg Bryde
Davíð Sævarsson

Gul spjöld:
Halldór Orri Björnsson ('31)

Rauð spjöld: