Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
Mjólkurbikar karla
Þróttur R.
19:15 0
0
HK
Mjólkurbikar karla
Valur
19:15 0
0
FH
Mjólkurbikar karla
19:15 0
0
KR
HK
1
2
Valur
Ásgeir Marteinsson '48 1-0
1-1 Lasse Petry '73
1-2 Birnir Snær Ingason '90
30.06.2019  -  19:15
Kórinn
Pepsi Max-deild karla
Aðstæður: Kórinn, nuff said.
Dómari: Pétur Guðmundsson
Áhorfendur: 1170
Maður leiksins: Lasse Petry
Byrjunarlið:
25. Arnar Freyr Ólafsson (m)
Bjarni Gunnarsson
2. Ásgeir Börkur Ásgeirsson
4. Leifur Andri Leifsson (f)
6. Birkir Valur Jónsson
8. Arnþór Ari Atlason
10. Ásgeir Marteinsson ('87)
14. Hörður Árnason
17. Valgeir Valgeirsson ('79)
18. Atli Arnarson
24. Björn Berg Bryde

Varamenn:
1. Sigurður Hrannar Björnsson (m)
5. Guðmundur Þór Júlíusson
9. Brynjar Jónasson
16. Emil Atlason ('87)
17. Kári Pétursson ('79) ('90)
19. Arian Ari Morina
26. Aron Kári Aðalsteinsson ('90)

Liðsstjórn:
Brynjar Björn Gunnarsson (Þ)
Gunnþór Hermannsson
Þjóðólfur Gunnarsson
Viktor Bjarki Arnarsson
Alma Rún Kristmannsdóttir
Sandor Matus

Gul spjöld:
Valgeir Valgeirsson ('56)
Arian Ari Morina ('58)

Rauð spjöld:
@maggimark Magnús Þór Jónsson
Skýrslan: Birnir braut HK-hjörtu djúpt í uppbótartíma
Hvað réði úrslitum?
Smávægileg mistök HK manna sem fengu ofboðslega harða refsingu þegar 6 mínútur voru komnar af uppbótartíma. Ein misheppnuð sending í sókn heimamanna étin, langur bolti upp völlinn bauð Birni Snæ upp í dans sem hann þáði.
Bestu leikmenn
1. Lasse Petry
Margt verið um miðjumanninn danska rætt en hann var bestur Valsara í kvöld. Gerir jöfnunarmarkið þegar óskaplega lítið var í gangi og þegar Valsmenn ná tökum á leiknum í lokin þá er hann að toga í lykilspottana.
2. Björn Berg Bryde
Val á milli hafsenta HK hér með sæti númer tvö. Voru hreint galgeggjaðir í hjarta varnar sem stóð eiginlega öll áhlaup Valsara af sér, bæði mörkin langskot. Beinlínis sárt fyrir þá líkamlega held ég félagana að hafa ekki náð stigi.
Atvikið
Þetta mark sem skildi í lokin stendur uppúr mjög bragðdaufum leik. Birnir Snær hefur alls ekki náð sér í gang hjá Val en það vita allir hvaða gæði búa í honum sem leikmanni og þegar hann fékk boltann var mikið verk óunnið þegar hann æddi af stað á vörn HK og klíndi boltann í fjær með síðustu snertingu leiksins. Ferskjuskot (peach of a shot) ef eitthvað svoleiðis er til.
Hvað þýða úrslitin?
Valsmenn eru komnir "á fyrri blaðsíðuna" í PepsiMax-deildinni með þessum sigri, lyfta sér upp í 6.sætið. HK eru enn í næstneðsta sæti, 2 stigum frá öruggu sæti.
Vondur dagur
Bakverðir Vals eru sannkallaðir gæðaleikmenn, ótrúlega reynslumiklir og hafa unnið titla. Það er örugglega ósanngjarnt að pikka þá út í þetta horn hér hjá okkur á .net en það er líka gert vegna þess hversu háa standarda þeir hafa sett á sjálfa sig. Það er orðið erfiðara hjá þeim félögum Bjarna og Birki að fara fram og til baka upp vængina og alltof mikið af sendingasénsum fóru illa. Þegar þeir hrökkva í gamla gírinn mun endurreisn Vals fara enn ofar held ég.
Dómarinn - 8,0
Óskaplega rólegur leikur að dæma hjá Pétri og félögum. Hélt línu í gegnum leikinn að mestu en þegar ekki verða nein stór atvik þá fær maður nú ekki meira en þetta í einkunn. Þægilegur dagur á dómaraskrifstofunni.
Byrjunarlið:
1. Hannes Þór Halldórsson (m)
Haukur Páll Sigurðsson
2. Birkir Már Sævarsson
6. Sebastian Hedlund
10. Kristinn Freyr Sigurðsson
11. Sigurður Egill Lárusson ('77)
17. Andri Adolphsson ('70)
18. Lasse Petry
21. Bjarni Ólafur Eiríksson
23. Eiður Aron Sigurbjörnsson
28. Emil Lyng ('59)

Varamenn:
33. Anton Ari Einarsson (m)
3. Ívar Örn Jónsson
4. Einar Karl Ingvarsson
8. Kristinn Ingi Halldórsson ('59)
18. Birnir Snær Ingason ('77)
20. Orri Sigurður Ómarsson
77. Kaj Leo í Bartalsstovu ('70)

Liðsstjórn:
Ólafur Jóhannesson (Þ)
Rajko Stanisic
Sigurbjörn Örn Hreiðarsson
Halldór Eyþórsson
Fannar Gauti Dagbjartsson
Einar Óli Þorvarðarson
Kristófer Sigurgeirsson

Gul spjöld:
Haukur Páll Sigurðsson ('90)

Rauð spjöld: