Man City gerir tilboð í Olmo - Barcelona reynir líka að fá spænska landsliðsmanninn - Wan-Bissaka vill ekki fara til West Ham
Lengjudeild karla
Fjölnir
LL 1
1
Dalvík/Reynir
Besta-deild kvenna
Breiðablik
LL 1
0
Fylkir
Besta-deild kvenna
Víkingur R.
LL 0
0
Þróttur R.
Fjölnir
1
0
Leiknir R.
Dagur Ingi Axelsson '28 1-0
10.05.2024  -  18:00
Egilshöll
Lengjudeild karla
Aðstæður: Hlýtt og fínt inni í Egilshöll
Dómari: Gunnar Freyr Róbertsson (8)
Áhorfendur: 504
Maður leiksins: Baldvin Þór Berndsen
Byrjunarlið:
26. Halldór Snær Georgsson (m)
3. Reynir Haraldsson
4. Júlíus Mar Júlíusson
5. Dagur Austmann
7. Dagur Ingi Axelsson
10. Axel Freyr Harðarson
11. Jónatan Guðni Arnarsson ('64)
14. Daníel Ingvar Ingvarsson ('80)
22. Baldvin Þór Berndsen
29. Guðmundur Karl Guðmundsson (f)
88. Kristófer Dagur Arnarsson ('87)

Varamenn:
25. Sigurjón Daði Harðarson (m)
6. Sigurvin Reynisson ('64)
8. Óliver Dagur Thorlacius ('80)
9. Máni Austmann Hilmarsson
17. Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson ('87)
20. Bjarni Þór Hafstein
27. Sölvi Sigmarsson

Liðsstjórn:
Úlfur Arnar Jökulsson (Þ)
Gunnar Sigurðsson
Kári Arnórsson
Einar Jóhannes Finnbogason
Ragnheiður Lóa Stefánsdóttir

Gul spjöld:
Guðmundur Karl Guðmundsson ('47)
Dagur Austmann ('51)
Baldvin Þór Berndsen ('52)
Daníel Ingvar Ingvarsson ('80)
Sigurvin Reynisson ('80)

Rauð spjöld:
@saebjornth Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Skýrslan: Þurfa að fá uppskriftina frá El Normale fyrir næsta leik
Hvað réði úrslitum?
Mér fannst ekki vera mikið af dauðafærum í leiknum en þegar menn ná sóknarfrákasti djúpt inni í vítateig er það oftast gott færi. Dagur Ingi gerði vel að ná frákastinu og kláraði framhjá Viktori í markinu. Bæði lið gátu alveg skorað það sem eftir lifði leiks en það kæmir mér á óvart ef liðin voru að fá mikið yfir 1 í xG. Þetta var nokkuð lokað og svolítið mikil skák í gangi.
Bestu leikmenn
1. Baldvin Þór Berndsen
Af tveimur góðum fannst mér Baldvin skör framar en Júlíus í þessum leik. Hann og Júlli lokuðu vel á markahrókinn Omar Sowe í leiknum.
2. Dagur Ingi Axelsson
Sást meira í fyrri hálfleiknum en þeim seinni. Býr yfir miklum hraða sem Fjölnismenn hefðu mögulega getað nýtt sér enn meira. Góð afgreiðsla og heilt yfir fín frammistaða hægra megin í sóknarlínunni.
Atvikið
Sigurmarkið er stórt atvik og svo var athyglisvert atvik í restina þegar markvörður Fjölnis þrumaði boltanum upp í loft þegar Leiknismenn voru að leita að jöfnumarmarki. Halldór neitar fyrir það að þetta hafi verið viljandi en það var allavega ansi hentugt fyrir Fjölni.
Hvað þýða úrslitin?
Fjölnir er með fullt hús stiga en Leiknir er áfram án sigurs. Fjölnir hefur ekki tapað fyrir Leikni í Grafarvogi síðan 1998. Óskar Alfreðsson, El Normale, skoraði tvö mörk í síðasta sigri Leiknis í Grafarvogi.
Vondur dagur
Það voru vonbrigði hversu passíf bæði lið voru í dag, í hreinskilni fannst mér þetta frekar gæðalítið og dautt allt saman og kannski orsakast það af því að menn eru enn að spila sig í takt. Það voru tækifæri á að búa til færi og jafnvel dauðafæri en menn voru einhvern veginn ekki að tengja. Axel Freyr hefði hæglega með sínum upphlaupum getað skapað meira en virtist stundum gleyma því að taka ákvörðun og hljóp sig þá í vesen, efnilegir sprettir sem vantar aðeins að fínstilla. Sóknarleikur Leiknis var þá frekar dapur þar til þeir Shkelzen og Róbert Quental komu inn.
Dómarinn - 8
Flott frammistaða á flautunni fannst mér, féll ekki í neinar gryfjur og ekkert verið að spjalda of mikið. Spurning hvort Leiknismaður hefði átt að fá gult fyrir að fara í Baldvin í fyrri hálfleik en öðru tók ég ekki eftir.
Byrjunarlið:
1. Viktor Freyr Sigurðsson (m)
Ósvald Jarl Traustason ('82)
Davíð Júlían Jónsson ('58)
5. Daði Bærings Halldórsson (f)
6. Andi Hoti
8. Sindri Björnsson (f)
9. Róbert Hauksson
20. Hjalti Sigurðsson ('69)
23. Arnór Ingi Kristinsson
67. Omar Sowe
92. Sigurður Gunnar Jónsson

Varamenn:
12. Bjarki Arnaldarson (m)
4. Patryk Hryniewicki
7. Róbert Quental Árnason ('69)
10. Shkelzen Veseli ('58)
18. Marko Zivkovic
19. Jón Hrafn Barkarson ('82)
44. Aron Einarsson

Liðsstjórn:
Vigfús Arnar Jósefsson (Þ)
Halldór Geir Heiðarsson
Atli Jónasson
Beniamin Alin Fer
Guðbjartur Halldór Ólafsson

Gul spjöld:
Omar Sowe ('52)
Davíð Júlían Jónsson ('56)
Sindri Björnsson ('57)

Rauð spjöld: