Juventus að landa Sancho - Barcelona greiðir laun Rashford - Wharton til Liverpool?
Í BEINNI
Besta-deild karla
Víkingur R.
LL 1
2
Valur
ÍBV
0
1
Stjarnan
0-1 Harpa Þorsteinsdóttir '54
28.05.2016  -  15:30
Hásteinsvöllur
Pepsi-deild kvenna 2016
Dómari: Elías Ingi Árnason
Byrjunarlið:
12. Bryndís Lára Hrafnkelsdóttir (m)
Sigríður Lára Garðarsdóttir
Sabrína Lind Adolfsdóttir
2. Sóley Guðmundsdóttir (f)
3. Júlíana Sveinsdóttir ('90)
5. Natasha Anasi ('31)
6. Sesselja Líf Valgeirsdóttir ('79)
7. Díana Dögg Magnúsdóttir
11. Lisa-Marie Woods
20. Cloe Lacasse
22. Arianna Jeanette Romero

Varamenn:
6. Sara Rós Einarsdóttir ('79)
14. Díana Helga Guðjónsdóttir ('31)
15. Ásta María Harðardóttir
16. Magnea Jóhannsdóttir ('90)
16. Linda Björk Brynjarsdóttir
23. Inga Birna Sigursteinsdóttir

Liðsstjórn:
Sigríður Sæland Óðinsdóttir

Gul spjöld:

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Leiknum er lokið með 0-1 sigri Stjörnunnar sem styrkir þar stöðu sína á toppi deildarinnar þar sem þær eru nú einar með 10 stig því FH sem fyrir umferðina var jafnt þeim að stigum tapaði fyrir Val í dag. Valur tók annað sætið með 8 stig.
93. mín
DAUÐAFÆRI! Mikill darraðadans í teig Stjörnunnar þar sem leikmenn stimpluðu á vörnina eins og í handbolta, Sigríður Lára hefði getað skotið, sendi á Díönu sem sendi á Magneu sem átti ekki gott skot beint á Berglindi í markinu. Allar þrjár voru í dauðafæri.
92. mín
Inn:María Eva Eyjólfsdóttir (Stjarnan) Út:Katrín Ásbjörnsdóttir (Stjarnan)
90. mín
Inn:Magnea Jóhannsdóttir (ÍBV) Út:Júlíana Sveinsdóttir (ÍBV)
86. mín
DAUÐAFÆRI! Díana Dögg í frábæru færi, engin truflar hana og hún lét vaða föstum bolta á markið en yfir. Besta tækifæri ÍBV í seinni hálfleik.
85. mín
Cloe Lacasse með skot hátt yfir mark Stjörnunnar.
84. mín
Það er lítið í gangi hjá liðunum þessar mínúturnar.
79. mín
Inn:Sara Rós Einarsdóttir (ÍBV) Út:Sesselja Líf Valgeirsdóttir (ÍBV)
79. mín
Inn:Guðrún Karítas Sigurðardóttir (Stjarnan) Út:Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir (Stjarnan)
79. mín
Inn:Kristrún Kristjánsdóttir (Stjarnan) Út:Ásgerður Stefanía Baldursdóttir (Stjarnan)
72. mín
Sigríður Lára með horkuskot utan teigs en Berglind ver vel.
72. mín
Bryndís Láraaftur með mikilvæga vörslu. Harpa var komin inn fyrir en Bryndís varði frábærlega og heldur ÍNBV inn í leiknum.
70. mín
Stjarnan er orðin betra liðið á vellinum og ÍBV kemst ekki yfir miðju þessar mínúturnar.
66. mín
Engu munaði að Donna Kay kæmi Stjörnunni í 0-2 en Bryndís Lára varði glæsilega skot sem hún tók í teignum.
63. mín
Bæði lið hafa verið að skapa sér færi en ekki náð að nýta sér þau. Það er enn hörku leikur í gangi.
54. mín MARK!
Harpa Þorsteinsdóttir (Stjarnan)
Harpa slapp ein gegn Bryndisi Láru sem varði frá henni en Harpa fékk frákastið og setti boltann í autt markið.
46. mín
Katrin Ásbjörnsdóttir tók hornspyrnu sem Jenna McCormick skallaði á markið en Bryndís Lára varði vel. Stjarnan fékk því annað horn sem þar nýttu svo ekki.
46. mín
Leikur hafinn
Síðari hálfleikur er hafinn.
45. mín
Hálfleikur
Búið að flauta til hálfleiks á Hásteinsvelli í Vestmannaeyjum. Það viðrar vel og lítill vindur sem gerir leikinn bara skemmtilegri. Það er hart barist og erfitt að spá hvorum megin sigurinn mun enda í leikslok.
44. mín
Aukaspyrna á vítateigslinunni sem Donna Key tók en boltinn ekki nógu fastur og auðvelt fyrir Bryndísi Láru í markinu.
36. mín
Katrín Ásbjörnsdóttir í hættulegu færi en Bryndís Lára gerði vel og varði frá henni.
31. mín
Inn:Díana Helga Guðjónsdóttir (ÍBV) Út:Natasha Anasi (ÍBV)
Natasha meiddist eftir brot Hörpu Þorsteinsdóttir og þurfti að fara af velli.
25. mín
DAUÐAFÆRI! Chloe sólaði a 3-4 varnarmenn Stjörnunnar inn í teig og sendi fyrir á Díönu Dögg sem var í hrikalegu dauðafæri en skaut framhjá.
19. mín
Ana Cate með besta færi Stjörnunnar. Sending frá hægri yfir á fjær þar sem Cate var ein og skaut yfir.
17. mín
Hætta upp við mark Stjörnunnar. Lisa Marie-Woods ÍBV með skot að marki sem Berglind Hrund varði með því að skella sér á hnén og verja með lærunum. Hætta á ferð.
10. mín
ÍBV hefur fengið tvær hornspyrnur það sem af er leiknum og átt tvöskot á markið. Stjarnan hefur átt eitt skot á markið en ÍBV liðið er betra eins og er.
1. mín
Leikur hafinn
Leikurinn er hafinn. ÍBV byrjar með boltann.
Fyrir leik
Liðin eru klár en þau má sjá hér sitthvorum megin við textann.

ÍBV gerir þrjár breytingar á liði sínu frá 0-1 tapi heima í síðasta leik gegn Val. Júlíana Sveinsdóttir, Díana Helga Guðjónsdóttir og Sesselja Líf Valgeirsdóttir koma inn fyrir þær Sara Rós Einarsdóttir, Rebekah Bass og Leonie Pankratz.

Stjarnan gerði markalaust jafntefli við Fylki í síðasta leik. Ein breyting er gerð á liðinu frá þeim leik, Ásgerður Stefanía Baldursdóttir kemur inn fyrir Kristrúnu Kristjánsdóttur.
Fyrir leik
ÍBV er í 7. sæti deildarinnar með 3 stig eftir að hafa unnið aðeins einn leik og tapað tveimur í fyrstu þremur umferðunum. Þær unnu Fylki úti og töpuðu fyrir Selfossi og Val heima.

Stjarnan er á kunnuglegum slóðum í toppsæti deildarinnar eftir tvo sigra og eitt jafntefli. Markatalan hjá þeim er 7-1.
Fyrir leik
Komiði sæl og verið velkomin í beina textalýsingu frá leik ÍBV og Stjörnunnar á Hásteinsvelli í Vestmannaeyjum. Hér að neðan munum við uppfæra allt það helsta sem gerist í leiknum um leið og það gerist en af óviðráðanlegum ástæðum verður ekki um ítarlega lýsingu að ræða að þessu sinni.
Byrjunarlið:
Harpa Þorsteinsdóttir
Ana Victoria Cate
1. Berglind Hrund Jónasdóttir
5. Jenna McCormick
6. Lára Kristín Pedersen
7. Ásgerður Stefanía Baldursdóttir (f) ('79)
10. Anna María Baldursdóttir (f)
14. Donna Key Henry
15. Kolbrún Tinna Eyjólfsdóttir
27. Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir ('79)
30. Katrín Ásbjörnsdóttir ('92)
- Meðalaldur 31 ár

Varamenn:
9. Kristrún Kristjánsdóttir ('79)
11. Guðrún Karítas Sigurðardóttir ('79)
16. María Eva Eyjólfsdóttir ('92)
17. Agla María Albertsdóttir

Liðsstjórn:
Þóra Björg Helgadóttir

Gul spjöld:

Rauð spjöld: