Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
Í BEINNI
Besta-deild karla
Stjarnan
45' 1
0
Valur
Fylkir
0
1
Valur
0-1 Orri Sigurður Ómarsson '5
16.05.2019  -  19:15
Würth völlurinn
Pepsi Max-deild karla
Aðstæður: Teppið er svo grænt að ég er að sturlast
Dómari: Einar Ingi Jóhannsson
Áhorfendur: 1290
Maður leiksins: Orri Sigurður Ómarsson
Byrjunarlið:
1. Aron Snær Friðriksson (m)
Daði Ólafsson
Ragnar Bragi Sveinsson ('67)
2. Ásgeir Eyþórsson (f)
5. Orri Sveinn Stefánsson
6. Sam Hewson ('56)
13. Arnór Gauti Ragnarsson
16. Ólafur Ingi Skúlason
20. Geoffrey Castillion ('56)
23. Ari Leifsson
28. Helgi Valur Daníelsson

Varamenn:
1. Ólafur Kristófer Helgason (m)
9. Hákon Ingi Jónsson ('56)
10. Andrés Már Jóhannesson
11. Valdimar Þór Ingimundarson ('67)
17. Davíð Þór Ásbjörnsson
21. Kolbeinn Birgir Finnsson ('56)
22. Leonard Sigurðsson

Liðsstjórn:
Rúnar Pálmarsson (Þ)
Ólafur Ingi Stígsson (Þ)
Helgi Sigurðsson (Þ)
Óðinn Svansson
Ólafur Ingvar Guðfinnsson
Magnús Gísli Guðfinnsson
Þorsteinn Magnússon

Gul spjöld:
Geoffrey Castillion ('18)
Ari Leifsson ('60)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Þá flautar Einar Ingi til leiksloka og fyrsti sigur Vals í sumar staðreynd.

Skýrsla og viðtöl koma síðar.
90. mín Gult spjald: Einar Karl Ingvarsson (Valur)
Fyrir tuð.
90. mín
Boltinn dettur hér fyrir Orra í teignum em varnarmenn Vals komast fyrir. Í kjölfar hornspyrnunnar á Ari Leifs skalla sem að Hannes ver vel.
90. mín
Aron Snær sweeper keeper reynir hér skot af miðju en það fer yfir markið.
90. mín
Fjórum mínútum bætt við.
90. mín
Binrir Snær í fínu færi en skot hans er laflaust og beint á Aron.
88. mín
ÓLAFUR INGI SKÚLASON!!!

Orri Sveinn með alveg afleita fyrirgjöf sem að Ólafur Ingi nær á einhvern ótrúlegan hátt að skutla sér eftir og stýra honum á markið en Hannes er vel á verði. Ólafur Ingi búinn að haltra í tíu mínútur.
85. mín
Fylkismenn skora en það er dæmt af.

Valdimar með geggjaðan sprett sem að endar með fyrirgjöf sem að Ólafur Ingi skallar í slánna. Hákon Ingi er fyrstur að átta sig á hlutunum og skallar hann inn en er dæmdur rangstæður. Ég held að þetta hafi verið réttur dómur.
81. mín
Daði Ólafs reynir hér skot með hægri fæti en það er alveg vonlaust og fer langt framhjá.
79. mín
Daði Ólafs er að koma með mjög góðar hornspyrnur hérna en nú er það skalli Orra sem að fer framhjá.
76. mín
Hannes hendir sér í skógarhlaup hérna en sem betur fyrir hann og Valsmenn ná Fylkismenn ekki að nýta sér það.
76. mín Gult spjald: Sebastian Hedlund (Valur)
Knúsar Hákon Inga aftan frá. Réttur dómur.
74. mín
Sigurður Egill rennir honum á Kristin Frey sem að skýtur beint í varnarmann. Sýndist Sigurður Egill bara skjóta á Aron Snæ. Þarf að sjá þetta aftur.
73. mín
Bíddubíddu! Óbein aukaspyrna dæmd á Fylki. Þetta var held ég algjört bull. Jæja. Næsta mál.
72. mín
Inn:Kristinn Freyr Sigurðsson (Valur) Út:Kristinn Ingi Halldórsson (Valur)
Kristinn Freyr að koma inn. Frábærar fréttir fyrir Valsmenn.
70. mín
Daði Ólafs með góða hornspyrnu á kollinn á Helga Val en skalli hans fer framhjá markinu. Fylkismenn sprækir þessa stundina.
69. mín
Vá geggjuð sókn hjá Fylki. Kolbeinn og Ólafur Ingi með frábært þríhyrningaspil á miðjunni sem að endar seinna með fyrirgjöf Arnórs Gauta á Hákon Inga en Hannes er vel staðsettur í markinu og ver glæsilega.
67. mín
Fylkismenn halda áfram að sækja. Nú á Ólafur Ingi fína fyrirgjöf ætlaða Hákoni en Hannes grípur boltann.
67. mín
Inn:Valdimar Þór Ingimundarson (Fylkir) Út:Ragnar Bragi Sveinsson (Fylkir)
Ragnar Bragi ekki búinn að sjást í dag.
66. mín
Ágætis sókn hjá Fylkismönnum endar með vonlausri fyrirgjöf frá Orra.
61. mín
Brotið á Fylkismanni og Bjarni Ólafur sparkar boltanum burt. En á einhvern óskiljanlegan hátt sleppur hann við spjald. Gjörsamlega galið.
60. mín Gult spjald: Ari Leifsson (Fylkir)
Stoppar hraða sókn hjá Val. Hinum meginn liggur Arnór Gauti.
59. mín
Neinei bölvuð vitleysa í mér þetta er Bjarni Ólafur.
58. mín
Nú liggur enn einn Valsarinn. Sýnist það vera Sigurður Egill.
56. mín
Inn:Hákon Ingi Jónsson (Fylkir) Út:Geoffrey Castillion (Fylkir)
56. mín
Inn:Kolbeinn Birgir Finnsson (Fylkir) Út:Sam Hewson (Fylkir)
55. mín
Birnir fer hér skemmtilega framhjá Daða og á fína fyrirgjöf en Ari Leifs skallar í horn. Það verður ekkert úr horninu. Þá gera Fylkismenn tvöfalda skiptingu.
53. mín
Inn:Birnir Snær Ingason (Valur) Út:Andri Adolphsson (Valur)
Andri fer hér útaf. Hann gæti mögulega verið tábrotinn. Birnir Snær fær 40 mínútur.
51. mín
Jæja þá leggst Andri Adolphs aftur. Hann hlýtur að vera að fara útaf.
49. mín
Hornspyrnan er fín en Ari Leifs nær að skalla boltann frá.
49. mín
Þá fær Valur enn eina hornspyrnuna sem að Einar Karl ætlar að lúðra inná teiginn.
47. mín
Andri Adolphsson sparkar hér í gervigrasið og liggur eftir. Þetta leit út fyrir að vera sárt.
46. mín
Þá hefst leikurinn á ný. Fylkismenn byrja.
45. mín
Hálfleikur
Þá flautar Einar Ingi dómari til loka fyrri hálfleiks. Gestirnir leiða 1-0 eftir mark Orra.
45. mín
Þrjár mínútur í uppbótatíma.
44. mín
Ekkert verður úr hornspyrnunni. Það er eins og menn séu búnir að gleyma að þeir eigi að reyna að skora.
43. mín
Jæja þá loksins gerist eitthvað aftur. Hornspyrna fyrir Val.
38. mín
Ekkert verður úr hornspyrnunni.
37. mín
Þá fá Valsarar hornspyrnu.
34. mín
Valur fær aukaspyrnu á fínum stað sem að línuvörðurinn dæmir. Spes að okkar mati hér í blaðamannastúkunni. Einar Karl skýtur hins vegar beint á Aron í markinu.
33. mín
Þarna munaði nokkrum millímetrum að Castillion næði að reka tánna í boltann eftir góðan undirbúning Arnórs Gauta og Orra Sveins en Hannes er á undan til boltans.
31. mín
Daði Ólafs tekur aukaspyrnuna inná teiginn þar sem að Ólafur Ingi fellur en Einar Ingi dæmir ekkert. Fylkismenn kvörtuðu ekkert voðalega mikið þannig þetta var sennilega rétt.
31. mín
Inn:Sebastian Hedlund (Valur) Út:Lasse Petry (Valur)
Þá kom loksins skiptingin. Lasse getur ekki haldið leik áfram.
30. mín
Markamaskínan Orri Sigurður brýtur hér á Castillion á miðjum vellinum.
29. mín
Castillion með skot fyrir utan teig eftir gott spil við Helga Val en Hannes tekur sjónvarpsvörslu og grípur boltann.

23. mín
Hornspyrnan fer útaf hinum megin. Markspyrna.
22. mín
Fylkir fá hornspyrnu sem að Daði tekur.
20. mín
Lasse Petry er kominn inná aftur og virðist ætla að halda leik áfram. I stand corrected.
18. mín Gult spjald: Geoffrey Castillion (Fylkir)
Kemur hér alltof seint í Hauk Pál. Hárréttur dómur.
17. mín
Lasse haltrar nú útaf. Ég held að hann muni ekki halda leik áfram.
16. mín
Nú liggur Lasse Petry eftir á vellinum. Sá ekki hvað gerðist.
15. mín
Spyrnan er ágæt en varnarmenn Vals koma boltanum frá.
14. mín
Jæja þá fær Fylkir hornspyrnu. Hvað skyldi gerast núna?
13. mín
Ekkert verður úr aukaspyrnunni. Við nánari athugun var skór Kristins Inga teipaður. Þannig að hann kann sennilega að reima.
12. mín
Kristinn Ingi fær hér mann inná völlinn til að reima fyrir sig. Einhver er innkoman.
11. mín
Ari Leifsson tekur hér Kristinn Inga úr skónum og fær dæmda á sig aukaspyrnu. Mjög klaufalegt.
10. mín
Andri Adolphsson reynir hér skot fyrir utan teig en Aron Snær grípur boltann örugglega.
9. mín
Ekkert verður úr aukaspyrnunni. Fylkismenn virðast ekki vita að leikurinn sé byrjaður.
8. mín
Valsarar fá aukaspyrnu úti á kanti. Einar Karl gullfótur tekur.
5. mín MARK!
Orri Sigurður Ómarsson (Valur)
ÞETTA ER EKKI LENGI AÐ GERAST!!!!

Hornspyrnan hjá Einari er góð og endar með miklu klafsi inní vítateig Fylkismanna. Það endar með að Orri Sigurður nær að koma boltanum yfir línuna. Draumabyrjun gestanna.
4. mín
Valsarar byrja af miklum krafti. Fá hér hornspyrnu sem að Einar Karl ætlar að taka.
1. mín
Leikur hafinn
Þá er leikurinn hafinn. Valur byrjar með boltann og sækja í átt að Árbæjarlaug.
Fyrir leik
Þá labba liðin á völlinn. Fylkir í sínum iconic appelsínugulu búniningum og Valur í geggjuðu grænu varabúningunum sínum. Væri hægt að breyta þessu í tískusýningu hérna í Árbænum.

Fyrir leik
Valgeir Lundal, nýjasti leikmaður Vals, er ekki í leikmannahópi í dag. Valgeir er strákur sem að er fæddur árið 2001 og kom frá Fjölni. Verður áhugavert hvort að hann fái mikinn spiltíma í sumar.

Fyrir leik
Liðin mætt út á völl í upphitun og dyggir stuðningsmenn mættir í stúkuna. Það er passion.
Fyrir leik
Ég má það nú til með að hrósa Fylki. Langt síðan ég hef komið á þennan völl og umgjörðin er geggjuð. Ég er a huge fan.
Fyrir leik
Þið sem hafið áhyggjur af því að missa af Eurovision í kvöld örvæntið ekki. Hér er verið að spila ítalska lagið í ár sem að ber nafnið Soldi. Geggjað lag að mínu mati. 8 stig frá mér.
Fyrir leik
Kristinn Freyr Sigurðsson er mættur á varamannabekkinn hjá Völsurum en hann hefur verið frá lengi. Spurning hvort að hann fái mínútur hér í dag.
Fyrir leik
Þá eru byrjunarliðin klár.

Heimamenn gera tvær breytingar á sínu liði frá síðasta leik. Kolbeinn Birgir Finnsson og Andrés Már Jóhannesson setjast á bekkinn og inn í þeirra stað koma þeir Orri Sveinn Stefánsson og Arnór Gauti Ragnarsson.

Valsmenn gera þrjár breytingar á sínu liði. Sebastian Hedlund, Emil Lyng og títtnefndur Gary Martin koma út og inn koma Orri Sigurður Ómarsson, Sigurður Egill Lárusson og Kristinn Ingi Halldórsson.

Emil Lyng og Gary Martin eru ekki í leikmannahópi Vals í dag. Lyng tognaði aftan í læri í síðasta leik og Gary.... ég þarf sennilega ekkert að segja meir um það.

Fyrir leik
Heimamenn í Fylki gerðu 1-1 jafntefli gegn KR á Meistaravöllum í síðustu umferð þar sem að Valdimar Þór Ingimundarson jafnaði með flautumarki eftir að hafa komið inná sem varamaður.

Valsmenn fengu nýliðanna í ÍA í heimsókn á Origo-völlinn þar sem að þeir töpuðu 2-1. Þá var það títtnefndur Gary Martin sem að skoraði mark Vals úr vítaspyrnu. Mögulega það síðasta sem að hann gerði fyrir félagið.
Fyrir leik
Félagskiptaglugginn lokaði í gærkvöldi og Gary Martin er ennþá leikmaður Vals. Margir bíða spenntir eftir að sjá hvort að hann verði í leikmannahópi í dag en ansi litlar líkur eru á því þar sem að hann æfði ekki í gær með liðinu.

Lítill fugl hvíslaði að mér Kristinn Ingi Halldórsson byrji uppá topp í dag en hann var ekki í leikmannahópi liðsins í síðustu umferð.
Fyrir leik
Það hefur eflaust ekki farið framhjá neinum fótboltaáhugamanni að Valur hefur verið mikið í fjölmiðlum undanfarna tvo daga þegar að Óli Jó tilkynnti að félagið vilji losna við enska framherjann Gary Martin. Þetta kom öllum í opna skjöldu en Gary gerði þriggja ára samning við Valsmenn í janúar síðastliðinn.
Fyrir leik
Þessi leikur er vægast sagt áhugaverður fyrir margar sakir. Fyrir mót hefði maður búist við sigri gestanna en margt vatn hefur runnið til sjávar síðan þá. Heimamenn í Fylki hafa farið ágætlega af stað og eru með fimm stig eftir þrjár umferðir.

Íslandsmeistar Vals hafa hins vegar farið illa af stað og eru enn sem komið er bara með eitt sitg eftir fyrstu þrjár umferðirnar. Þá hafa þeir einnig verið mikið í fjölmiðlum útaf dálitlu.
Fyrir leik
Jú komiði sæl og blessuð kæru lesendur og veriði velkomin að skjánum. Hér mun fara fram textalýsing á leik Fylkis og Vals á Würth vellinum. Leikurinn er liður í fjórðu umferð Pepsi Max-deildar karla.
Byrjunarlið:
1. Hannes Þór Halldórsson (m)
Haukur Páll Sigurðsson
2. Birkir Már Sævarsson
4. Einar Karl Ingvarsson
8. Kristinn Ingi Halldórsson ('72)
11. Sigurður Egill Lárusson
17. Andri Adolphsson ('53)
18. Lasse Petry ('31)
20. Orri Sigurður Ómarsson
21. Bjarni Ólafur Eiríksson
23. Eiður Aron Sigurbjörnsson

Varamenn:
33. Anton Ari Einarsson (m)
3. Ívar Örn Jónsson
6. Sebastian Hedlund ('31)
10. Kristinn Freyr Sigurðsson ('72)
18. Birnir Snær Ingason ('53)
71. Ólafur Karl Finsen
77. Kaj Leo í Bartalsstovu

Liðsstjórn:
Ólafur Jóhannesson (Þ)
Rajko Stanisic
Sigurbjörn Örn Hreiðarsson
Halldór Eyþórsson
Einar Óli Þorvarðarson
Jóhann Emil Elíasson
Kristófer Sigurgeirsson

Gul spjöld:
Sebastian Hedlund ('76)
Einar Karl Ingvarsson ('90)

Rauð spjöld: