Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
Breiðablik
4
2
KR
0-1 Ásdís Karen Halldórsdóttir '6
Kristín Dís Árnadóttir '30 1-1
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir '32 2-1
Kristín Dís Árnadóttir '38 3-1
Berglind Björg Þorvaldsdóttir '63 4-1
4-2 Hlíf Hauksdóttir '70
28.05.2019  -  19:15
Kópavogsvöllur
Pepsi-Max deild kvenna
Aðstæður: Glampandi sól en kalt, smá vindur
Dómari: Arnar Ingi Ingvarsson
Áhorfendur: 412
Maður leiksins: Kristín Dís Árnadóttir
Byrjunarlið:
Sonný Lára Þráinsdóttir
7. Agla María Albertsdóttir
8. Heiðdís Lillýardóttir
9. Karólína Lea Vilhjálmsdóttir
10. Berglind Björg Þorvaldsdóttir ('86)
13. Ásta Eir Árnadóttir (f)
16. Alexandra Jóhannsdóttir ('66)
18. Kristín Dís Árnadóttir
20. Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir ('66)
21. Hildur Antonsdóttir
27. Selma Sól Magnúsdóttir

Varamenn:
26. Ásta Vigdís Guðlaugsdóttir (m)
2. Sóley María Steinarsdóttir ('66)
14. Berglind Baldursdóttir
21. Sólveig Jóhannesdóttir Larsen ('86)
24. Hildur Þóra Hákonardóttir

Liðsstjórn:
Þorsteinn H Halldórsson (Þ)
Ragna Björg Einarsdóttir
Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir
Fjolla Shala
Ólafur Pétursson
Atli Örn Gunnarsson
Jóhanna Kristbjörg Einarsdóttir
Aron Már Björnsson

Gul spjöld:

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Blikar vinna sannfærandi, viðtöl og skýrsla innan skamms.
92. mín
Há aukaspyrna inn í teig Blika en skallinn fram hjá, líklega síðasta færi leiksins.
90. mín
Andrea Rán setur boltann í net KR en flaggið komið upp.
86. mín
Inn:Halla Marinósdóttir (KR) Út:Sandra Dögg Bjarnadóttir (KR)
86. mín
Inn:Sólveig Jóhannesdóttir Larsen (Breiðablik) Út:Berglind Björg Þorvaldsdóttir (Breiðablik)
85. mín
Karólína reynir að snúa upp á sig og skjóta á markið við vítapunktinn eftir horn en það fer í varnarmann.
80. mín
Katrín með hættulega fyrirgjöf sem Guðmunda er hársbreidd frá því að ná að skalla.
78. mín
Blikar láta boltaa nn ganga innan liðsins, reyna að drepa leikinn.
70. mín MARK!
Hlíf Hauksdóttir (KR)
Stoðsending: Ingunn Haraldsdóttir
Ætla að játa að ég var með nefið í tölvuna að skrá það inn að Hlíf væri að koma inn á! En það var sending inn í teiginn sem Sonný er að reyna ná en Ingunn potar tánni í boltan og til Hlífar, sem minnkar muninn eftir tuttugu sekúndna leik!
69. mín
Inn:Hlíf Hauksdóttir (KR) Út:Þórunn Helga Jónsdóttir (KR)
69. mín
Inn:Hugrún Lilja Ólafsdóttir (KR) Út:Kristín Erla Ó Johnson (KR)
66. mín
Inn:Sóley María Steinarsdóttir (Breiðablik) Út:Alexandra Jóhannsdóttir (Breiðablik)
66. mín
Inn:Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir (Breiðablik) Út:Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir (Breiðablik)
64. mín
Rétt fyrir markið voru KR-ingar alveg við að jafna þegar Sonný missti frá sér boltann í teignum en þeim tókst ekki að nýta færið.
63. mín MARK!
Berglind Björg Þorvaldsdóttir (Breiðablik)
Stoðsending: Agla María Albertsdóttir
Eftir nokkrar mínútur af fínni KR-pressu komast Blikar í góða skyndisókn, Agla er alein á kantinum og getur tekið sér góðan tíma í að senda fyrirgjöf á Berglindi sem afgreiðir hann snyrtilega í netið.
62. mín
Katrín Ómars með frábæra fyrirgjöf á Guðmundu Brynju inn í teig Blika! Ef sú síðarnefnda hefði náð að teigja sig nokkrum millímetrum lengra væri þetta mark!
59. mín
Já ok! KR fá aukaspyrnu á miðjum vallar helmingi Blika. Ásdís Karen hleður bara í þrumu skot og Sonný þarf að teygja sig duglega til að blaka boltanum yfir slánna.
55. mín
KR-ingar ná að halda boltanum og byggja upp sókn sem endar á að þær vinna sína fyrstu hornspyrnu. Hún er hreinsuð en boltinn sendur beint aftur inn í teig þar sem Guðmunda Brynja er hársbreidd frá að ná honum en Sonný kemur út og grípur.
52. mín
Hornið breytist í skyndisókn KR, eða öllu heldur skyndisókn Ásdísar Karenar sem bar boltann hálfa leið yfir völlinn umkringd Blikum. Hún er alveg við það að sleppa í gegn þegar Selma Sól kemst í boltann.
52. mín
Þetta kann að vera óvænt, en Blikar voru að vinna horn...
50. mín
Mjög laglegt spil hjá heimaliðinu! Áslaug sendir langa sendingu af miðjunni út á kant á Öglu sem stingur honum inn á Berglind, Birna staðsetur sig vel og ver skotið auðveldlega.
47. mín
Boltinn fer nokkuð augljóslega af hendinni á varnarmanni KR í teignum, ekki víti dæmt, sýndist þetta vera bolta í hönd. Þaðan skopparn hann fyrir lappirnir Karólínu en Birna gerir vel að kæfa færið. Skömmu seinna þarf hún að grípa fyrirgjöf frá Áslaugu sem hafði tekið 30 metra sprett upp kantinn framhjá tveim KR-ingum áður en hún gaf fyrir.
45. mín
Leikur hafinn
Fáum við fjögur mörk í viðbót í seinni?
45. mín
Hálfleikur
Blikar klára hálf leikinn á að vinna horn númer 10, Alexandra skallar fram hjá og dómari blæs á hálfleik. Fullkomnlega verðskuldað forskot heimaliðsins staðreynd.
41. mín
Berglind Björg skapar sér pláss í teig KR, fær boltann og tekur snúning en skotið rétt framhjá.
38. mín MARK!
Kristín Dís Árnadóttir (Breiðablik)
Stoðsending: Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir
Þetta var speglun á marki tvö! Eins horn og beint í netið frá Kristínu, nema hinum megin!
37. mín
Agla með geggjað langskot sem Birna ver með Hollywood markvörslu í horn Blika...
33. mín
Þetta er meira ruglið, KR hefja leikinn á nýju og Guðmunda ber boltann að teignum og skýtur fast og lágt en rétt framhjá.
32. mín MARK!
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir (Breiðablik)
Stoðsending: Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir
Blikar vinna boltann því til næst strax aftur, Alexandra sendir fasta og lága sendingu þvert yfir teiginn, Ingunn Haralds sem er búin að vera annars frábær klikkar á hreinsuninni og boltinn berst til Karólínu sem lætur ekki segja sér það tvisvar og kemur Blikum yfir.
30. mín MARK!
Kristín Dís Árnadóttir (Breiðablik)
Það hlaut að koma að því, hornspyrnan er fullkominn, hár bogi sem dettur fyrir Kristínu, sem skallar auðveldlega í markið!
28. mín
Búið að vera smá logn en Blikar fara og ná í sjöundu og svo áttundu hornspyrnu sína. Sandra Dögg kemst í dauðafæri en sker skotið og svo...
23. mín
Vá Sonný heppinn. Katrín Ómars sendir lúmska sendingu inn í teiginn, Sonný telur sig til að taka á móti boltanum en Guðmunda kemur úr hinni áttinni og nær tá í boltann áður en markmaðurinn kemst í hann, snertingin ber boltann framhjá.
20. mín
Ingunn Haralds bjargar KR! Berglind er komin ein í gegn og búin að munda skotfótinn en Ingunn nær að fleygja sér fyrir skotið!
18. mín
Vindurinn tekur háa hornspyrnuna og færir boltann yfir endalínu vinalega. KR nær að pústa aðeins.
17. mín
Hvernig fór þetta framhjá?! Hildur skrúfar bolta inn í markteig KR og hann virðist stefna í fjær hornið en Alexandra ætlar að pota honum inn en setur hann einhvern vegin framhjár. Blikar annað horn...
16. mín
Ooooog annað horn KR megin... og svo annað...
14. mín
Guðmunda Brynja er við það að komar upp að endalínu Blika en Áslaug Arna gerir rétt nóg til að stoppa fyrirgjöf án þess að brjóta.
12. mín
Upp úr horninu fær Berglind Rós boltann inn í markteig en hálf hreinsað. KR vörnin sogast fram en Blikar vinna boltann og boltinn sendur beint inn í teig en það tekst ekki að koma honum á ramman.
11. mín
Annað horn...
10. mín
KR ekki náð meira en tveim sendingum í röð eftir markið, Blikar fá horn og skalli í slánni! Annað horn...
6. mín MARK!
Ásdís Karen Halldórsdóttir (KR)
Obobobob! Ásdís Karen fær boltann 3 metrum fyrir framan teig Blika og tekur bara skotið. Boltinn hrekkur af varnarmanni og fer inn! Spurning hvort Sonný hefði átt að gera betur en alltaf erfitt þegar skotið breytir svona um stefnu.
4. mín
Guðmunda Brynja vinnur boltann á hægri kantinum og reynir að finna samherja með löngum bolta inn í teig en það gengur ekki.
1. mín
Heimakonur komust í tvö góð færi á fyrstu 40 sekúndum leiksins!
1. mín
Leikur hafinn
Blikar hegja leik og sækja í átt að Breiðablikshúsinu.
Fyrir leik
Vallarvörður að vökva völlinn, en gerði ekki alveg ráð fyrir að vindurinn myndi bera vatnið alla leið á heiðursvörðinn sem bíður þess liðin komi inn á völlinn. Litlu standa eins og hetjur og halda línunni óaðfinnalega þrátt fyrir þessar óvæntu skúrir.
Fyrir leik
Blikaborgararnir eru gúrme, ekki við öðru að búast! Leikmenn yngir flokka búnir að stilla sér upp, leikmenn meistaraflokks um það bil að rölta inn.
Fyrir leik
Blikar sjá (skiljanlega) enga ástæðu til að breyta liðinu sem vann Þór/KA í síðasta leik. Þetta er þriðji leikurinn í röð sem sama liðið byrjar.
Fyrir leik
Byrjunarlið komin í hús. Hjá KR koma Kristín Erla og Ásdís Karen inn Kr í stað Hlífar Hauksdóttir og Laufey Björnsdóttir, sú síðarnefnda er í banni.
Fyrir leik
Á laugardaginn munu liðin svo hefja leik í Mjólkurbikarnum. Blikar munu fara í heimsókn í Árbæinn og keppa við Keflavík fyrir sunnan.
Fyrir leik
KR náði í sín fyrstu stig í síðasta leik, með 2-1 sigri á ÍBV, þar sem Lilja Dögg og Ingunn Haraldsdóttir skoruðu mörkin.
Fyrir leik
Blikar eru búnir að vinna fjóra fyrstu leiki sína í deildinni, með markatöluna 13-2. Á morgun verður landsliðshópur kvenna tilkynntur fyrir vináttuleikina gegn Finnum í júní, líklegt að þó nokkrir blikar muni leynast í þeim hópi.
Fyrir leik
Góða kvöldið og velkominn á Kópóvogsvöll, þar sem Breiðablik freistar þess að hrifsa toppsætið af Val með sigri á KR í fimmtu umferð Pepsi-Max deildar kvenna.
Byrjunarlið:
23. Birna Kristjánsdóttir (m)
2. Kristín Erla Ó Johnson ('69)
3. Ingunn Haraldsdóttir (f)
3. Sandra Dögg Bjarnadóttir ('86)
7. Guðmunda Brynja Óladóttir
8. Katrín Ómarsdóttir
11. Ásdís Karen Halldórsdóttir
14. Grace Maher
16. Lilja Dögg Valþórsdóttir
20. Þórunn Helga Jónsdóttir ('69)
21. Tijana Krstic

Varamenn:
29. Ingibjörg Valgeirsdóttir (m)
9. Hlíf Hauksdóttir ('69)
22. Íris Sævarsdóttir
24. Katrín Mist Kristinsdóttir
27. Halla Marinósdóttir ('86)

Liðsstjórn:
Bojana Besic (Þ)
Hugrún Lilja Ólafsdóttir
Guðný Þóra Guðnadóttir
Guðlaug Jónsdóttir
Hildur Björg Kristjánsdóttir
Ásta Kristinsdóttir
Gísli Þór Einarsson
Ragna Lóa Stefánsdóttir

Gul spjöld:

Rauð spjöld: