KA
2
1
Grindavík
Hrannar Björn Steingrímsson '45 1-0
1-1 Alexander Veigar Þórarinsson '66
Elfar Árni Aðalsteinsson '70 2-1
15.06.2019  -  17:00
Greifavöllurinn
Pepsi Max-deild karla
Aðstæður: Grasið fínt og veðrið gott!
Dómari: Pétur Guðmundsson
Áhorfendur: 855 manns
Maður leiksins: Hallgrímur Mar Steingrímsson
Byrjunarlið:
12. Kristijan Jajalo (m)
Hallgrímur Jónasson
2. Haukur Heiðar Hauksson ('36)
3. Callum George Williams
7. Daníel Hafsteinsson
9. Elfar Árni Aðalsteinsson ('81)
10. Hallgrímur Mar Steingrímsson
22. Hrannar Björn Steingrímsson
23. Steinþór Freyr Þorsteinsson ('71)
29. Alexander Groven
77. Bjarni Aðalsteinsson

Varamenn:
1. Ísak Andri Maronsson Olsen (m)
7. Almarr Ormarsson
11. Ásgeir Sigurgeirsson ('71)
14. Andri Fannar Stefánsson
16. Brynjar Ingi Bjarnason ('36)
21. Nökkvi Þeyr Þórisson ('81)
27. Þorri Mar Þórisson
28. Sæþór Olgeirsson

Liðsstjórn:
Óli Stefán Flóventsson (Þ)
Halldór Hermann Jónsson
Pétur Heiðar Kristjánsson
Petar Ivancic
Branislav Radakovic
Sveinn Þór Steingrímsson

Gul spjöld:
Steinþór Freyr Þorsteinsson ('59)
Alexander Groven ('61)
Hallgrímur Mar Steingrímsson ('77)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Þá flautar Pétur dómari til leiksloka og 2-1 sigur KA staðreynd.

Skýrsla og viðtöl koma síðar.
90. mín
Fjórum mínútum bætt við. Fáum við dramatík?
90. mín
Sigurjón Rúnarsson með fínan skalla eftir hornspyrnu Arons en boltinn fer yfir markið.
88. mín
Inn:Dagur Ingi Hammer Gunnarsson (Grindavík) Út:Kiyabu Nkoyi (Grindavík)
87. mín
Grímsi með skemmtilegt skot hér frá vítateigshorninu en boltinn fer rétt framhjá. Þetta var R1 og hringur.
86. mín
Aukaspyrnan er fín en Jajalo nær að handsama knöttinn.
85. mín
Hallgrímur Jónasson brýtur hér á Aroni Jó á hættulegum stað. Aron tekur þetta sennilega sjálfur.
83. mín
Inn:Hermann Ágúst Björnsson (Grindavík) Út:Gunnar Þorsteinsson (Grindavík)
82. mín Gult spjald: Gunnar Þorsteinsson (Grindavík)
Togar Daníel niður sem að er að komast í skyndisókn.
81. mín
Inn:Nökkvi Þeyr Þórisson (KA) Út:Elfar Árni Aðalsteinsson (KA)
Elfar getur verið ánægður með sitt í dag.
78. mín
Ásgeir sloppinn einn í gegn eftir góða stungusendingu frá Elfari en skot hans fer beint á Vladan í markinu.
77. mín Gult spjald: Hallgrímur Mar Steingrímsson (KA)
Ásgeir í góðu færi eftir góða sendingu frá Elfari en Daníel Hafsteins truflar hann eitthvað sem að verður til þess að skotið verður lélegt. Grímsi brýtur í kjölfarið.
75. mín
Daníel Hafsteins liggur hér eftir á vellinnum. Rann eitthvað til og virðist finna til í náranum.
74. mín Gult spjald: Marc Mcausland (Grindavík)
73. mín
Inn:Sigurður Bjartur Hallsson (Grindavík) Út:René Joensen (Grindavík)
Fyrsta skitping gestanna.
71. mín
Inn:Ásgeir Sigurgeirsson (KA) Út:Steinþór Freyr Þorsteinsson (KA)
Ásgeir kemur hér inná við mikinn fögnuð KA stuðningsfólks. Hans fyrsti leikur eftir krossbandsslitin í fyrra.
70. mín MARK!
Elfar Árni Aðalsteinsson (KA)
Stoðsending: Hallgrímur Mar Steingrímsson
KA MENN AFTUR KOMNIR YFIR!!!!!!

Hallgrímur Mar dansar hér fyrir utan teiginn áður en að hann kemur boltanum á Elfar sem að klárar örugglega. Elfar var sennilega að fara útaf í staðinn fyrir Nökkva en sú skipting hefur verið sett á hold.
67. mín
Elfar kemur sér í góða stöðu í kjölfar marksins en Josip Zeba næt að bjarga skot hans á línu.
66. mín MARK!
Alexander Veigar Þórarinsson (Grindavík)
Stoðsending: Kiyabu Nkoyi
GRINDAVÍK BÚIÐ AÐ JAFNA!!!!

Mjög undarlegt mark. Gunnar Þorsteinsson með fyrirgjöf sem að fer í bakið á Nkoyi í varnarmann KA og beint fyrir fætur Alexanders sem að setur boltann örugglega framhjá Jajalo í markinu.
63. mín
Nkoyi fer hér illa með Callum inná vítateig KA en Bretinn svarar fyrir sig og nær að komast fyrir skot hans sem að Jajalo grípur síðan aulveldlega.
61. mín Gult spjald: Alexander Groven (KA)
Alltof seinn inní Marinó Axel.
59. mín Gult spjald: Steinþór Freyr Þorsteinsson (KA)
59. mín Gult spjald: René Joensen (Grindavík)
54. mín
Marc Mcausland með skalla yfir eftir fyrirgjöf Arons.
53. mín
Grindvíkingar fá hornspyrnu sem að Aron Jóhannsson tekur en Elfar Árni kemur boltanum frá.
51. mín
Hornspyrnan er lág og ná Grindvíkingar að koma boltanum frá.
50. mín
KA menn fá hornspyrnu eftir fína sókn. Grímsi tekur.
46. mín
Þá flautar Pétur leikinn aftur á.
45. mín
Hálfleikur
Grímsi tekur aukaspyrnuna með vinstri og er hún beint á Vladan í markinu. Í sömu andrá flautar Pétur til hálfleiks. Heimamenn leiða 1-0.
45. mín
Aukaspyrna á stórhættulegum stað fyrir utan vítateig Grindavíkur. Grímsi býr sig undir að taka þessa.
45. mín
Þremur mínútum bætt við.
45. mín MARK!
Hrannar Björn Steingrímsson (KA)
GUÐ MINN ALMÁTTUGUR ÞVÍLÍKT MARK!!!!!!!

Boltinn dettur fyrir fætur Hrannars eftir innkast hjá KA og hann gerir sér lítið fyrir og þrumar honum í Samúel af 25 metrunum. Sturlað mark.
42. mín
Hallgrímur Mar með góða hornspyrnu inná markteiginn ætlaða Callum Williams sem að nær ekki skallanum og boltinn aftur fyrir endamörk.
40. mín
Bjarni Aðalsteins mundar hér skotfótinn fyrir utan teig en boltinn fer beint í hnakkann á Steinþóri Frey.
36. mín
Inn:Brynjar Ingi Bjarnason (KA) Út:Haukur Heiðar Hauksson (KA)
Vont fyrir KA að missa Hauk útaf.
34. mín
Haukur Heiðar búinn að biðja um skiptingu. Brynjar Ingi að fara að koma inná.
33. mín
Elias Tamburini með góðan sprett sem að endar á skoti en Jajalo handsamar boltann auðveldlega.
31. mín
Aukaspyrna Hallgríms Mars ratar beint á kollinn á nafna hans Jónasson en boltinn svífur framhjá markinu.
30. mín
Halldór Hermann búinn að tjassla Bjarna saman sem að er kominn inná aftur. Steinþór vinnur svo aukaspyrnu út á kanti.
27. mín
Bjarni Aðalsteinsson liggur hér eftir á vellinum eftir harkalegt samstuð við Sigurjón Rúnarsson. Vonandi fyrir hann og KA að það sé í lagi með hann.
23. mín
Elfar klaufi og missir boltann sem að endar með skyndisókn Grindavíkur en Hallgrímur Jónasson kemst fyrir skot/fyrirgjöf Elias Tamburnini. Josip Zeba á fínan skalla eftir hornið sem að Jajalo blakar yfir markið.
21. mín
Haukur Heiðar liggur hér eftir á vellinum. Þarf að fá aðhlynningu.
20. mín
Aron Jóhannsson hér með fast skot fyrir utan teig en Jajalo er vel á verði og ver boltann framhjá.
15. mín
Aukaspyrnan er góð og á leið á markið en varnarmenn Grindavíkur ná að koma boltanum aftur fyrir endamörk. Eftir hornspyrnuna verður mikið klafs í teignum sem að endar á því að Haukur Heiðar er einn á auðum sjó en Vladan Djogatovic ver stórkostlega frá honum.
15. mín
KA menn fá aukaspyrnu í góðri fyrirgjafarstöðu sem að Grímsi ætlar að taka.
11. mín
Hér skorar Nkoui eftir frábæra fyrirgjöf frá Alexander Veigari en hann er flaggaður rangstæður.
5. mín
Aron Jóhanns með góðan sprett inná teig KA manna þar sem að hann finnur Kiyabu Nkoyi en skot hans er varið af Jajalo.
5. mín
Alexander Groven með góða fyrirgjöf á Hallgrím Mar sem að skallar rétt framhjá. Minnsti maðurinn á vellinum stökk hæst.
4. mín
Elias Tamburini með hættulega lága fyrirgjöf sem að Hallgrímur Jónasson setur aftur fyrir endamörk. Boltinn var ekki langt frá því að fara inn. Ekkert verður úr horninu.
3. mín
Elfar nær að trukkast með boltann inní teig á Steinþór sem að nær ekki skoti.
1. mín
Leikur hafinn
Þá flautar Pétur dómari leikinn á. KA menn byrja og sækja í átt að Vínbúðinni.
Fyrir leik
Það er bongó á Akureyri og bærinn iðar af lífi. Allir á völlinn.
Fyrir leik
Byrjunarliðin eru klár.

Heimamenn í KA gera þrjár breytingar á liði sínu frá síðasta leik gegn KR. Kristijan Jajalo kemur í markið í stað Arons Dags sem að er ekki í hóp í dag. Þá koma þeir Alexander Groven og Bjarni Aðalsteinsson inn í stað Ýmis Geirssonar og Almarrs Ormarssonar en þeir eru hvorugir í hóp. Það eru gleðitíðindi fyrir KA að Ásgeir Sigurgeirsson er á varamannabekknum en hann hefur verið að jafna sig á krossbandaslitum.

Tufa gerir tvær breytingar á liði Grindavíkur frá síðasta leik gegn Víking R. Rodrigo Mateo er í leikbanni og kemur þar með útúr liðinu ásamt Degi Inga Hammer. Inn í þeirra stað koma þeir René Joensen og Sigurjón Rúnarsson.
Fyrir leik
Heimamenn í KA eru í 8.sæti deildarinnar með 9 stig á meðan að Grindavík er í 7.sæti með 10 stig. Gríðarlega mikilvægur leikur fyrir bæði lið.
Fyrir leik
Leikurinn verður mjög forvitnilegur fær þær sakir að fyrir tímabilið urðu hrein þjálfaraskipti milli þessara tveggja liða. Óli Stefán Flóventsson gerði frábæra hluti með Grindavík
bæði sem leikmaður og þjálfari og kom þeim til að mynda upp í deild þeirra bestu. Í dag þjálfar hann KA.

Hinum megin er það hinn geðþekki Tufa sem að stjórnar seglskútu Grindavíkur. Tufa er kunnugur staðháttum hér á Akureyri en hann gekk til liðs við KA árið 2006. Tufa varð strax gríðarlega vinsæll meðal norðanmanna og þjálfaði nær alla yngri flokka KA áður en að hann tók við liðinu af Bjarna Jó árið 2015. Tímabilið 2016 vann hann Inkasso-deildina með KA og lauk þar með 13 ára 1.deildurgöngu KA manna.
Fyrir leik
Leikurinn fer fram á Greifavellinum í blíðskapaveðri hér á Akureyri. Bærinn iðar af lífi enda Júbbilering og Bíladagar í fullum gangi.
Fyrir leik
Jú komiði sæl og blessuð og veriði hjartanlega velkomin í þessa beinu textalýsingu á leik KA og Grindavíkur í 8.umferð Pepsi Max-deildar karla.
Byrjunarlið:
24. Vladan Djogatovic (m)
Marinó Axel Helgason
8. Gunnar Þorsteinsson (f) ('83)
9. Kiyabu Nkoyi ('88)
9. Josip Zeba
11. Elias Tamburini
13. Marc Mcausland (f)
22. René Joensen ('73)
23. Aron Jóhannsson (f)
26. Sigurjón Rúnarsson
80. Alexander Veigar Þórarinsson

Varamenn:
6. Viktor Guðberg Hauksson
8. Hilmar Andrew McShane
18. Jón Ingason
19. Hermann Ágúst Björnsson ('83)
20. Dagur Ingi Hammer Gunnarsson ('88)
33. Sigurður Bjartur Hallsson ('73)

Liðsstjórn:
Srdjan Tufegdzic (Þ)
Maciej Majewski
Arnar Már Ólafsson
Guðmundur Ingi Guðmundsson
Gunnar Guðmundsson
Srdjan Rajkovic
Hjörtur Waltersson

Gul spjöld:
René Joensen ('59)
Marc Mcausland ('74)
Gunnar Þorsteinsson ('82)

Rauð spjöld: