Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
Fjölnir
1
1
Afturelding
0-1 Róbert Orri Þorkelsson '17
Kristófer Óskar Óskarsson '90 1-1
31.07.2019  -  19:15
Extra völlurinn
Inkasso deildin - 1. deild karla
Dómari: Gunnþór Steinar Jónsson
Maður leiksins: Róbert Orri
Byrjunarlið:
12. Atli Gunnar Guðmundsson (m)
3. Bergsveinn Ólafsson (f)
7. Ingibergur Kort Sigurðsson
8. Arnór Breki Ásþórsson
9. Jón Gísli Ström ('72)
14. Albert Brynjar Ingason
23. Rasmus Christiansen
28. Hans Viktor Guðmundsson (f)
29. Guðmundur Karl Guðmundsson
30. Elís Rafn Björnsson ('56)
31. Jóhann Árni Gunnarsson ('86)

Varamenn:
25. Sigurjón Daði Harðarson (m)
2. Valdimar Ingi Jónsson ('56)
11. Hallvarður Óskar Sigurðarson ('86)
16. Orri Þórhallsson
26. Ísak Óli Helgason
32. Kristófer Óskar Óskarsson ('72)
33. Ísak Atli Kristjánsson

Liðsstjórn:
Ásmundur Arnarsson (Þ)
Gunnar Sigurðsson
Gunnar Már Guðmundsson
Gunnar Valur Gunnarsson
Einar Hermannsson
Kári Arnórsson
Magnús Birkir Hilmarsson

Gul spjöld:
Elís Rafn Björnsson ('51)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
90. mín MARK!
Kristófer Óskar Óskarsson (Fjölnir)
ÞAÐ KOM LOKSINS!!

Fyrirgjöf frá hægri og boltinn dettur svo fyrir Kristófer sem hamrar boltann inn.
90. mín
Inn:Tryggvi Magnússon (Afturelding) Út:Hafliði Sigurðarson (Afturelding)
90. mín
DAUÐAFÆRI ENN OG AFTUR! Ingibergur gerir rosalega illa þarna. Er einn á móti Martinez en ákveður að senda boltann og það er lesið af varnarmanni.
89. mín
Gestirnir verjast á fullu þessa stundina. Ná þeir að halda út?
88. mín
Inn:Hlynur Magnússon (Afturelding) Út:Jason Daði Svanþórsson (Afturelding)
86. mín
HVERNIG ENDAÐI ÞETTA EKKI INNI!

Fjölnismenn eiga svo sannarlega að vera búnir að skora hérna! Dauðafæri eftir fyrirgjöf og svo er bjargað aftur á línu. Fjölnismenn BRJÁLAÐIR og vilja fá vítaspyrnu. Töldu varnamann Aftureldingar hafa varið boltann með hendi.
86. mín
Inn:Hallvarður Óskar Sigurðarson (Fjölnir) Út:Jóhann Árni Gunnarsson (Fjölnir)
85. mín
Hans Viktor með skot af löngu færi en það vantar allan kraft í þetta.
80. mín
Albert í þröngu færi sem Martinez ver vel með löppunum.
77. mín
Heimamenn fá horn.
76. mín
Guðmundur Karl reynir skemmtilega vippu í fjærhornið en Martinez fylgir þessum útaf.
74. mín
STÓRHÆTTA!!!

Góð hornspyrna frá Arnóri Breka og Fjölnismenn skalla boltann í pakkann. Ná skoti í stöngina og Martinez ver svo einnig á línu. Boltinn berst upp í loftið og er á endanum hreinsaður burt. Þetta var rosalegt.
72. mín
Inn:Kristófer Óskar Óskarsson (Fjölnir) Út:Jón Gísli Ström (Fjölnir)
71. mín
Arnór Breki er með áætlunarferðir upp kantinn hérna í seinni hálfleik. Flottur bolti fyrir en gestirnir hreinsa í horn á síðustu stundu.
69. mín
Ondo setur aukaspyrnuna vel yfir.
69. mín
Róbert Orri tekinn niður fyrir utan teig Fjölnismanna. Aukaspyrna réttilega dæmd. Fínt skotfæri.
68. mín
Inn:Kári Steinn Hlífarsson (Afturelding) Út:Djordje Panic (Afturelding)
67. mín
DAUÐAFÆRI! Arnór Breki enn og aftur með góða fyrirgjöf en Ingibergur nær ekki skallanum í hornið og Martinez grípur boltann.
64. mín
Þarna munaði litlu! Arnór Breki með flotta fyrirgjöf sem Ingibergur setur rétt framhjá markinu.
62. mín
Heimamenn vilja fá hendi og víti!!

Gunnþór dæmir ekkert. Sýndist þetta vera í hendina á Arnóri Gauta.
60. mín Gult spjald: Hafliði Sigurðarson (Afturelding)
57. mín
STÓRHÆTTA VIÐ MARK AFTURELDINGAR!

Aukaspyrna lengst utan af velli og boltanum er spyrnt inn í teiginn. Bergsveinn vinnur skallann og kemur boltanum inn í pakkann. Martinez ver vel og boltinn berst út á Hans Viktor sem bombar boltanum í varnarmann og Ondo nær svo hreinsa.
57. mín Gult spjald: Loic Mbang Ondo (Afturelding)
56. mín
Inn:Valdimar Ingi Jónsson (Fjölnir) Út:Elís Rafn Björnsson (Fjölnir)
54. mín
Frábær sókn hjá Aftureldingu. Jason labbar framhjá tveimur og finnur svo Andr Frey í gegn. Andri á fyrirgjöf sem berst að lokum út á Panic sem á skot framhjá markinu.
51. mín Gult spjald: Elís Rafn Björnsson (Fjölnir)
Stoppar Jason Daða.
49. mín Gult spjald: Arnar Hallsson (Afturelding)
Fær hér gult spjald fyrir kjaft.
49. mín Gult spjald: Roger Banet Badia (Afturelding)
Alltof seinn þarna. Fjölnismenn alveg brjálaðir. Vildu fá rautt.
46. mín
Elís Rafn kallar nafn sitt og ætlar að skalla boltann. Reiknar þetta alveg skeflilega og boltinn berst á Jason sem keyrir upp og inn á völlinn. Endar sprettinn á skoti sem er rétt framhjá.
46. mín
Seinni hálfleikur er hafinn.
45. mín
Hálfleikur
Gunnþór flautar hér til hálfleiks. Lokaður leikur og lítið um færi. Gestirnir hafa þó verið aðeins betri og leiða 0-1 í hálfleik.
45. mín
Hans Viktor með gott skot af löngu færi. Martinez í marki Aftureldingar heldur boltanum hinsvegar örugglega.
41. mín
Elís Rafn með ágætis fyrirgjöf á Jón Gísla sem bombar boltanum í hliðarnetið. Ef minnið er ekki að svíkja mig er þetta fyrsta skot heimamanna í leiknum. Það hefur gengið erfiðlega að skapa færi.
36. mín
Ingibergur í dauðafæri á að setja Albert Brynjar í gegn en sendingin er slöpp og Georg nær að hreinsa.
34. mín
Fjölnir spila vel á milli manna sem endar á því að Elís Rafn fær boltann í fínni stöðu. Fyrirgjöfin er hinsvegar ekki nægilega góð og Ondo kemst fyrir boltann.
28. mín
Heimamenn færa sig ofar á völlinn og reyna að skapa eitthvað. Mosfellingar eru ansi þéttir og gefa fá færi á sér.
26. mín
Afturelding fær aðra hornspyrnu.
24. mín
Afturelding fær aukaspyrnu á hægri kantinum. Mér sýndist Rasmus fara fyrst í boltann en það var kraftur í þessari tæklingu engu að síður.
17. mín MARK!
Róbert Orri Þorkelsson (Afturelding)
Stoðsending: Loic Mbang Ondo
AFTURELDING SKORAR FYRSTA MARKIÐ!

Frábær hornspyrna á fjærstöng frá Jasoni Daða. Ondo vinnur skallaeinvígi þar og kemur boltanum inn í pakkann þar sem Róbert Orri kemur á ferðinni og stangar knöttinn inn. Vel gert.
16. mín
Gestirnir fá hornspyrnu.
13. mín
Lítið að gerast. Bæði lið hafa náð fínu spili en ekki náð að skapa neitt ennþá.
5. mín
Lúmsk aukaspyrna hjá Jóhanni beint á Albert sem finnur Arnór Breka út í breidd. Fyrirgjöfin frá Arnóri endar í varnarmanni og Afturelding hreinsar.
3. mín
Bæði lið búin að eiga fínar fyrirgjafir en markmenn beggja liða með allt á hreinu. Þetta fer ágætlega af stað.
1. mín
Leikur hafinn
Fyrir leik
Styttist í leik. Liðin hafa lokið sinni upphitun. Áður en leikurinn hefst skulum við fá ,,Gunni giskar" í gang!

Gunnar Birgisson íþróttafréttmaður á RÚV

,,Þessi er tricky. Baráttan um Blikastaði verður ansi hörð þetta árið. Tvö rauð spjöld, þar af eitt á skapbráðan aðstoðarþjálfara Aftureldingar. 2-1 sigur Fjölnis, Fyssi Kalli með úrslitamarkið á 93min"
Fyrir leik
Byrjunarliðin eru klár og má sjá hér til hliðar.

Fjölnir gerir eina breytingu frá síðasta leik. Sigurpáll Melberg dettur út og inn fyrir hann kemur Jón Gísli Ström.

Afturelding gerir þrjár breytingar frá síðasta leik. Út fara þeir Alexander Aron, Ásgeir Örn og Sigurður Kristján. Inn fyrir þá koma Arnór Gauti, Djordje Panic og Georg Bjarnason.
Fyrir leik
Fylgist með


Andri Freyr Jónasson Þessi ungi framherji Aftureldingar sló í gegn á síðasta tímabili þegar Afturelding vann 2.deild nokkuð örugglega. Lunkinn markaskorari sem er góður í fótbolta. Hefur skorað 5 mörk í 14 leikjum í sumar og er markahæstur hjá liði Aftureldingar.

Arnór Breki Ásþórsson Þessi snöggi vinstri bakvörður er uppalinn í Mosfellsbænum og var ungur byrjaður að leika fyrir meistaraflokk Aftureldingar. Hefur verið fastamaður hjá Fjölni síðan hann skipti yfir. Hann er kallaður býflugan í Grafarvoginum enda lætur hann sóknarmenn andstæðinganna ekki í friði og er alveg óþolandi.
Fyrir leik
Á meðan við bíðum eftir byrjunarliðunum skulum við renna yfir síðustu úrslit hjá báðum liðum.

Fjölnir kom til baka gegn Magna fyrir norðan eftir að hafa lent 1-0 undir. Þeir settu í næsta gír og unnu að lokum góðan 1-3 sigur. Skyldusigur fyrir topplið Inkasso deildarinnar.

Afturelding vann einnig sinn leik í síðustu umferð. Keflavík kom í heimsókn í Mosfellsbæinn og voru það heimamenn sem skoruðu eina mark leiksins í frekar bragðdaufum leik. Bæði lið voru þétt og baráttan mikil. Mikilvægur 1-0 sigur fyrir Mosfellinga sem berjast fyrir lífi sínu í deildinni.
Fyrir leik
Jú góða kvöldið!

Fotbolti.net heilsar ykkur úr Grafavoginum en hér verðum við með beina textalýsingu frá leik Fjölnis og Aftureldingar í 15.umferð Inkasso-deildar karla.
Byrjunarlið:
1. Jon Tena Martinez (m)
2. Arnór Gauti Jónsson
5. Loic Mbang Ondo (f)
7. Hafliði Sigurðarson ('90)
9. Andri Freyr Jónasson
10. Jason Daði Svanþórsson (f) ('88)
11. Róbert Orri Þorkelsson
14. Jökull Jörvar Þórhallsson
18. Djordje Panic ('68)
19. Roger Banet Badia
25. Georg Bjarnason

Varamenn:
13. Tristan Þór Brandsson (m)
30. Andri Þór Grétarsson (m)
3. Sigfús Kjalar Árnason
8. Kristján Atli Marteinsson
10. Kári Steinn Hlífarsson ('68)
12. Hlynur Magnússon ('88)
20. Tryggvi Magnússon ('90)
23. Andri Már Hermannsson

Liðsstjórn:
Magnús Már Einarsson (Þ)
Arnar Hallsson (Þ)
Jens Ingvarsson
Aðalsteinn Richter

Gul spjöld:
Arnar Hallsson ('49)
Roger Banet Badia ('49)
Loic Mbang Ondo ('57)
Hafliði Sigurðarson ('60)

Rauð spjöld: