Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Í BEINNI
Mjólkurbikar karla
Fjölnir
25' 0
1
Selfoss
Breiðablik
4
3
Fylkir
Andri Rafn Yeoman '9 1-0
Höskuldur Gunnlaugsson '10 2-0
Thomas Mikkelsen '38 3-0
Alfons Sampsted '47 4-0
4-1 Geoffrey Castillion '64
Viktor Örn Margeirsson '72
4-1 Geoffrey Castillion '73 , misnotað víti
4-2 Geoffrey Castillion '75
4-3 Geoffrey Castillion '91
01.09.2019  -  19:15
Kópavogsvöllur
Pepsi Max-deild karla
Dómari: Ívar Orri Kristjánsson
Maður leiksins: Andri Rafn Yoeman
Byrjunarlið:
Gunnleifur Gunnleifsson
4. Damir Muminovic
5. Elfar Freyr Helgason ('62)
7. Höskuldur Gunnlaugsson (f)
9. Thomas Mikkelsen
21. Viktor Örn Margeirsson
25. Davíð Ingvarsson
26. Alfons Sampsted
30. Andri Rafn Yeoman
45. Guðjón Pétur Lýðsson ('62)
45. Brynjólfur Darri Willumsson ('74)

Varamenn:
12. Ólafur Íshólm Ólafsson (m)
6. Alexander Helgi Sigurðarson ('62)
8. Viktor Karl Einarsson
11. Gísli Eyjólfsson ('62)
16. Guðmundur Böðvar Guðjónsson
17. Þórir Guðjónsson
18. Arnar Sveinn Geirsson ('74)

Liðsstjórn:
Ágúst Þór Gylfason (Þ)
Ólafur Pétursson
Jón Magnússon
Marinó Önundarson
Aron Már Björnsson
Þorsteinn Máni Óskarsson
Guðmundur Steinarsson

Gul spjöld:

Rauð spjöld:
Viktor Örn Margeirsson ('72)
Leik lokið!
Rosalegur leikur!! Viðtöl og skýrsla á leiðinni.
94. mín
Aukaspyrnan fer í vegginn og yfir. hornspyrna.
93. mín
Aukaspyrna á STÓRHÆTTULEGUM stað!

Fylkismenn eru í séns!
92. mín
VÁ! Hákon Ingi með skot í stöngina!!
91. mín MARK!
Geoffrey Castillion (Fylkir)
ÞAÐ HELD ÉG! ÞRENNA!

Fær boltann rétt fyrir utan teig og setur hann fallega í hornið. Ná Fylkismenn að jafna?
90. mín
Hákon Ingi með mjög góðan bolta fyrir markið en það er enginn mættur að pota þessum inn.
90. mín
Helgi Valur með skot fyrir utan teig eftir að Ólafur Ingi vann boltann. Skotið er beint á Gulla sem heldur þessu örugglega.
88. mín
Helgi Valur fær boltann inn í teig en hittir knöttinn afar illa og þetta rennur í sandinn.
86. mín
Blikar fá hornspyrnu.
84. mín
Mikkelsen með geggjaða skiptingu yfir á Höskuld sem missir boltann aðeins of langt frá sér og Fylkismenn hreinsa í horn.
82. mín
Fylkir reynir að ná inn marki en Blikar verjast vel og beita skyndisóknum.
80. mín
Inn:Andri Þór Jónsson (Fylkir) Út:Arnór Gauti Ragnarsson (Fylkir)
75. mín MARK!
Geoffrey Castillion (Fylkir)
HVAÐ ER AÐ GERAST HÉR!

Þetta er allt í einu orðið leikur! Castillion fær boltann inn í markteig eftir langt innkast og klárar auðveldlega.
74. mín
Inn:Arnar Sveinn Geirsson (Breiðablik) Út:Brynjólfur Darri Willumsson (Breiðablik)
73. mín Misnotað víti!
Geoffrey Castillion (Fylkir)
Gunnleifur ver!!!!!!
72. mín Rautt spjald: Viktor Örn Margeirsson (Breiðablik)
Eitthvað klafs inn í teig Breiðabliks og svo virðist vera sem Viktor hafi slegið Ragnar Braga. Rautt og víti.
71. mín
VÍTI OG RAUTT!!
69. mín
Davíð Ingvars með góða aukaspyrnu inn í teig Fylkismanna en Damir nær ekki til boltans og þetta endar útaf.
68. mín
Mikkelsen fær boltann úti hægra meginn og setur boltann fast meðfram grasinu inn í teiginn. Brynjólfur kemur á ferðinni en skot hans er framhjá.
67. mín
Birkir Eyþórs með hörkuskot sem fer yfir mark Breiðbliks. Tók boltann á lofti en náði ekki að halda honum niðri.
64. mín MARK!
Geoffrey Castillion (Fylkir)
Stoðsending: Hákon Ingi Jónsson
Fylkir eru búnir að minnka muninn!

Hákon Ingi setur boltann á Castillion sem tekur sér góðan tíma í þetta. Fer framhjá Alfons inn í teignum og leggur boltann í fjærhornið. Mjög vel klárað.
63. mín
Tvöföld skipting hjá Breiðablik.
62. mín
Inn:Gísli Eyjólfsson (Breiðablik) Út:Guðjón Pétur Lýðsson (Breiðablik)
62. mín
Inn:Alexander Helgi Sigurðarson (Breiðablik) Út:Elfar Freyr Helgason (Breiðablik)
59. mín
Mikkelsen finnur Höskuld í lappir vinsta meginn í teignum. Höskuldur fer á hægri og setur svo boltann rétt framhjá.
59. mín
Hákon Ingi sloppinn einn í gegn en búið að dæma rangstöðu. Þetta var réttur dómur.
58. mín
Arnór Gauti með góða sendingu í gegn á Castillion sem tekur boltann með sér inn í teig en skotið er síðan vel framhjá markinu. Hitti boltann ekki vel þarna.
55. mín
Damir í dauðafæri!

Alfons með skemmtilega sendingu á fjærstöng þar sem Damir fær nægan tíma en skallinn fer framhjá markinu.
55. mín
Mikkelsen með gott skot úr þröngu færi en Stefán Logi ver vel. Hornspyrna.
54. mín
Ragnar Bragi reynir skot inn í teig Breiðabliks eftir sendingu frá Ásgeiri en skotið er kraftlaust og vel yfir markið.
50. mín
Helgi Valur með skot fyrir utan teig en hittir boltann illa og þetta lekur útaf.
47. mín MARK!
Alfons Sampsted (Breiðablik)
Stoðsending: Alfons Sampsted
Þetta er komið. Fylkir byrjaði seinni hálfleik af miklum krafti og settu heimamenn undir pressu en þvílíkt rothögg frá Alfons. Brynjólfur Darri með skemmtilega sendingu út í teiginn eftir að hafa komist upp að endlínu. Alfons gerir enginn mistök þarna og bombar boltanum upp í þaknetið.

4-0.
46. mín Gult spjald: Ari Leifsson (Fylkir)
46. mín
Leikurinn er farinn af stað. Tvöföld skipting hjá Helga.
45. mín
Inn:Hákon Ingi Jónsson (Fylkir) Út:Orri Sveinn Stefánsson (Fylkir)
45. mín
Inn:Birkir Eyþórsson (Fylkir) Út:Emil Ásmundsson (Fylkir)
45. mín
Hálfleikur
40. mín
Andri Rafn Yeoman hefur verið gjörsamlega frábær hérna í fyrri hálfleik. Þvílíkur leikmaður.
38. mín
Dómaraskipti hér á Kópavogsvelli. Ívar Orri þarf að fara útaf og Egill Arnar kemur inn.
38. mín MARK!
Thomas Mikkelsen (Breiðablik)
Stoðsending: Andri Rafn Yeoman
VÁ. ÞVÍLÍKT MARK!

Andri fær boltann á milli miðju og varnar Fylkis og keyrir af stað upp völlinn. Finnur Mikkelsen í lappir og hann er ekkert að flækja þetta. Setur boltann á hægri löppina og skrúfar hann upp í skeytin fær. Óverjandi fyrir Stefán Loga í markinu.
36. mín
Fylkismenn fá hornspyrnu.

Ragnar Bragi tók hana en Gunnleifur er öruggur í teignum og grípur boltann auðveldlega.
33. mín
Alfons Sampsted með góðamn boltann eftir grasinu út í teig Fylkismanna. Þar kemur Brynjólfur á ferðinni en skot hans fer í varnarmann og yfir. Hornspyrna.
32. mín
Davíð Ingvars með flotta fyirgjöf sem Tomas Mikkelsen skallar hátt yfir.
28. mín
Fylkismenn halda boltanum ágætlega áður en Helgi Valur sendir á Ólaf Inga upp í horn en Ólafur er dæmdur rangstæður.
23. mín
Damir með frábæra sendingu á Viktor Örn sem kloppar Ara Leifs áður en hann á fast skot sem Stefán Logi ver.
20. mín
DAUÐAFÆRI!!!

Helgi Valur vippar boltanum skemmtilega yfir vörn Breiðabliks og Ragnar Bragi var í algjöru dauðafæri en hittir ekki boltann sem rúllar til Gulla. Þarna hefði Ragnar átt að gera betur.
17. mín
Tomas Mikkelsen í fínu færi eftir fyrirgjöf frá vinstri. Daninn öflugi hittir aftur á móti ekki boltann.
15. mín
Þarna voru Fylkismenn heppnir! Ásgeir Eyþórs með skelfileg mistök, ætlar að skýla boltanum útaf við endalínuna en boltinn er einfaldlega tekinn af honum. Mikkelsen kemur boltanum á Höskuld sem leggur hann á Brynjólf Darra en varnarmenn Fylkis ná að henda sér fyrir skotið.
10. mín MARK!
Höskuldur Gunnlaugsson (Breiðablik)
2-0 FYRIR BREIÐABLIK!

Það held ég. Viktor Örn finnur Höskuld inn í teig Fylkismanna. Höskuldur fer á hægri fótinn og setur svo boltann í nærhornið með miklum krafti. Vel gert hjá Blikum.
9. mín MARK!
Andri Rafn Yeoman (Breiðablik)
Stoðsending: Guðjón Pétur Lýðsson
MARK!!

Breiðablik eru komnir yfir. Alfons Sampsted með flottan bolta út í teiginn en Guðjón Pétur hittir ekki boltann vel og Andri Rafn kemur á ferðinni og klárar glæsilega. Glæsilegt skot hjá Andra sem var fyrir utan teiginn.
6. mín
Helgi Valur með flott hlaup inn í teiginn og fær sendingu í gegn frá Castillion. Helgi á svo fína fyrirgjöf meðfram grasinu en Gulli er vel á verði og handsamar knöttinn.
1. mín
Fylkir fær hornspyrnu.
1. mín
Leikur hafinn
Fylkismenn byrja með boltann.
Fyrir leik
Liðin ganga hér inn á völlinn. Sólin skín í Kópavoginum og gervigrasið er sem fyrr glæsilegt. Vonandi fáum við fallegan fótbolta og nokkur mörk.
Fyrir leik
Byrjunarliðin eru klár og má sjá hér til hliðar.

Gústi Gylfa stillir upp sama liði og gegn í FH í síðustu umferð.


Fylkismenn gera fjórar breytingar frá síðasta leik. Arnór Gauti, Ragnar Bragi, Emil Ásmunds og Orri Sveinn koma inn í liðið en Sam Hewson, Valdimar Þór, Andrés Már og Hákon Ingi detta út. Valdimar fékk rautt spjald í síðsta leik gegn HK.
Fyrir leik
Gunni giskar er mættur aftur og hann er hress í þetta skiptið. Gefum Gunnari orðið.

,,5-1 Breiðablik. Verður ljúft og létt fyrir Blikana í kvöld, ágætlega pressulausir og vantar sterka pósta í Fylkisliðið sem björguðu sæti sínu í deildinni í síðasta leik. Brynjólfur Darri græjar þrennu og býður liðinu út að borða á Shake&Pizza" Sagði Gunnar Birgisson íþróttafréttamaður á RÚV.
Fyrir leik
Fyrri leikur þessara liða í sumar endaði með 4-3 sigri Fylkis. Það verður voanndi sama markasúpa á boðstólnum hér í kvöld.
Fyrir leik
Breiðablik eru fyrir leikinn í 2.sæti deildarinnar og geta með sigri gulltryggt evrópusæti sitt á næsta ári. Fylkismenn sitja í 9.sæti deildarinnar með 25 stig. Vinni Fylkir hér í dag jafna þeir Stjörnuna að stigum í 4.sæti deildarinnar. Það er stutt á milli í þessu.

Í síðustu umferð tók Fylkir á móti HK í Árbæ og unnu 3-2 sigur. Breiðablik spilaði á móti FH og unnu 4-2 sigur í Kaplakrika.
Fyrir leik
Góða kvöldið og verið hjartanlega velkomin á beina textalýsingu frá leik Breiðabliks og Fylkis í 19.umferð Pepsi Max deildar karla.
Byrjunarlið:
32. Stefán Logi Magnússon (m)
Daði Ólafsson
Ragnar Bragi Sveinsson
2. Ásgeir Eyþórsson (f)
5. Orri Sveinn Stefánsson ('45)
13. Arnór Gauti Ragnarsson ('80)
16. Emil Ásmundsson ('45)
16. Ólafur Ingi Skúlason
20. Geoffrey Castillion
23. Ari Leifsson
28. Helgi Valur Daníelsson

Varamenn:
31. Kristófer Leví Sigtryggsson (m)
3. Leó Ernir Reynisson
4. Andri Þór Jónsson ('80)
9. Hákon Ingi Jónsson ('45)
14. Arnór Ingi Kristinsson
17. Birkir Eyþórsson ('45)
22. Leonard Sigurðsson

Liðsstjórn:
Rúnar Pálmarsson (Þ)
Ólafur Ingi Stígsson (Þ)
Helgi Sigurðsson (Þ)
Óðinn Svansson
Ólafur Ingvar Guðfinnsson
Halldór Steinsson
Þorsteinn Magnússon

Gul spjöld:
Ari Leifsson ('46)

Rauð spjöld: