Haaland, Toney, Gomes, Diomande, Gyokeres, Southgate, O'Neil, De Zerbi og fleiri góðir í slúðri dagsins
ÍA
1
2
Derby County
0-1 Festy Ebosele '16
0-2 Jack Stretton '39
Aron Snær Ingason '72 1-2
06.11.2019  -  19:00
Víkingsvöllur
Evrópukeppni unglingaliða
Aðstæður: Teppi, logn og 1 gráða! Veisla
Dómari: Lionel Tschudi (Sviss)
Áhorfendur: 354
Maður leiksins: Festy Ebosele(Derby)
Byrjunarlið:
1. Aron Bjarki Kristjánsson (m)
2. Jón Gísli Eyland Gíslason
3. Mikael Hrafn Helgason
5. Oskar Wasilewski
7. Brynjar Snær Pálsson
8. Ólafur Karel Eiríksson ('87)
9. Gísli Laxdal Unnarsson
10. Sigurður Hrannar Þorsteinsson (f)
23. Benjamin Mehic
25. Eyþór Aron Wöhler ('80)
26. Marteinn Theodórsson ('46)

Varamenn:
12. Marvin Darri Steinarsson (m)
17. Júlíus Emil Baldursson
19. Elís Dofri G Gylfason ('80)
21. Aron Snær Ingason ('46)
22. Aron Snær Guðjónsson
24. Finnbogi Laxdal Aðalgeirsson
93. Ingi Þór Sigurðsson ('87)

Liðsstjórn:
Elínbergur Sveinsson (Þ)
Sigurður Jónsson (Þ)

Gul spjöld:
Mikael Hrafn Helgason ('58)
Ólafur Karel Eiríksson ('75)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Leiknum er lokið með sigri Derby. Skagamenn geta hins vegar verið stoltir af sinni frammistöðu.
91. mín
Inn:Osazee Aghatise (Derby County) Út:Festy Ebosele (Derby County)
90. mín
90 á klukkuni og það er þremur mínútum bætt við
89. mín
ÚFFFF! Skagamenn tapa boltanum klaufalega og Derby með skot í stöngina!
89. mín
Ingi Sig með frábæran sprett en skotið ekki jafn frábært og framhjá.
87. mín
Inn:Ingi Þór Sigurðsson (ÍA) Út:Ólafur Karel Eiríksson (ÍA)
86. mín Gult spjald: Jordan Brown (Derby County)
82. mín
Gísli Laxdal með skot í varnarmann. Horn sem ekkert verður úr.
80. mín
Inn:Elís Dofri G Gylfason (ÍA) Út:Eyþór Aron Wöhler (ÍA)
79. mín
Aron bjargar á línu!!! Skot eftir hornið og geggjuð varsla hjá Aroni.
79. mín
Sibley með skot sem Aron ver í horn.
77. mín Gult spjald: Bradley Foster-Theniger (Derby County)
76. mín
Frábær sókn hjá ÍA sem endar með fyrirgjöf en Bradley í markinu grípur.
75. mín Gult spjald: Festy Ebosele (Derby County)
75. mín Gult spjald: Ólafur Karel Eiríksson (ÍA)
72. mín MARK!
Aron Snær Ingason (ÍA)
MAAAAAAAAAAARK!!!! JÁÁÁÁÁÁ!! SKAGAMENN MINNKA MUNINN!!! Wöhler vinnur boltann á mðijunni sendi út á hægri kant og frábær fyrirgjöf sem Aron bara grimmastur í að ná!!!
69. mín
ÚFFFFF! Whittaker með skot í varnarmann og boltinn lekur framhjá stönginni
68. mín
Aron Snær!!! Aron í frábæru færi en skýtur hátt yfir.
67. mín
Derby menn aðeins að þjarma að ÍA þessa stundina. Nú er það Brown með skot en hátt yfir.
66. mín
Sibley með hörkuskot en Aron ver vel í markinu.
65. mín
Sókn hjá Derby sem endar með skoti framhjá, sá ekki hver átti skotið.
61. mín
Frábær barátta hjá Gísla við endalínuna og vinnur boltann af leikmanni Derby, kemur með fyrirgjöf en í gegnum allt og aftur fyrir.
58. mín Gult spjald: Mikael Hrafn Helgason (ÍA)
Tók eitt fyrir liðið þarna og stoppaði skyndisókn.
55. mín
Ebesole með fínt skot en Aron grípur vel í markinu
50. mín
Archie með skot eftir geggjaða móttöku í teignum en Aron ver í horn.
47. mín
WÖHLER!!! Frábær sókn hjá ÍA og boltinn á Wöhler sem skýtur framhjá.
47. mín
Skagamenn brjálaðir!!!Vilja víti!! Boltinn fer klárlega í hendina á leikmanni Derby og ekkert annað en víti!!
46. mín
Leikar hafnir að nýju.
46. mín
Inn:Aron Snær Ingason (ÍA) Út:Marteinn Theodórsson (ÍA)
45. mín
Hálfleikur
Það er kominn hálfleikur og það er Derby sem leiðir í hálfleik.
44. mín
Smá skalla og skoppi tennis í gangi í teig ÍA sem endar með skoti en beint á Aron í markinu
43. mín
Ebesole með skot yfir markið eftir horn.
39. mín MARK!
Jack Stretton (Derby County)
MAAAAAARK!!!! Stretton fær boltann inn fyrir og setur hann framhjá Aroni. Aron átti að gera betur þarna og vera á undan Stretton í botlann.
36. mín Gult spjald: Callum Minkley (f) (Derby County)
36. mín
Aron Bjarki með flotta markvörslu skot.
33. mín
Wöhler með skot en rétt framhjá. Skagmenn aðeins að sækja í sig veðrið.
32. mín
Archie með skot en Aron ver vel.
30. mín
Skagamenn vilja víti en fá ekki!! Það var lykt af þessu!!
29. mín
Flott sókn hjá Skagamönnum en Wöhler nær ekki skallanum.
24. mín
Brynar Snær með fína fyrirgjöf úr aukaspyrnu en skallinn vel framhjá.
16. mín MARK!
Festy Ebosele (Derby County)
MAAAAARK!! Fyrsta mark leiksins er komið! Þetta var of einfalt. Derby menn labba bara upp vinstri kantinn og fyrirgjöf og fer í gegnum þrjá Skagamenn aður en Ebosele nær skotinu. Vel klárað hjá Ebosele.
15. mín
Brown með skalla framhjá eftir hornið.
14. mín
Nú er Sibley með skot en Aron ver í horn.
13. mín
Whittaker með skot að marki en Aron Bjarki vel á verði og ver vel.
10. mín
Aftur dauðafæri!!! Brown með fyrirgjöf og Sibley aleinn í teignum en skallar framhjá.
8. mín
Aftur er Ebesole með fyrirgjöf en enginn Derby maður sem nær til boltans. Svakalega fljótur hann Ebesole
5. mín
Dauðafæri!!!!! Ebesole stingur bavörð ÍA af og með eitraða sendingu en Archie Brown bara hittir ekki botlann!
3. mín
Fín sókn hjá ÍA sem endar með skoti í varnamann og fyrsta horn leiksins er heimamanna
2. mín
Brynjar snær reynir stungu inn fyrir á Wöhler en aðeins of fast og Bradley nær boltanum.
1. mín
Leikur hafinn
Þetta er farið af stað og það eru Skagamenn sem byrja með boltann.
Fyrir leik
Það eru rétt um 20 mínútur í leik hjá okkur og liðin að hita upp í blíðunni í Fossvoginum. Það er logn og 1 gráða á mælinum.
Fyrir leik
Þá eru byrjunarliðin loksins komin á hreint og má sjá þau hér til hliðar.
Fyrir leik
Ég hvet alla til að mæta á leikinn í kvöld. Það er ekkert annað að gera miðvikudagskvöld en að horfa á framtíðarstjörnur leika listir sínar í fótbolta!
Fyrir leik
Dómari leiksins í kvöld heitir Lionel Tschudi og kemur frá Sviss. Honum til aðstoðar verða þeir Vital Jobin og Matthias Sbrissa sem koma einnig frá Sviss. Fjórði dómari verður svo Kristján Már Ólafs.
Fyrir leik
Derby County verður alveg klárlega töluvert meiri og stærri prófraun fyrir Skagastrákana heldur en Tallinn. Þeir urðu Englandsmeistarar U18 ára liða í vor þar sem þeir unnu Arsenal í úrslitaleik og það eru leikmenn í þeirra hóp sem eiga leiki í Championship deildinni á Englandi. Miðað við þær upplýsingar sem ég hef fundið þá eru amk 5 leikmenn í hópnum hjá sem eiga leiki þar. Það verður að sjá byrjunarliðið hjá þeim í þessum leik. Alvöru lið sem verður gaman og fróðlegt að sjá ÍA strákana mæta.
Fyrir leik
ÍA varð fyrst allra íslenskra liða til að komast í aðra umferða í þessari keppni þegar þeir unnu Levadia Tallinn frá Eislandi í fyrstu umferða mjög sannfærandi 16-1 í tveimur leikjum. Þeir unnu heimaleikinn 4-0 og svo útileikinn 1-12. Sem er jafnframst stærsti sigur í sögu keppninnar. Það verður virkilega gaman að sjá þá keppa við lið Derby. Þess má geta að ÍA er að taka þátt í þessari keppni í fyrsta skipti eftir að hafa orðið Íslandsmeistarar síðasta sumar og auðvitað ljóst að þeir verða aftur með að ári þar sem þeir vörðu þann titil með glans núna í sumar.
Fyrir leik
Heilir og sælir kæru lesendur og verið hjartanlega velkomin í beina textalýsingu frá Víkingsvelli í Fossvoginum þar sem við ætlum að fylgjast með leik ÍA og Derby County í Evrópukeppni ungliða.
Byrjunarlið:
1. Bradley Foster-Theniger (m)
2. Kornell MacDonald
2. Festy Ebosele ('91)
3. Jordan Brown
4. Liam Thompson
5. Callum Minkley (f)
6. Eiram Cashin
8. Morgan Whittaker
9. Jack Stretton
10. Louie Sibley
11. Archie Brown

Varamenn:
13. Harry Halwax (m)
12. Jayden Charles
14. Bartosz Cybulski
15. Jack Rogers
15. Tyree Wilson
16. Osazee Aghatise ('91)
18. Alex Matthews

Liðsstjórn:
J. Walker (Þ)

Gul spjöld:
Callum Minkley (f) ('36)
Festy Ebosele ('75)
Bradley Foster-Theniger ('77)
Jordan Brown ('86)

Rauð spjöld: