Þróttur R.
1
0
Álafoss
Magnús Pétur Bjarnason
'51
1-0
06.06.2020 - 18:00
Eimskipsvöllurinn
Mjólkurbikar karla
Aðstæður: Frábærar, glampandi sól og örlítil gola
Dómari: Helgi Mikael Jónasson
Maður leiksins: Axel Helgi Ívarsson
Eimskipsvöllurinn
Mjólkurbikar karla
Aðstæður: Frábærar, glampandi sól og örlítil gola
Dómari: Helgi Mikael Jónasson
Maður leiksins: Axel Helgi Ívarsson
Byrjunarlið:
Sveinn Óli Guðnason
Magnús Pétur Bjarnason
2. Sindri Scheving
5. Atli Geir Gunnarsson
('45)
7. Daði Bergsson (f)
8. Aron Þórður Albertsson
8. Baldur Hannes Stefánsson
('45)
10. Guðmundur Axel Hilmarsson
15. Gunnlaugur Hlynur Birgisson
('74)
22. Oliver Heiðarsson
('79)
23. Guðmundur Friðriksson
Varamenn:
1. Franko Lalic (m)
3. Árni Þór Jakobsson
3. Stefán Þórður Stefánsson
4. Hreinn Ingi Örnólfsson
('45)
6. Birkir Þór Guðmundsson
('45)
7. Adrían Baarregaard Valencia
('79)
16. Egill Helgason
21. Róbert Hauksson
('74)
33. Hafþór Pétursson
Liðsstjórn:
Gunnar Guðmundsson (Þ)
Baldvin Már Baldvinsson
Srdjan Rajkovic
Páll Steinar Sigurbjörnsson
Gul spjöld:
Rauð spjöld:
Leik lokið!
Dómarinn flautar til leiksloka og 1-0 sigur Þróttara staðreynd. Viðtöl og skýrsla á leiðinni!
91. mín
Róbert Hauksson með ágætis skalla framhjá eftir fyrigjöf frá Adrían Valencia. Nú er þetta sennilega komið hjá Þrótti
88. mín
Enn og aftur ver Axel Helgi frábærlega í marki Álafoss og í raun honum að þakka að Þróttur hefur ekki skorað fleiri mörk
84. mín
Algjört dauðafæri hjá Þrótti! Daði Bergsson kemst einn á móti Axel Helga en reynir einhvern veginn að leika á markmanninn sem nær að verja
83. mín
Álafoss kemst inn í teig en nær ekki að skapa sér almennilegt færi. Þróttarar verða að passa sig á skyndisóknum
80. mín
Tíu mínútur eftir og staðan enn 1 - 0. Þróttur virðist vera að sigla þessu þægilega heim en annað mark myndi gulltryggja sigur þeirra
67. mín
Þróttarar virðast vera nokkuð sáttir með gang mála en mega passa sig að verða ekki of værukærir. Annað mark frá Þrótti myndi fara langleiðina með að trygga þeim sigur
64. mín
Gult spjald: Ronnarong Wongmahadthai (Álafoss)
Þreytulegt brot og réttilega dæmt gult spjald. Það virðist ekki mikið vera eftir á tankinum hjá Álafossi
63. mín
Fyrsta skot Álafoss á markið en það átti Ísak Máni Viðarsson eftir góða stungusendingu inn fyrir vörn Þróttara
62. mín
Þróttur mjög nálægt því að bæta við marki!. Oliver Heiðarsson leikur á þvo varnarmenn Álafoss og á hörkuskot í slánna
59. mín
Guðmundur Friðriksson á ágætis skot með vinstri sem Axel Helgi ræður ágætlega við. Pressan að aukast
57. mín
Gunnlaugur Hlynur með skot utan af velli sem far hátt yfir. Markið hefur gefið Þrótturum ákveðið öryggi og þeir virðast mun afslappaðri á boltanum
55. mín
Markið virðist hafa hleypt auknum krafti í Þróttara sem reyna nú að ganga á lagið og bæta við öðru marki
53. mín
Álafoss sleppur með skrekkinn. Aron Þórður virðist falla í teignum eftir fyrirgjöf frá Oliver Heiðarssyni. Ekkert dæmt þó
51. mín
MARK!
Magnús Pétur Bjarnason (Þróttur R.)
Loksins brjóta Þróttarar ísinn. Eftir að hafa spilað laglega í gegnum miðjan völlinn rennir Magnús Pétur Bjarnason knettinum í netið
48. mín
Það er svipað upp á teningnum og í fyrri hálfleik. Þróttur stjórnar leiknum algjörlega og reynir að mjaka sér að markinu
45. mín
Inn:Birkir Þór Guðmundsson (Þróttur R.)
Út:Baldur Hannes Stefánsson (Þróttur R.)
45. mín
Hálfleikur
Það er kominn hálfleikur á Eimskipsvellinum. Afar tíðinalítill fyrri hálfleikur að baki. Þróttur stjórnar leiknum algjörlega en hafa ekki skapað sér mörg færi. Leikmenn Álafoss virðast þó vera farnir að þreytast og spurning hvað þeir halda lengi út í seinni hálfleik
45. mín
Aron Þórður stingur boltanum inn á Magnús Pétur sem á skot að marki en er rangstæður
43. mín
Álafoss leggur rútunni djúpt inn í eigin teig. Spurning hvort að Þróttur nái að koma inn marki fyrir hálfleik
41. mín
Aron Þórður tekur aukaspyrnuna en hún er máttlítil og veldur Axel Helga í marki Álafoss engum vandræðum
38. mín
Álafoss fer fram yfir miðju í fyrsta sinn í laaangan tíma en eru fáliðaðir og missa boltann jafnharðan
35. mín
Enn og aftur skallar Gunnlaugur Hlynur á markið eftir snarpa sókn frá Þrótti en Axel Helgi er vel á verði
34. mín
Aron Þórður á skot utan teigs sem Axel Helgi ver í horn. Markið virðist vera að detta bráðum
31. mín
Þarna skall hurð nærri hælum! Gunnlaugur Hlynur Birgisson á á fastan skalla eftir hornspyrnuna en Álafoss nær að hreinsa á línu
28. mín
Magnús Pétur Bjarnason skallar að marki en lítil hætta af þessum skalla. Þróttarar reyna að keyra aðeins upp hraðann.
23. mín
Þróttarar vilja fá víti eftir að varnarmaður Álafoss virðist hafa handleikið knöttinn. Nei, segir Helgi Mikael dómari
18. mín
Leikurinn er hálftíðindalítill ennþá. Þróttarar halda boltanum vel og reyna að skapa sér færi en komast lítið áleiðis
16. mín
Fyrsta skot Álafoss á markið, talsvert fyrir utan teig og skapar ekki mikla hættu
14. mín
Álafoss liggur djúpt á vellinum og það verður ekki auðvelt fyrir Þróttara að brjóta vörn þeirra á bak aftur
11. mín
Aron Þórður lyfti boltanum inn í teig og Gunnlaugur Hlynur átti hálf máttlausan skalla á markið
10. mín
10 mínútur liðnar af leiknum og Þróttur stjórnar leiknum algjörlega. Hafa þó ekki skapað sér mörg fær ennþá
Fyrir leik
Aðstæður eru eins og best verður á kosið í dag, örlítil gola og sól, gerist ekki betra!
Fyrir leik
Þeir mættu KFR í æfingaleik á dögunum og unnu nokkuð sannfærandi 4 - 0 sigur. Þar áður höfðu þeir tapað 1 - 4 gegn KFG í æfingaleik
Fyrir leik
Álafoss spilar í 4.deildinni í sumar en liðið er tiltölulega nýtt, var stofnað árið 2017 í Mosfellsbæ.
Fyrir leik
Þróttur hafði unnið einn leik og tapað þremur áður en keppni var hætt í Lengjubikarnum vegna COVID19. Þeir spiluðu einn æfingaleik á dögunum gegn Haukum sem tapaðist 1 - 0
Fyrir leik
Þróttur hefur einnig samið við spænska framherjann Esau Martines Rojo en hann er 31 árs gamall og var síðast á mála hjá AD Torrejón CF í spænsku þriðju deildinni.
Fyrir leik
Góðan Dag lesendur góðir og velkomnir í beina textalýsingu á Þróttur R - Álafoss!
Þróttarar hafa bætt við sig nokkrum leikmönnum fyrir komandi átök í Lengjudeildinni. Stærstu fréttirnar eru sennilega þær að Dion Acoff er genginn til liðs við þá á nýjan leik. Dion er öllum hnútum kunnugur í Laugardalnum en hann var lykilmaður hjá Þrótti árin 2015 og 2016 áður en hann hélt til Vals. Hann hefur undanfarið leikið í Finnlandi og er ljóst er að hann verður gríðarmikill liðstyrkur fyrir Þróttara Í Lengjudeildinni í sumar
Þróttarar hafa bætt við sig nokkrum leikmönnum fyrir komandi átök í Lengjudeildinni. Stærstu fréttirnar eru sennilega þær að Dion Acoff er genginn til liðs við þá á nýjan leik. Dion er öllum hnútum kunnugur í Laugardalnum en hann var lykilmaður hjá Þrótti árin 2015 og 2016 áður en hann hélt til Vals. Hann hefur undanfarið leikið í Finnlandi og er ljóst er að hann verður gríðarmikill liðstyrkur fyrir Þróttara Í Lengjudeildinni í sumar
Byrjunarlið:
30. Axel Helgi Ívarsson (m)
4. Þorgrímur Goði Þorgrímsson
8. Aron Elfar Jónsson
('61)
11. Hlöðver Jóhannsson
12. Ægir Örn Snorrason
('85)
15. Davíð Leví Magnússon
17. Ronnarong Wongmahadthai
('73)
18. Baldvin Freyr Björgvinsson
('85)
19. Tómas Atli Björnsson
('73)
20. Ísak Máni Viðarsson
33. Leifur Kristjánsson (f)
Varamenn:
3. Patrekur Helgason
('61)
7. Karabo Mgiba
('73)
14. Guðbrandur Jóhannesson
('85)
22. Kristófer Liljar Kristensson
24. Jóel Magnússon
('73)
('85)
25. Máni Arnarsson
230. Ómar Arnar Sigurðsson
Liðsstjórn:
Ásgrímur Helgi Einarsson (Þ)
Patrik Elí Einarsson
Stefán Bjarnarson
Aron Freyr Kristjánsson
Egill Fannar Andrésson
Steinar Már Halldórsson
Gul spjöld:
Ronnarong Wongmahadthai ('64)
Rauð spjöld: