Selfoss
2
1
Haukar
0-1 Nikola Dejan Djuric '13
Hrvoje Tokic '76 1-1
Hrvoje Tokic '86 2-1
Kári Sveinsson '90
02.09.2020  -  17:30
JÁVERK-völlurinn
2. deild karla
Dómari: Steinar Berg Sævarsson
Áhorfendur: 193
Byrjunarlið:
1. Stefán Þór Ágústsson (m)
Ingi Rafn Ingibergsson ('51)
3. Þormar Elvarsson
6. Danijel Majkic
8. Ingvi Rafn Óskarsson ('88)
9. Hrvoje Tokic
18. Arnar Logi Sveinsson
22. Adam Örn Sveinbjörnsson
22. Þorsteinn Aron Antonsson
23. Þór Llorens Þórðarson
24. Kenan Turudija

Varamenn:
3. Gylfi Dagur Leifsson ('88)
4. Jökull Hermannsson
5. Jón Vignir Pétursson
17. Valdimar Jóhannsson ('51)
21. Aron Einarsson

Liðsstjórn:
Dean Martin (Þ)
Þorsteinn Daníel Þorsteinsson
Einar Ottó Antonsson
Arnar Helgi Magnússon
Óskar Valberg Arilíusson
Antoine van Kasteren
Jason Van Achteren
Gunnar Geir Gunnlaugsson

Gul spjöld:
Þormar Elvarsson ('45)
Þór Llorens Þórðarson ('64)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
+6
Steinar Berg flautar þetta af. Sannkallaðar senur á Selfossi!

Með þessum endurkomusigri gegn Haukum eru Selfyssingar komnir upp að hlið Kórdrengja í efsta sætinu.
90. mín Gult spjald: Kristófer Jónsson (Haukar)
+3
90. mín Rautt spjald: Kári Sveinsson (Haukar)
+3
Þarna skellir Steinar rauðu spjaldi á einhvern á bekknum hjá Haukum, sá ekki hver fékk spjaldið.
90. mín
+1
Við erum komin í uppbótatíma. Nú reynir á Hauka sem hafa ekki verið eins hættulegir framá við eftir að Nikola Dejan fór útaf.
88. mín
Inn:Gylfi Dagur Leifsson (Selfoss) Út:Ingvi Rafn Óskarsson (Selfoss)
88. mín
Valdimar með fyrirgjöf og Tokic á skot hárfínt framhjá! Þvílíkur leikur!
88. mín
Inn:Arnór Pálmi Kristjánsson (Haukar) Út:Kristófer Jónsson (Haukar)
Valdimar með fyrirgjöf og Tokic á skot hárfínt framhjá! Þvílíkur leikur!
86. mín MARK!
Hrvoje Tokic (Selfoss)
Maðurinn sem virtist vera að fara útaf á 5. mínútu kominn með 2 mörk. Hann klárar þetta víti fagmannlega.
85. mín Gult spjald: Ásgeir Þór Ingólfsson (Haukar)
VÍTI!!!! Braut á Valdimar, sá hefur átt flotta innkomu.
83. mín
Haukamenn fá smá breik með boltann, en það dugði ekki lengi.
81. mín
Það er kominn mikill hraði í þennan leik. Selfyssingar pressa hátt og eru mun líklegri aðilinn þessa stundina.
80. mín Gult spjald: Arnór Pálmi Kristjánsson (Haukar)
78. mín
Tokic virtist tekinn niður í vítateignum þar sem hann er við það að sleppa í gegn, ekkert dæmt og við verðum að treysta Steinari fyrir þessu.
77. mín
Inn:Valur Reykjalín Þrastarson (Haukar) Út:Nikola Dejan Djuric (Haukar)
77. mín
Inn:Arnór Pálmi Kristjánsson (Haukar) Út:Kristófer Jónsson (Haukar)
76. mín MARK!
Hrvoje Tokic (Selfoss)
Eftir hornspyrnu og innkast endar Tokic með boltann inní vítateig og veit nákvæmlega hvert boltinn á að fara.
74. mín
Þór Llorens! Hann á aukaspyrnu af töluverðu færi og sér ekkert nema markið. Lætur vaða af miklum krafti og Óskar nær ekki að halda boltanum, Selfyssingar fá innkast.
72. mín
Inn:Haukur Björnsson (Haukar) Út:Þórður Jón Jóhannesson (Haukar)
Haukur kominn inn, að vísu númer 24 í raunheimum.
68. mín
SLÁ! Þór Llorens á geggjaða aukaspyrnu inn á teig þar sem Valdimar hamrar boltanum í þverslánna. Þar á Selfyssingur skalla yfir markið.
67. mín Gult spjald: Aron Freyr Róbertsson (Haukar)
Allt of seinn í þessa tæklingu.
65. mín
Haukar fá að leika lausum hala fyrir framan vítateig Selfyssinga, þar tekur Nikola skot sem fer vel yfir markið.
64. mín Gult spjald: Þór Llorens Þórðarson (Selfoss)
Tók Kristófer niður.
59. mín
Þór Llorens með svakalega aukaspyrnu langt utan af velli, sýndist það vera Arnar Logi sem var kominn með pönnuna í þennan bolta þegar Óskar hirðir grípur inní.
57. mín
Selfyssingar áfram aðgangsharðir. Með enn eitt langt innkast og munar ekki miklu að Þorsteinn Aron nái að fylgja þessum bolta eftir.
54. mín
DAUÐAFÆRI! Tokic hefði átt að jafna þarna, fyrst ver Óskar og næst fer boltinn í stöngina. Já það er líf og fjör á Selfossi!
52. mín
Nikola Dejan með aukaspyrnu rétt fyrir utan teig vinstra megin. Skilar boltanum framhjá.
51. mín
Inn:Valdimar Jóhannsson (Selfoss) Út:Ingi Rafn Ingibergsson (Selfoss)
Valdimar var búinn að gera sig líklegan til að koma inná fyrir Tokic í fyrri hálfleik.
49. mín
Haukar eru með háa pressu í upphafi hálfleiksins vantar bara herslumuninn til að gera sér mat úr því.
46. mín
Leikur hafinn
Selfyssingar hefja síðari hálfleik. Þeir ætla að byrja í vörn og gera það ágætlega.
45. mín
Hálfleikur
Við það erum við dottinn í hálfleik. Búið að vera fjörugt, við erum þó til í að fá fleiri mörk í þetta í seinni hálfleik.
45. mín Gult spjald: Þormar Elvarsson (Selfoss)
Nikola var að flælkjast fyrir Þormari og fær fyrir það gult, Þormar var eitthvað pirraður og kastar í hann boltinu og fær einnig gult.
45. mín Gult spjald: Nikola Dejan Djuric (Haukar)
42. mín Gult spjald: Tómas Leó Ásgeirsson (Haukar)
Jahá, Steinar Berg segir Tómas hafa verið með leikaraskap þegar hann reynir að fara framhjá Þorsteini. Úr blaðamannagámnum virtist þetta rangt, en vonandi hefur Steinar haft þetta rétt.
38. mín
Það er farið að hitna aðeins í þessu. Steinar Berg biðlar til manna að tóna sig niður.
35. mín
Selfyssingar kominr í blússandi sókn með Tokic inn í vítateignum. Eftir tvær slakar fyrirgjafir er sú sókn búin.
31. mín
Selfyssingar töluvert meira með boltann, en eru ekki að ná skotinu á markið.
26. mín
Tómas Leó með hörkuskot frá vítateigslínunni sem Stefán Þór ver með tilþrifum.
24. mín
Haukar virðst vera að bjóða Selfyssingum upp í dans, sjáum hvað heimamenn gera við það og hvort Haukar nái að refsa fari þeir of framarlega.
18. mín
Heimamenn greinilega stuðast aðeins við markið, en eru farnir að sækja meira. Eftir aðra hornspyrnuna í röð bjarga Haukar á línu eftir skot frá Þorsteini Aroni.
13. mín MARK!
Nikola Dejan Djuric (Haukar)
MAAARK!!!

Og þvílíkt mark! Nikola náði boltanum af Kenan úti á miðjum velli. Hann sér að Stefán er ekki vel staðsettur í markinu og hamrar þessum inn af einum 30 metrum. Kenan segir brotið á sér, en þetta svakalega mark stendur.
11. mín
Haukar búnir að vera heldur meira með boltann þessar fyrstu mínútur, en Selfyssingar vel skipulagðir til baka. Þarna var Kristófer Dan alls ekki langt frá því að renna sér í boltann inni í teig.
8. mín
Tokic er kominn inná aftur, stígur aðeins við. Á eftir að sjá hann klára þennan leik.
5. mín
Tokic er farinn út fyrir völl og er í aðhlynningu hjá sjúkraþjálfara Selfyssinga, spurning hvort hann ætli að harka þetta af sér.
5. mín
Selfyssingar eiga aukaspyrnu, Þór á slaka spyrnu en Selfyssingar fá aukaspyrnu sem ekkert verður úr.
1. mín
Leikur hafinn
Haukar sparka þessu í gang og sækja á móti golunni.
Fyrir leik
Liðin eru komin á fullt í upphitun. Á Selfossi er gola í áttina að hólnum og hangir á mörkum þess að fá góða skúr og hanga þurrt. Grasið er í öllu falli vel rakt og og allt til alls til þess að liðin bjóði okkur og allt að 200 áhorfendum upp á einhverja veislu í þessum toppslag!
Fyrir leik
Selfyssingar eru búnir að vinna fjóra leiki í röð og eftir að þeir virtust vera að stimpla sig út úr toppbaráttunni, þá geta þeir komið sér þétt upp að hlið Kórdrengja á toppnum með sigri í kvöld.
Fyrir leik
Haukar unnu Þrótt Vogum í hrikalega skemmtilegum leik á Ásvöllum í síðustu umferð og eru búnir að vera öflugri í sumar en flestir bjuggust við. Sigur í kvöld skilar þeim í annað sætið.
Fyrir leik
Komið þið sæl og velkomin í þráðbeina textalýsingu frá Jávek-vellinum á Selfossi. Hér mætast tvö lið í toppbaráttunni í 2. deildinni. Skemmtilegasta deildin þetta sumarið segi ég og veit að margir eru því sammála.
Byrjunarlið:
12. Óskar Sigþórsson (m)
Ásgeir Þór Ingólfsson
2. Kristinn Pétursson
3. Máni Mar Steinbjörnsson
5. Sigurjón Már Markússon
6. Þórður Jón Jóhannesson ('72)
7. Aron Freyr Róbertsson
9. Tómas Leó Ásgeirsson
10. Kristófer Dan Þórðarson
17. Kristófer Jónsson ('77) ('88)
18. Nikola Dejan Djuric ('77)

Varamenn:
30. Jón Freyr Eyþórsson (m)
13. Arnór Pálmi Kristjánsson ('77) ('88)
13. Bjarki Björn Gunnarsson
16. Birgir Magnús Birgisson
16. Oliver Helgi Gíslason
18. Valur Reykjalín Þrastarson ('77)
28. Haukur Björnsson ('72)

Liðsstjórn:
Igor Bjarni Kostic (Þ)
Árni Ásbjarnarson
Þórarinn Jónas Ásgeirsson
Kári Sveinsson
Hafsteinn Jökull Brynjólfsson

Gul spjöld:
Tómas Leó Ásgeirsson ('42)
Nikola Dejan Djuric ('45)
Aron Freyr Róbertsson ('67)
Arnór Pálmi Kristjánsson ('80)
Ásgeir Þór Ingólfsson ('85)
Kristófer Jónsson ('90)

Rauð spjöld:
Kári Sveinsson ('90)