Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
Í BEINNI
Besta-deild karla
Stjarnan
LL 1
0
Valur
Grótta
2
2
Víkingur R.
Tinna Jónsdóttir '9 1-0
Tinna Jónsdóttir '27 2-0
2-1 Stefanía Ásta Tryggvadóttir '44 , víti
2-2 Nadía Atladóttir '66
02.09.2020  -  19:15
Vivaldivöllurinn
Lengjudeild kvenna
Dómari: Hafþór Bjartur Sveinsson
Maður leiksins: Emelía Óskarsdóttir (Grótta)
Byrjunarlið:
1. Tinna Brá Magnúsdóttir (m)
Sigrún Ösp Aðalgeirsdóttir
3. Margrét Rán Rúnarsdóttir
5. Rakel Lóa Brynjarsdóttir ('61)
9. Tinna Jónsdóttir
10. Bjargey Sigurborg Ólafsson
15. Mist Þormóðsdóttir Grönvold
18. Emelía Óskarsdóttir
19. Signý Ylfa Sigurðardóttir ('88)
21. Diljá Mjöll Aronsdóttir ('73)
24. Lovísa Davíðsdóttir Scheving (f) ('73)

Varamenn:
6. Helga Rakel Fjalarsdóttir
11. Heiða Helgudóttir ('73)
25. Lilja Lív Margrétardóttir ('61)
29. María Lovísa Jónasdóttir ('73)
39. Lilja Davíðsdóttir Scheving ('88)

Liðsstjórn:
Pétur Rögnvaldsson (Þ)
Magnús Örn Helgason (Þ)
Chris Brazell
Garðar Guðnason
Björn Valdimarsson
Gísli Þór Einarsson
Bára Kristbjörg Rúnarsdóttir
Edda Björg Eiríksdóttir
Eydís Lilja Eysteinsdóttir

Gul spjöld:
Rakel Lóa Brynjarsdóttir ('25)
Diljá Mjöll Aronsdóttir ('59)
Lovísa Davíðsdóttir Scheving ('62)
María Lovísa Jónasdóttir ('79)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Leik lokið!
Jafntefli staðreynd.
Viðtöl og skýrsla er í vinnslu.
90. mín
Bæði lið reyna setja að sækja á lokamínútunni.
90. mín
Víkingur R. fær aukaspyrnu á miðjum vallarhelmingi þeirra.
88. mín
Inn:Lilja Davíðsdóttir Scheving (Grótta) Út:Signý Ylfa Sigurðardóttir (Grótta)
87. mín
Bæði lið búin að reyna spila boltanum á milli á sín á undanförnum mínútum.
80. mín
Grótta fær aukaspyrnu nánast við hornfána Víkings R. Helga Rakel tekur spyrnuna en Víkingur R. kemur boltanum strax frá markinu.
79. mín Gult spjald: María Lovísa Jónasdóttir (Grótta)
73. mín
Bjargey brýtur á Rut sirka 10 metrum fyrir utan vítateig. Víkingur R. fær aukaspyrnu sem Stefanía Ásta tekur. Gróttar skallar boltann frá og flr svo aukaspyrnu við hornfánann sinn.
73. mín
Inn:María Lovísa Jónasdóttir (Grótta) Út:Lovísa Davíðsdóttir Scheving (Grótta)
73. mín
Inn:Heiða Helgudóttir (Grótta) Út:Diljá Mjöll Aronsdóttir (Grótta)
70. mín
Inn:Birgitta Sól Vilbergsdóttir (Víkingur R.) Út:Tara Jónsdóttir (Víkingur R.)
69. mín
Víkingur R. fær horn sem Tinna gríðpur.
66. mín MARK!
Nadía Atladóttir (Víkingur R.)
Þær eru búnar að jafna!!
Víkingur R. var að sækja að marki Gróttu þegar boltinn barst til Nadíu sem negldi boltanum í vinstra hornið. Smellhitti boltann! Þetta er leikur!
64. mín
Rut fær aukaspyrnu á miðjum vellinum sem hún tekur strax.
62. mín Gult spjald: Lovísa Davíðsdóttir Scheving (Grótta)
62. mín
Emelía sprettir upp hægri kantinn og fer fram hjá tveimur varnarmönnum Víkings R. Hún er nánast komin upp að markteig þegar hún ákveður að skjóta en Halla Margrét lokar markinu og ver í horn.
61. mín
Inn:Lilja Lív Margrétardóttir (Grótta) Út:Rakel Lóa Brynjarsdóttir (Grótta)
Fyrsta skipting leiksins.
60. mín
Signý fær boltann í höndina á miðjunni og Víkingur R. fær aukaspyrnu.
59. mín Gult spjald: Diljá Mjöll Aronsdóttir (Grótta)
Stoppaði sókn Víkings R.
57. mín
Víkingur R. með flotta sókn sem endar í hornspyrnu. Úr hornspyrnunni ná Víkingur R. að spila boltanum út og svo aftur inn að marki. Nadía setur boltann í markið en það var dæmt af vegna rangstöðu.
52. mín
Halla Margrét virtist hafa fengið högg á fótinn en hún og Tinna lentu saman. Sjúkraþjálfarinn kemur inn á en Halla er staðin upp.
51. mín
Þarna hefði þrennan getað komið!
Tinna kemst inn í vítateig Víkings frá vinstri kantinum. Halla Margrét gerir mjög vel og kemur út úr markinu og lokar rammanum. Vel gert!
49. mín
Tinna fer upp miðjuna og skiptir honum yfir á Emelíu sem er inn í vítateig Víkings. Emelía sér Signý koma hlaupandi inn í teiginn og skallar hann til hennar. Fyrsta snerting Signýjar er hins vegar ekki alveg nógu góð og Halla Margrét gerir virkilega vel og nær boltanum.
47. mín
Lovísa með skot fyrir utan teig. Halla Margrét grípur boltann og kemur honum strax í leik.
46. mín
Leikur hafinn
Seinni hálfleikur er byrjaður.
45. mín
Hálfleikur
2-1!
Skemmtilegur hálfleikur búinn, vonandi fáum við fjörugan seinni hálfleik líka.
44. mín Mark úr víti!
Stefanía Ásta Tryggvadóttir (Víkingur R.)
2-1, þær minnka muninn!

Víkingur R. fær víti eftir að mér sýndist að Gróttu leikmaður braut á leikmanni Víkings inn í vítateig, eftir að Víking R. fékk aukaspyrnu.
40. mín
VÁ!
Þarna hefði Víking R. getað skorað!!
Víking R. nær skoti utan að teig, sá ekki hver það var en Tinna náð að verja. Boltinn fór hins vegar út í markteig og þar var Nadía sem setti boltann fram hjá!
39. mín
Nadía kemst ein á móti Sigrúnu sem fylgir henni alveg upp að endalínu og setur boltann í horn.
37. mín
Vá þvílíkur hraði!
Nadía kemst inn í sendingu Sigrúnar, sem átti að fara á Bjargey. Nadía geysist upp kantinn á ógnarhraða og nær skoti. Fínt skot, en Tinna er snögg niður og nær boltanum.
35. mín
Flott spil hjá Víking R. sem endar með því að Freyja gefur fyrirgjöf að marki Gróttu. Nadía nær til boltans en skallinn ekki nægilega góður. Grótta hreinsar boltann frá.
32. mín
Hulda Ösp með flotta sendingu inn fyrir vörn Gróttu á vinstri kantinu. Sendingin er föst og meðfram jörðinni. Nadía sér að Rut er fyrir aftan sig inn í vítateignum. Nadía lætur hann fara og Rut tekur skotið. Skotið er samt langt yfir og Grótta á markspyrnu. Skemmtilega gert samt!
30. mín
Fín hugsun hjá Víking R. Rut og Tara spiluðu boltanum sín á milli sem endaði með því að Rut náði að senda stungu inn á Nadíu. Nadía náði ekki alveg að lesa hvað Rut ætlaði að gera og Grótta fær markspyrnu.
27. mín MARK!
Tinna Jónsdóttir (Grótta)
2-0!!

Léleg móttaka frá Helgu Rún í miðverðinu gerði það að verkum að Tinna hreinlega náði boltanum af henni. Emelía var með henni hinu megin í vítateignum en hún ákvað að klára færið sjálf.
25. mín Gult spjald: Rakel Lóa Brynjarsdóttir (Grótta)
Rakel Lóa stoppar Freyju á fleygiferð upp hægri kantinn. Hárrétt spjald.
22. mín
Tara kemur boltanum upp hægri kantinn þar sem Dagný Rún er staðsett. Dagný finnur Freyju sem sparkar boltanum svo inn í vítateig. Grótta hreinsar í horn en ekkert verður úr horninu hjá Víking R.
21. mín
Grótta vill fá vítaspyrnu hér á 21.mínútu. Emelía dettur inn í teig. Mér sýndist Helga Rún vera í henni, en ekkert dæmt.
15. mín
Rakel sendir boltann á Tinnu, sem er uppi á hægri kanti. Tinna ógnar vítateig Víkings en þær ná að koma boltanum í horn. Ekkert verður síðan úr horni hjá Gróttu.
12. mín
Víkings R. fá hornspyrnu sem Grótta nær að koma hættunni frá. Bjargey nær að koma boltanum upp á Lovísu sem var allt í einu orðin þeirra fremsti leikmaður. Lovísa sleppur í gegn en er dæmd rangstæð.
9. mín MARK!
Tinna Jónsdóttir (Grótta)
Stoðsending: Emelía Óskarsdóttir
Þetta var rosalega vel gert!

Grótta spilar boltanum á milli sín í vörninni sem endar með því að Mist sendir upp á Emelíu, sem er staðsett á vinstri kanti. Emelía fer fram hjá þremur Víkings R. leikmönnum og er komin að vítateignum þegar hún sendir boltann á Tinnu sem er inn í vítateig. Tinna snýr varnarmann Víkings R. af sér og setur boltann í markið.

1-0!
5. mín
Nadía kemst upp miðjuna og reynir stungu inn á Danýju. Sendingin er of föst og ratar beint í hendurnar á Tinnu Brá í markinu.
2. mín
Nadía gerir virkilega vel og stingur Mist af upp vinstri kantinn. Hún kemur boltanum inn fyrir vítateig Gróttu en Grótta nær til boltans á undan Víking.
1. mín
Leikur hafinn
Hafþór flautar leikinn á! Grótta byrjar með boltann.
Fyrir leik
Byrjunarliðin eru klár og má sjá þau hér til hliðar.
Fyrir leik
Það munar 10 stigum á liðunum í töflunni. Víkingur R. er í 8.sæti með 8 stig og Grótta í 4.sæti með 18 stig.
Fyrir leik
Grótta og Víkingur R. hafa leikið tvisvar sinnum gegn hvort öðru í sumar. Liðin spiluðu á móti hvort öðru í 1.umferð Mjólkurbikarsins þann 8.júní. Víkingur R. vann þann leik 5-3.

Því næst áttust liðin við í deildinni á heimavelli Víkings R. Sá leikur lauk með 3-1 sigri Gróttu.
Fyrir leik
Á síðasta ári lauk HK/Víkingur samstarfi sínu og Víkingur R. tók sæti í Lengjudeild kvenna á meðan HK leikur í 2.deild kvenna í ár.
Fyrir leik
Góðan daginn og verið velkomin í beina textalýsingu frá Vivaldi-vellinum á Seltjarnarnesi. Í kvöld tekur Grótta á móti Víking R. og hefst leikurinn kl.19:15.
Byrjunarlið:
1. Halla Margrét Hinriksdóttir (m)
Dagmar Pálsdóttir
7. Dagný Rún Pétursdóttir
8. Stefanía Ásta Tryggvadóttir
9. Rut Kristjánsdóttir
16. Helga Rún Hermannsdóttir
17. Svanhildur Ylfa Dagbjartsdóttir
19. Tara Jónsdóttir ('70)
22. Nadía Atladóttir (f)
23. Hulda Ösp Ágústsdóttir
32. Freyja Friðþjófsdóttir

Varamenn:
1. Mist Elíasdóttir (m)
4. Brynhildur Vala Björnsdóttir
13. Margrét Eva Sigurðardóttir
14. Unnbjörg Jóna Ómarsdóttir
15. Alice Hanna Rosenkvist
21. Birgitta Sól Vilbergsdóttir ('70)
25. Ólöf Hildur Tómasdóttir

Liðsstjórn:
John Henry Andrews (Þ)
Davíð Örn Aðalsteinsson
Theódór Sveinjónsson
Þorleifur Óskarsson
Þórhanna Inga Ómarsdóttir
Margrét Friðriksson

Gul spjöld:

Rauð spjöld: