Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
Þróttur R.
0
0
Valur
10.05.2021  -  19:15
Eimskipsvöllurinn
Pepsi-Max deild kvenna
Aðstæður: Vor í lofti, sól og örlítil hliðargola.
Dómari: Helgi Ólafsson
Maður leiksins: Sóley María Steinarsdóttir (Þróttur)
Byrjunarlið:
1. Íris Dögg Gunnarsdóttir (m)
Sóley María Steinarsdóttir
Shaelan Grace Murison Brown ('83)
Kate Cousins
4. Hildur Egilsdóttir ('64)
5. Jelena Tinna Kujundzic
7. Andrea Rut Bjarnadóttir
8. Álfhildur Rósa Kjartansdóttir (f)
19. Elísabet Freyja Þorvaldsdóttir
21. Lorena Yvonne Baumann
44. Shea Moyer

Varamenn:
2. Sigmundína Sara Þorgrímsdóttir
11. Tinna Dögg Þórðardóttir
14. Guðrún Ólafía Þorsteinsdóttir
15. Ísabella Anna Húbertsdóttir ('64)
20. Friðrika Arnardóttir
24. Ragnheiður Ríkharðsdóttir

Liðsstjórn:
Nik Chamberlain (Þ)
Egill Atlason
Jamie Paul Brassington
Edda Garðarsdóttir
Henry Albert Szmydt
Ásdís Atladóttir

Gul spjöld:
Lorena Yvonne Baumann ('45)
Elísabet Freyja Þorvaldsdóttir ('68)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Leik lokið!

Markalaust jafntefli er niðurstaðan í fjörugum Reykjavíkurslag.

Heldur betur óvænt úrslit sem við erum að sjá í Pepsi Max deildinni í kvöld!

Ég þakka fyrir mig og minni á viðtöl og skýrslu hér á eftir.
94. mín
Síðasti séns fyrir heimakonur!

Katie Cousins vinnur horn.. En í staðinn fyrir að setja boltann fyrir taka Þróttarar hornið stutt og reyna að eyða tíma.

Í kjölfarið fylgja svo tvö önnur horn sem bæði eru tekin stutt og þannig fjarar leikurinn út.
91. mín
Valur fær aukaspyrnu úti á miðjum velli. Dóra María setur háan bolta inn á teig en Sóley María skallar frá. Heimakonur ná að færa liðið sitt ofar og vinna innkast.
89. mín
Þetta er að fjara út og það stefnir allt í 0-0 jafntefli. Broddurinn farinn úr þessu hjá báðum liðum.
85. mín
Tíminn er að renna út og staðan er enn markalaus. Þetta verða spennandi lokamínútur!
83. mín
Inn:Ásdís Atladóttir (Þróttur R.) Út:Shaelan Grace Murison Brown (Þróttur R.)
Ásdís skipti frá Val í Þrótt fyrir stuttu og leikur í kvöld sinn fyrsta mótsleik í meistaraflokki.
82. mín
Þetta lítur ekki vel út. Shaelan haltrar af velli. Við sáum ekki hvort hún missteig sig eða fékk spark en hún stingur við og hefur lokið leik í kvöld.
76. mín
Stórhætta!

Mary Alice brýst inná teig vinstra megin og leggur boltann út í skot. Elín Metta neglir að marki en Jelena nær að henda sér fyrir skotið!

Örstuttu síðar á Elín aðra skottilraun. Í þetta skiptið utarlega í teignum en boltinn flýgur yfir.
75. mín
Elín Metta er tekin niður rétt utan við vítateigshornið og Valur fær aukaspyrnu. Dóra María setur boltann á fjær en þar nær enginn samherji til boltans.
73. mín
Shaelan á skot sem fer af varnarmanni og endar hjá Söndru.

Bæði lið eru "in it to win it".
71. mín
Það er hiti í þessu og Lorena og Elín Metta eru eitthvað að rífast. Báðar á gulu spjaldi og Helgi dómari biður þær að róa sig.
68. mín Gult spjald: Elísabet Freyja Þorvaldsdóttir (Þróttur R.)
Brýtur á Sólveigu sem var komin á ferðina upp vinstri kantinn.

Valur fær aukaspyrnu sem Dóra María tekur. Sókn Vals endar á því að Mist brýtur af sér í teignum og Þróttarar anda léttar.
66. mín
Nú vinna Þróttarar horn. Katie Cousins tekur en Mist skallar frá.
64. mín
Inn:Ísabella Anna Húbertsdóttir (Þróttur R.) Út:Hildur Egilsdóttir (Þróttur R.)
Þróttarar gera skiptingu. Ísabella Anna kemur inn fyrir Hildi. Við það færist Andrea Rut upp á topp með Shaelan.
63. mín Gult spjald: Elín Metta Jensen (Valur)
Uppsafnað. Fær gult fyrir brot.
62. mín Gult spjald: Ásdís Karen Halldórsdóttir (Valur)
Brýtur á Lorena.
60. mín
Inn:Katla Tryggvadóttir (Valur) Út:Anna Rakel Pétursdóttir (Valur)
Tvöföld skipting hjá gestunum. Sólveig Larsen spilar sinn fyrsta mótsleik fyrir Val og hin 16 ára Katla tekur sínar fyrstu mínútur í sumar. Spennandi skipting.
60. mín
Inn:Sólveig Jóhannesdóttir Larsen (Valur) Út:Anna Rakel Pétursdóttir (Valur)
Tvöföld skipting hjá gestunum. Sólveig Larsen spilar sinn fyrsta mótsleik fyrir Val og hin 16 ára Katla tekur sínar fyrstu mínútur í sumar. Spennandi skipting.
58. mín
Vó!

Hættulegt hjá Val. Ásdís Karen á fyrirgjöf frá vinstri og inná markteig þar sem Ída mætir í viðstöðulaust skot!

Setur boltann yfir!
56. mín
Þróttarar eru í brasi við að leysa úr pressu Valskvenna sem vinna horn. Anna Rakel tekur en Shea skallar frá.
53. mín
Stúkan púar og vill meina að Elín Metta hafi átt að fara í bókina. Hún var að þvælasta fyrir þegar Þróttarar ætluðu að taka aukaspyrnu.

Aðeins farið að heyrast í stúkunni.
51. mín
Hætta við mark Vals! Fyrirgjöf Þróttara flýgur rétt framjá fjærstönginni. Munaði engu að Shaelan næði skallanum.
49. mín
Aftur vinna Valskonur horn. Í þetta skiptið hægra megin og Anna Rakel tekur spyrnuna. Katie Cousins nær að negla boltanum fram þar sem Shaelan nær honum og fiskar aukaspyrnu.
46. mín
Leikur hafinn
Við erum farin af stað aftur. Engar breytingar voru gerðar á liðunum í hálfleik.

Gestirnir byrja af krafti. Fara upp vinstra megin og sóknin endar á því að Íris Dögg ver frá Ásdísi Karen.

Dóra María tekur horn fyrir Val. Sem fyrr er Mist gríðarlega sterk í teignum en hún skallar boltann ofan á þaknetið.
45. mín
Hálfleikur
Það er kominn hálfleikur og staðan enn markalaus, 0-0. Leikurinn hefur verið fjörugur og bæði lið hafa fengið sín færi. Við fáum vonandi áframhaldandi skemmtun í seinni hálfleik.

Við tökum okkur korterspásu eins og leikmennirnir og sjáumst eftir smá.
45. mín Gult spjald: Lorena Yvonne Baumann (Þróttur R.)
Lorena brýtur af sér í tvígang á stuttum tíma og fer í bókina.

Valskonur fá aukaspyrnu úti til hægri. Anna Rakel tekur spyrnuna en boltinn endar í höndunum á Írisi eftir baráttu í teignum.
44. mín
Áfram skiptast liðin á að sækja!

Álfhildur hreinsar stórhættulegan bolta Mary Alice fram völlinn. Þar tekur Shaelan skemmtilega hreyfingu og kemst framhjá Örnu. FInnur svo Andreu Rut sem nær ágætu skoti að marki sem fer af varnarmanni og aftur fyrir!

Sem fyrr eru Valskonur sterkari í loftinu í föstum leikatriðum og skalla frá.
41. mín
Klaufagangur hjá Jelenu sem lendir í brasi við að losa boltann og missir hann til Elínar Mettu sem gerir vel í að pressa. Elín hleypur Jelenu af sér og kemst inná teig þrátt fyrir að Jelena hangi í treyjunni hjá henni. Elín nær þó ekki að klára þetta kröftuga hlaup með markskoti.

Þróttarar vinna boltann og bruna í sókn. Sú sókn endar á að Shaelan kemst inná teig en skýtur rétt framhjá!

Jelena er stálheppin að sleppa við spjald þegar boltinn fer úr leik. Fær ekki einu sinni tiltal fyrir peysutogið hér rétt á undan.
33. mín
ÍDAAAA!

Ída Marín á skot úr teignum sem lekur framhjá fjærstönginni. Ásdís Karen kom eins og gammur á fjær en rétt missti af boltanum.
32. mín
Loks ná heimakonur svolítilli ró í sinn leik og sækja. Vinna aukaspyrnu úti hægra megin. Katie Cousins tekur hana og setur boltann inná teig. Það eru heldur betur turnar í Valsliðinu og gestirnir skalla frá.
30. mín
Fjórða tilraun Elínar Mettu í röð. Valskonur pressa vel á Þróttarar. Vinna boltann og koma honum inní box þar sem Elín Metta tekur hann á kassann og reynir skot sem flýgur yfir.

Stuttu síðar brýst hún aftur inn á teig en nær ekki að finna skotið. Það er aldeilis að losna um landsliðskonuna.

Þróttarar þurfa að reyna að róa þetta niður núna. Þær eru alltof mikið að flýta sér í uppspili.
28. mín
Áfram heldur Elín Metta að ógna og nú vinnur hún hornspyrnu eftir að Íris Dögg varði frá henni. Dóra María tekur hornið en Þróttarar ná að koma boltanum frá.
27. mín
Elín Metta mundar skotfótinn að nýju. Í þetta skiptið eftir laglegt uppspil sem endar á skoti rétt utan teigs. Skotið þó aðeins framhjá!
27. mín
Íris Dögg!

Valskonur fá horn. Anna Rakel tekur spyrnuna og setur boltann fyrir markið. Elín Metta nær skotinu en Íris kemur frábærlega út á móti henni og ver í tvígang. Það er svo brotið á henni og Þróttarar snúa vörn í sókn.
23. mín
Þetta er stórskemmtilegur leikur og bæði lið reyna að brjóta ísinn. Nú var Ída að eiga slakan skalla að marki eftir góða fyrirgjöf Elísu.
21. mín
STÓRHÆTTA!

Frábær sókn hjá heimakonum!

Hildur sendi boltann fyrir frá vinstri. Andrea Rut var í boltanum en lét hann fara áfram á Katie. Hún var komin í frábært marktækifæri en setti boltann framhjá!
19. mín
Lið Vals (4-3-3):

Sandra

Elísa - Mist - Arna - Mary Alice

Dóra María - Sísí

Ásdís - Anna Rakel - Ída Marín

Elín Metta
18. mín
Aftur mundar Anna Rakel skotfótinn. Reynir viðstöðulaust skot utarlega í teignum en setur boltann aðeins framhjá!

Það er líf og fjör í þessu!
15. mín
SÉÉÉÉNS!

Anna Rakel fer illa með gott marktækifæri þegar hún nær ekki að stýra viðstöðulausu skoti sínu af markteig á markið!

Hún hafði fengið frábæra sendingu inná teig frá Mary Alice sem var komin upp vinstra megin.
14. mín
SLÁIN!!!

Mist á hörkuskalla í slá eftir hornspyrnu!

Þarna munaði engu.

Bæði lið að ógna!
13. mín
Ásdís Karen brýst upp hægra megin en svissneski bakvörðurinn Lorena nær að stoppa hana. Valur fær horn..
11. mín
Þróttarar halda áfram að ógna!

Shaelan kom boltanum í netið með fyrirgjöf frá hægri en markið ekki gilt þar sem boltinn var farinn aftur fyrir. Þarna munaði ekki miklu.
10. mín
DAUÐAFÆRI!

Þarna átti Hildur Egilsdóttir að gera miklu betur!

Andrea Rut átti frábæra fyrirgjöf frá hægri og beint í átt að Hildi sem var mætt á fjær. Hún fékk nægan tíma til að stýra boltanum í markið en setti hann yfir!
8. mín
Lið Þróttar (4-4-2 - tígull):

Íris

Elísabet Freyja - Sóley - Jelena - Lorena

Álfhildur (c)

Katie - Shea

Andrea Rut

Hildur - Shaelan
6. mín
Þetta er fram og til baka þessar fyrstu mínútur. Bæði lið óhrædd við að sækja en við bíðum enn eftir fyrstu alvöru sénsunum.
2. mín
Þá fá Þróttarar horn. Katy Cousins sýndi lipra takta úti til hægri og losaði á Andreu Rut sem reyndi að koma boltanum fyrir. Boltinn virtist á leið aftur fyrir en Sandra snerti hann aðeins og hornspyrna dæmd. Cousins tók svo hornið en boltinn endaði í höndunum á Söndru.
1. mín
Gestirnir byrja á að vinna boltann og Elín Metta sækir hornspyrnu. Upp úr horninu skapast töluverð hætta en Þróttarar ná að koma boltanum frá.
1. mín
Leikur hafinn
Þróttarar hefja leik og leika í átt að miðbænum. Hildur Egilsdóttir tekur upphafsspyrnuna.
Fyrir leik
Nú eru liðin mætt út á völl og allt að verða klárt. Það er fínasta veður. Vorsól og örlítil hliðargola.

Dómari leiksins er Helgi Ólafsson og honum til aðstoðar verða þeir Tomasz Piotr Zietal og Hafþór Bjartur Sveinsson.
Fyrir leik
Byrjunarliðin eru klár eins og sjá má hér til hliðar.

Þróttarar stilla upp sama liði og síðast en hjá Val er ein breyting. Arna Eiríksdóttir kemur inn í liðið fyrir systur sína, Málfríði Önnu.
Fyrir leik
Liðin mættust tvívegis á síðasta tímabili og höfðu Valskonur betur í bæði skiptin. Fyrst unnu þær 2-1 hér á Eimskipsvellinu og í seinni umferðinni á Origo vellinum unnu þær 3-1.

Það eru nokkrir leikmenn sem taka þátt í kvöld sem hafa leikið fyrir bæði lið. Ísabella Anna Húbertsdóttir og Áslaug Atladóttir eru í leikmannahópi Þróttar og uppaldar hjá Val. Þær Mary Alice Vignola og Ólöf Sigríður Kristinsdóttur léku báðar með Þrótti í fyrra, sú síðarnefnda á láni, en eru leikmenn Vals í dag. Þá hefur aðstoðarþjálfari Þróttar, Edda Garðarsdóttir, bæði þjálfað og spilað fyrir Val.
Fyrir leik
Heimakonur gerðu 1-1 jafntefli við nýliða Tindastóls í fyrstu umferð. Katy Cousins bjargaði þá stigi fyrir Þróttara með laglegu marki úr aukaspyrnu á lokamínútum leiksins.

Á sama tíma fengu lagði Valur Stjörnuna 2-1 með mörkum frá Ídu Marín Hermannsdóttur og Önnu Rakel Pétursdóttur.
Fyrir leik
Heil og sæl!

Verið velkomin í beina textalýsingu frá leik Þróttar og Vals í 2. umferð Pepsi Max deildarinnar.

Framundan er Reykjavíkurslagur í blíðskaparveðri.
Byrjunarlið:
12. Sandra Sigurðardóttir (m)
3. Arna Eiríksdóttir
4. Sigríður Lára Garðarsdóttir
6. Mist Edvardsdóttir
7. Elísa Viðarsdóttir
8. Ásdís Karen Halldórsdóttir
9. Ída Marín Hermannsdóttir
10. Elín Metta Jensen
11. Anna Rakel Pétursdóttir ('60) ('60)
16. Mary Alice Vignola
22. Dóra María Lárusdóttir

Varamenn:
1. Fanney Inga Birkisdóttir (m)
2. Hlíf Hauksdóttir
14. Sólveig Jóhannesdóttir Larsen ('60)
15. Bergdís Fanney Einarsdóttir
17. Katla Tryggvadóttir ('60)
19. Ólöf Sigríður Kristinsdóttir
21. Lillý Rut Hlynsdóttir

Liðsstjórn:
Pétur Pétursson (Þ)
Eiður Benedikt Eiríksson (Þ)
Ásta Árnadóttir
Jóhann Emil Elíasson
María Hjaltalín
Kjartan Sturluson

Gul spjöld:
Ásdís Karen Halldórsdóttir ('62)
Elín Metta Jensen ('63)

Rauð spjöld: