Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
HK
1
3
FH
Birnir Snær Ingason '28 1-0
1-1 Ágúst Eðvald Hlynsson '33
Stefan Ljubicic '40 , misnotað víti 1-1
1-2 Ágúst Eðvald Hlynsson '57
1-3 Steven Lennon '86
17.05.2021  -  19:15
Kórinn
Pepsi Max-deild karla
Dómari: Elías Ingi Árnason
Maður leiksins: Ágúst Eðvald Hlynsson
Byrjunarlið:
25. Arnar Freyr Ólafsson (m)
2. Ásgeir Börkur Ásgeirsson ('75)
5. Guðmundur Þór Júlíusson (f)
7. Birnir Snær Ingason
7. Örvar Eggertsson
8. Arnþór Ari Atlason
17. Valgeir Valgeirsson
17. Jón Arnar Barðdal
18. Atli Arnarson
28. Martin Rauschenberg
30. Stefan Ljubicic ('75)

Varamenn:
1. Sigurður Hrannar Björnsson (m)
3. Ívar Orri Gissurarson
4. Leifur Andri Leifsson
14. Bjarni Páll Linnet Runólfsson ('75)
16. Eiður Atli Rúnarsson
20. Ívan Óli Santos
24. Breki Muntaga Jallow

Liðsstjórn:
Brynjar Björn Gunnarsson (Þ)
Bjarni Gunnarsson
Matthías Ragnarsson
Viktor Bjarki Arnarsson
Alma Rún Kristmannsdóttir
Sandor Matus
Birkir Örn Arnarsson

Gul spjöld:
Atli Arnarson ('25)
Stefan Ljubicic ('30)
Ásgeir Börkur Ásgeirsson ('62)
Martin Rauschenberg ('69)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Birnir Snær reynir skot sem Gunnar ver og við það flautar Elías Ingi til loka þessa leiks.

FH vinnur sterkan 1-3 útisigur í Kórnum.
93. mín Gult spjald: Gunnar Nielsen (FH)
Tefja
92. mín
Alvöru atgangur í teig FH þar sem boltinn er eins og pinball kúla og ótrúlegt að HK hafi ekki náð að skora.
91. mín
4 mín í uppbótartíma.
88. mín
Inn:Vuk Oskar Dimitrijevic (FH) Út:Matthías Vilhjálmsson (FH)
86. mín MARK!
Steven Lennon (FH)
Stoðsending: Ágúst Eðvald Hlynsson
MAARK!!

FH er að fara langleiðina með þetta hérna!
Frábært hlaup upp vinsti kannt þar sem Ágúst Eðvald kemst upp að endalínu og sendir fyrir markið á Steven Lennon sem skorar.
82. mín
Það er að færast ágætis harka í þennan leik.
79. mín Gult spjald: Hörður Ingi Gunnarsson (FH)
Fyrir brot á Birni Snæ og fær Elías Ingi lófatak úr stúkunni.
77. mín
Inn:Baldur Logi Guðlaugsson (FH) Út:Jónatan Ingi Jónsson (FH)
76. mín
Það er ágætis hiti í stúkunni. Fólk missátt við dómarann.
75. mín
Inn:Bjarni Gunnarsson (HK) Út:Ásgeir Börkur Ásgeirsson (HK)
75. mín
Inn:Bjarni Páll Linnet Runólfsson (HK) Út:Stefan Ljubicic (HK)
73. mín
Ágúst Eðvald með skotfæri en skotið framhjá. Honum langar í þrennuna.
71. mín
Frábær sending frá Birni Snær inn á teig sem Örvar Eggerts nær ekki stjórn á og FH bjarga.
69. mín Gult spjald: Martin Rauschenberg (HK)
67. mín
Það er kraftur í HK þessa stundina.
62. mín Gult spjald: Ásgeir Börkur Ásgeirsson (HK)
57. mín MARK!
Ágúst Eðvald Hlynsson (FH)
Stoðsending: Matthías Vilhjálmsson
MAARK!

FH kemst yfir!!

Frábær fyrirgjöf fyrir markið sem Matti kassar á Ágúst Eðvald sem þrumar boltanum svo í mark HK.
55. mín
Guðmann liggur eftir og leikurinn stopp. Vonandi missa FH-ingar ekki annan mann af velli í meiðsli svona stutt inn í seinni hálfleik.
54. mín
HK átt mjög góðar sóknarlotur en vantar bara endahnútinn.
51. mín
Steven Lennon kemur knettinum í netið en er dæmdur brotlegur.
49. mín
Inn:Björn Daníel Sverrisson (FH) Út:Eggert Gunnþór Jónsson (FH)
Virðist hafa meiðst í aðdraganda sóknarinnar.
47. mín
Misskilningur í öftustu línu hjá FH.
Tilturlega hættulaus fyrirgjöf fyrir markið sem Gunnar Nielsen slær út á Valgeir sem á hörkuskot sem FH bjargar svo í horn. Þarna mátti aldeilis ekki miklu muna!
46. mín
Steven Lennon á upphafssparkið í seinni hálfleik fyrir FH.
45. mín
Hálfleikur
+1

Liðin eru jöfn í hálfleik. líklega sanngjörn niðurstaða þó HK megi vera svekktir með að leiða þetta ekki eftir vítaspyrnuna sem þeim fengu.
45. mín
Förum að sigla inn í hálfleik. Fáum líklega mínútu í uppbót.
40. mín Misnotað víti!
Stefan Ljubicic (HK)
Gunnar Nielsen ver spyrnuna!!

Stefan Ljubicic reynir að skjóta í vinstra hornið en Gunnar Nielsen er búin að lesa hann og er mættur niður í hornið og grípur þetta í horninu!
Var nánast eins og æfingarskot fyrir Gunna!
39. mín
VÍTI!!!

HK fær vítaspyrnu!!
Örvar Eggerts fer virkilega illa með Hjört Loga sem er svo dæmdur brotlegur!
33. mín MARK!
Ágúst Eðvald Hlynsson (FH)
Stoðsending: Matthías Vilhjálmsson
MAAARK!

FH jafnar!!
Það er Matthías Vilhjálmsson sem fær boltann og þræðir hann á milli varnarmanna á fjærstöng þar sem Ágúst kemur og setur hann framhjá Arnari Freyr.
30. mín Gult spjald: Stefan Ljubicic (HK)
28. mín MARK!
Birnir Snær Ingason (HK)
MAARK!!

Það er HK sem kemst yfir!!
Stefan Ljubicic hælar hann út fyrir Jón Arnar Barðdal sem á skot sem Gunnar heldur ekki áður en Birnir Snær nær að troða honum yfir línuna.
26. mín
Martin Rauschenberg ííííískaldur þarna að snúa með Ágúst Eðvald í bakinu og sýndist það vera Steven Lennon sem reyndi hlaup á blindu hliðina.
Þarna mátti ekki miklu muna en frábærlega gert hjá Martin Rauschenberg!
25. mín Gult spjald: Atli Arnarson (HK)
23. mín
FH keyrir hratt á HK þar sem Ágúst Eðvald fær boltann úti hægra meginn og sendir hann fastann með jörðinni rétt útfyrir teig á Eggert Gunnþór sem á hörkuskot en yfir markið.
Hefði verið svakalegt mark ef hann hefði hitt á markið.
19. mín
Arnar Freyr með slæmt úrspark beint á Steven Lennon sem keyrir inn á völl og sækir brot.
Þórir Jóhann tekur spyrnuna og hún er ekki góð og fer framhjá markinu.
17. mín
Þvílíkt spil hjá HK!
Jón Arnar Barðdal og Stefan Ljubicic með konfektsókn sem endar á skoti frá Stefan Ljubicic en Gunnar Nielsen ver vel á nærstöng.
12. mín
Steven Lennon tíar Eggert Gunnþór upp í skot en það var laflaust og framhjá.
12. mín
FH farnir að færa sig ofar á völlinn eftir flotta byrjun hjá HK.
7. mín
HK tekur hornspyrnuna á nærstöng og vilja HK stúkan fá dæmda hendi en Elías lætur leikinn ganga.
6. mín
HK í hörkufæri og vinna fyrstu hornspyrnu leiksins.
5. mín
Langt innkast frá Örvari Eggers á kollinn á Gumma Júl en skallinn yfir markið.
4. mín
HK byrjar þennan leik af miklum krafti og pressa FH virkilega vel.
1. mín
Það eru heimamenn í HK sem byrja þennan leik.
Fyrir leik
Byrjunarliðin eru klár og má sjá hér til hliðar eða með því að smella hér fyrir byrjunarliðsfréttina.

HK gerir eina breytingu á liði sínu frá síðasta leik gegn Íslandsmeisturum Vals en inn kemur Örvar Eggertsson fyrir Ívar Örn Jónsson.
FH gerir þá einnig eina breytingu á liði sínu frá því þeir mættu ÍA í síðasta leik en Hjörtur Logi Valgarðsson kemur inn fyrir Pétur Viðarsson.
Fyrir leik
Dómari leiksins er Elías Ingi Árnason og honum til aðstoðar verða þeir Þórður Arnar Árnason og Smári Stefánsson. Gunnþór Steinar Jónsson verður á skiltinu og til taks ef eitthvað kemur uppá og þá er Viðar Helgason eftirlitsdómari.


Fyrir leik
Kjartan Atli Kjartansson er þáttarstjórnandi í Pepsi Max stúkunni á Stöð 2 Sport. Hann er spámaður fyrir 4. umferð deildarinnar.

HK 3 - 4 FH
HK-liðið er til alls líklegt og á sínum degi er það eitt skemmtilegasta lið deildarinnar. FH-ingar eru að finna taktinn hægt og rólega. Þrátt fyrir góða uppskeru er kemur að stigum held ég að liðið eigi enn nokkra gíra eftir til að komast á fullt. Ég held að FH nái í sigur í þessum leik og tippa á að lokatölur verði 3-4. Verðum við ekki að tippa á einn alvöru markaleik? Steven Lennon átti góðan leik í Kórnum á síðustu leiktíð, honum líður vel innandara. Reyndar utandyra líka, ef út í það er farið. Hann setur allavega tvö.


Fyrir leik
Við skulum renna stuttlega yfir helstu þætti fyrir þessa umferð hjá þessum liðum.

HK

Sæti: 8
Leikir: 3
Sigrar: 0
Jafntefli: 2 (67%)
Tap: 1 (33%)

Markahæstir:
Stefan Alexander Ljubicic - 2 mörk
Ásgeir Marteinsson - 1 mark
Jón Arnar Barðdal - 1 mark


FH

Sæti: 1
Leikir: 3
Sigrar: 2 (67%)
Jafntefli: 1 (33%)
Tap: 0

Markahæstir:
Ágúst Eðvald Hlynsson - 2 mörk
Steven Lennon - 2 mörk
Matthías Vilhjálmsson - 2 mörk
Vuk Oskar Dimitrijevic - 1 mark
Fyrir leik
FH sigraði báðar viðreignir þessara liða á síðasta tímabili.

Leikurinn í Kórnum fór HK 2-3. Mörk HK skoruðu Valgeir Valgeirsson og Ásgeir Marteinsson en fyrir FH skoraði Steven Lennon 2 og þá varð Leifur Andri Leifsson fyrirliði HK fyrir því óláni að skora sjálfsmark.

FH sigraði svo örugglega á Kaplakrika 4-0 þar sem Steven Lennon skoraði þrennu og Þórir Jóhann eitt.

Það er því nokkuð ljóst að Steven Lennon kann vel við sig gegn HK og spurning hvað hann gerir í kvöld.


Fyrir leik
FH tóku á móti ÍA í síðustu umferð í Kaplakrika.
Leikurinn byrjaði ekki vel fyrir fimleikafélagið en þeir lentu undir strax á 7.mín en í 3. leiknum í röð missir mótherji þeirra mann af velli með rautt í fyrri hálfleik og eftir það var ekki aftur snúið og fór fimleikafélagið með sannfærandi 5-1 sigur.
Fyrir leik
HK heimsóttu Íslandsmeistara Vals í síðustu umferð og voru grátlega nálægt því að yfirgefa Hlíðarenda með stig í pokanum en Almarr Ormarsson stal sigrinum fyrir Valsmenn í uppbótartíma og fór svo að leiknum lauk með 3-2 sigri Valsmanna.
HK spilaði virkilega vel í þeim leik og mega vera svekktir með fenginn hlut úr þeirri rimmu.
Fyrir leik
Eftir 3 umferðir af Pepsi Max lítur þetta svona út á stigatöflunni:

1.FH 7 stig (+6)
2.KA 7 stig (+5)
3.Valur 7 stig (+3)
4.Víkingur R 7 stig (+2)
5.Breiðablik 4 stig (+2)
6.KR 4 stig (0)
7.Keflavík 3 stig (-3)
8.HK 2 stig (-1)
9.Fylkir 2 stig (-2)
10.Leiknir R 2 stig (-3)
11.Stjarnan 1 stig (-3)
12.ÍA 1 stig (-6)
Fyrir leik
Pepsi Max deildin hefur byrjað frábærlega og eru öll lið deildarinnar komin á blað og búin að sækja sér a.m.k. stig. Þá hefur ekkert lið fullt hús.
Fyrir leik
Heil og sæl lesendur góðir og verið hjartanlega velkominn í þessa þráðbeinu textalýsingu beint frá Kórnum þar sem 4.umferð Pepsi Max deild karla heldur áfram.
Byrjunarlið:
1. Gunnar Nielsen (m)
5. Hjörtur Logi Valgarðsson
6. Eggert Gunnþór Jónsson ('49)
7. Steven Lennon
8. Þórir Jóhann Helgason
9. Matthías Vilhjálmsson (f) ('88)
11. Jónatan Ingi Jónsson ('77)
16. Hörður Ingi Gunnarsson
16. Guðmundur Kristjánsson
21. Guðmann Þórisson
23. Ágúst Eðvald Hlynsson

Varamenn:
32. Atli Gunnar Guðmundsson (m)
10. Björn Daníel Sverrisson ('49)
17. Baldur Logi Guðlaugsson ('77)
25. Einar Örn Harðarson
28. Teitur Magnússon
29. Vuk Oskar Dimitrijevic ('88)
34. Logi Hrafn Róbertsson

Liðsstjórn:
Logi Ólafsson (Þ)
Davíð Þór Viðarsson
Ólafur H Guðmundsson
Fjalar Þorgeirsson
Kári Sveinsson

Gul spjöld:
Hörður Ingi Gunnarsson ('79)
Gunnar Nielsen ('93)

Rauð spjöld: