Haaland, Toney, Gomes, Diomande, Gyokeres, Southgate, O'Neil, De Zerbi og fleiri góðir í slúðri dagsins
FH
0
2
KR
0-1 Ægir Jarl Jónasson '8
0-2 Pálmi Rafn Pálmason '53 , víti
22.05.2021  -  16:00
Kaplakrikavöllur
Pepsi Max-deild karla
Aðstæður: Skýjað og smá vindur
Dómari: Ívar Orri Kristjánsson
Áhorfendur: 441
Maður leiksins: Grétar Snær Gunnarsson
Byrjunarlið:
1. Gunnar Nielsen (m)
4. Pétur Viðarsson
6. Eggert Gunnþór Jónsson ('21)
7. Steven Lennon
8. Þórir Jóhann Helgason ('71)
9. Matthías Vilhjálmsson (f)
11. Jónatan Ingi Jónsson
16. Hörður Ingi Gunnarsson
16. Guðmundur Kristjánsson
21. Guðmann Þórisson ('21)
23. Ágúst Eðvald Hlynsson ('71)

Varamenn:
32. Atli Gunnar Guðmundsson (m)
5. Hjörtur Logi Valgarðsson ('21)
10. Björn Daníel Sverrisson ('21)
17. Baldur Logi Guðlaugsson ('71)
28. Teitur Magnússon
29. Vuk Oskar Dimitrijevic ('71)
34. Logi Hrafn Róbertsson

Liðsstjórn:
Logi Ólafsson (Þ)
Hákon Atli Hallfreðsson
Davíð Þór Viðarsson
Ólafur H Guðmundsson
Róbert Magnússon
Fjalar Þorgeirsson

Gul spjöld:
Guðmundur Kristjánsson ('38)
Björn Daníel Sverrisson ('42)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Arnþór Ingi reynir skot af löngu færi þegar KR eru komnir 3 á 1 og sér að Gunnar er framarlega en Gunnar ekki í vandræðum með það.
Í sömu andrá flautar Ívar Orri til leiksloka - KR vinnur FH 0-2!
90. mín
3 mínútur í uppbótartíma.
89. mín
Inn:Alex Freyr Hilmarsson (KR) Út:Atli Sigurjónsson (KR)
86. mín
Björn Daníel með skot sem fer hátt yfir mark KR. Sóknarleikur FH í hnotskurn.
80. mín
Atli Sigurjóns reynir skot af löngu færi sem Gummi Kri "bjargar á línu".

Langur bolti innfyrir vörn FH sem Gunnar Nielsen kemur út í á undan Kjartan Henry og nær að koma boltanum frá en þó ekki lengra en á Atla Sigurjóns sem er rétt fyrir framan miðju og reynir skot sem Gummi Kri er skallar frá.
73. mín
Jónatan Ingi með tilraun sem KR bjarga í horn.
71. mín
Inn:Vuk Oskar Dimitrijevic (FH) Út:Ágúst Eðvald Hlynsson (FH)
71. mín
Inn:Baldur Logi Guðlaugsson (FH) Út:Þórir Jóhann Helgason (FH)
70. mín
FH farnir að fjölmenna upp völlin í leit af marki og skilja eftir svæði aftast. Enn sem komið er hafa KR ekki náð að nýta sér það.
68. mín
KR að komast í flotta stöðu en Gummi Kri stöðvar Kidda Jóns í upphlaupinu.
68. mín
KR eru að stýra ferðinni þessa stundina.
62. mín
Kjartan Henry er að leika sér að eldinum en hann er á gulu spjaldi og hefði hæglega geta verið búin að fá seinna gula og þar með rautt.
60. mín
Inn:Arnþór Ingi Kristinsson (KR) Út:Pálmi Rafn Pálmason (KR)
Markaskorari KR fer haltur af velli.
59. mín
Ágúst Eðvald með frábært skot!!

Beitir þarf að hafa sig allan við að halda þessum úr markinu! Boltinn dettur í slánna og Beitir nær að bjarga því að hann detti innfyrir línuna.
56. mín
Jónatan Ingi með hættulegan bolta fyrir mark KR sem Kennie skallar í horn.

Eftir hornspyrnuna á Gummi Kri skot sem fer af KR og afturfyrir aftur. Ekkert verður svo úr seinni hornspyrnunni.
53. mín Mark úr víti!
Pálmi Rafn Pálmason (KR)
Stoðsending: Kjartan Henry Finnbogason
MAARK!!

Örugg spyrna frá Pálma Rafn. Gunnar fór í rétt horn en spyrnan var örugg út við stöng hjá Pálma Rafn.
53. mín
VÍTI!!!!

KR fær vítaspyrnu þegar Kjartan Henry fellur í teignum! Sýndist Gummi Kri vera sá brotlegi.
52. mín
FH með flott samspil en KR nær að koma boltanum frá.
48. mín
Jónatan Ingi tekur hornið á nærstöng þar sem Björn Daníel kemur á ferðinni en skallinn yfir markið.
48. mín
FH með flotta sókn sem KR bjarga í horn.
46. mín
Þórir Jóhann sparkar seinni hálfleikinn í gang.
46. mín
Inn:Stefán Árni Geirsson (KR) Út:Kristján Flóki Finnbogason (KR)
45. mín
Hálfleikur
+3

Ívar Orri flautar til hálfleiks hér í Kaplakrika. Leikurinn hefur verið tvískiptur en KR byrjaði af miklum krafti og náði marki en þegar líða tók á leikinn fóru FH að taka stjórn á leiknum.

Það kemur þó ekki að sök og KR leiðir í hálfeik 0-1.
45. mín
Fáum 3 mínútur í uppbótartíma.
45. mín
Ívar Orri er ekki að láta veiða sig í neinar gildrur og hefur leyft leiknum að fljóta vel.
42. mín Gult spjald: Björn Daníel Sverrisson (FH)
Dæmdur brotlegur í baráttu við Pálma Rafn.
41. mín
Jónatan Ingi með tilraun fyrir FH og vinnur horn.

FH taka hornið stutt og senda svo fyrir markið þar sem Gummi Kri nær að koma höfðinu í boltann en yfir markið fór hann.
40. mín
Kristján Flóki með frábæran bolta fyrir mark FH sem Kjartan Henry er hársbreidd frá því að ná að reka tánna í boltann og skila marki fyrir KR en á endanum er það Hörður Ingi sem tekur enga sénsa og kemur boltanum afturfyrir.

Ekkert verður svo úr hornspyrnu KR.
38. mín Gult spjald: Guðmundur Kristjánsson (FH)
Stöðvar skyndisókn KR og brýtur á Kjartani Henry.
36. mín
Eftir erfiðar upphafsmínútur hjá FH virðast þeir vera farnir að finna taktinn og eru búnir að ýta KR aftur á sinn vallarhelming.
34. mín
FH heldur betur farnir að banka á dyrnar!
Frábær fyrirgjöf fyrir markið sem ratar á fjærstöngina til Matta Villa sem lætur vaða en sýndist það vera Kennie Chopart sem setti hausinn fyrir þetta skot.
32. mín
Þórir Jóhann tekur hornspyrnuna og spyrnir henni yfir allan pakkann og afturfyrir.
32. mín
FH með flotta sóknarlotu þarna en KR bjarga í horn.
31. mín
Matti Villa við það að komast í gott skotfæri en fær dæmt á sig hendi.
29. mín
FH aðeins farnir að þrýsta ofar á völlinn en eiga enn eftir að láta reyna á Beiti í marki KR.
26. mín Gult spjald: Kjartan Henry Finnbogason (KR)
Fyrstur í svörtu bókina.
21. mín
Inn:Björn Daníel Sverrisson (FH) Út:Eggert Gunnþór Jónsson (FH)
Eggert Gunnþór einnig tekinn af velli. Tvöföld skipting snemma hjá FH vegna meiðsla.
21. mín
Inn:Hjörtur Logi Valgarðsson (FH) Út:Guðmann Þórisson (FH)
Guðmann lagðist niður og þurfti skiptingu. Vonandi ekkert alvarlegt.
16. mín
FH gengur brösulega að finna leiðir framhjá vörn KR.
13. mín
Óskar Örn og Kiddi Jóns að tengja vel saman þarna vinstra meginn.
11. mín
Flott sóknarlota hjá KR. Kristinn Jónsson með flotta fyrirgjöf fyrir markið ætlaða Kjartan Henry sem fellur við í teignum og vill fá eitthvað en Ívar Orri ekki á sama máli.
8. mín MARK!
Ægir Jarl Jónasson (KR)
Stoðsending: Atli Sigurjónsson
MAARK!

Frábær hornspyrna hjá Atla Sigurjóns beint á kollinn á Ægi Jarl sem stangar hann í netið!
7. mín
KR vinnur sína fyrstu hornspyrnu. Fyrirgjöf/skot frá Kennie Chopart fer af varnarmanni of afturfyrir.
6. mín
Óskar Örn með flotta fyrirgjöf fyrir markið á galopinn Kjartan Henry en skallinn frá Kjartani er alls ekki góður og yfir markið.
3. mín
FH vinnur fyrsta horn leiksins. Fyrirgjöf frá Þórir Jóhanni er skölluð afturfyrir.
FH dæmdir brotlegir í hornspyrnunni.
1. mín
Gestirnir í KR byrja þennan leik.
Fyrir leik
Liðin ganga út á völl. - FH í sínum hefðbundu hvítu treyjum og svörtum stuttbuxum og KR í sínum varabúning, appelsínugular treyjur og svartar stuttbuxur.
Fyrir leik
Byrjunarliðun eru klár og má sjá hér til hliðar.

FH gerir eina breytingu á sínu liði frá síðasta leik gegn HK í Kórnum en Pétur Viðarsson kemur inn fyriri Hjört Loga Valgarðsson.
Hjá KR eru þrjár breytingar en Kjartan Henry Finnbogason, Kristján Flóki Finnbogason og Finnur Tómas Pálmarsson koma inn fyrir Arnór Svein Aðalsteinsson, Arnþór Inga Kristinsson og Guðjón Baldvinsson frá síðasta leik gegn Val.
Fyrir leik
Ívar Orri Kristjánsson sér um flautuna í dag og honum til aðstoðar eru þeir Egill Guðvarður Guðlaugsson og Andri Vigfússon. Fjórði dómarinn er Arnar Ingi Ingvarsson og þá er Þórður Ingi Guðjónssin eftirlitsdómari.


Fyrir leik
Það er komið að Brynjólfi Andersen Willumssyni að spá. Binni er Bliki sem gekk í raðir Kristiansund í Noregi í vetur.

FH 3 - 2 KR
Þetta verður leikur sem þarf að fylgjast með, FH-ingar eru að looka þessa dagana og Águst Hlyns þar fremstur í flokki á eldi. Það er auto að hann skorar eða leggur upp í þessum leik og hendir mögulega í eitthvað skemmtilegt fagn. KR mun ekki gefa neitt eftir og Stefán Geirs mun koma FH í mikil vandræði í þessum leik.


Fyrir leik
Við skulum renna örstutt yfir tölfræðiþætti liðana á tímabilinu.

FH:
Leikir: 4
Sigrar: 3 (75%)
Jafntefli: 1 (25%)
Töp: 0
Staða í deild: 1

Markahæstir:
Ágúst Eðvald Hlynsson - 4 Mörk
Steven Lennon - 3 Mörk
Matthías Vilhjálmsson - 2 Mörk
Vuk Oskar Dimitrijevic - 1 Mark

KR:
Leikir: 4
Sigrar: 1 (25%)
Jafntefli: 1 (25%)
Töp: 2 (50%)
Staða í deild: 7

Markahæstir:
Guðjón Baldvinsson - 2 Mörk
Óskar Örn Hauksson - 1 Mark
Pálmi Rafn Pálmason - 1 Mark
Kennie Chopart - 1 Mark
Grétar Snær Gunnarsson - 1 Mark
Fyrir leik
Logi Ólafsson þjálfari FH talaði um það eftir leikinn gegn HK að landslagið fyrir þennan leik væri allt öðruvísi núna með tilkomu Kjartans Henry Finnbogasonar og Finns Tómas Pálmarssonar.

Það má því vel búast við hörku einvígi í þessum leik en þessar rimmur hafa oft boðið upp á mikla skemmtun.
Fyrir leik
Gestirnir í KR hafa farið hægt af stað eftir frábæra byrjun í upphafi móts.

KR fengu Íslandsmeistara Vals í heimsókn í síðustu umferð og þurftu að sætta sig við tap í þeim leik. Guðjón Baldvinsson kom KR í upphafi leiks en Valsmenn svöruðu með næstu 3 mörkum leiksins áður en Pálmi Rafn Pálmason náði að klóra aðeins í bakkann fyrir heimamenn og þar við sat.
Fyrir leik
Heimamenn í FH eru fyrir þessa umferð staðsettir á toppi deildarinnar en þeir hafa farið virkilega vel af stað.

Í síðustu umferð áttu þeir góða ferð í Kórinn þar sem þeir mættu HK og tóku með sér öll stigin úr þeirri viðreign. FH vann leikinn 1-3 þar sem Ágúst Eðvald Hlynsson var maður leiksins og einnig leikmaður umferðarinnar eftir þann leik en hann kom að öllum mörkum FH í leiknum. skoraði 2 og lagði upp fyrir Steven Lennon.
Fyrir leik
Fjórum umferðum er nú lokið á Íslandsmótinu og lítur staðan svona út fyrir 5.umferð Pepsi Max deildar karla.

1.FH 10 stig (+8)
2.KA 10 stig (+8)
3.Víkingur R 10 stig (+5)
4.Valur 10 stig (+4)
5.Leiknir R 5 stig (0)
6.Breiðablik 4 stig (-1)
7.KR 4 stig (-1)
8.Keflavík 3 stig (-6)
9.HK 2 stig (-3)
10.Stjarnan 2 stig (-3)
11.Fylkir 2 stig (-5)
12.ÍA 2 stig (-6)
Fyrir leik
Heil og sæl lesendur góðir og verið hjartanlega velkominn í þessa þráðbeinu textalýsingu frá stórleik umferðarinnar þegar FH taka á móti KR í Kaplakrika.
Byrjunarlið:
1. Beitir Ólafsson (m)
Pálmi Rafn Pálmason ('60)
6. Grétar Snær Gunnarsson
7. Finnur Tómas Pálmason
9. Kjartan Henry Finnbogason
10. Kristján Flóki Finnbogason ('46)
11. Kennie Chopart (f)
14. Ægir Jarl Jónasson (f)
19. Kristinn Jónsson
22. Óskar Örn Hauksson (f)
23. Atli Sigurjónsson ('89)

Varamenn:
13. Guðjón Orri Sigurjónsson (m)
2. Hjalti Sigurðsson
4. Arnþór Ingi Kristinsson ('60)
9. Stefán Árni Geirsson ('46)
17. Alex Freyr Hilmarsson ('89)
18. Aron Bjarki Jósepsson
19. Hrafn Tómasson

Liðsstjórn:
Rúnar Kristinsson (Þ)
Valgeir Viðarsson
Kristján Finnbogi Finnbogason
Friðgeir Bergsteinsson
Sigurður Jón Ásbergsson
Sigurvin Ólafsson

Gul spjöld:
Kjartan Henry Finnbogason ('26)

Rauð spjöld: