Þór/KA
0
1
Stjarnan
0-1 Hildigunnur Ýr Benediktsdóttir '93
19.05.2021  -  18:00
Boginn
Pepsi-Max deild kvenna
Aðstæður: Innanhúss, gervigras og logn
Dómari: Helgi Mikael Jónasson
Maður leiksins: Arna Sif Ásgrímsdóttir (Þór/KA)
Byrjunarlið:
1. Harpa Jóhannsdóttir (m)
Snædís Ósk Aðalsteinsdóttir
9. Karen María Sigurgeirsdóttir ('71)
11. Arna Sif Ásgrímsdóttir (f)
12. Miranda Smith ('87)
13. Colleen Kennedy
16. Jakobína Hjörvarsdóttir
17. María Catharina Ólafsd. Gros
22. Hulda Ósk Jónsdóttir
22. Hulda Karen Ingvarsdóttir
24. Hulda Björg Hannesdóttir

Varamenn:
25. Sara Mjöll Jóhannsdóttir (m)
5. Steingerður Snorradóttir
10. Sandra Nabweteme ('71)
18. Rakel Sjöfn Stefánsdóttir
23. Iðunn Rán Gunnarsdóttir
26. Ísfold Marý Sigtryggsdóttir

Liðsstjórn:
Andri Hjörvar Albertsson (Þ)
Perry John James Mclachlan (Þ)
Bojana Besic
Saga Líf Sigurðardóttir
Ingibjörg Gyða Júlíusdóttir
Aðalheiður Rósa Jóhannesdóttir
Hulda Elma Eysteinsdóttir

Gul spjöld:

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Stjarnan lítið sem ekkert ógnað í seinni en markið kom alveg í blálokin!! Hlýtur að vera mjög sætt.
93. mín MARK!
Hildigunnur Ýr Benediktsdóttir (Stjarnan)
Stoðsending: Alma Mathiesen
Þetta var rosalegt!!!

Flott spil úti hægra megin. Heiða Ragney með fyrirgjöf sem Alma kemst í, boltinn hrekkur til Hildigunnar sem skorar með skoti af stuttu færi!!!
91. mín
Veit ekki hver uppbótartíminn er.

Allavega þrjár mínútur heyrist núna!
89. mín
Arna Sif komin með krampa aftast, spurning hvort þetta muni kosta Þór/KA í restina.
88. mín
Sandra með bestu tilraun seinni hálfleiksins. Skot rétt framhjá fjærstönginni úr teignum.
87. mín
Inn:Saga Líf Sigurðardóttir (Þór/KA) Út:Miranda Smith (Þór/KA)
86. mín Gult spjald: María Sól Jakobsdóttir (Stjarnan)
Togaði í Maríu á sprettinum.
85. mín
María Catharina dæmd brotleg gegn Chante, þetta var lítið en Chante kallaði og fékk dóminn í gegn.
83. mín
Boltinn aftur fyrir hjá Sædísi áður en hann kom inn á aftur og endaði í höndum Hörpu. Markspyrna.
82. mín
Stjarnan fær hornspyrnu.
78. mín Gult spjald: Ingibjörg Lúcía Ragnarsdóttir (Stjarnan)
Fyrir að grípa í Maríu á sprettinum.


Aukaspyrna inn á teiginn sem Hulda Björg kemst í en boltinn lekur í hendurnar á Chante.
75. mín
Afskaplega lítið útlit fyrir mark í þennan seinni hálfleik.
75. mín
Inn:Elín Helga Ingadóttir (Stjarnan) Út:Gyða Kristín Gunnarsdóttir (Stjarnan)
75. mín
Inn:Alma Mathiesen (Stjarnan) Út:Birna Jóhannsdóttir (Stjarnan)
71. mín
Inn:Sandra Nabweteme (Þór/KA) Út:Karen María Sigurgeirsdóttir (Þór/KA)
Sandra fer upp á topp, Colleen í holuna og María á kantinn.
68. mín
Stjarnan á hornspyrnu.

Smá hætta því Arna Sif nær ekki að skalla í burtu en bolti tvö hreinsaður í burtu.
66. mín
Gyða Kristín með tilraun en boltinn yfir mark Þór/KA. Fín hugmynd.
66. mín
Jakobína með afleita sendingu beint í Birnu og Andri Hjörvar allt annað en sáttur. Arna Sif reddar þessu.
64. mín
Betsy reynir að finna Hildigunni en boltinn aðeins of langur.
63. mín
Hulda Karen slapp þarna með vitlaust innkast fannst mér. Helgi lætur leikinn rúlla.
62. mín
Aukaspyrna af hægri kanti Stjörnunnar. Boltinn inn á teig, Betsy í baráttunni en engin hætta upp úr þessu.
61. mín
Jakobína með flottan bolta sem sogast á Örnu Sif sem skallar rétt yfir, eins og segull í teignum hún Arna!
60. mín
Hildigunnur brotleg í baráttunni við Huldu Karenu, Þór/KA á aukaspyrnu á hægri kantinum.

Skömmu áður vildi Þór/KA fá aukaspyrnu þegar Arna Dís virtist toga í Huldu Ósk.
57. mín
Boltinn berst út fyrir teig Stjörnunnar og Jakobína lætur vaða en skotið rétt framhjá.
56. mín
Þór/KA fær hornspyrnu. Snædís komin inn.
55. mín
Snædís er utan vallar sem stendur, veit ekki hvort hún fékk blóðnasir eða hvað það er. Þór/KA tíu þessa stundina.
50. mín
Karen María fær boltann rétt fyrir utan teig og á skot en dregur boltann aðeins of langt til baka og skotið framhjá.
50. mín
María Catharina lætur vaða fyrir utan teig en Chante ver skotið. Alls ekki svo galin tilraun samt, aðeins hærra og mikil hætta hefði myndast.
49. mín
Gyða með spyrnuna, Harpa slær í boltann og smá hætta myndast en boltanum er svo hreinsað í burtu.
48. mín
Snögg upphlaup hjá Stjörnunni, Hildigunnur á fyrirgjöf en Arna hreinsar í horn.
46. mín
Inn:Ingibjörg Lúcía Ragnarsdóttir (Stjarnan) Út:Úlfa Dís Kreye Úlfarsdóttir (Stjarnan)
Skipting í hléi
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn
45. mín
Hálfleikur
Þór/KA þarf að koma Karen Maríu meira á boltann. Hún er álíka týnd og hún var gegn Selfossi.

Stjarnan þarf að halda betur í boltann en að gekk ágætlega fyrsta korterið en svo lítið síðan.

Arna Sif og Anna María verið bestu leikmenn vallarins í fyrri hálfleiknum.
45. mín
Hálfleikur
Markalaust í leikhléi.
45. mín
45+1

Chante kemur út og kýlir boltann í burtu áður en Arna kemst í hann.
45. mín
Þór/KA fær hornspyrnu.
45. mín
Heiða í ruglinu og Karen stelur boltanum af henni. Anna María bjargar því að Karen komist í dauðafæri.
43. mín
Jakobína með fyrirgjöf sem er of innarlega og Chante örugg með þennan bolta.
39. mín
Arna Sif skallar framhjá, þetta var ágætis séns en boltinn kom lágt á Örnu og engin hætta þannig lagað.
38. mín
Hulda Ósk klók og krækir í aukaspyrnu á hægri kantinum. Steig Sædísi út.
37. mín
Miranda í baráttunni en boltinn berst út úr teignum og hættan liðin hjá.
36. mín
Önnur hornspyrna. Hulda Ósk með flottan sprett en Anna María kemst fyrir og boltinn aftur fyrir.
35. mín
Ekki var þessi spyrna merkileg, beint aftur fyrir.
34. mín
Fyrsta hornspyrna leiksins. Hulda Ósk krækir í hana, Colleen tekur fyrir Þór/KA.
33. mín
Colleen reynir að finna Karenu inn á teignum en sýnist Sædís leysa þetta. Betsy á svo skot í hinum teignum en Hulda Björg sýnist mér kemst fyrir og boltinn i hendur Hörpu.
32. mín
María brýtur á Colleen á miðjum vellinum. Boltinn gengur liða á milli undanfarnar mínútur.
31. mín
Arna Sif dúndrar boltanum úr eigin vítateig með höfðinu. Sædís átti fyrirgjöfina.
29. mín
Sýnist það vera Miranda sem gerir virkilega vel að skila sér til baka og kemur boltanum í burtu þegar Stjarnan var í fínni stöðu í skyndisókn.
28. mín
Kristján Guðmunds lætur sínar stelpur heyra það og vill fá spil í gang. Þór/KA er líklegra þessa stundina.
27. mín
Hraðinn í liði Þór/KA hlýtur að skila marki. Bolti inn á Colleen sem Chante er rétt á undan í.
27. mín
Jakó með boltann inn á teig, sá ekki hvor þetta var en held að þetta hafi verið Hulda Björg frekar en Arna sem átti skalla framhjá markinu.
26. mín Gult spjald: Gyða Kristín Gunnarsdóttir (Stjarnan)
Tekur Colleen niður á sprettinum. Fín fyrirgjafarstaða.
25. mín
María með alvöru sprett og reynir skot sem Annar María kemst fyrir. Rosalegur hraði í Maríu.
22. mín
Miranda með tilraun fyrir utan teig en boltinn yfir, ekki galin tilraun.
21. mín
ÞARNA!! Alvöru þruma upp í blaðamannaaðstöðu, stemning í þessu! Eftirlitsmaður KSÍ skrifar athugasemd, veit ekki hvort það tengist þessum bolta.
21. mín
Jakó með fyrirgjöf en hún er laus og Chante með þetta í teskeið.
19. mín
Heiða með mjög heiðarlega tilraun en aðeins of löng sending fyrir Maríu og boltinn rennur aftur fyrir.
16. mín
Colleen með fyrirgjöf en boltinn skoppar í hendurnar á Chante. Jafnræði með liðunum þannig séð en meiri hraði í liði Þór/KA í byrjun leiks.
15. mín
Markverðirnir eru öflugir í að stýra sínum liðum. Harpa gert vel í tvígang að láta vel vita af stöðunni og stigið vel inn í.
10. mín
Þór/KA fljótt að vinna boltann aftur og María á skot en ekkert vesen fyrir Chante.
9. mín
Virkilega smekklegt og snöggt upphlaup hjá Þór/KA. Byrjar hjá Hörpu í markinu. Boltinn fer á Huldu Ósk sem finnur Jakó með flottri utanfótarsendingu. Boltinn áfram á Maríu sem á skot en skotið framhjá.
8. mín
Sædís með skot, fínasta tilraun, en rétt yfir mark Þór/KA.
7. mín
Miranda brýtur á Úlfu sýnist mér rétt fyrir utan teig, hættulegt aukaspyrnufæri.
6. mín
Karen María með skot eftir ágætis sókn en Úlfa gerir virkilega vel að komast fyrir skotið.
5. mín
Hulda Ósk með boltann við teig Stjörnunnar en mér sýnist Betsy vinna vel til baka og vinnur boltann.
2. mín
Lið Stjörnunnar:

Chante
María - Anna María - Arna Dís - Sædís
Heiða
Betsy
Gyða - Úlfa - Hildigunnur (í treyju númer 9)
Birna
1. mín
Lið Þór/KA:

Harpa
Hulda Karen - Hulda Björg - Arna Sif- Jakobína
Miranda - Snædís
Hulda Ósk - Karen - Colleen
María
1. mín
Leikur hafinn
Stjarnan byrjar með boltann!
Fyrir leik
Heiða Ragney Viðarsdóttir fær sérstaka kynningu en hún yfirgaf Þór/KA, uppeldisfélagið, í vetur.
Fyrir leik
Liðin ganga inn á völlinn. Stjarnan leikur í hvítu í dag og Þór/KA í svörtu.
Fyrir leik
Byrjunarliðin eru klár. Þór/KA gerir tvær breytingar frá 1-3 tapinu gegn Breiðabliki í síðasta leik.

Hulda Ósk Jónsdóttir og Arna Sif Ásgrímsdóttir koma inn í liðið og ber Arna fyrirliðabandið. Saga Líf og Sandra Nabweteme, markaskorari Þór/KA í Kópavogi, taka sér sæti á bekknum.

Þrjár breytingar eru frá 1-3 tapi Stjörnunnar gegn Selfossi. María Sól Jakobsdóttir, Birna Jóhannsdóttir og Gyða Kristín Gunnarsdóttir koma inn í liðið. Ingibjörg Lúcía, Elín Helga og Sædís Rún taka sér sæti á bekknum. Markaskorarinn Betsy er í byrjunarliðinu.
Fyrir leik
Byrjunarliðin koma inn rétt upp úr klukkan 17:00 og má búast við því að Arna Sif Ásgrímsdóttir verði í liði Þór/KA en hún kom til landsins frá Skotlandi á dögunum.
Fyrir leik
Stjarnan hefur skorað tvö mörk í fyrstu leikjunum. Betsy Doon Hasset skoraði gegn Selfossi og Hildigunnur Ýr Benediktsdóttir skoraði gegn Val.

Fyrir leik
Þór/KA hefur skorað þrjú mörk á leiktíðinni. Karen María Sigurgeirsdóttir, Hulda Ósk Jónsdóttir og Sandra Nabweteme hafa skorað þau.

Fyrir leik
Þetta verður æsispennandi leikur. Það verða færi á báða bóga en heimavöllurinn gefur sigurinn.

Segir Svava Rós Guðmundsdóttir sem spáir í 4. umferð deildarinnar. Hún spáir 2-1 sigri Þór/KA.
Fyrir leik
Liðin enduðu í 6. og 7. sæti í fyrra bæði með átján stig en Stjarnan með betri markatölu.

Þór/KA vann heimaleikinn 4-1 en 1-1 var niðurstaðan í Garðabænum.
Fyrir leik
Þór/KA er með þrjú stig eftir fyrstu þrjár umferðarinnar. Liðið vann ÍBV í fyrstu umferð á útivelli, tapaði gegn Selfossi í annarri umferð á heimavelli og tapaði gegn Breiðabliki á laugardag.

Stjarnan er með eitt stig sem liðið fékk fyrir jafntefli gegn Keflavík í annari umferð á heimavelli. Liðið tapaði úti gegn Val í fyrstu umferð og gegn Selfossi úti í síðustu umferð.

Þór/KA er í 7. sæti og Stjarnan í 9. sæti.
Fyrir leik
Góðan daginn lesendur góður og veriði velkomnir í beina textalýsingu frá Boganum á Akureyri. Þar fer fram leikur Þór/KA og Stjörnunnar í 4. umferð Pepsi Max-deild kvenna.

Leikurinn hefst klukkan 18:00.
Byrjunarlið:
1. Chante Sherese Sandiford (m)
3. Arna Dís Arnþórsdóttir
6. Úlfa Dís Kreye Úlfarsdóttir ('46)
10. Anna María Baldursdóttir (f)
11. Betsy Doon Hassett
16. Sædís Rún Heiðarsdóttir
17. María Sól Jakobsdóttir
19. Birna Jóhannsdóttir ('75)
21. Heiða Ragney Viðarsdóttir
23. Gyða Kristín Gunnarsdóttir ('75)
31. Hildigunnur Ýr Benediktsdóttir

Varamenn:
12. Birta Guðlaugsdóttir (m)
2. Sóley Guðmundsdóttir
5. Hanna Sól Einarsdóttir
8. Ingibjörg Lúcía Ragnarsdóttir ('46)
15. Alma Mathiesen ('75)
19. Elín Helga Ingadóttir ('75)

Liðsstjórn:
Kristján Guðmundsson (Þ)
Andri Freyr Hafsteinsson
Audrey Freyja Clarke
Gunnar Guðni Leifsson

Gul spjöld:
Gyða Kristín Gunnarsdóttir ('26)
Ingibjörg Lúcía Ragnarsdóttir ('78)
María Sól Jakobsdóttir ('86)

Rauð spjöld: