Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
Í BEINNI
Besta-deild karla
Stjarnan
LL 1
0
Valur
Þór
5
1
Þróttur R.
Fannar Daði Malmquist Gíslason '21 1-0
1-1 Kairo Edwards-John '23
Fannar Daði Malmquist Gíslason '38 2-1
Ólafur Aron Pétursson '49 , víti 3-1
Ásgeir Marinó Baldvinsson '62 4-1
Jóhann Helgi Hannesson '94 5-1
09.07.2021  -  18:00
SaltPay-völlurinn
Lengjudeild karla
Dómari: Helgi Mikael Jónasson
Maður leiksins: Fannar Daði Malmquist
Byrjunarlið:
1. Daði Freyr Arnarsson (m)
Orri Sigurjónsson
3. Birgir Ómar Hlynsson
4. Hermann Helgi Rúnarsson
6. Ólafur Aron Pétursson
7. Bjarni Guðjón Brynjólfsson ('60)
10. Sigurður Marinó Kristjánsson ('84)
17. Fannar Daði Malmquist Gíslason ('78)
18. Vignir Snær Stefánsson ('78)
23. Ásgeir Marinó Baldvinsson ('78)
30. Bjarki Þór Viðarsson

Varamenn:
1. Aron Birkir Stefánsson (m)
12. Auðunn Ingi Valtýsson (m)
9. Jóhann Helgi Hannesson ('60)
14. Jakob Snær Árnason ('78)
15. Petar Planic
15. Kristófer Kristjánsson ('78)
18. Elvar Baldvinsson ('78)

Liðsstjórn:
Sveinn Elías Jónsson (Þ)
Orri Freyr Hjaltalín (Þ)
Jón Stefán Jónsson (Þ)
Sveinn Leó Bogason
Sölvi Sverrisson
Perry John James Mclachlan
Helgi Steinar Andrésson

Gul spjöld:

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Leiklokið með stórsigri Þórs! Viðtöl og skýrsla væntanleg í kvöld.
94. mín MARK!
Jóhann Helgi Hannesson (Þór )
Stoðsending: Kristófer Kristjánsson
Frábær sprettur hjá Kristófer inn í teiginn sem leggur boltann fyrir á Jóhann sem rennir boltanum inn í markið.
92. mín
Þróttarar nálægt því að ná inn sárabótarmarki. skot rétt framhjá stönginni.
88. mín
Inn:Kári Kristjánsson (Þróttur R.) Út:Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson (Þróttur R.)
87. mín
Jakob vinnur boltann á miðjum vellinum og á frábæran sprett en á endanum detturinn hann um boltann inn í teignum og sóknin rennur í sandinn.
86. mín
Lalic grípur fyrirgjöfina
85. mín
Frábær fyrirgjöf hjá Þór en þröngt færi og Lalic ver í horn.
84. mín
Inn:Sölvi Sverrisson (Þór ) Út:Sigurður Marinó Kristjánsson (Þór )
83. mín
Boltinn yfir allan pakkann og útaf hinumegin.
83. mín
Þórsarar að fá sitt þriðja horn hérna í rö0.
82. mín
Boltinn fór fram og til baka í teignum, endaði fyrir fætur Bjarka sem var aðeisn of lengi að þessu og Þróttur bjargar í horn.
81. mín
Þór fær hornspyrnu
78. mín
Inn:Kristófer Kristjánsson (Þór ) Út:Vignir Snær Stefánsson (Þór )
78. mín
Inn:Jakob Snær Árnason (Þór ) Út:Fannar Daði Malmquist Gíslason (Þór )
78. mín
Inn:Elvar Baldvinsson (Þór ) Út:Ásgeir Marinó Baldvinsson (Þór )
76. mín
Það var þreföld skipting hjá Þrótturum áðan. Magnús Pétur Bjarnason kom einnig inná skilst mér, en hann er bara ekkert á skýrslunni hér..
70. mín
Frábær sókn hjá Þór. Ásgeir inní teignum með hælsendingu á Jóhann Helga sem missir eginlega boltann fyrir fætur Fannars sem á skot hátt yfir markið úr dauðafæri.
67. mín
Inn:Andi Hoti (Þróttur R.) Út:Eiríkur Þorsteinsson Blöndal (Þróttur R.)
67. mín
Inn:Atli Geir Gunnarsson (Þróttur R.) Út:Gunnlaugur Hlynur Birgisson (Þróttur R.)
64. mín
Sá nú ekki hvað gerðist, hlítur að hafa verið olnbogi í andlitið á Hafþóri sem lá eftir. Sjúkraþjálfarinn hlúði að honum í smá tíma, hann er staðinn upp.
62. mín MARK!
Ásgeir Marinó Baldvinsson (Þór )
Stoðsending: Sigurður Marinó Kristjánsson
MAAARK!

Ásgeir Marinó skorar fjórða mark Þórsra! Sýndist það vera nafni hans Sigurður Marinó sem senti hann einn í gegn, frábærlega gert.
60. mín
Inn:Jóhann Helgi Hannesson (Þór ) Út:Bjarni Guðjón Brynjólfsson (Þór )
Fyrsta skipting Þórsara. Reynslan inná
58. mín
Aukaspyrna frá hægri, Ólafur Aron með fyrirgjöfina en Bjarki skallar boltann vel yfir.
57. mín
ekkert varð úr hornspyrnunni
56. mín
Þróttur fær horn.
55. mín
Rólegt yfir þessu þessa stundina. Þróttarar með boltann við vítateig Þórs en ná ekki að skapa sér neitt.
49. mín Mark úr víti!
Ólafur Aron Pétursson (Þór )
MAAARK

Þórsarar komnir í 3-1! Ólafur Aron skorar úr vítaspyrnunni!
48. mín
ÞÓR FÆR VÍTASPYRNU!

Horn sem er skallað frá en Þórsari nær boltanum og hleypur inn í teig og er tekinn niður!
47. mín Gult spjald: Hinrik Harðarson (Þróttur R.)
Setur olnbogann í Orra.
46. mín
Síðari hálfleikur er farinn af stað.
45. mín
Hálfleikur
+2
Það er kominn hálfleikur. Frekar lokaður leikur, þegar það koma færi þá er skorað úr þeim.
45. mín
+1
Fá aðra hornspyrnu eftir smá klaufagang í vörninni. Aukaspyrna dæmd.
45. mín
+1
Þróttur fær hornspyrnu.
44. mín
Löng sending fram sem Orri skallar beint á Hinrik en hann nær sjálfur að bjarga því að hann kæmist einn í gegn strax.
40. mín
Boltinn í gegnum allan pakkann og Þór koma boltanum frá.
39. mín
Þróttarar strax upp í sókn og fá horn.
38. mín MARK!
Fannar Daði Malmquist Gíslason (Þór )
MAAARK!

Fannar Daði kemur boltanum yfir línuna eftir fyrirgjöf sem Franko Lalic misreiknar alveg hrikalega!
37. mín
Ólafur með fyrirgjöf úr aukaspyrnu, Fallhífar skallabolti frá Bjarka Þór yfir markið.
36. mín
Inn:Ólafur Fjalar Freysson (Þróttur R.) Út:Kairo Edwards-John (Þróttur R.)
sennilega tognun aftan í læri.
35. mín
Kairo tók á sprettinn rétt áðan, nú er hann lagstur í jörðina. Sjúkraþjálfarinn gefur merki um að það þurfi skiptingu.
34. mín
Þór er að stjórna leiknum þessa stundina, ekkert að skapa sér þó, fá hinsvegar aukaspyrnu úti á vinstri núna.
28. mín
Vignir með fyrirgjöf sem Bjarni Guðjón skallar í stöngina!
26. mín
Þróttur var að komast í góða sókn en Hinrik með alltof fasta stungusendingu ætlaða Kairo en boltinn endar í höndunum á Daða.
23. mín MARK!
Kairo Edwards-John (Þróttur R.)
MAAARK!

Kairo skorar beint úr aukaspyrnunni. Óverjandi fyrir Daða.
23. mín
Þróttur fær aukaspyrnu nánast á vítateigslínunni.
21. mín MARK!
Fannar Daði Malmquist Gíslason (Þór )
Stoðsending: Ólafur Aron Pétursson
MAAAARK!!

ÞESSI SENDING! Stórkostleg, löng sending frá Ólafi Aroni yfir á Fannar Daða sem var kominn í góða stöðu á móti Franko og skorar, Franko var í boltanum og hefði mögulega geta gert betur.
18. mín
Kairo kemst síðan inn í sendingu og tekur skotið rétt fyrir utan teig en það er laust og vel framhjá.
16. mín
frábær sprettur yfir allan völlinn hjá Kairo sem sendir boltann síðan yfir á Róbert sem á slakt skot.
12. mín
Aftur frír skalli en góð viðbrögð hjá Lalic sem ver og Þróttarar koma boltanum í burtu!
11. mín
Skalli í stöng eftir hornspyrnuna. önnur hornspyrna.
11. mín
Fannar Daði í góðu færi en skýtur í varanramann og framhjá.
9. mín
Þór skalla frá
8. mín
Góð sókn hjá Þrótti sem endar með skalla en vel varið í horn hjá Daða.
7. mín
Skotið beint á Daða.
6. mín
Þróttur fær aukaspyrnu á hættulegum stað.
4. mín
Guðmundur lá eftir í teig Þróttara eftir samstuð, hann var nokkuð fljótur að jafna sig, þurfti enga aðhlynningu.
1. mín
Leikur hafinn
Leikurinn er hafinn. Gestirnir byrja með knöttinn, sækja í átt að Glerárskóla, Þór sækir þá í átt að Boganum.
Fyrir leik
Liðin eru að ganga inn á völlinn. Heimamenn leika í hvítum treyjum og sokkum og rauðum stuttbuxum. Gestirnir leika í ljósbláum treyjum og dökkbláaum stuttbuxum og sokkum.
Fyrir leik
Byrjunarliðin eru mætt
Þór gerir tvær breytingar á liði sínu frá jafnteflinu gegn Selfossi í síðustu umferð. Petar Planic sest á bekkinn hjá Þór og Elmar er ekki í hóp, Hermann Helgi Rúnarsson og Vignir Snær Stefánsson koma inn í byrjunarliðið

Þróttur gerir eina breytingu á sínu liði eftir 1-0 tap gegn ÍBV í síðustu umferð. Lárus Björnsson er ekki í hóp í dag, Hinrik Harðarson kemur inn í byrjunarliðið í hans stað.
Fyrir leik
Þórsarar með góð tök á Þrótturum
Liðin léku bæði í Lengjudeildinni á síðustu leiktíð. Vegna Covid þurfti að hætta keppni þegar tvær umferðir voru eftir. Þessi lið náðu þó að mætast tvisvar og fóru Þórsarar með sigur af hólmi í báðum viðureignunum. 3-0 hér á heimavelli og 2-0 fyrir sunnan. Heimamenn léku einum fleiri síðasta klukkutímann hér í fyrra þar sem Daði Bergsson fékk að líta sitt annað gula spjald.
Fyrir leik
Staðan í deildinni
Leikurinn er í elleftu umferð. Heimamenn eru í 8. sæti deildarinnar með 12 stig. Þeir gerðu 1-1 jafntefli á útivelli gegn Selfossi.

Gestirnir eru í 11. sæti með 7 stig. Þróttur tapaði í síðustu umferð gegn ÍBV 1-0 en markið kom á 90. mínútu, gríðarlega svekkjandi!
Fyrir leik
Góða kvöldið og verið velkomin í beina textalýsingu á leik Þórs og Þróttar í Lengjudeild karla.

Leikurinn er á SaltPay-Vellinum, heimavelli Þórs og hefst kl 18:00
Byrjunarlið:
1. Franko Lalic (m)
2. Eiríkur Þorsteinsson Blöndal ('67)
3. Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson ('88)
4. Hreinn Ingi Örnólfsson (f)
8. Baldur Hannes Stefánsson
9. Hinrik Harðarson
11. Kairo Edwards-John ('36)
15. Gunnlaugur Hlynur Birgisson ('67)
21. Róbert Hauksson
23. Guðmundur Friðriksson
33. Hafþór Pétursson

Varamenn:
12. Albert Elí Vigfússon (m)
Magnús Pétur Bjarnason
5. Atli Geir Gunnarsson ('67)
6. Sam Hewson
7. Daði Bergsson
16. Egill Helgason
20. Andi Hoti ('67)
22. Kári Kristjánsson ('88)
28. Ólafur Fjalar Freysson ('36)

Liðsstjórn:
Guðlaugur Baldursson (Þ)
Baldvin Már Baldvinsson
Jamie Paul Brassington
Páll Steinar Sigurbjörnsson
Henry Albert Szmydt

Gul spjöld:
Hinrik Harðarson ('47)

Rauð spjöld: