Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Valur
2
1
Keflavík
Sigurður Egill Lárusson '9 1-0
Sigurður Egill Lárusson '30 2-0
2-1 Ástbjörn Þórðarson '51
15.08.2021  -  19:15
Origo völlurinn
Pepsi Max-deild karla
Dómari: Vilhjálmur Alvar Þórarinsson
Áhorfendur: 412
Maður leiksins: Sigurður Egill Lárusson
Byrjunarlið:
1. Hannes Þór Halldórsson (m)
2. Birkir Már Sævarsson
4. Christian Köhler
5. Birkir Heimisson
6. Sebastian Hedlund
9. Patrick Pedersen ('70)
10. Kristinn Freyr Sigurðsson ('70)
11. Sigurður Egill Lárusson
13. Rasmus Christiansen
14. Guðmundur Andri Tryggvason ('70)
20. Orri Sigurður Ómarsson

Varamenn:
25. Sveinn Sigurður Jóhannesson (m)
3. Johannes Vall ('85)
8. Arnór Smárason ('70)
12. Tryggvi Hrafn Haraldsson ('70)
15. Sverrir Páll Hjaltested ('70) ('85)
21. Magnus Egilsson
77. Kaj Leo í Bartalsstovu

Liðsstjórn:
Heimir Guðjónsson (Þ)
Halldór Eyþórsson
Styrmir Örn Vilmundarson
Eiríkur K Þorvarðsson
Srdjan Tufegdzic
Haraldur Árni Hróðmarsson
Örn Erlingsson

Gul spjöld:
Birkir Már Sævarsson ('77)
Sigurður Egill Lárusson ('80)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Valur fer með sigur af hólmi 2-1!
92. mín
Arnór Smára með mark tilraun nánast frá miðju eftir að Sindri Kristinn kom langt útúr teignum en boltinn rennur framhjá markinu.
90. mín
Uppbótartími: 4 mínútur
89. mín
Orri Sigurður bjargar Valsmönnum á síðustu stundu!

Fyrirgjöf frá hægri á fjærstöngina sem Orri hreinsar frá, á síðustu stundu.

Orri átt virkilega öflugan leik í kvöld og er kominn í miðvörðinn núna og Hedlund á miðjuna.
88. mín
Dagur Ingi með hornspyrnuna sem fer beint í hendur Hannesar.
87. mín
Marley Blair með fyrirgjöf frá vinstri sem Rasmus hreinsar í horn.
86. mín
Davíð Snær með viðstöðulaust skot utan teigs framhjá markinu.
85. mín
Inn:Johannes Vall (Valur) Út:Sverrir Páll Hjaltested (Valur)
Þetta var stutt gaman hjá Sverri í dag. Hann fer meiddur af velli eftir korter.

Sverrir Páll haltrar hér á hliðarlínunni.
85. mín
Sverrir Páll liggur utan vallar og virðist vera meiddur.
84. mín
Inn:Adam Árni Róbertsson (Keflavík) Út:Christian Volesky (Keflavík)
Síðasta skipting gestanna í kvöld.
84. mín
Sigurður Egill fellur innan teigs eftir viðskipti við Sindra Kristin en ekkert dæmt. Hárrétt ákvörðun hjá Vilhjálmi Alvari.

Sigurður Egill ætlaði sér að krækja í víti þarna en Vilhjálmur lét ekki plata sig.
82. mín
Það hefur töluvert fjarað undan leiknum miðað við hvernig hann spilaðist í fyrri hálfleik.

Það eru tæpar 10 mínútur eftir af leiknum. Fáum við fleiri mörk?

Eins og leikurinn er að þróast eru bæði lið jafn líkleg til að skora.
80. mín Gult spjald: Sigurður Egill Lárusson (Valur)
Fer aftan í Ástbjörn.
79. mín
Joey Gibbs með rosalega slappt skot utan teigs, sennilega svona 15 metra yfir markið.

Það hefur alltof lítið sést til Gibbs hér í dag og ekki var þetta nú að bæta hans frammistöðu.
77. mín Gult spjald: Birkir Már Sævarsson (Valur)
Fer aftan í Blair sem var á fleygi ferð upp völlinn.
75. mín
Inn:Ari Steinn Guðmundsson (Keflavík) Út:Helgi Þór Jónsson (Keflavík)
Þriðja skipting Keflavíkur í kvöld.
74. mín
...og Valsmenn fá sína elleftu hornspyrnu.
74. mín
Tvær hornspyrnur Vals sem ekkert verður úr.

Valur hefur fengið tíu hornspyrnur í leiknum á meðan Keflavík hefur fengið fimm.
70. mín
Inn:Sverrir Páll Hjaltested (Valur) Út:Patrick Pedersen (Valur)
70. mín
Inn:Tryggvi Hrafn Haraldsson (Valur) Út:Guðmundur Andri Tryggvason (Valur)
70. mín
Inn:Arnór Smárason (Valur) Út:Kristinn Freyr Sigurðsson (Valur)
68. mín
Dagur Ingi með skot utan teigs sem virðist vera á leiðinni útaf en Gibbs fær hinsvegar boltann í sig en nær ekki að gera sér mat úr færinu.
67. mín
Birkir Heimis með fyrirgjöf á Patrick Pedersen sem virðist eiga snertingu með bakinu og aftur fyrir en Sindri Kristinn gerði honum erfitt fyrir og kom út á móti honum.
64. mín
Birkir Heimis með aukaspyrnuna sem endar ofan á þaknetinu.
64. mín
Nacho Heras fær boltann í höndina fyrir utan teig og Valsmenn fá aukaspyrnu á hættulegum stað.
63. mín
Birkir Már reynir að finna Sigurð Egil í lappir innan teigs en Siggi hittir ekki boltann.
62. mín
Inn:Marley Blair (Keflavík) Út:Oliver Kelaart (Keflavík)
62. mín
Inn:Dagur Ingi Valsson (Keflavík) Út:Ingimundur Aron Guðnason (Keflavík)
55. mín
Guðmundur Andri með skalla af stuttu færi sem Sindri Kristinn ver.

Sigurður Egill með fyrirgjöfina frá vinstri á Guðmund Andra sem var á nærstönginni. Skallinn kraftlaus og auðvelt fyrir Sindra.
52. mín
Valsmenn fá hornspyrnu eftir hlaup Birkis Más upp hægri vænginn. Enn ein hornspyrna Vals í leiknum.
51. mín MARK!
Ástbjörn Þórðarson (Keflavík)
Stoðsending: Christian Volesky
Það held ég nú. Keflvíkingar eru búnir að minnka muninn!

Ingimundur Aron með hornspyrnuna, sem Volesky skallar í átt að markinu. Ástbjörn er vel staðsettur inn í miðjum markteig Valsmanna og hann klárar þetta með því að stýra boltanum í netið af stuttu færi.
50. mín
Ástbjörn með fyrirgjöf frá hægri sem Birkir Heimisson hreinsar í horn.
47. mín Gult spjald: Sindri Þór Guðmundsson (Keflavík)
Sparkar Sindra niður og missir af næsta deildarleik Valsmanna.
46. mín
Guðmundur Andri vippar boltanum í fjærstöngina og síðan fær Orri Sigurður boltann en á skot yfir markið.

Seinni hálfleikurinn byrjar af krafti.
46. mín
Seinni hálfleikurinn er farinn af stað.
45. mín
Hálfleikur
Vilhjálmur Alvar hefur flautað til hálfleiks.

Fjörugum fyrri hálfleik lokið og nú verður fróðlegt að sjá hvernig sá seinni spilast. Tvö mörk komin í hús og þau hefðu hæglega geta verið fleiri. En það er ekki spurt af því. Valsmenn eru tveimur mörkum yfir og eru að spila af miklum krafti. Keflvíkingar eru óheppnir að hafa ekki náð einu marki rétt fyrir hálfleik.
45. mín
Uppbótartími: Ein mínúta
40. mín
Hvernig endaði þetta ekki inni hjá Oliver Kelaart?

Oliver Kelaart á tvær tilraunir á innan við sekúndu eftir sendingu frá Volesky. Fyrst kom Hannes út á móti og varði vel, en Kelaart fékk frákastið og átti þá skot í nærstöngina.

Dauðafæri. Algjört.
38. mín
Keflavík fær hér tvær hornspyrnur á stuttum tíma.

Sú seinni endar með því að Frans Elvarsson á skot utan teigs, framhjá markinu.
37. mín
Þetta hefur verið virkilega opinn og skemmtilegur leikur hingað til. Bæði lið sækja af miklum krafti en heimamenn hafa þó náð að opna vörn gestanna oftar.

Það verður þó ekki tekið af gestunum að þeir eru að reyna.
36. mín
Ingimundur Aron fær nægan tíma með boltann fyrir utan teig og á siðan skot á markið sem fer beint á Hannes.
34. mín
Sigurður Egill ekki langt frá því að henda í þrennu!!!

Hedlund á sendingu fram völlinn sem Patrick gerir vel og hoppar yfir, boltinn dettur því fyrir Sigurð Egil sem tekur snertingu í átt að markinu og á síðan þetta hörkuskot við vítateiginn, sem endar millimetra framhjá markinu.
30. mín MARK!
Sigurður Egill Lárusson (Valur)
Sigurður Egill með sitt annað mark í leiknum!

Kristinn Freyr sem byrjar þessa sókn með sendingu á Patrick Pedersen. Patrick reynir að finna Sigurð Egil innfyrir vörn Keflvíkinga.

Sindri Kristinn kemur út fyrir teiginn og ætlar að hreinsa frá, en Sigurður Egill gerir vel, pressar hann og fær boltann í sig. Boltinn dettur í kjölfarið fyrir fætur hans og Sigurður Egill rennir boltanum í tómt markið á nýjan leik.
27. mín
Ingimundur Aron með slaka skot tilraun utan teigs, vel framhjá marki Vals.
25. mín
Birkir Már með skot utan teigs sem fer í Sindra Þór og rétt framhjá.

Frans með mislukkaða sendingu út úr vörninni og Birkir nýtir sér það.

Hedlund á skalla vel framhjá markinu í kjölfar hornspyrnunnar frá Birki H.
24. mín
Helgi Þór Jónsson ekki langt frá því að jafna á ótrúlegan hátt.

Helgi snýr af sér Rasmus og reynir skot úr þröngu færi sem fer rétt framhjá fjærstönginni eftir viðkomu í varnarmann Vals.

Joey Gibbs gerði vel og vann boltann fyrir Keflvíkinga eftir innkast Valsmanna við hornfánann.
22. mín
Enn og aftur er Orri Sigurður hársbreidd frá því að skora. Hvað er að gerast?

Birkir Heimis með hornspyrnuna sem Birkir Már flikkar fyrir markið. Þar er Orri vel staðsettur og reynir að stýra boltanum í markið en rétt framhjá markinu fer boltinn.
20. mín
Það er miklu miklu miklu meira líf í heimamönnum fyrstu 20 mínútur leiksins.
19. mín
Orri Sigurður með bakfallsspyrnu framhjá markinu, eftir aukaspyrnu frá Birki Heimissyni.

Birkir Már reyndi skalla að marki sem gekk ekki, þá reyndi Orri þessa tilraun sem fór framhjá markinu.
18. mín Gult spjald: Sindri Þór Guðmundsson (Keflavík)
Vindurinn fer upp hægri kantinn og það er ekkert sem stöðvar hann nema Sindri þór, á ólöglegan hátt.
15. mín
Orri Sigurður skallar boltann í netið eftir hornspyrnu frá Birki en Orri dæmdur brotlegur.

Orri virtist annað hvort hoppa upp á bak Sindra Kristins eða stjaka við honum.
14. mín
Guðmundur Andri reynir fyrirgjöf frá hægri sem Sindri Þór kemst fyrir og Valsmenn fá hornspyrnu.
12. mín
Sigurður Egill virðist vera sleppa einn í gegn en gerir ekki nægilega vel úr stöðunni og sóknin rennur út í sandinn.
9. mín MARK!
Sigurður Egill Lárusson (Valur)
Stoðsending: Kristinn Freyr Sigurðsson
Laglegt mark og Valsmenn eru komnir yfir!

Patrick Pedersen með lykilsendingu innfyrir vörn Keflvíkinga þar sem Valsmenn eru fjölmargir gegn fámennum Keflvíkingum.

Kristinn Freyr fær boltann og gerir vel, rennir boltanum til vinstri þar sem Sigurður Egill þarf ekki að gera annað en að stýra boltanum í tómt netið.

Sindri Kristinn var kominn út fyrir teiginn, með það í huga að stöðva Kristin Frey sem gerði hinsvegar allt rétt í stöðunni og renndi boltanum til hliðar á Sigurð Egil.
7. mín
STÖNGIN!

Orri Sigurður á skot af stuttu færi í stöngina eftir hornspyrnu Birkis. Boltinn datt fyrir fætur Orra sem virtist sitja á vellinum þegar hann tók skotið. Óheppnir Valsmenn þarna.
7. mín
Sindri Þór hreinsar í horn á síðustu stundu!

Sigurður Egill með fyrirgjöfina frá vinstri sem hvorki Patrick né Guðmundur Andri ná til en Sindri rennir sér í boltann og hreinar í horn.
6. mín
Birkir Heimisson með skot yfir markið innan teigs, eftir að Sigurður Egill lagði boltann út á hann.

Hröð sókn Valsmanna sem hófst á hægri vængnum en boltinn fór yfir á þann vinstri til Sigurðar sem lagði boltann út á Birki.
4. mín
Nú er það Sigurður Egill sem brýtur á Ástbirni við endalínuna hægra megin.

Ingimundur Aron tekur aukaspyrnuna, sem endar með því að Hedlund hreinsar frá eftir nokkrar tilraunir frá öðrum liðsfélögum hans að hreinsa frá með hausnum.
2. mín
Hedlund brýtur af sér á miðjum vellinum. Stöðvar hraða sókn Keflvíkinga og Oliver Kelaart fær að finna fyrir því.
1. mín
Nacho Heras bjargar Keflvíkingum á síðustu stundu inn í teig eftir að bæði Patrick Pedersen og Guðmundur Andri gerðu sig líklega inn í miðjum vítateig gestanna.
1. mín
Leikur hafinn
Leikurinn er farinn af stað. Valsmenn sækja í átt að American bar á meðan Keflavík sækir í átt að Shake & pizza í fyrri hálfleik. Síðan munu liðin skipta um vallarhelming í hálfleik eins og venjan er.
Fyrir leik
Styttist í að leikurinn fari af stað. Liðin eru bæði inn í klefa og sjö mínútur í leik. Það er fámennt í stúkunni en líklega afar góðmennt.
Fyrir leik
Tryggvi Hrafn sem byrjar á bekknum hjá Val í dag var í viðtali við samfélagsmiðla Vals fyrir leikinn. Þar hafði hann til að mynda þetta að segja um toppbaráttuna í deildinni:

,,Toppbaráttan er galopin og þrátt fyrir ekkert sérstakt gengi í undanförnum leikjum þá erum við ennþá á toppnum. Það hafa öll lið verið að tapa stigum en þegar liðin í kringum okkur eru að gera það þá nýtum við okkur það ekki nægilega vel. Við þurfum í rauninni bara að hugsa um okkur sjálfa og vinna okkar leiki þar sem titillinn er ennþá í okkar höndum."
Fyrir leik
Hjá Keflavík eru þrjár breytingar frá síðasta deildarleik. Helgi Þór Jónsson, Christian Volesky og Oliver Kelaart koma inn í stað Magnús Þórs, Kian Williams og Marley Blair.
Fyrir leik
Heimir Guðjónsson gerir tvær breytingar á Valsliðinu frá síðasta leik í deildinni gegn Leikni. Christian Köhler og Sigurður Egill Lárusson koma inn í byrjunarlið Vals í stað Hauk Páls og Tryggva Hrafns. Haukur Páll tekur út leikbann í dag.
Fyrir leik
Valur unnu 6-0 sigur á Völsungi í bikarnum en töpuðu 1-0 gegn Leikni í síðustu umferð Pepsi Max-deildarinnar þar sem liðið átti erfitt uppdráttar á mörgum sviðum leiksins, þá sérstaklega sóknarlega.
Fyrir leik
Keflavík vann góðan 3-1 sigur á KA í bikarnum í síðasta leik sínum en í deildinni gerðu þeir 1-1 jafntefli gegn Fylki.
Fyrir leik
Valur hafði betur í fyrri viðureign liðanna sem fram fór í Keflavík í lok maí mánaðar, 2-1.

Rasmus Christiansen og Birkir Már Sævarsson skoruðu mörk Vals sem komust í 2-0 áður en Joey Gibbs minnkaði muninn í uppbótartíma.
Fyrir leik
Valur er á toppi deildarinnar með 33 stig, þremur stigum meira en drengirnir í Fossvoginum í Víkingi. Breiðablik er síðan í 3. sæti deildarinnar með 29 stig en eiga leik til góða á bæði lið.

Keflavík er í 8. sæti deildarinanr með 17 stig, fjórum stigum frá fallsæti.
Fyrir leik
Verið velkomin í beina textalýsingu frá Origo-vellinum.
Byrjunarlið:
1. Sindri Kristinn Ólafsson (m)
4. Nacho Heras
7. Davíð Snær Jóhannsson
11. Helgi Þór Jónsson ('75)
16. Sindri Þór Guðmundsson
20. Christian Volesky ('84)
22. Ástbjörn Þórðarson
23. Joey Gibbs
25. Frans Elvarsson (f)
28. Ingimundur Aron Guðnason ('62)
98. Oliver Kelaart ('62)

Varamenn:
21. Helgi Bergmann Hermannsson (m)
3. Axel Ingi Jóhannesson
5. Stefán Jón Friðriksson
8. Ari Steinn Guðmundsson ('75)
9. Adam Árni Róbertsson ('84)
10. Dagur Ingi Valsson ('62)
86. Marley Blair ('62)

Liðsstjórn:
Eysteinn Húni Hauksson Kjerúlf (Þ)
Sigurður Ragnar Eyjólfsson (Þ)
Ómar Jóhannsson
Þórólfur Þorsteinsson
Jón Örvar Arason
Gunnar Örn Ástráðsson
Óskar Rúnarsson

Gul spjöld:
Sindri Þór Guðmundsson ('18)
Sindri Þór Guðmundsson ('47)

Rauð spjöld: