Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Fylkir
5
0
Úlfarnir
Benedikt Daríus Garðarsson '3 1-0
Nikulás Val Gunnarsson '6 2-0
Birkir Eyþórsson '54 3-0
Nikulás Val Gunnarsson '85 4-0
Birkir Eyþórsson '90 5-0
21.04.2022  -  14:00
Würth völlurinn
Mjólkurbikar karla
Aðstæður: 200
Dómari: Gunnar Oddur Hafliðason
Byrjunarlið:
1. Ólafur Kristófer Helgason (m)
Daði Ólafsson
2. Ásgeir Eyþórsson
5. Orri Sveinn Stefánsson (f) ('73)
6. Frosti Brynjólfsson ('45)
9. Mathias Laursen ('45)
10. Ásgeir Börkur Ásgeirsson ('45)
10. Benedikt Daríus Garðarsson
17. Birkir Eyþórsson
18. Nikulás Val Gunnarsson
20. Hallur Húni Þorsteinsson ('45)

Varamenn:
12. Guðmundur Rafn Ingason (m)
3. Unnar Steinn Ingvarsson ('45)
4. Arnór Gauti Jónsson ('45)
11. Þórður Gunnar Hafþórsson ('45)
15. Axel Máni Guðbjörnsson ('73)
19. Aron Örn Þorvarðarson

Liðsstjórn:
Rúnar Páll Sigmundsson (Þ)
Ragnar Bragi Sveinsson
Björn Metúsalem Aðalsteinsson
Óðinn Svansson
Ólafur Ingvar Guðfinnsson
Halldór Steinsson
Ágúst Aron Gunnarsson
Olgeir Sigurgeirsson

Gul spjöld:

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Gunnar Oddur flautar til leiksloka. Sannfærandi og aldrei í hættu hjá Fylkismönnum hér í dag og eru þeir komnir áfram í næstu umferð Bikarsins.

Takk í dag!
90. mín MARK!
Birkir Eyþórsson (Fylkir)
Stoðsending: Benedikt Daríus Garðarsson
Birkir Eyþórsson að skora sitt annað mark hérna í dag!!

Benedikt Daríus fær boltann inn í teig Úlfanna og leggur hann til hliðar á Birki sem setur hann í netið.
86. mín
Inn:Steinar Haraldsson (Úlfarnir) Út:Kristján Ólafur Torfason (Úlfarnir)
85. mín MARK!
Nikulás Val Gunnarsson (Fylkir)
Stoðsending: Benedikt Daríus Garðarsson
Benedikt Daríus fær boltann út til hægri og keyrir inn á teiginn og á skot á markið og var boltinn líklega á leiðinni inn en Nikulás potar honum yfir marklínuna.
83. mín
Arnór Gauti fær boltann við miðjuhringinn eftir snögga hornspyrnu og lyfir boltanum fyrir á Ásgeir Eyþór sem nær skallanum en boltinn framhjá markinu.
80. mín
Daði Ólafs virðist fá í lærið og labbar útaf vellinum og eru Fylkismenn búnir með skiptingarnar sínar og leika því einum færri síðustu tíu mínútur leiksins.
79. mín
Inn:Jón Haukur Bjarnason (Úlfarnir) Út:Kristján Ólafur Torfason (Úlfarnir)
79. mín
Inn:Axel Máni Sigurðsson (Úlfarnir) Út:Halldór Bjarki Brynjarsson (Úlfarnir)
73. mín
Inn:Axel Máni Guðbjörnsson (Fylkir) Út:Orri Sveinn Stefánsson (Fylkir)
72. mín
Fylkismenn fá hornspyrnu sem Daða tekur frá vinstri og Úlfarnir skalla boltann úr teignum beint á Arnór Gauta sem tekur hann viðstöðu laust á lofti en boltinn framhjá.
68. mín
Benedikt Daríus setur boltann í netið eftir darraðadans inn á teig Úlfanna en aukaspyrna dæmd á Fylkismenn.
67. mín
Inn:Kristjón Örn Vattnes Helgason (Úlfarnir) Út:Halldór Bjarki Brynjarsson (Úlfarnir)
67. mín
Inn:Dagbjartur Alex Guðmundsson (Úlfarnir) Út:Hilmar Þór Sólbergsson (Úlfarnir)
66. mín Gult spjald: Kristján Ólafur Torfason (Úlfarnir)
65. mín
Birkir áttu vippu inn fyrir vörnina sem Ragnar nýtir sér og á skot á markið sem varnamaður Úlfanna ver í horn.

Boltinn sveif yfir allann pakkann og í innkast hinumeginn.
60. mín
Klukkutími liðinn og eins og við mátti búast eru það Fylkismenn sem eru með öll völd á vellinum og hleypa Úlfunum ekki inní leikinn.
54. mín MARK!
Birkir Eyþórsson (Fylkir)
Stoðsending: Þórður Gunnar Hafþórsson
Þórður á sendingu inní teignn frá hægri þar sem Birkir setur hann þæginlega framhjá Lexa í marki Úlfanna.
50. mín
Ásgeir Eyþórs með skallann yfir markið eftir hornspyrnuna frá Daða.
46. mín
Níkulas Val fær boltann inn fyrir sem Alexander ver vel í hornspyrnu.
46. mín
Síðari hálfleikurinn er farinn af stað.
45. mín
Inn:Arnór Gauti Jónsson (Fylkir) Út:Mathias Laursen (Fylkir)
45. mín
Inn:Ragnar Bragi Sveinsson (Fylkir) Út:Hallur Húni Þorsteinsson (Fylkir)
45. mín
Inn:Unnar Steinn Ingvarsson (Fylkir) Út:Ásgeir Börkur Ásgeirsson (Fylkir)
45. mín
Inn:Þórður Gunnar Hafþórsson (Fylkir) Út:Frosti Brynjólfsson (Fylkir)
45. mín
Hálfleikur
Gunnar Oddur bætir engu við og flautar til hálfleiks hér í Árbænum. Fylkismenn fara með tveggja marka forskot inn í hálfleikinn.
42. mín
Daði Ólafs með hornspyrnu frá vinstri sem fer á pönnuna á Ásgeir Eyþórs en skalli hans yfir markið. Miklir yfirburðir Fylkismanna hérna í fyrrihálfleik þrátt fyrir að staðan sé bara 2 - 0.
39. mín
Hallur Húni lyftir boltanum fyrir frá hægri beint á Birki Eyþórs sem nær skalla en boltinn beint á Lexa.
36. mín
Fylkismenn halda áfram að halda í boltann en Úlfarnir eru orðnir þéttari aftast og eru Fylkismenn í brasi með að opna vörn gestanna.
28. mín
Fylkismenn eru ekki mikið að skapa sér þessa stundina og eru bara í reitarbolta inn á vellinum þessar síðustu mínútur.
21. mín
Daði Ólafs fær boltann við miðjuhringinn og lætur bara vaða af 25 metra færi en Alexander ver vel.
18. mín
Alexander Arnarsson ver vel í marki Úlfa!!

Benedikt fær boltann á miðjum vallarhelming Úlfanna og finnur Mathias inn fyrir sem nær skoti á markið en Lexi ver vel!
12. mín
Fyrstu tólf mínútur leiksins:

Fylkir með boltann og Úlfarnir komast varla yfir miðju.
6. mín MARK!
Nikulás Val Gunnarsson (Fylkir)
Stoðsending: Daði Ólafsson
Daði Ólafs tekur hornspyrnu frá hægri og smellir boltanum beint á Nikulás Val sem skallar í netið

Langur dagur framundan fyrir hina Íslensku Úlfa.
3. mín MARK!
Benedikt Daríus Garðarsson (Fylkir)
Fylkismenn eru ekki að lengi að setja fyrsta mark leiksins.

Kemur bolti inn á teiginn sem er checkaður út á Benedikt Daríus sem setur boltann örugglega í netið.
2. mín
Anton Hrafn brýtur á Frosta Brynjólfs við hornfánan hægra megin og Fylkismenn fá aukaspyrnu sem Daði Ólafs skrúfar inn í teiginn en boltinn beint á Alexander Arnars í marki Úlfanna.
1. mín
Leikur hafinn
Gunnar Oddur flautar til leiks og það eru Úlfarnir sem hefja leik og sækja í átt að Árbæjarlaug.
Fyrir leik
Liðin tvö hafa lokið upphitun og ganga til búningsherbegja og gera sig klár í upphafsflaut leiksins. Áhorfendur eru svona hægt og rólega að týnast í stúkuna.

Aðstæðurnar hér í dag eru góðar, örlítil gola og úði annars rennislétt gervigras.
Fyrir leik
Leikir dagsins:

Mjólkurbikar karla
14:00 Fylkir-Úlfarnir (Würth völlurinn)
14:00 Ægir-KFS (Domusnovavöllurinn)
14:00 Höttur/Huginn-Einherji (Fellavöllur)
14:00 Kórdrengir-Álftanes (Framvöllur)
14:00 Uppsveitir-Reynir S. (JÁVERK-völlurinn)
16:00 KF-Magni (Dalvíkurvöllur)
18:00 Reynir H-ÍR (Ólafsvíkurvöllur)
Elvar Geir Magnússon
Fyrir leik
Rúnar Páll Sigmundsson þjálfari Fylkir hefur opinberað byrjunarliðið sitt. Hann byrjar kannski eðlilega með nokkra lykilmenn á bekknum og gefur ungum sénsinn hér í dag. Ásgeir Börkur er á sínum stað á miðju Fylkis.



Börkurinn og AI (Albert Brynjar Ingason)
Fyrir leik
Fylkismenn féllu á síðasta tímabili úr Pepsí Max deildinni sem hét þá og leika í Lengjudeildinni þetta árið og er líklega skýrt markmið upp í Árbæ og það er beint aftur upp í deild þeirra bestu.

Úlfarnir leika í 4.deildinni í sumar líkt og undarfarin ár.
Fyrir leik
Fyrsta umferðin.

Heimamenn í Fylki tóku ekki þátt í henni og koma því beint inn í þessa aðra umferð.

Úlfarnir fóru í heimsókn til Afríku í fyrstu umferðinni og unnu þægilegan 0 - 5 sigur. Það bíður þeim aðeins erfiðara verkefni hér í dag á móti Árbæingum.
Fyrir leik
Gleðilegt Sumar kæru lesendur!

Góðan daginn og verið velkomin í beina textalýsingu frá Árbænum þar sem Fylkismenn fá hina Íslensku Úlfa í heimsókn á Würth völlinn Í 2.umferð Mjólkurbikar karla.

Gunnar Oddur Hafliðason flautar til leiks klukkan 14:00.
Byrjunarlið:
12. Alexander Arnarsson (m)
Börkur Þorri Þorleifsson
2. Baldvin Freyr Ásmundsson (f)
4. Halldór Bjarki Brynjarsson ('67) ('79)
8. Guðlaugur Rúnar Pétursson
9. Hilmar Þór Sólbergsson ('67)
10. Steinar Bjarnason
11. Kristján Ólafur Torfason ('79) ('86)
16. Anton Hrafn Hallgrímsson
18. Ásgeir Eyþórsson
20. Árni Flóvent Vilbergsson

Varamenn:
1. Halldór Sigurðsson (m)
Axel Máni Sigurðsson ('79)
9. Dagbjartur Alex Guðmundsson ('67)
13. Steinar Haraldsson ('86)
14. Jón Haukur Bjarnason ('79)
17. Kristjón Örn Vattnes Helgason ('67)
23. Baldvin Freyr Björgvinsson

Liðsstjórn:
Haukur Hilmarsson (Þ)
Birgir Theodór Ásmundsson
Daníel Traustason
Friðrik Örn Bjarkason
Hermann Björn Harðarson
Jón Árnason
Tómas Atli Björnsson
Birgir Bent Þorvaldsson

Gul spjöld:
Kristján Ólafur Torfason ('66)

Rauð spjöld: