Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
HK
3
1
Kórdrengir
Stefán Ingi Sigurðarson '46 1-0
Ásgeir Marteinsson '56 2-0
2-1 Þórir Rafn Þórisson '58
Stefán Ingi Sigurðarson '73 3-1
Eiður Atli Rúnarsson '87
23.06.2022  -  19:15
Kórinn
Lengjudeild karla
Aðstæður: Sól úti en við erum inni
Dómari: Arnar Þór Stefánsson
Maður leiksins: Stefán Ingi Sigurðarson (HK)
Byrjunarlið:
25. Arnar Freyr Ólafsson (m)
4. Leifur Andri Leifsson (f)
6. Birkir Valur Jónsson ('35)
7. Örvar Eggertsson ('83)
8. Arnþór Ari Atlason
10. Ásgeir Marteinsson ('83)
16. Eiður Atli Rúnarsson
17. Valgeir Valgeirsson
18. Atli Arnarson
21. Ívar Örn Jónsson
43. Stefán Ingi Sigurðarson ('93)

Varamenn:
2. Kristján Snær Frostason
3. Ívar Orri Gissurarson ('83)
23. Hassan Jalloh ('35)
24. Teitur Magnússon ('83)
28. Tumi Þorvarsson ('93)
29. Karl Ágúst Karlsson

Liðsstjórn:
Ómar Ingi Guðmundsson (Þ)
Gunnþór Hermannsson
Þjóðólfur Gunnarsson
Sandor Matus
Birkir Örn Arnarsson
Ólafur Örn Ásgeirsson
Kári Jónasson
Bergþór Snær Jónasson

Gul spjöld:

Rauð spjöld:
Eiður Atli Rúnarsson ('87)
Leik lokið!
Þá er þessi leikur búinn. Nokkuð sannfærandi heimasigur fyrir HK. Þeir færa sig þá nær toppbaráttunni á meðan Kórdrengir sleikja sárin.

Skýrsla og viðtöl seinna í kvöld.
93. mín
Inn:Tumi Þorvarsson (HK) Út:Stefán Ingi Sigurðarson (HK)
Líklegt að þetta sé tognun.
92. mín
Stefán byrjar að haltra hér eftir sprett hann er alveg pottþétt eitthvað meiddur.
87. mín Rautt spjald: Eiður Atli Rúnarsson (HK)
Ég hef greinilega misst af fyrra gula því ég var ekki með það skráð. Þetta er semsagt seinna gula.

En Eiður tekur Kórdrengjamanninn niður, er hreinlega bara alltof seinn en hann fær síðan hendina á honum í hálsinn og missir andan.

Svo þegar hann er búinn að ná sér vísar Arnar dómari honum í sturtu.

Kaldar kveðjur.
85. mín
Samstuð hérna sem skilur 2 menn eftir í jörðinni einhver aðhlynning þarfnast.
83. mín
Inn:Teitur Magnússon (HK) Út:Örvar Eggertsson (HK)
83. mín
Inn:Ívar Orri Gissurarson (HK) Út:Ásgeir Marteinsson (HK)
80. mín
Örvar stelur boltanum eftir hornspyrnu frá Kórdrengjum og hleypur upp allan völlinn.

Hann á svo eitthvað aðeins erfitt með að taka ákvörðun og endar á að skjóta sjálfur en boltinn í varnarmann og Daði handsamar knöttinn.
76. mín
Inn:Óskar Atli Magnússon (Kórdrengir) Út:Hákon Ingi Einarsson (Kórdrengir)
76. mín
Inn:Marinó Hilmar Ásgeirsson (Kórdrengir) Út:Sverrir Páll Hjaltested (Kórdrengir)
73. mín MARK!
Stefán Ingi Sigurðarson (HK)
Stoðsending: Hassan Jalloh
ÞVÍLÍKUR ÞRUMUFLEYGUR!!!

Langur bolti upp á hægri kant þar sem Hassan skallar hann niður fyrir Stefán.

Stefán færir svo boltann aðeins til hliðar einhverjum 25 metrum frá marki og dúndrar honum upp í skeytin.

VÁÁÁÁ!
70. mín
Kórdrengir með gott skallafæri. Arnleifur tekur fyrirgjöfina frá vinstri kanti en skallinn fer rétt yfir.
69. mín
Arnþór Ari með mjög fast skot fyrir utan teig en það fer líka frekar hátt yfir.
67. mín
Inn:Daníel Gylfason (Kórdrengir) Út:Kristján Atli Marteinsson (Kórdrengir)
65. mín
Það er harka í þessu núna og boltinn fer hratt á milli marka. Bæði lið svo sannarlega að sækja til sigurs.
58. mín MARK!
Þórir Rafn Þórisson (Kórdrengir)
Stoðsending: Sverrir Páll Hjaltested
Þeir eru ekki lengi að svara!

Það var háloftaleikur á vallarhelming HK þar sem Sverrir nær að skalla boltann í hlaupalínu fyrir Þóri.

Afgreiðslan frá Þóri er síðan mjög snyrtileg. Þetta alvöru leikur hér í seinni!
56. mín MARK!
Ásgeir Marteinsson (HK)
Stoðsending: Valgeir Valgeirsson
Kjafshögg fyrir Kórdrengi þetta mark!

Kórdrengir voru í fyrsta skipti í seinni hálfleik að færa sig upp völlinn en þá stelur einfaldlega Stefán boltanum og setur Valgeir í gegn með bara markmanninn fyrir framan sig.

Valgeir gerir skynsama hlutinn og rennir boltanum þvert fyrir markið þar sem Ásgeir skorar æí opið markið.
54. mín
Það verður að gefa hrós á HK stuðningsmenn hérna. Það er hópur af ungum stuðningsmönnum sem hafa sungið og trallað allan leikinn.

Svona á þetta að vera.
52. mín
Leikurinn spilast á vallarhelmingi Kórdrengja hér í byrjun seinni hálfleiks.
46. mín MARK!
Stefán Ingi Sigurðarson (HK)
Stoðsending: Ívar Örn Jónsson
HK-ingar verða að minni ósk!

HK fær aukaspyrnu hægra megin við teginn þegar einverjar 30 sekúndur eru búnar af seinni hálfleik. Ívar Örn tekur spyrnuna og það er Stefán sem flikkar boltanum áfram með skallanum og boltinn endar í netinu.

Vel útfært!
46. mín
Leikur hafinn
Leikurinn aftur farinn af stað og við viljum mörk í þennan seinni hálfleik.
45. mín
Hálfleikur
Þá er þessum hálfleik lokið. Lítið um stór færi en þó fín skemmtun. Mikil barátta og ákefð í leiknum það vantar bara mörkin.

Sjáumst eftir korter.
45. mín Gult spjald: Nathan Dale (Kórdrengir)
Tekur Stefán nokkuð harkalega niður. Beygir sig svo yfir hann og hreytir einhverjum vel völdum orðum í hann.
39. mín
HK fær aukaspyrnu við hægri hlið teigsins.

Ívar tekur spyrnuna og boltinn kemur inn á teig þar sem honum er hreinsað frá.

Þá færi Atli boltann fyrir utan teig og tekur þrumuskot rétt yfir markið.
37. mín
Jalloh ætlar greinilega að stimpla sig inn í leikinn. Hann reynir að fara framhjá 2 varnarmönnum og sýnir allar sínar listir, gerir einhver þrjú mismunandi trix en endar á að sparka boltanum útaf í markspyrnu.
35. mín
Inn:Hassan Jalloh (HK) Út:Birkir Valur Jónsson (HK)
Birkir virðist ekki getað haldið áfram.

Þá færist Örvar niður í hægri bak.
32. mín
Þarna gerði Arnar Freyr vel!

Þórir stelur boltanum á miðjum vellinum og kemur honum strax út á hægri kant. Þar kemur Hákon boltanum fyrir á hættulegt svæði en Arnar geysist út úr markinu og kílir boltann frá.
30. mín
Örvar tekur langt innkast inn á teig. Þar flikkar Stefán boltanum áfram og Valgeir er með frían skalla á vítateigspunktinum en hann er ekki nógu góður og Daði grípur hann.
28. mín
Birkir harkar þetta af sér og heldur áfram.
27. mín
Nú liggur Birkir í grasinu og þarfnast aðhlynningu.
23. mín
Kórdrengir með hornspyrnu.

Boltinn kemur á fjær þar sem Þórir skallar boltan aftur inn í teig en Arnar kemur vel út úr markinu og blakar boltanum frá.
20. mín
HK mikið að vinna með þennan sama bolta. Greinilega eitthvað taktískt upplegg.

Fyrsta skiptið gekk vel en síðan þá hafa Kórdrengir náð að verjast þessu vel
17. mín
HK með aðra svipaða fyrirgjöf. Senda boltan djúpt af vellinum inn í teig. Í þetta skipti var það Arnþór sem var fyrstur í boltann en fyrsta snertingin hans fer beint á Daða.
15. mín
Stórhætta við mark Kórdrengja!

Það kemur lúmskur bolti inn á teig og Örvar tekur frábært hlaup en þarf að hafa sig allan við að ná snertingu á boltann. Örvar er rétt á undan Daða Frey í markinu en á einhver hátt nær Daði að blaka boltanum afturfyrir í horn.

Ekkert kom úr horninu.
9. mín
Lið HK

Arnar
Birkir - Eiður - Leifur - Ívar Örn
Arnþór - Ásgeir - Valgeir
Atli - Stefán - Örvar
8. mín
Lið Kórdrengja

Daði
Nathan - Ondo - Kristófer
Arnleifur - Fatai - Kristján - Hákon
Villar
Þórir - Sverrir
3. mín
Aukaspyrna fyrir HK á fínum stað sem Ívar Örn tekur.

Spyrnan er fín og fer á markið en aðeins of laust og Daði Freyr grípur boltann.
2. mín
Fyrsta færi leiksins strax komið en það var hann Sverrir Páll sem náði skalla en boltinn fór yfir markið.
1. mín
Leikur hafinn
Veislan er farin af stað. Vonandi verður þetta mikil skemmtun.
Fyrir leik
Þá fer þessi stórleikur í Lengjudeildinni alveg að hefjast.

Mikilvægt fyrir bæði lið að sækja til sigur þar sem það munar bara 4 stigum á Kórdrengjum í 7.sæti og 1.sætis liðinu. HK er í 4. sæti með 12 stig.
Fyrir leik
Byrjunarliðin

HK gerir 2 breytingar á sínu liði. Ásgeir Marteinsson og Eiður Atli Rúnarsson koma inn í liðið fyrir Hassan Jalloh sem sest á bekkinn og Bruno Soares sem er í leikbanni.

Kórdrengir gera aðeins eina breytingu á sínu liði en það er hann Kristófer Jabobsen Reyes sem kemur inn í liðið í stað Gunnlaugs Fannars Guðmundssonar.
Fyrir leik
Dómarinn

Arnar Þór Stefánsson dæmir leikinn hér í kvöld. Oddur Helgi Guðmundsson og Helgi Hrannar Briem verða honum til aðstoðar. Eftirlitsmaður KSÍ í kvöld er Ingvar Örn Gíslason


Anton Freyr Jónsson
Fyrir leik
Kórdrengir

Kórdrengir sitja fyrir leik kvöldsins í sjöunda sæti deildarinnar með 10.stig. Kórdrengir fengu topplið Selfoss í heimsókn í síðustu umferð og unnur Kórdrengir magnaðan 4-3 endurkomu sigur má segja. Sverir Páll Hjaltested og Þórir Rafn Þórisson sáu um markaskorun Kórdrengja í þeim leik.



Þórir Rafn Þórisson skoraði eitt gegn Selfoss.
Anton Freyr Jónsson
Fyrir leik
HK getur komist á toppinn

Heimamenn í HK sitja fyrir leik kvöldsins í fjórða sæti deildarinnar með tólf stig eftir 6.leiki spilaða og með sigri hér í kvöld kemst liðið á topp deildarinnar.

HK gerði góða ferð í Árbæinn í síðustu umferð þegar liðið vann góðan 0-1 sigur á Fylki.

Anton Freyr Jónsson
Fyrir leik
Góðan og gleðilegan daginn kæru lesendur og verið hjartanlega velkomin með okkur í Kórinn, heimavöll HK þar sem HK fær Kórdrengi í heimsókn í Lengjudeild karla. Þetta er leikur sem bæði lið ætla sér þrjú stig í og verður því mjög áhugaverður leikur.


Anton Freyr Jónsson
Byrjunarlið:
12. Daði Freyr Arnarsson (m)
4. Fatai Gbadamosi
5. Loic Mbang Ondo (f)
6. Hákon Ingi Einarsson ('76)
8. Kristján Atli Marteinsson ('67)
10. Þórir Rafn Þórisson
14. Iosu Villar
15. Arnleifur Hjörleifsson
19. Kristófer Jacobson Reyes
22. Nathan Dale
77. Sverrir Páll Hjaltested ('76)

Varamenn:
1. Óskar Sigþórsson (m)
7. Marinó Hilmar Ásgeirsson ('76)
9. Daníel Gylfason ('67)
20. Óskar Atli Magnússon ('76)
21. Guðmann Þórisson
33. Magnús Andri Ólafsson

Liðsstjórn:
Davíð Smári Lamude (Þ)
Logi Már Hermannsson
Leonard Sigurðsson
Heiðar Helguson
Jóhann Ólafur Schröder
Guðrún Marín Viðarsdóttir
Jóhann Ólafur Sveinbjargarson

Gul spjöld:
Nathan Dale ('45)

Rauð spjöld: