Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
Í BEINNI
Besta-deild karla
HK
14:00 0
0
FH
Breiðablik
2
3
Þróttur R.
0-1 Murphy Alexandra Agnew '2
0-2 Ólöf Sigríður Kristinsdóttir '30
0-3 Danielle Julia Marcano '35
Hafrún Rakel Halldórsdóttir '47 1-3
Karitas Tómasdóttir '57 2-3
01.10.2022  -  14:00
Kópavogsvöllur
Besta-deild kvenna
Dómari: Elías Ingi Árnason
Maður leiksins: Murphy Alexandra Agnew
Byrjunarlið:
1. Eva Nichole Persson (m)
2. Natasha Anasi (f)
4. Bergþóra Sól Ásmundsdóttir ('88)
7. Agla María Albertsdóttir
8. Heiðdís Lillýardóttir
8. Taylor Marie Ziemer
14. Karen María Sigurgeirsdóttir ('83)
15. Vigdís Lilja Kristjánsdóttir ('46)
16. Írena Héðinsdóttir Gonzalez ('46)
17. Karitas Tómasdóttir
28. Birta Georgsdóttir ('83)

Varamenn:
12. Telma Ívarsdóttir (m)
5. Hafrún Rakel Halldórsdóttir ('46)
10. Clara Sigurðardóttir ('46)
19. Kristjana R. Kristjánsd. Sigurz ('83)
22. Rakel Hönnudóttir ('88)
23. Helena Ósk Hálfdánardóttir ('83)
26. Laufey Harpa Halldórsdóttir

Liðsstjórn:
Ásmundur Arnarsson (Þ)
Kristófer Sigurgeirsson (Þ)
Ragna Björg Einarsdóttir
Ólafur Pétursson
Særún Jónsdóttir
Aron Már Björnsson
Sigurður Frímann Meyvantsson

Gul spjöld:

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Elías flotar til leiksloka, 2-3 sigur Þróttara er staðreynd.
Viðtöl og skýrsla innan skams.
94. mín
Alvöru stuðningur sem bæði lið eru að fá hérna lokamínúturnar.
91. mín
Mjög lítið að gerast síðustu mínútur.
88. mín
Inn:Rakel Hönnudóttir (Breiðablik) Út:Bergþóra Sól Ásmundsdóttir (Breiðablik)
83. mín
Inn:Kristjana R. Kristjánsd. Sigurz (Breiðablik) Út:Karen María Sigurgeirsdóttir (Breiðablik)
83. mín
Inn:Helena Ósk Hálfdánardóttir (Breiðablik) Út:Birta Georgsdóttir (Breiðablik)
81. mín
Þróttur fær horn Agnew tekur, en Heiðdís skallar boltann frá.
77. mín
Breiðablik fær aukaspyrnu á miðjum vallarhelming Þróttar, Agla María kemur með boltann í teiginn en þar fer boltinn í pakkann og að lokum nær Íris Dögg að handsama boltann.
75. mín
Inn:Gema Ann Joyce Simon (Þróttur R.) Út:Elísabet Freyja Þorvaldsdóttir (Þróttur R.)
72. mín
Inn:Freyja Karín Þorvarðardóttir (Þróttur R.) Út:Ólöf Sigríður Kristinsdóttir (Þróttur R.)
69. mín
Agla María pressar Írisi vel og neyðist Íris til að gefa boltann aftur fyrir endalínu og í horn.
68. mín
Ólöf með góða tilraun!

Hún fær erfiðan bolta í teig Blika tekur á móti honum og fer síðan beint í skotið en boltinn fer rétt yfir markið.
62. mín Gult spjald: Andrea Rut Bjarnadóttir (Þróttur R.)
60. mín
Ólöf skorar frábært mark en það er dæmd rangstaða. Þvílík dramatík hérna á Kópavogsvelli.
57. mín MARK!
Karitas Tómasdóttir (Breiðablik)
Ná þær að koma til baka??

Agla María tekur hornspyrnu sem ratar beint á kollinn á Karitas sem er á nærstöng og stangar boltann í netið.
Þvílíkur leikur!
55. mín
Þvílíkt klúður!!

Heiðdís kemur með gullbolta á Clöru sem er alein komin í gegn, Clara sólar Írisi Dögg sem mætti henni og er ein á móti opnu marki en er of lengi að taka skotið og skýtur í varnarmann.
Þetta er ótrúlegt klúður!
55. mín
Breiðablik að ógna meira þessa stundina.
54. mín Gult spjald: Danielle Julia Marcano (Þróttur R.)
47. mín MARK!
Hafrún Rakel Halldórsdóttir (Breiðablik)
Hafrún að skora með fyrstu snertingu sinni í leiknum!
Breiðablik fékk aukaspyrnu utan af velli, boltinn fer inní teiginn Íris Dögg blakar boltanum á fjærstöngina en þar lúrir Hafrún og fær boltann og setur boltann auðveldlega í netið.
Nær Breiðablik endurkomunni?
46. mín
Seinni hálfleikur farinn hér af stað og Ási Arnars gerir tvær breytingar á sínu liði í hálfleik.
46. mín
Inn:Hafrún Rakel Halldórsdóttir (Breiðablik) Út:Írena Héðinsdóttir Gonzalez (Breiðablik)
46. mín
Inn:Clara Sigurðardóttir (Breiðablik) Út:Vigdís Lilja Kristjánsdóttir (Breiðablik)
45. mín
Hálfleikur
Elías Ingi flautar hér til hálfleiks, Þróttarar leiða með þremur mörkum.
Leikurinn hefur þó að mestu farið fram á vallarhelmingi Þróttar en Breiðablik ná ekki að ráða við skyndisóknir Þróttar og refsa gestirnir Blikum fyrir það.
45. mín
Karen María fíflar Danielle rétt áður en hún fer í skot sem fer hátt yfir mark Þróttar.
44. mín
Agla María með fast skot inn í teig Þróttar en Íris Dögg ver vel.
42. mín
Vigdís Lilja komin í ágæta stöðu í teig Þróttar en þá kemur Elísabet Freyja með geggjaða tæklingu og boltinn í horn.
35. mín MARK!
Danielle Julia Marcano (Þróttur R.)
Litla markið!!!

Danielle fær boltann á hægri kanti í skyndisókn Þróttar, hún keyrir inn á teig Blika og fíflar varnarmann áður hún fer í skotið og klárar örugglega, þvílíkt mark
Breiðablik er einfaldlega ekki að ráða við skyndisóknir Þróttar.
30. mín MARK!
Ólöf Sigríður Kristinsdóttir (Þróttur R.)
Ólöf að tvöfalda forystu Þróttar!

Murphy Agnew gerir þetta frábærlega, keyrir á vörn Blika í skyndisókn og gefur stungusendingu á Ólöfu á hárréttum tíma. Ólöf er komin ein í gegn og klárar fagmannlega.
Óvænt að Þróttur hafi skorað, leikurinn hefur nánast einungis farið fram á vallarhelmingi Þróttar.
28. mín
Birta Georgs á frábært skot fyrir utan teig en Íris Dögg ver mjög vel í marki Þróttara og boltinn í horn.
23. mín
Karen María á fyrirgjöf en Íris Dögg grípur boltann örugglega.
21. mín
Íris Dögg markmaður Þróttar er ísköld og sólar Birtu Georgsdóttur.
18. mín
Þvílíkt færi Breiðabliks!!

Þróttarar tapa boltanum hátt á vellinum, Írena fær boltann og tekur skot fyrir utan teig sem endar í stönginni. Boltinn berst þá á Vigdísi Lilju sem er ein á móti markmanni en hún tekur lélega móttöku og missir boltann frá sér.
13. mín
Heiðdís liggur niðri og þarfnast aðhlynningar.
12. mín
Ólöf er í þröngu færi tekur skotið en Íris Dögg ver og boltinn í horn.
10. mín
Breiðablik fær aukaspyrnu rétt fyrir utan D-bogann, Agla María lætur vaða en boltinn fer framhjá.
Fínasta tilraun.
5. mín
Agla María á fast skot sem fer rétt yfir mark Þróttara.
2. mín MARK!
Murphy Alexandra Agnew (Þróttur R.)
Þvílík byrjun á leiknum fyrir Þróttara!!!
Eva Nichole á skelfilegan bolta út úr marki Breiðabliks boltinn fer beint á Danielle, sem keyrir inn á teiginn og leggur boltann út á Murphy Agnew hún tekur skotið viðstöðulaust á vítateig. Skotið er ekki það fast en hnitmiðað er það, boltinn fer nánast í samskeytin.
Þróttarar að byrja þetta af krafti!
1. mín
Leikur hafinn
Elías flautar leikinn af stað og eru það gestirnir sem byrja með boltann og sækja í átt að Fífunni.
Fyrir leik
Liðin ganga hér inn á völlinn, nú styttist í upphafsflautið!
Fyrir leik
Sísí Lára, spámaður vikunnar spáir markaveislu!

Breiðablik 3 - 3 Þróttur

Breiðablik þarf að treysta á að Stjarnan tapi og geri ég ráð fyrir að þær mæti vel gíraðar í leikinn. Þetta verður markaleikur og endar hann 3-3 þar sem bæði Agla María og Olla leiða sóknarleikinn hjá sínum liðum. Þær verða á
skotskónum. Agla María setur tvö og Helena jafnar í uppbótartíma. Olla hendir í hattrick.


Fyrir leik
Liðin komin inn!

Ási Arnars gerir tvær breytingar á liðu sýnu frá síðasta leik inn í liðið koma þær Taylor Ziemer og Vigdís Lilja Kristjánsdóttir í stað Clöru Sigurðardóttur og Helenu Halfdánardóttur.

Nik Chamberlain gerir eina breytingu frá síðasta leik en Murphy Agnew kemur inn í liðið í stað Gema Ann Joyce Simon.
Fyrir leik
Tríóið

Dómari leiksins er Elías Ingi Árnason en honum til halds og trausts á sitthvorri línunni eru þeir Breki Sigurðsson og Bjarni Víðir Pálmason.
Þórður Þorsteinn Þórðarson er fjórði dómari leiksins og eftirlitsmaður er Þórður Georg Lárusson.


Fyrir leik
Þróttur R.

Þróttur R. sitja í 4. sæti deildarinnar jöfn Selfossi á stigum. Tímabilið hjá Þrótti byrjaði mjög vel en það hefur aðeins hallað undan fæti eftir því sem líður á tímabilið. Í síðustu 4 leikjum liðsins hefur aðeins einn leikur unnist.
Það var leikur gegn botnliði KR, þar sem Íris Dögg markmaður liðsins tók víti og skoraði. Þjálfari Aftureldingar Alexander Aron gagnrýndi þetta verulega og sagði að þetta væri fyndið í 4. deildinni en ekki í Bestu-deildinni.


Fyrir leik
Breiðablik

Heimakonur í Breiðablik eru í 3. sæti deildarinnar aðeins einu stigi frá Stjörnunni. Ef Breiðablik sigrar í dag og Stjarnan tapar stigum eru Blikar í Evrópukeppni á næsta tímabili.
Í síðasta leik Breiðabliks fóru þær yfir heiðina í heimsókn á Selfoss. Leikurinn endaði með 2-0 tapi Breiðabliks, en mörk Selfyssinga skoruðu þær Miranda Nild ('32) og Bergrós Ásgeirsdóttir ('73).

Fyrir leik
Lokaumferð!

Góðan og blessaðan daginn kæru lesendur og veriði hjartanlega velkomin í þráðbeina textalýsingu frá Kópavogsvelli, þar sem Breiðablik tekur á móti Þrótti R. í lokaumferð Bestu-deildar kvenna.


Byrjunarlið:
1. Íris Dögg Gunnarsdóttir (m)
Sóley María Steinarsdóttir
5. Jelena Tinna Kujundzic
7. Andrea Rut Bjarnadóttir
10. Danielle Julia Marcano
12. Murphy Alexandra Agnew
16. María Eva Eyjólfsdóttir
19. Elísabet Freyja Þorvaldsdóttir ('75)
21. Lorena Yvonne Baumann
23. Sæunn Björnsdóttir
29. Ólöf Sigríður Kristinsdóttir ('72)

Varamenn:
20. Hafdís Hafsteinsdóttir (m)
4. Hildur Laila Hákonardóttir
7. Brynja Rán Knudsen
8. Álfhildur Rósa Kjartansdóttir
9. Freyja Karín Þorvarðardóttir ('72)
14. Guðrún Ólafía Þorsteinsdóttir
17. Katla Tryggvadóttir
77. Gema Ann Joyce Simon ('75)

Liðsstjórn:
Nik Chamberlain (Þ)
Egill Atlason
Jamie Paul Brassington
Edda Garðarsdóttir
Angelos Barmpas

Gul spjöld:
Danielle Julia Marcano ('54)
Andrea Rut Bjarnadóttir ('62)

Rauð spjöld: