Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Mjólkurbikar karla
Keflavík
87' 2
1
Breiðablik
Mjólkurbikar karla
Víkingur R.
LL 4
1
Víðir
Mjólkurbikar karla
KA
LL 2
1
ÍR
Mjólkurbikar karla
ÍA
LL 3
0
Tindastóll
Mjólkurbikar karla
Afturelding
LL 4
1
Dalvík/Reynir
Mjólkurbikar karla
Grótta
LL 0
3
Þór
Stjarnan
7
6
Þór/KA
0-1 Sandra María Jessen '14
Snædís María Jörundsdóttir '34 1-1
1-2 Hulda Ósk Jónsdóttir '62
Ólína Ágústa Valdimarsdóttir '76 2-2
2-3 Jakobína Hjörvarsdóttir '93 , víti
Jasmín Erla Ingadóttir '93 , víti 3-3
3-4 Sandra María Jessen '93 , víti
Heiða Ragney Viðarsdóttir '93 , víti 4-4
4-4 Hulda Ósk Jónsdóttir '93 , misnotað víti
Andrea Mist Pálsdóttir '93 , víti 5-4
5-5 Tahnai Lauren Annis '93 , víti
Alma Mathiesen '93 , víti 6-5
6-6 Hulda Björg Hannesdóttir '93 , víti
Sædís Rún Heiðarsdóttir '93 , víti 7-6
01.04.2023  -  16:00
Samsungvöllurinn
Lengjubikar kvenna - A-deild úrslit
Aðstæður: Kuldalegt og grátt yfir
Dómari: Helgi Mikael Jónasson
Áhorfendur: 223
Byrjunarlið:
83. Erin Katrina Mcleod (m)
3. Arna Dís Arnþórsdóttir
5. Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir
5. Eyrún Embla Hjartardóttir
10. Anna María Baldursdóttir (f)
14. Snædís María Jörundsdóttir ('68)
16. Sædís Rún Heiðarsdóttir
18. Jasmín Erla Ingadóttir
21. Heiða Ragney Viðarsdóttir
23. Gyða Kristín Gunnarsdóttir ('68)
26. Andrea Mist Pálsdóttir

Varamenn:
1. Auður Sveinbjörnsdóttir Scheving (m)
2. Sóley Guðmundsdóttir
13. Ólína Ágústa Valdimarsdóttir ('68)
15. Alma Mathiesen ('68)
31. Jóhanna Melkorka Þórsdóttir
77. Eyrún Vala Harðardóttir

Liðsstjórn:
Kristján Guðmundsson (Þ)
Andri Freyr Hafsteinsson
Rajko Stanisic
Hilmar Þór Hilmarsson
Hulda Björk Brynjarsdóttir

Gul spjöld:

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Stjarnan er Lengjubikarmeistari kvenna 2023 Viðtöl koma inn á síðuna á eftir.

93. mín Mark úr víti!
Sædís Rún Heiðarsdóttir (Stjarnan)
HÚN TRYGGIR STJÖRNUNNI SIGURINN!
93. mín Mark úr víti!
Hulda Björg Hannesdóttir (Þór/KA)
Öruggt. Sædís Rún tekur fimmtu spyrnu Stjörnunnar og getur tryggt sínu liði sigur.
93. mín Mark úr víti!
Alma Mathiesen (Stjarnan)
Auðvelt!
93. mín Mark úr víti!
Tahnai Lauren Annis (Þór/KA)
Heldur Þór/KA inn í þessu!
93. mín Mark úr víti!
Andrea Mist Pálsdóttir (Stjarnan)
Pollróleg og skorar af öryggi. Harpa hefur ekki verið nálægt því að verja víti.
93. mín Misnotað víti!
Hulda Ósk Jónsdóttir (Þór/KA)
Það var allt mjög undarlegt í kringum þetta víti, virkaði mjög stressuð og setti boltann yfir markið.
93. mín Mark úr víti!
Heiða Ragney Viðarsdóttir (Stjarnan)
Var ekkert að hika og skoraði af öryggi.
93. mín Mark úr víti!
Sandra María Jessen (Þór/KA)
Fyrirliðinn skorar!
93. mín Mark úr víti!
Jasmín Erla Ingadóttir (Stjarnan)
Eins öruggt og það gerist.
93. mín Mark úr víti!
Jakobína Hjörvarsdóttir (Þór/KA)
Erin í rétt horn en spyrnan var alveg út við stöng hjá miðverðinum.
93. mín
Við erum að fara í vítaspyrnukeppni! Það kom ekkert sigurmark og því erum við á leið í vító. Þetta verður spennandi!

Stjarnan er með reynslu af vítakeppni en þær unnu Þrótt í undanúrslitunum eftir eina slíka. Hvað gerist núna?
91. mín
Stjarnan heldur áfram að herja á Akureyringana. Fáum við sigurmark?
90. mín
Þrjár mínútur í uppbótartíma
89. mín
Það eru 223 áhorfendur á Samsungvellinum í dag.
88. mín
Einstefna Gunnhildur Yrsa reynir skot að marki en varnarveggur Þórs/KA nær að blokka það. Þetta er algjör einstefna!
86. mín Gult spjald: Steingerður Snorradóttir (Þór/KA)
85. mín
Heiða Ragney nær skallanum eftir hornspyrnuna en setur boltann fram hjá. Það er aftur komin grenjandi rigning í Garðabæ.
85. mín
Stjörnukonur liggja á Þór/KA. Alma í mjög hættulegri stöðu en Hulda Björg nær að bjarga. Stjarnan fær svo horn.
84. mín
Arna Dís í góðri stöðu með fullt af Stjörnukonum í teignum en finnur enga þeirra.
83. mín
Alma reynir sendingu fyrir en boltinn fer aftur fyrir endamörk. Stjarnan líklegri til að setja sigurmarkið.
82. mín
Inn:Krista Dís Kristinsdóttir (Þór/KA) Út:Karen María Sigurgeirsdóttir (Þór/KA)
82. mín
Inn:Kolfinna Eik Elínardóttir (Þór/KA) Út:Ísfold Marý Sigtryggsdóttir (Þór/KA)
79. mín
Þessi leikur hefur heldur betur verið góð auglýsing fyrir Bestu deild kvenna sem hefst síðar í þessum mánuði. Sú deild verður mjög áhugaverð í sumar.

78. mín
Ef þetta endar svona þá förum við beint í vítaspyrnukeppni.
78. mín
Stúkan tekur við sér, heimakonur hvattar áfram í leit að sigurmarkinu.
77. mín
Ólína Ágústa kláraði færi sitt frábærlega
76. mín MARK!
Ólína Ágústa Valdimarsdóttir (Stjarnan)
Stoðsending: Alma Mathiesen
MARK!!!!! Það eru varamennirnir sem eiga þetta mark. Alma með sendinguna fyrir og Ólína er rosalega svöl í færinu. Klárar þetta frábærlega.

Stjarnan jafnar metin aftur og þetta verður spennandi - þessi síðasti stundarfjórðungur.
72. mín
Fínasta skottilraun Varamaðurinn Alma Mathiesen með boltann fyrir utan teig og íhugar lengi hvort hún eigi að taka skotið eða ekki. Hún lætur svo vaða og er skotið rétt yfir markið. Mjög fín tilraun.

69. mín
Jasmín meira miðsvæðis núna og hún byrjar á því að þræða Andreu Mist í gegn, en hún reynir skot úr mjög erfiðri stöðu. Fer fram hjá markinu.
68. mín
Inn:Alma Mathiesen (Stjarnan) Út:Gyða Kristín Gunnarsdóttir (Stjarnan)
68. mín
Inn:Ólína Ágústa Valdimarsdóttir (Stjarnan) Út:Snædís María Jörundsdóttir (Stjarnan)
66. mín
Liðsfundir á vellinum Andrea Mist fær högg og það þarf að hlúa að henni. Á meðan nýta bæði lið tækifærið og taka liðsfundi á vellinum.
63. mín
Hulda Ósk gerði annað mark Þórs/KA
63. mín
Þór/KA að hóta öðru marki. Sandra María með skalla fram hjá markinu.
62. mín MARK!
Hulda Ósk Jónsdóttir (Þór/KA)
MARK!!!! Þór/KA skorar gegn gangi leiksins og tekur forystuna. Þær eru varla búnar að fara yfir miðju í seinni hálfleiknum en skora núna sitt annað mark í leiknum.

Hulda Ósk fær boltann fyrir utan teig og lætur vaða. Hann er lengi í loftinu en Erin nær ekki að komast til hans. Hann endar í netinu og gestirnir eru núna yfir.

Stjörnukonur eru búnar að stjórna ferðinni í seinni hálfleik en það telur ekki ef þú kemur boltanum í markið.
62. mín
Núna er byrjað að hellirigna.
61. mín
Stjarnan með öll tök á leiknum Gyða Kristín aftur með skot í varnarmann. Sædís kemst í kjölfarið í skotfæri en Harpa ver.

Heimakonur eru að færast nær.

60. mín
Mjög vel spilað hjá Stjörnunni en Snædís er aðeins of lengi á boltanum. Gyða fær svo boltann en á skot sem fer í varnarmann.
58. mín
Arna Dís í skotfæri! Bakvörðurinn fær boltann inn á teignum en hittir hann ekki nægilega vel og skóflar honum einhvern veginn yfir markið.
55. mín
Sandra María fellur í teignum og gestirnir vilja fá vítaspyrnu en ég held að það hafi verið lítið í þessu.
55. mín
Þór/KA með grjótharða stuðningskonu í stúkunni sem reynir að keyra sitt lið í gang.
54. mín
Sædís með hornspyrnu sem fer í gegnum allan pakkann. Þetta var hættulegt!
54. mín
Stjarnan að byrja seinni hálfleikinn betur.
53. mín
Jasmín leggur boltann út á Sædísi sem kemur á ferðinni. Hún á skot en það fer beint í varnarmann.
49. mín
Jasmín með geggjaða sendingu á Gyðu en hún nær ekki nægilega góðu skoti og Harpa handsamar boltann.

46. mín
Seinni hálfleikurinn er farinn af stað Hvort liðið mun standa uppi sem sigurvegari í Lengjubikar kvenna?
45. mín
Inn:Hulda Björg Hannesdóttir (Þór/KA) Út:Amalía Árnadóttir (Þór/KA)
45. mín
Hálfleikur
Liðin eru að mæta aftur út á völl og við förum senn að byrja aftur.
45. mín
Hálfleikur
Fyrri hálfleikurinn að baki. Stjarnan heilt yfir verið sterkari aðilinn en Þór/KA hefur átt sínar rispur. Verður afar fróðlegur seinni hálfleikur hér í Garðabænum.

44. mín
Útlit fyrir að staðan verði jöfn í hálfleikshléinu.
41. mín
Arna Dís vinnur boltann og á hættulegan bolta fyrir, en Harpa kemur út og grípur hann.
39. mín
Það liggur svolítið á Þór/KA núna. Gott spil hjá Stjörnunni og Sædís á hættulega sendingu fyrir en hún fann ekki samherja.
36. mín
Dauðafæri! Stuttu eftir jöfnunarmarkið var Gunnhildur komin í dauðafæri en Harpa gerði vel í því að verja frá henni.
35. mín
Annað markið sem Snædís gerir í Lengjubikarnum
34. mín MARK!
Snædís María Jörundsdóttir (Stjarnan)
MARK!!!! Snædís er agresív í fremstu víglínu, vinnur boltann af Jakobínu og setur boltann fram hjá Hörpu í markinu.

Afskaplega vel gert hjá Snædísi sem gafst ekki upp eftir að hún missti af boltanum og vann hann strax aftur. Kláraði svo vel.

Staðan jöfn aftur.
33. mín
Erin handsamar boltann eftir hornspyrnuna og sparkar honum út á vinstri kantinn.
33. mín
Þór/KA fær aukaspyrnu með ágætis fyrirgjafarmöguleika. Boltinn fyrir og Erin rétt nær að kýla hann í burtu. Gestirnir fá horn.

28. mín
Vanda og Jörundur líka í stúkunni Það er ekki aðeins landsliðsþjálfarinn sem er í stúkunni því þar eru líka Vanda Sigurgeirsdóttir, formaður KSÍ, og Jörundur Áki Sveinsson, sem er yfirmaður fótboltamála hjá sambandinu. Þórður Þórðarson, þjálfari U23 landsliðsins, er líka mættur.

Dóttir Jörundar - Snædís María - er í byrjunarliði Stjörnunnar.

27. mín
Darraðadans inn á teignum Flott spil hjá Stjörnunni og það skapast smá darraðadans inn á teignum, en Harpa nær að handsama boltann.
25. mín
Sandra María í Lengjubikarnum í ár Leikir: 7
Mörk: 12

24. mín
Í byrjun leiks skrifaði ég í 'aðstæður' dálkinn að það væri loksins farið að vora en ég tek það til baka. Það er núna mjög grátt yfir og rosalega kuldalegt.
22. mín
Þór/KA fær hornspyrnu og Tahnai á skalla að marki en Gunnhildur kemur boltanum í burtu.
19. mín
Mjög góð sókn hjá Stjörnunni. Heiða Ragney finnur Gunnhildur sem á svo flotta sendingu á bak við vörnina á Jasmín. Svo á Jasmín sendingu fyrir en Jakobína versta vel og kemur boltanum frá.
18. mín
Sædís með tvær ömurlegar hornspyrnur í röð og Þór/KA geysist upp í skyndisókn. Þær fá í kjölfarið innkast á vallarhelmingi Stjörnunnar.
17. mín
Stjarnan í álitlegri sókn. Gyða Kristín í fyrirgjafastöðu og vinnur hornspyrnu.
15. mín
Sandra María heldur áfram að raða inn mörkum á undirbúningstímabilinu
14. mín MARK!
Sandra María Jessen (Þór/KA)
Stoðsending: Tahnai Lauren Annis
MARK!!!! Þór/KA vinnur boltann hátt á vellinum. Thanai á frábæra sendingu inn á landsliðskonuna, en hún hittir boltann ekki almennilega.

Samt rúllar boltann einhvern veginn fram hjá Erin og í netið. Það var enginn kraftur í þessu en hann rúllaði inn.

Þór/KA tekur forystuna.
13. mín
Stjarnan fær svo aðra hornspyrnu en gestunum tekst að koma boltanum í burtu.
13. mín
Gunnhildur með fasta sendingu út á Jasmín en Ísfold verst vel í teignum. Stjarnan fær hoprnspyrnu.
9. mín
Stjarnan byrjaði betur en Þór/KA hefur verið að vinna sig meira og meira inn í leikinn.
8. mín
Slæm sending út úr vörn Stjörnunnar og Karen María reynir skot fyrir utan teig, en það var aldrei líklegt. Hefði líklega getað gert betur úr þessari stöðu.
7. mín
Þór/KA stillir upp í 4-4-2 Harpa

Ísfold Marý - Dominique - Jakobína - Steingerður

Hulda Ósk - Kimberley Dóra - Tahnai - Sandra María

Amalía - Karen María
6. mín
Tahnai með skot að marki en það er laust og fer fram hjá markinu.
3. mín
Hætta! Jasmín með flotta sendingu fyrir en Snædís María nær ekki að setja tána í boltann. Svo á Arna Dís skot sem fer í varnarmann.

2. mín
Stjarnan stillir upp í 4-2-3-1 Erin

Arna Dís - Anna María - Eyrún Embla - Sædís Rún

Andrea Mist - Heiða Ragney

Gyða Kristín - Gunnhildur Yrsa - Jasmín

Snædís María
1. mín
Leikur hafinn
Þá förum við af stað. Þór/KA byrjar með boltann og sækir í átt að Hagkaup í Garðabæ.
Fyrir leik
Erin, markvörður Stjörnunnar, er ekki að spila í markmannsbúningi. Hún er þess í stað að leika í vindstakki...
Fyrir leik
Upphitun er lokið. Leikmenn farnir inn í klefa og eftir um það bil tíu mínútur mun Helgi Mikael Jónasson flauta til leiks í þessum úrslitaleik.
Fyrir leik
Landsliðsþjálfarinn í stúkunni Þorsteinn Halldórsson, landsliðsþjálfari kvenna, er mættur í stúkuna og mun fylgjast með leiknum.

Fyrir leik
Markvarðarstaðan hjá Garðbæingum Eitt það athyglisverðasta við lið Stjörnunnar í sumar er hver verður aðalmarkvörður. Landsliðsmarkvörðurinn Auður Scvheving var fengin frá Val áður en Ólympíumeistarinn Erin McLeod kom svo til félagsins. Erin er eiginkona Gunnhildar Yrsu.

Erin byrjar í dag og Auður er á bekknum. Þetta er ákveðinn hausverkur fyrir Kristján, þjálfara Stjörnunnar.

Fyrir leik
Byrjunarlið Þórs/KA 1. Harpa Jóhannsdóttir (m)
2. Dominique Jaylin Randle
5. Steingerður Snorradóttir
6. Tahnai Lauren Annis
7. Amalía Árnadóttir
9. Karen María Sigurgeirsdóttir
10. Sandra María Jessen (f)
16. Jakobína Hjörvarsdóttir
22. Hulda Ósk Jónsdóttir
26. Ísfold Marý Sigtryggsdóttir
27. Kimberley Dóra Hjálmarsdóttir
Fyrir leik
Byrjunarlið Stjörnunnar 1. Erin Katrina Mcleod (m)
3. Arna Dís Arnþórsdóttir
5. Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir
10. Anna María Baldursdóttir (f)
14. Snædís María Jörundsdóttir
16. Sædís Rún Heiðarsdóttir
18. Jasmín Erla Ingadóttir
19. Andrea Mist Pálsdóttir
21. Heiða Ragney Viðarsdóttir
23. Gyða Kristín Gunnarsdóttir
30. Eyrún Embla Hjartardóttir
Fyrir leik
Frítt á leikinn Það er frítt inn á leikinn í Garðabænum og ég mæli eindregið með því að skella sér á völlinn. Fyrir þá sem komast ekki þá verður auðvitað vel fjallað um leikinn í þessari textalýsingu.
Fyrir leik
Fyrir nokkru síðan ræddi ég við Gunnhildi Yrsu um heimkomuna í Stjörnuna. Það er óhætt að mæla með því spjalli fyrir þennan leik.

Fyrir leik
Ótímabær spá Heimavöllurinn gaf á dögunum út ótímabæra spá fyrir Bestu deild kvenna. Þar var Stjörnunni spáð Íslandsmeistaratitlinum.

1. Stjarnan
2. Valur
3. Breiðablik
4. Þróttur R.
5. Selfoss
6. Þór/KA
7. ÍBV
8. Keflavík
9. FH
10. Tindastóll

Fyrir leik
Komnar/farnar hjá Þór/KA Þór/KA hafnaði í sjöunda sæti á síðustu leiktíð. Jóhann Kristinn Gunnarsson tók aftur við liðinu og hafa verið gerðar nokkrar breytingar á leikmannahópnum.

Komnar
Dominique Randle
Karen María Sigurgeirsdóttir á láni frá Breiðabliki
Tahnai Annis

Farnar
Andrea Mist Pálsdóttir í Stjörnuna
Arna Eiríksdóttir í Val (var á láni)
Margrét Árnadóttir til Parma
María Catharina Ólafsdóttir Gros til Fortuna Sittard
Sara Mjöll Jóhannsdóttir í HK
Tiffany McCarty


Karen María Sigurgeirsdóttir
Fyrir leik
Komnar/farnar hjá Stjörnunni Stjarnan endaði í öðru sæti í Bestu deildinni síðasta sumar. Síðan þá hafa verið gerðar nokkrar breytingar á liðinu.

Komnar
Auður Sveinbjörnsdóttir Scheving frá Val
Andrea Mist Pálsdóttir frá Þór/KA
Erin McLeod frá Orlando Pride
Eyrún Vala Harðardóttir frá Breiðabliki (var á láni hjá Aftureldingu)
Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir frá Orlando Pride
María Sól Jakobsdóttir frá HK (var á láni)
Katrín Ósk Sveinbjörnsdóttir frá Sindra (var á láni)
Klara Mist Karlsdóttir frá HK (var á láni)
Ólína Ágústa Valdimarsdóttir frá KR (var á láni)
Snædís María Jörundsdóttir frá Keflavík (var á láni)
Sylvía Birgisdóttir frá Haukum (var á láni)

Farnar
Alexa Kirton í Fram
Chante Sandiford hætt
Hildigunnur Ýr Benediktsdóttir í FH
Katrín Ásbjörnsdóttir í Breiðablik
Rakel Lóa Brynjarsdóttir í Gróttu (var á láni hjá HK)

Stærst er það náttúrulega að landsliðskonan Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir er mætt heim.

Fyrir leik
Sandra María vann sér inn sæti í landsliðinu Sandra María Jessen hefur verið stórkostleg með Þór/KA í Lengjubikarnum og skorað ellefu mörk. Hún vann sér inn sæti í A-landsliðinu á dögunum og fer með því í verkefni núna síðar í þessum mánuði.

Fyrir leik
Leið Þórs/KA í úrslitaleikinn Þór/KA endaði líkt og Stjarnan í öðru sæti í riðli sínum.

A deild kvenna riðill 1
1. Þróttur R. - 15 stig
2. Þór/KA - 12 stig
3. Valur - 9 stig
4. Selfoss - 6 stig
5. FH - 3 stig
6. KR - 0 stig

Þór/KA 6 - 1 FH
KR 1 - 3 Þór/KA
Þór/KA 4 - 3 Valur
Þróttur R. 3 - 1 Þór/KA
Þór/KA 7 - 2 Selfoss

Þór/KA gerði svo gríðarlega vel í undanúrslitunum þar sem þær unnu sigur gegn Breiðabliki á Kópavogsvelli, 1-2. Tahnai Lauren Annis skoraði þar tvennu.

Fyrir leik
Leið Stjörnunnar í úrslitaleikinn Stjarnan endaði í öðru sæti í riðli sínum.

A deild kvenna riðill 2
1. Breiðablik - 13 stig
2. Stjarnan - 13 stig
3. Tindastóll - 9 stig
4. ÍBV - 6 stig
5. Keflavík - 3 stig
6. Afturelding 0 stig

Stjarnan 6 - 0 Tindastóll
Afturelding 1 - 2 Stjarnan
Stjarnan 2 - 0 Keflavík
Stjarnan 1 - 1 Breiðablik
Stjarnan 3 - 1 ÍBV

Stjarnan spilaði svo við Þrótt í undanúrslitunum og vann leik eftir vítaspyrnukeppni. Jasmín Erla Ingadóttir er markahæsti leikmaður Stjörnunnar í Lengjubikarnum með fjögur mörk.

Fyrir leik
Fyrsti bikar tímabilsins í húfi Sumarið er að koma, fótboltinn er að byrja. Í dag er fyrsti alvöru bikar tímabilsins í kvennaboltanum í húfi þegar Stjarnan og Þór/KA eigast við á Samsungvellinum.

Byrjunarlið:
1. Harpa Jóhannsdóttir (m)
3. Dominique Jaylin Randle
5. Steingerður Snorradóttir
6. Tahnai Lauren Annis
7. Amalía Árnadóttir ('45)
8. Kimberley Dóra Hjálmarsdóttir
9. Karen María Sigurgeirsdóttir ('82)
10. Sandra María Jessen (f)
16. Jakobína Hjörvarsdóttir
22. Hulda Ósk Jónsdóttir
26. Ísfold Marý Sigtryggsdóttir ('82)

Varamenn:
2. Angela Mary Helgadóttir
3. Kolfinna Eik Elínardóttir ('82)
11. Una Móeiður Hlynsdóttir
13. Sonja Björg Sigurðardóttir
14. Karlotta Björk Andradóttir
17. Emelía Ósk Kruger
21. Krista Dís Kristinsdóttir ('82)
24. Hulda Björg Hannesdóttir ('45)

Liðsstjórn:
Jóhann Kristinn Gunnarsson (Þ)
Haraldur Ingólfsson
Pétur Heiðar Kristjánsson

Gul spjöld:
Steingerður Snorradóttir ('86)

Rauð spjöld: