Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
Í BEINNI
Besta-deild karla
Stjarnan
19:15 0
0
Valur
KA
4
5
Valur
Hallgrímur Mar Steingrímsson '71 , víti 1-0
1-1 Birkir Már Sævarsson '90
1-1 Aron Jóhannsson '91 , misnotað víti
Hallgrímur Mar Steingrímsson '91 , misnotað víti 1-1
1-2 Andri Rúnar Bjarnason '91 , víti
Daníel Hafsteinsson '91 , víti 2-2
2-3 Adam Ægir Pálsson '91 , víti
Bjarni Aðalsteinsson '91 , víti 3-3
3-4 Birkir Heimisson '91 , víti
Pætur Petersen '91 , víti 4-4
4-5 Sigurður Egill Lárusson '91 , víti
Hrannar Björn Steingrímsson '91 , misnotað víti 4-5
02.04.2023  -  16:00
Greifavöllurinn
Úrslitaleikur Lengjubikarsins
Aðstæður: Frábærar, veðurblíða á Akureyri í dag.
Dómari: Jóhann Ingi Jónsson
Áhorfendur: 516
Byrjunarlið:
12. Kristijan Jajalo (m) ('45)
3. Dusan Brkovic
4. Rodrigo Gomes Mateo
5. Ívar Örn Árnason
7. Daníel Hafsteinsson
10. Hallgrímur Mar Steingrímsson
22. Hrannar Björn Steingrímsson
27. Þorri Mar Þórisson
29. Jakob Snær Árnason ('16)
30. Sveinn Margeir Hauksson ('90)
77. Bjarni Aðalsteinsson

Varamenn:
13. Steinþór Már Auðunsson (m) ('45)
2. Birgir Baldvinsson
8. Pætur Petersen ('80)
8. Harley Willard ('16) ('80)
11. Ásgeir Sigurgeirsson
16. Kristoffer Forgaard Paulsen
26. Ingimar Torbjörnsson Stöle ('90)
44. Valdimar Logi Sævarsson

Liðsstjórn:
Hallgrímur Jónasson (Þ)
Halldór Hermann Jónsson
Petar Ivancic
Branislav Radakovic
Steingrímur Örn Eiðsson
Eiður Benedikt Eiríksson
Hólmar Örn Rúnarsson

Gul spjöld:
Daníel Hafsteinsson ('35)
Ívar Örn Árnason ('66)
Rodrigo Gomes Mateo ('73)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Valur er Lengjubikarmeistari 2023 Gestirnir vinna vítaspyrnukeppnina 4-3.
91. mín Misnotað víti!
Hrannar Björn Steingrímsson (KA)
Agaleg spyrna Hrannar setur boltann vel yfir markið og þar með lýkur þessum leik.
91. mín Mark úr víti!
Sigurður Egill Lárusson (Valur)
Mjög öruggt Sigurður Egill er spyrnumaður góður. Hrannar verður að skora núna fyrir KA.
91. mín Mark úr víti!
Pætur Petersen (KA)
Öruggt hjá Pætur Vel tekin spyrna.
91. mín Mark úr víti!
Birkir Heimisson (Valur)
Skaut uppi Birkir skaut uppi og Stubbur náði ekki til boltans, öruggt víti.
91. mín Mark úr víti!
Bjarni Aðalsteinsson (KA)
Bjarni jafnar Þeir eru mjög líkir, hann og Daníel Hafsteinsson. Þetta var líka alveg eins víti og Daníel tók.
91. mín Mark úr víti!
Adam Ægir Pálsson (Valur)
Adam eitursvalur Eitursvalt víti hjá Adam og Valur leiðir 2-1.
91. mín Mark úr víti!
Daníel Hafsteinsson (KA)
Daníel jafnar, gríðarlega örugg spyrna. 1-1 í vítaspyrnukeppninni!
91. mín Mark úr víti!
Andri Rúnar Bjarnason (Valur)
Andri Rúnar kemur Völsurum yfir. Sendir Stubb í rangt horn.
91. mín Misnotað víti!
Hallgrímur Mar Steingrímsson (KA)
Frederik ver frá Hallgrími! Virkilega vel varið. 0-0 eftir fyrstu umferðina!
91. mín Misnotað víti!
Aron Jóhannsson (Valur)
Stubbur ver frá Aroni! Aron Jóhannsson tók fyrstu spyrnu keppninnar. Stubbur valdi rétt horn og varði vel.
90. mín
Vítaspyrnukeppni Venjulegum leiktíma og uppbótartíma lokið. Við förum í vítaspyrnukeppni.
90. mín
Hörkufæri Komið í uppbótartíma og Valsarar eiga hornspyrnu.

Birkir Már í færi en þessi tilraun fór framhjá.

90. mín MARK!
Birkir Már Sævarsson (Valur)
Jöfnunarmark! Hægri bakvörðurinn er klár í frákastið.

Adam Ægir með hörkuskot fyrir utan teig, Stubbur ver boltann til hliðar, Birkir Már er klár í frákastið og kemur boltanum í netið.

Við erum á leið í vítaspyrnukeppni.
90. mín
Inn:Ingimar Torbjörnsson Stöle (KA) Út:Sveinn Margeir Hauksson (KA)
89. mín
Adam með hornspyrnu og boltinn dettur fyrir Sigurð Egil í teignum en skotið hann fer yfir mark heimamanna.

Elfar Freyr féll við rétt á undan, hendurnar á Bjarna Aðalsteins fóru aðeins í bakið á honum en líklega rétt að dæma ekki víti.
87. mín
Valur fékk hornspyrnu en ekkert kom upp úr henni. Valsmenn reyna að finna jöfnunarmarkið.
84. mín
Hættulegur bolti frá Adam inn á teiginn en hann endar í höndunum á Stubbi.
83. mín
Sigurður Egill með fyrirgjöfina, fastur bolti af vinstri kantinum. Guðmundur Andri kemst í boltann en skallinn er framhjá.
81. mín
Haukur Páll kemst í boltann eftir hornspyrnu frá Adam en Stubbur er ver á verði í markinu og grípur þessa tilraun.
80. mín
Inn:Birkir Heimisson (Valur) Út:Hlynur Freyr Karlsson (Valur)
80. mín
Inn:Pætur Petersen (KA) Út:Harley Willard (KA)
Willard kom inn á í fyrri hálfleik en er nú tekinn af velli.
79. mín

Fyrsta markið sem Valur fær á sig í keppninni.
77. mín
Hallgrímur lætur vaða en skotið talsvert framhjá marki Vals.
76. mín
Boltinn hrekkur út til Hrannars eftir aukaspyrnuna og Orri brýtur á honum. Boltinn núna meira fyrir miðju og svona þremur metrum aftar. Hallgrímur stendur aftur yfir boltanum og býr sig undir að taka spyrnuna.
75. mín
KA á núna aukspyrnu við vítateig Valsara. Hallgrímur býr sig undir að taka spyrnuna.
74. mín
Kom ekkert upp úr aukaspyrnunni, rangstaða dæmd.
73. mín Gult spjald: Adam Ægir Pálsson (Valur)
Reyndi að slá boltann af Ívari þegar hann tók hann upp og ýtti í hann. Ekki mikið í þessu.
73. mín Gult spjald: Rodrigo Gomes Mateo (KA)
73. mín
Rodri rífur í Aron á sprettinum og menn hópast saman. Aron var allt annað en sáttur við þann spænska.
71. mín Mark úr víti!
Hallgrímur Mar Steingrímsson (KA)
Frederik í rétt horn en spyrnan er góð, hægri fótur hægra horn. KA leiðir!
70. mín
KA fær víti! Elfar dæmdur brotlegur í návígi við Svein Margeir. Þetta var að mínu mati miklu minna víti en það sem KA átti að fá í lok fyrri hálfleiks. Kannski var þetta eitthvað peysutog en það sést illa í endursýningu.

Hallgrímur Mar býr sig undir að taka vítaspyrnuna.
69. mín
Hallgrímur Mar með sendinguna inn á Svein Margeir og Jóhann bendir á að KA eigi hornspyrnu, að boltinn hafi farið af Sigurði Agli. Valsarinn ekki sáttur með það en svona fór þetta.

Hallgrímur tók hornspyrnuna og upp úr henni kom fyrirgöf af hægri kantinum frá Sveini. Daníel fékk boltann en skaut hátt yfir í góðu færi.
67. mín
Adam með hornspyrnuna, boltinn inn á markteiginn og Stubbur slær hann yfir. Valsarar dæmdir brotlegir og Stubbur tekur því aukaspyrnu.
66. mín
Adam með spyrnuna, boltinn á fjærstöngina þar sem Hlynur er í hlaupinu. Hann skallar boltann fyrir en Ívar hreinsar í horn.
66. mín Gult spjald: Ívar Örn Árnason (KA)
Brýtur á Aroni við vítateig KA.
64. mín
Guðmundur Andri reynir að finna Orra Hrafn í gegn en Hrannar gerir vel og stígur Orra út.
62. mín
Orri Hrafn með skot fyrir utan teig, Stubbur skutlar sér á boltann og heldur honum.
60. mín
Inn:Andri Rúnar Bjarnason (Valur) Út:Tryggvi Hrafn Haraldsson (Valur)
Þreföld skipting hjá gestunum.
60. mín
Inn:Aron Jóhannsson (Valur) Út:Lúkas Logi Heimisson (Valur)
60. mín
Inn:Guðmundur Andri Tryggvason (Valur) Út:Kristinn Freyr Sigurðsson (Valur)
59. mín
Adam vinnur hornspyrnu fyrir gestina.

Hann tekur spyrnuna sjálfur, nokkuð hár bolti utarlega í teiginn. Þar er Elfar en hann nær ekki að stýra boltanum á markið.
57. mín
Daníel reynir þrumuskot fyrir utan teig Vals en skotið fer yfir. Ekki svo galin tilraun samt.
56. mín
Hallgrímur með aukaspyrnuna, boltinn inn á vítateig Vals og Dusan kemst í boltann. Skalli hans er hár og laus og auðvelt fyrir Frederikt að grípa þennan bolta.
55. mín Gult spjald: Birkir Már Sævarsson (Valur)
Braut á Daníel sem var á spretti upp völlinn.
52. mín
Hallgrímur Mar með skot vinstra megin úr teignum sem Frederik ver og heldur boltanum. Hallgrímur gert sig líklegan í leiknum.
51. mín
Daníel fellur við eftir návígi við Hauk inn á teig Valsmanna. Ekkert í þessu en Daníel gerði þó tilkall, hvers vegna ekki?
49. mín
Harley í færi Skrítin atburðarás, hár boltinn út á hægri kantinn hjá KA. Sigurður Egill fær hann í bakið á sér og Harley tekur við honum. Harley kemst inn á teiginn, fyrst hindrar Elfar hann með góðri tæklingu en svo nær hann skoti sem fer af varnarmanni og Frederik handsamar boltann í kjölfarið.
46. mín
Inn:Haukur Páll Sigurðsson (Valur) Út:Hólmar Örn Eyjólfsson (Valur)
Haukur í hafsentinn Tekur við fyrirliðabandinu.
46. mín
Valur byrjar með boltann í seinni Ein breyting á liðunum í hálfleik.
45. mín
Hálfleikur
Rúnar Kristinsson í stúkunni KA tekur á móti KR í fyrstu umferð deildarinnar. Sá leikur fer fram eftir átta daga hér á Greifavellinum. Rúnar Kristinsson, þjálfari KR, er í stúkunni að fylgjast með leiknum.
45. mín
Hálfleikur
Eftir þennan atgang flautar Jóhann til hálfleiks.
45. mín
KA vill víti! 45+4

Aftur vill KA fá víti en Jóhann Ingi dæmir ekkert!

Frábær sending frá Þorra inn á Hallgrím Mar með á hörkuskot úr teignum sem Frederik ver virkilega vel í stöngina, boltinn fellur fyrir Harley Willard og Elfar Freyr tæklar hann eftir skottilraun. Willard fellur við og KA menn vilja víti.

Frederik náði að verja skotið frá Willard og sóknin rennur út í sandinn.

Mér fannst þetta vera víti! Þó að Willard sé búinn að skjóta þá getur Elfar ekki tekið hann niður.
45. mín
45+3

Boltinn virðist fara í höndina á Sigurði Agli inn á vítateig Vals en ekkert er dæmt.

Valsarar sækja hratt upp völlinn í kjölfarið en Orri Hrafn er dæmdur rangstæður þegar Adam reyndi að finna hann í gegn inn á teignum.
45. mín
Inn:Steinþór Már Auðunsson (KA) Út:Kristijan Jajalo (KA)
Stubbur kemur inn á 45+1

Jajalo getur ekki haldið leik áfram.
43. mín
Jajalo fær aðhlynningu Jajalo situr nú eftir inn á vítateig KA og fær aðhlynningu. Steinþór Már fer að hita upp.
42. mín
Flottur bolti inn á Svein Margeir sem lætur vaða hægra megin í teignum. Elfar Freyr kemur á siglingu og hendir sér fyrir skotið og kemur í veg fyrir að það fari á markið. Frábær tækling.

Skömmu áður vildi KA fá vítaspyrnu, heimamenn vildu fá hendi dæmda inn á vítateig Vals.
39. mín
Harley í fínum séns en Sigurður Egill verst vel og kemst fyrir skottilraunina.
35. mín Gult spjald: Daníel Hafsteinsson (KA)
Brot á miðjum velli.
34. mín
Þú meiðir ekki Rodri! Ungur stuðningsmaður KA í stúkunni kallar inn á þegar brotið var á Rodri.
33. mín
Hætta inn á vítateig KA Vel spilað hjá gestunum upp hægra megin, boltinn inn á Birki Má sem rennir boltanum út í markteiginn frá endalínuni. Boltinn laus inn á markteignum en Valsarar komast ekki í hann.
32. mín
Fínasta sókn hjá KA núna, vel spilað upp völlinn og Sveinn Margeir á svo skot fyrir utan teig sem Frederik ver og heldur boltanum. Var kominn frá því KA átti góða sókn, þessi kærkomin fyrir heimamenn.
29. mín

Adam Ægir tekur hornspyrnu

Jajalo slær boltann aftur fyrir. Valur á aðra hornspyrnu.

Dusan skallar þá spyrnu í burtu og sókn Vals rennur út í sandinn.
28. mín
Fínasta sókn hjá Val rétt í þessu KA menn þéttir til baka og erfitt að sjá opnanir á vörn þeirra.
25. mín

Sveinn Margeir er fremsti maður hjá KA.
22. mín
Ívar og Harley ná í sameiningu að hreinsa boltann í burtu úr vítateig KA og hornspyrnuflóðið hættir í bili.
21. mín
Smá misskilningur hjá Þorra sýndist mér, leyfði boltanum að rúlla aftur fyrir. Valur fær aðra hornspyrnu.

Valur fær núna þriðju hornspyrnuna í röð.
20. mín
Kristinn Freyr fljótur að taka innkast og grýtir boltanum í gegn í átt að Tryggva Hrafni. Ívar er vel á verði og nær að hlaupa uppi Skagamanninn og kemur boltanum aftur fyrir.

Valur á hornspyrnu.
17. mín
Jajalo situr inn á teignum Á meðan KA menn sóttu áðan þá sat markvörður þeirra, Kristijan Jajalo, utarlega í teignum. Ég veit ekki hvort hann sé eitthvað tæpur eða hvort þetta sé einhver taktík.
16. mín
Inn:Harley Willard (KA) Út:Jakob Snær Árnason (KA)

Farinn af velli
14. mín
Jakob Snær liggur eftir - Skipting í vændum Jakob Snær liggur eftir og þarf aðhlynningu. Hann mun ekki halda leik áfram, KA menn undirbúa skiptingu.
13. mín
Fyrsta skot Valsarara á markið Valsarar í fínni sókn upp hægra megin hjá sér. Kristinn Freyr í góðri stöðu og reynir skot með vinstri fæti. Skotið kemst á markið en varslan er nokkuð þægileg fyrir Jajalo í marki KA.
10. mín
Klaufagangur hjá Val Klaufagangur hjá Völsurum og KA menn komast í boltann á hættulegum stað.

Hallgrímur er of lengi að athafna sig, leitar á vinstri fótinn og Hlynur kemst fyrir tilraun hans við vítateigslínuna. Þarna var möguleiki fyrir KA.
9. mín
KA menn hreinsa og brotið er á Hallgrími Mar þegar hann var að hefja hraða sókn, kallað eftir gulu spjaldi en Jóhann Ingi heldur spjaldinu í vasanum í þetta skiptið.
8. mín
Valsarar ná að hreinsa og sækja hratt upp völlinn, góð sending út á Adam Pálsson sem keyrir upp hægri kantinn. Hann finnur Lúkas Loga sem á skot við vítateigslínuna, boltinn í varnarmann og Valsarar fá sína fyrstu hornspyrnu.
7. mín
Lúkas dæmdur brotlegur gegn Þorra framarlega á vallarhelmingi Vals. Hallgrímur Mar tekur aukaspyrnuna, boltinn inn á teig Valsara en Sigurður Egill hreinsar í innkast.

Í kjölfarið fær KA svo sína þriðju hornspyrnu!
5. mín
Ekkert kom upp úr hornspyrnunni, Valsarar náðu að hreinsa.

KA hélt aftur í sókn skömmu síðar og Hallgrímur átti skot fyrir utan teig eftir sendingu frá Sveini Margeiri. Skotið laust og aldrei hætta. Frederik tekur markspyrnu.
4. mín
Hrannar fær boltann hátt á vellinum úti vinstra megin, hann finnur bróður sinn í teignum og Hallgrímur á skot sem fer af varnarmanni og aftur fyrir. Aftur á KA horn.
3. mín
KA fékk í kjölfarið hornspyrnu en ekkert kom upp úr henni.
2. mín
Strax hörkusókn! KA menn sóttu upp vinstra megin, Hallgrímur Mar fékk boltann, kom honum áfram á Daníel í hlaupinu inn á teignum. Daníel fer upp að endalínu, reynir skot sem fer í Frederik og undir hans en Valsarar hreinsa svo.
1. mín
Leikur hafinn
Farið af stað! KA byrjar með boltann, bæði mörkin klár!
Fyrir leik
Eitthvað vesen á netunum Verið að laga netið á öðru marki vallarins, ekki viss hvort hitt sé í lagi, gæti þurft að laga það líka. Gott að tékka á þessu svona réééétt fyrir leik.
Fyrir leik
Líklegar uppstillingar KA:
Jajalo
Þorri - Dusan - Ívar - Hrannar
Rodri
Bjarni - Daníel
Jakob - Sveinn - Hallgrímur

Valur:
Frederik
Birkir - Hólmar - Elfar - Sigurður
Hlynur
Orri - Kristinn
Adam - Tryggvi - Lúkas
Fyrir leik
Tveir úr U19 landsliðinu öfluga Fyrirliði U19 landsliðsins, sem tryggði sér sæti á lokamóti EM á Möltu í sumar með frábærum úrslitum í millirðilinum í síðasta mánuði, er í liði Vals. Það er Hlynur Freyr Karlsson.

Ingimar Torbjörnsson Stöle var einnig í U19 hópnum, hann er á bekknum hjá KA.
Fyrir leik
Jóhann Ingi með flautuna Jóhann Ingi Jónsson er með flautuna í leiknum. Egill Guðvarður Guðlaugsson og Eysteinn Hrafnkelsson eru honum til aðstoðar. Eðvarð Eðvarðsson er fjórði dómari og Þóroddur Hjaltalín er eftirlitsmaður KSÍ.
Fyrir leik
KA endaði í 2. og Valur 6. Á síðasta tímabili endaði KA í 2. sæti Bestu deildarinnar, liðið fór upp um eitt sæti í efra umspilinu, upp fyrir bikarmeistarana í Víkingi.

Valur endaði hins vegar í 6. sæti sem er og var óásættanlegur árangur. Liðið var í 4. sæti áður en umspilið hófst.

Báðum liðum er spáð í topp sex hér á Fótbolti.net á komandi tímabili. Það kemur í ljós í næstu viku hvar liðunum verður spáð í deildinni.
Fyrir leik
Komnir/farnir KA
Komnir
Birgir Baldvinsson frá Leikni (var á láni)
Harley Willard frá Þór
Ingimar Torbjörnsson Stöle frá Viking
Kristoffer Forgaard Paulsen á láni frá Viking
Pætur Petersen frá HB í Færeyjum

Farnir
Bryan Van Den Bogaert til Kasakstan
Gaber Dobrovoljc til Slóveníu
Hallgrímur Jónasson (orðinn þjálfari liðsins)
Nökkvi Þeyr Þórisson til Beerschot

Valur
Komnir
Adam Ægir Pálsson frá Víkingi (var á láni hjá Keflavík)
Andri Rúnar Bjarnason frá ÍBV
Elfar Freyr Helgason frá Breiðabliki
Hlynur Freyr Karlsson frá Bologna
Kristinn Freyr Sigurðsson frá FH
Lúkas Logi Heimisson frá Fjölni
Óliver Steinar Guðmundsson frá Atalanta

Farnir
Andri Adolphsson í Stjörnuna
Arnór Smárason í ÍA
Arnór Ingi Kristinsson í Leikni á láni
Ágúst Eðvald Hlynsson í Breiðablik (var á láni frá Horsens)
Guy Smit í ÍBV á láni
Heiðar Ægisson í Stjörnuna
Jesper Juelsgaard til Fredericia
Lasse Petry hættur
Rasmus Christiansen í Aftureldingu
Sebastian Hedlund til Öster
Sverrir Páll Hjaltested í ÍBV (var á láni hjá Kódrengjum)
Fyrir leik
Veðurblíða á Akureyri Það eru einhverjar 9-10°C á Akureyri og glampandi sól. Svartsýnustu menn vilja þó meina að sólin verði farin í hálfleik. Eins og er þá er allt í toppmálum og engin ástæða fyrir Akureyringa að fjölmenna ekki á leikinn.
Fyrir leik
Arnar Grétarsson snýr aftur á Greifavöllinn Leikurinn er fyrsti leikur Arnars Grétarsson á Greifavellinum eftir að hann yfirgaf KA síðasta haust og tók í kjölfarið við Val. Hann náði góðum árangri sem þjálfari KA þau tæpu þrjú tímabil sem hann var þar við stjórnvölin.

Valsliðið hefur ekki fengið á sig mark frá því Lengjubikarinn hófst.
Fyrir leik
Byrjunarliðin komin inn! Ein breyting er á liði gestanna frá sigrinum gegn Víkingi í undanúrslitunum. Tryggvi Hrafn Haraldsson kemur inn í liðið og Aron Jóhannsson tekur sér sæti á bekknum. Þar er líka Andri Rúnar Bjarnason sem gæti spilað sinn fyrsta leik fyrir Val í dag.

Á liði KA eru fimm breytingar því Rodri, Ívar, Daníel, Þorri og Jakob Snær koma allir inn í liðið. Þeir Birgir Baldvinsson, Pætur Petersen og Kristoffer Paulsen taka sér sæti á beknum og þeir Andri Fannar Stefánsson og Ásgeir Sigurgeirsson eru ekki í hópnum í dag.
Daníel kemur inn í lið KA
Fyrir leik
Leiðin í úrslitin Valur vann Víking í undanúrslitum með marki frá Birki Heimissyni í uppbótartíma. 0-1 lokatölur.

Úrslitin í riðlinum:
Valur 2 - 0 KR
ÍA 0 - 2 Valur
Valur 3 - 0 Vestri
Valur 1 - 0 HK
Valur 0 - 0 Grindavík

KA komst komst í úrslitaleikinn með sigri í vítaspyrnukeppni gegn ÍBV í undanúrslitum.

Úrslitin í riðlinum:
Keflavík 2 - 1 KA
KA 2 - 1 Fylkir
Fjölnir 1 - 2 KA
KA 5 - 0 Þróttur
KA 1 - 0 Þór
Birkir skoraði sigurmark Vals gegn Víkingi
Úrslitaleikur á Greifavellinum!
Byrjunarlið:
1. Frederik Schram (m)
2. Birkir Már Sævarsson
3. Hlynur Freyr Karlsson ('80)
4. Elfar Freyr Helgason
10. Kristinn Freyr Sigurðsson ('60)
11. Sigurður Egill Lárusson
12. Tryggvi Hrafn Haraldsson ('60)
15. Hólmar Örn Eyjólfsson (f) ('46)
17. Lúkas Logi Heimisson ('60)
19. Orri Hrafn Kjartansson
24. Adam Ægir Pálsson

Varamenn:
25. Sveinn Sigurður Jóhannesson (m)
5. Birkir Heimisson ('80)
7. Aron Jóhannsson ('60)
14. Guðmundur Andri Tryggvason ('60)
18. Þorsteinn Emil Jónsson
99. Andri Rúnar Bjarnason ('60)

Liðsstjórn:
Arnar Grétarsson (Þ)
Haukur Páll Sigurðsson
Kjartan Sturluson
Halldór Eyþórsson
Einar Óli Þorvarðarson
Jóhann Emil Elíasson
Örn Erlingsson
Sigurður Heiðar Höskuldsson

Gul spjöld:
Birkir Már Sævarsson ('55)
Adam Ægir Pálsson ('73)

Rauð spjöld: