Víkingsvöllur
mánudagur 24. apríl 2023  kl. 19:15
Besta-deild karla
Aðstæður: 7° logn og þurrt. Frábærar aðstæður
Dómari: Pétur Guðmundsson
Áhorfendur: 1570
Maður leiksins: Birnir Snær Ingason
Víkingur R. 3 - 0 KR
1-0 Logi Tómasson ('31)
2-0 Birnir Snær Ingason ('67)
3-0 Arnór Borg Guðjohnsen ('73)
Myndir: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Byrjunarlið:
1. Ingvar Jónsson (m)
3. Logi Tómasson
4. Oliver Ekroth ('35)
6. Gunnar Vatnhamar
10. Pablo Punyed
12. Halldór Smári Sigurðsson
18. Birnir Snær Ingason ('73)
19. Danijel Dejan Djuric ('73)
23. Nikolaj Hansen (f)
24. Davíð Örn Atlason ('54)
27. Matthías Vilhjálmsson

Varamenn:
16. Þórður Ingason (m)
2. Sveinn Gísli Þorkelsson
8. Viktor Örlygur Andrason ('73)
9. Helgi Guðjónsson ('73)
11. Gísli Gottskálk Þórðarson
15. Arnór Borg Guðjohnsen ('35)
22. Karl Friðleifur Gunnarsson ('54)

Liðstjórn:
Þórir Ingvarsson
Hajrudin Cardaklija
Arnar Gunnlaugsson (Þ)
Sölvi Ottesen
Guðjón Örn Ingólfsson
Rúnar Pálmarsson
Markús Árni Vernharðsson

Gul spjöld:

Rauð spjöld:
@haraldur_orn Haraldur Örn Haraldsson
93. mín Leik lokið!
Verðskuldaður sigur Víkinga er raunin. Þeir í raun völtuðu yfir KR í þessum leik.

Viðtöl og skýrsla koma seinna í kvöld.
Eyða Breyta
91. mín
KR-ingar reyna að byggja upp sókn hérna en hún endar í frekar máttlausu skoti frá Aroni Þórði.
Eyða Breyta
90. mín
Uppbótartími er 3 mínútur.
Eyða Breyta
84. mín
Víkingar halda bara áfram að sækja. Pablo kemur með lúmska sendingu inn á Arnór sem á fínt skot en það er varið af Kjellevold.
Eyða Breyta
78. mín Rúrik Gunnarsson (KR) Atli Sigurjónsson (KR)

Eyða Breyta
78. mín Luke Rae (KR) Kennie Chopart (KR)

Eyða Breyta
76. mín
Kjellevold nálægt því að gera svakaleg mistök. Hann hittir ekki boltan almennilega og boltinn stekkur næstum til Víkinga en hann nær að kasta sér á boltan.
Eyða Breyta
73. mín Helgi Guðjónsson (Víkingur R.) Danijel Dejan Djuric (Víkingur R.)

Eyða Breyta
73. mín Viktor Örlygur Andrason (Víkingur R.) Birnir Snær Ingason (Víkingur R.)

Eyða Breyta
73. mín MARK! Arnór Borg Guðjohnsen (Víkingur R.), Stoðsending: Danijel Dejan Djuric
Víkingar eru að valta yfir þá!
Víkingar sækja hratt og Danijel setur langan bolta á Arnór. Hann er þá sloppinn einn gegn markmanni og hann setur boltan snyrtilega yfir Kjellevold

KR ræður ekkert við þessar skyndisóknir.
Eyða Breyta
71. mín
Víkingar sækja hratt og Birnir er kominn í góða stöðu einn á móti einum varnarmanni. Hann gerir hinsvegar ekki alveg nógu vel og skýtur frekar langt framhjá.
Eyða Breyta
69. mín Gult spjald: Theodór Elmar Bjarnason (KR)

Eyða Breyta
67. mín MARK! Birnir Snær Ingason (Víkingur R.), Stoðsending: Nikolaj Hansen
Víkingar tvöfalda forystuna!!
Alveg stórkostleg sending frá Niko Hansen! KR-ingar voru ekki vakandi fyrir henni en Birnir var það og það þýddi bara að hann var sloppinn einn gegn markmanni.

Hann kláraði síðan færið snyrtilega í nærhornið.
Eyða Breyta
66. mín
KR skapa fína sókn hérna í fyrsta sinn í töluverðan tíma. Skotið frá þeim endar hinsvegar í markspyrnu.
Eyða Breyta
64. mín
Skot frá Arnóri fyrir utan teig. Það er frekar máttlaust og beint á Kjellevold.
Eyða Breyta
62. mín
KR hefur varla farið yfir miðju hérna síðustu 5 mínúturnar. Víkingar fengið þó nokkuð horn og allt virðist frekar opið í vörn KR
Eyða Breyta
60. mín Aron Þórður Albertsson (KR) Ægir Jarl Jónasson (KR)

Eyða Breyta
58. mín
Birnir með frábæra takta
Karl Friðleifur kemur hratt upp hægri kantinn og gefur hann svo á Birni sem leikur listir sínar og kemst framhjá sínum varnarmanni. Hann tekur síðan skotið en það fer af varnarmanni og í horn.
Eyða Breyta
55. mín
Danijel fær enn og aftur bara að rölta upp vinstri kantinn og núna setur hann góðan bolta inn á teig fyrir Birni Snær sem nær ekki að gera nógu vel úr færinu og KR fær markspyrnu.
Eyða Breyta
54. mín Karl Friðleifur Gunnarsson (Víkingur R.) Davíð Örn Atlason (Víkingur R.)
Davíð Örn fer meiddur útaf.
Eyða Breyta
52. mín
KR-ingar vilja víti!
Kristján Flóki fellur við í teignum en Pétur dæmir ekkert. Leikurinn heldur síðan áfram og sóknin endar í fínu skoti frá Elmari en Ingvar ver.

Líkast til rétt dæmt hjá Pétri virtist ekki vera mikil snerting.
Eyða Breyta
50. mín
Danijel fær alveg að rölta hér upp vinstri kantinn og koma sér í gott skotfæri en hann skýtur framhjá.

Varnarleikur KR hefur oft ekki verið merkilegur í dag.
Eyða Breyta
48. mín
Dauðafæri fyrir Víkinga!
Pablo setur boltan inn á teig og hann fellur beint fyrir lappirnar á Danijel en honum tekst að skjóta beint á Kjellevold bara einhverjum örfáum metrum frá marki.
Eyða Breyta
46. mín
Seinni hálfleikur farinn af stað

Eyða Breyta
45. mín Benoný Breki Andrésson (KR) Jóhannes Kristinn Bjarnason (KR)
Tvöföld skipting hjá Rúnari í hálfleik.
Eyða Breyta
45. mín Kristján Flóki Finnbogason (KR) Sigurður Bjartur Hallsson (KR)
Tvöföld skipting hjá Rúnari í hálfleik.
Eyða Breyta
45. mín
KR-ingar hafa verið góðir í stúkunni en þurfa kannski að bæta sig aðeins inn á velli.

Eyða Breyta
45. mín Hálfleikur
Víkingar leiða í hálfleik eftir virkilega spennandi hálfleik. Bæði lið hafa átt færi og líkur á því að við fáum fleiri mörk í þeim seinni.
Eyða Breyta
45. mín
+2
Kennie með fínt skot fyrir utan teig sem er varið í horn.

KR heldur pressuni í sókninni áfram sem endar í að Kennie fær frábært skallafæri en hann setur boltan yfir.
Eyða Breyta
45. mín
Uppbótartími er 4 mínútur.
Eyða Breyta
44. mín
Virkilega hættulegt skot frá Atla
KR-ingar fá að valsa upp völlinn undir lítilli pressu. Kennie setur boltan á Atla sem tekur dúndur skot á markið en Ingvar ver vel frá honum.
Eyða Breyta
41. mín
KR-ingar með fína sókn í gegnum Elmar sem setur góðan bolta inn á teig. Víkingar eiga í smá erfiðleikum með að hreinsa boltan og það skapast smá hætta en þeir ná að hreinsa á endanum.
Eyða Breyta
41. mín
Virðast vera í góðu lagi með báða.
Eyða Breyta
40. mín
Niko Hansen og Öby liggja núna báðir í grasinu eftir samstuð. vonandi er í lagi með þá báða.
Eyða Breyta
36. mín
Með þessari skiptingu virðist Gunnar Vatnhamar færa sig niður í vörnina og miðjan breytist aðeins þannig að Matthías færir sig aftar til að gera pláss fyrir Arnór.
Eyða Breyta
35. mín Arnór Borg Guðjohnsen (Víkingur R.) Oliver Ekroth (Víkingur R.)
Ekroth getur ekki haldið áfram
Eyða Breyta
34. mín
Var þetta víti??
Víkingar eru alveg brjálaðir eftir að Danijel fer illa með tvo leikmenn og ætlar svo að reyna að fara framhjá þriðja en fellur svo við þegar hann kemur að Kennie Chopart.

Pétur dæmir horn og ég held það sé rétt dæmt.
Eyða Breyta
31. mín MARK! Logi Tómasson (Víkingur R.), Stoðsending: Halldór Smári Sigurðsson
Maaaaaark!!!
Logi fær að valsa upp völlinn alveg óáreittur og hleypur frá miðlínu að vítateig KR-inga þar sem hann tekur þrumuskot á nærstöngina og boltinn syngur í netinu.

Logi fagnar markinu sínu hér.
Eyða Breyta
29. mín
Fín skyndisókn frá Víkingum þar sem Birnir ber boltan upp hægri kantinn. Hann sendir síðan yfir á Loga sem tekur skotið fyrir utan teig en það er ekki nógu gott og Kjellevold handsamar knöttinn.

Eyða Breyta
26. mín
Pablo Punyed með hörku skot frá frekar löngu færi sem Kjellevold þarf að verja í hornspyrnu.

Pablo tekur þá spyrnu en hún endar í engu.
Eyða Breyta
25. mín
Lukkulega fyrir heimamenn þá virðist hann ætla halda áfram leik.
Eyða Breyta
24. mín
Núna liggur Oliver Ekroth í grasinu og virðist vera frekar þjáður. Þetta mega Víkingar ekki við þar sem Mclagan annar hafsent liðsins er nú þegar á meiðslalistanum.
Eyða Breyta
21. mín
Víkingar fá aukaspyrnu í fínni fyrirgjafastöðu.

Pablo tekur spyrnuna í átt að Matta Vill en skallinn beint á Kjellevold.

Eyða Breyta
17. mín
Víkingar frekar pirraðir efir að Danijel er að fara ná boltanum á vinstri kanti en Kennie stjakar við honum þannig að hann dettur. Þetta var soldið glannalegt en hefði verið ódýrt víti/brot
Eyða Breyta
13. mín
Víkingar í nauðvörn
Jóhannes Kristinn er í fullt af plássi á hægri kantinum og nær að setja boltan fyrir en enginn KR-ingur kemst í skotið. Þeir ná hinsvegar boltanum á vinstri kantinum og þar taka þeir skot í varnarmann.
Eyða Breyta
12. mín
Stór mistök frá Halldóri Smára sem sendir boltan beint á Kennie.

Kennie setur síðan boltan yfir á Ægi sem á skot sem fer rétt framhjá.
Eyða Breyta
9. mín
Þarna munaði litlu fyrir KR
Víkingar setja einn langan fram sem sendir bæði Loga og Hansen alveg eina í gegn. Kjellevold er hinsvegar fljótur að hugsa og kemur vel út úr markinnu til að hreinsa.
Eyða Breyta
6. mín
Uppstilling KR
Kjellevold
Chopart - Finnur - Jakob - Kristinn
Jóhannes - Öby - Ægir
Atli - Sigurður - Elmar
Eyða Breyta
4. mín
Lúmskt færi fyrir Víkinga
Danijel setur boltan inn á teig og Niko Hansen nær boltanum til allara óvörum, hann reynir síðan skrítið skot sem Kjellevold þarf að verja í horn.

Hornið kemur síðan inn í teig og Vatnhamar skallar boltan yfir.
Eyða Breyta
3. mín
Uppstilling Víkinga
Ingvar
Davíð - Ekroth - Halldór - Logi
Punyed - Vatnhamar
Birnir - Matthías - Danijel
Hansen
Eyða Breyta
1. mín Leikur hafinn
KR-ingar sparka leiknum í gang
Eyða Breyta
Fyrir leik
Leikmenn labba inn á völlinn
Þá fer leikurinn alveg að bresta á, leikmenn og dómarar labba inn á völlinn. Það er vel mætt í stúkuna enda dýrindis veður og von á góðum knattspyrnuleik.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Oft verið hart barist
Viðureign þessara liða hefur oft verið virkilega spennandi síðustu ár og mikið af dramatískustu atriðum deildarinnar hafa gerst í leik milli þessara liða. Hér má sjá mynd af leik fyrir tveimur árum þar sem KR jafnaði alveg í blálok leiksins og niðurstaðan varð 1-1.

Eyða Breyta
Fyrir leik
Byrjunarlið KR
Rúnar Kristinsson þjálfari KR gerir engar breytingar á liðinu sem vann Keflavík í síðustu umferð.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Byrjunarlið Víkings
Arnar Gunnlaugsson þjálfari Víkings gerir eina breytingu í liðinu sem sigraði Fylki í síðustu umferð Bestu deildarinnar. Það er nýji færeyski varnarmaðurinn þeirra Gunnar Vatnhamar sem kemur inn í liðið en sóknarmaðurinn Erlingur Agnarsson er sá sem kemur út úr liðinu. Það bendir líklega á eitthvað breytt skipulag á liðinu en Erlingur er ekki í hóp í dag.
Eyða Breyta
Fyrir leik

Eyða Breyta
Fyrir leik
Dómari leiksins
Pétur Guðmundsson eða Pétur lögga eins og hann er oft kallaður verður dómari þessa leiks en honum til aðstoðar verða Kristján Már Ólafs og Ragnar Þór Bender.

Eftirlitsmaður er Frosti Viðar Gunnarsson og varadómari er Erlendur Eiríksson.
Pétur Guðmundsson
Eyða Breyta
Fyrir leik
KR á einnig möguleika að komast á toppinn
Gestirnir koma inn í þennan leik ósigraðir en þó ekki með jafn mörg stig og andstæðingarnir sínir í kvöld. KR gerði 1-1 jafntefli í fyrstu umferð gegn KA en tryggðu sér sinn fyrsta deildarsigur í síðustu umferð á erfiðum útivelli í Keflavík. Því geta KR-ingar með sigri komist upp fyrir Víkinga í efsta sætið.
Rúnar Kristinsson þjálfari KR
Eyða Breyta
Fyrir leik
Víkingar eiga möguleika að vera einir á toppnum
Heimamenn koma inn í þennan leik sem eina liðið sem hefur unnið alla sína leiki og með sigri í dag þá verða þeir einir á toppi Bestu deildarinnar eftir 3 umferðir. Víkingur hefur unnið bæði Fylki og Stjörnuna 2-0 hingað til.
Arnar Gunnlaugsson þjálfari Víkinga
Eyða Breyta
Fyrir leik
Lið skipta á heimaleik
Góða kvöldið og verið velkomin í beina textalýsingu frá viðureign Víkings og KR í 3. umferið Bestu Deild karla. Leikurinn fer fram klukkan 19:15 í Víkinni. Leikurinn átti upprunarlega að vera í Frostaskjóli en þar sem grasið er ekki tilbúið þar þá skiptu liðin á heimaleik.

Eyða Breyta
Byrjunarlið:
1. Simen Lillevik Kjellevold (m)
4. Jóhannes Kristinn Bjarnason ('45)
5. Jakob Franz Pálsson
7. Finnur Tómas Pálmason
8. Olav Öby
11. Kennie Chopart (f) ('78)
14. Ægir Jarl Jónasson ('60)
16. Theodór Elmar Bjarnason
19. Kristinn Jónsson
23. Atli Sigurjónsson ('78)
33. Sigurður Bjartur Hallsson ('45)

Varamenn:
13. Aron Snær Friðriksson (m)
10. Kristján Flóki Finnbogason ('45)
17. Luke Rae ('78)
20. Benoný Breki Andrésson ('45)
25. Jón Arnar Sigurðsson
29. Aron Þórður Albertsson ('60)
30. Rúrik Gunnarsson ('78)

Liðstjórn:
Valgeir Viðarsson
Rúnar Kristinsson (Þ)
Kristján Finnbogi Finnbogason
Friðgeir Bergsteinsson
Sigurður Jón Ásbergsson
Melkorka Rán Hafliðadóttir
Ole Martin Nesselquist

Gul spjöld:
Theodór Elmar Bjarnason ('69)

Rauð spjöld: