Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Í BEINNI
Mjólkurbikar karla
Fjölnir
LL 4
2
Selfoss
Leiknir R.
2
3
Selfoss
Daníel Finns Matthíasson '13 1-0
1-1 Jón Vignir Pétursson '24
1-2 Guðmundur Tyrfingsson '50
1-3 Valdimar Jóhannsson '59
Ólafur Flóki Stephensen '66 2-3
12.05.2023  -  19:15
Domusnovavöllurinn
Lengjudeild karla
Dómari: Guðgeir Einarsson
Maður leiksins: Valdimar Jóhannson
Byrjunarlið:
1. Viktor Freyr Sigurðsson (m)
5. Daði Bærings Halldórsson (f)
7. Róbert Quental Árnason
8. Sindri Björnsson
10. Daníel Finns Matthíasson
11. Brynjar Hlöðvers
14. Davíð Júlían Jónsson ('46)
20. Hjalti Sigurðsson
23. Arnór Ingi Kristinsson
66. Ólafur Flóki Stephensen
67. Omar Sowe

Varamenn:
12. Indrit Hoti (m)
3. Ósvald Jarl Traustason
4. Patryk Hryniewicki
7. Kaj Leo Í Bartalstovu ('46)
8. Árni Elvar Árnason
9. Róbert Hauksson
18. Marko Zivkovic
19. Jón Hrafn Barkarson

Liðsstjórn:
Vigfús Arnar Jósepsson (Þ)
Gísli Friðrik Hauksson
Halldór Geir Heiðarsson
Atli Jónasson
Guðbjartur Halldór Ólafsson
Nemanja Pjevic

Gul spjöld:
Arnór Ingi Kristinsson ('60)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Eftir stórskemmtilegan leik eru það Selfyssingar sem hirða stigin 3!
Viðtöl og skýrsla innan skams.
93. mín
Dauðafæri Gary Martin komin einn í gegn en Viktor mætir og ver frábærlega.
90. mín
Fjórum mínútum bætt við. Leiknismenn sækja og sækja.
81. mín
Inn:Aron Fannar Birgisson (Selfoss) Út:Valdimar Jóhannsson (Selfoss)
79. mín
Heimamenn missa boltann á hættulegum stað, Gonzalo Zamorano fær boltann og tekur skotið en Viktor Freyr ver.
77. mín
Inn:Gonzalo Zamorano (Selfoss) Út:Guðmundur Tyrfingsson (Selfoss)
70. mín
Inn:Ingvi Rafn Óskarsson (Selfoss) Út:Þorlákur Breki Þ. Baxter (Selfoss)
66. mín MARK!
Ólafur Flóki Stephensen (Leiknir R.)
Stoðsending: Daníel Finns Matthíasson
Ólafur Flóki að minnka muninn! Ólafur Flóki fær boltann fyrir utan teig og neglir honum á nærstöng.
Frábært mark!
63. mín
Róbert Quental með ágætis tilraun fyrir utan teig en boltinn endar yfir marki gestanna.
60. mín Gult spjald: Arnór Ingi Kristinsson (Leiknir R.)
59. mín MARK!
Valdimar Jóhannsson (Selfoss)
Stoðsending: Gary Martin
Valdimar að tvöfalda forystu Selfyssinga! Gary Martin tekur skotið fær boltann aftur og rennir honum út á Valdimar sem er við vítapunkt og rennur boltanum í netið.
55. mín
Róbert Quental á frábæra fyrirgjöf á Omar Sowe sem skallar boltann í jörðina og Stefán ver hann í slánna og boltinn aftur fyrir markið.
52. mín Gult spjald: Aron Einarsson (Selfoss)
50. mín MARK!
Guðmundur Tyrfingsson (Selfoss)
Stoðsending: Valdimar Jóhannsson
Gummi Tyrfings að koma gestunum yfir! Valdimar á góða fyrirgjöf á fjærstöng þar sem Gummi Tyrfings er réttur maður á réttum stað og stýrir boltanum í netið.
48. mín
Aron Einarsson á góða tilraun en boltinn fer í varnarmann og í horn.
46. mín
Inn:Kaj Leo Í Bartalstovu (Leiknir R.) Út:Davíð Júlían Jónsson (Leiknir R.)
46. mín
Síðari hálfleikur farinn af stað!
45. mín
Hálfleikur
Guðgeir flautar til hálfleiks.
Liðin skilja jöfn að með eitt mark hvort um sig.
45. mín
Selfyssingar bruna upp í skyndisókn Valdimar tekur skotið í teignum en Viktor ver örugglega.
44. mín
Gary Martin á laust skot fyrir utan teig sem Viktor á í engum vandræðum með að handsama.
35. mín
Gary Martin á skalla sem Viktor grípur.
33. mín
Gary Martin á skot fyrir utan teig sem Viktor Freyr ver vel.
24. mín MARK!
Jón Vignir Pétursson (Selfoss)
Viktor Freyr með hrikaleg mistök! Jón Vignir tekur aukaspyrnu á miðjum vallarhelming Leiknis. Jón reynir að koma boltanum á menn í teignum en boltinn svífur yfir allan pakkann og Viktor Frey í leiðinni og endar boltinn í netinu.
22. mín
Frábær varsla! Guðmundur Tyrfingsson á flott skot fyrir utan teig en Viktor ver snilldarlega í marki heimamanna
20. mín
Arnór Ingi kemur með fyrirgjöf Omar Sowe fær boltann óvænt og skallar framhjá.
13. mín MARK!
Daníel Finns Matthíasson (Leiknir R.)
Stoðsending: Arnór Ingi Kristinsson
Daníel Finns að koma Leiknismönnum yfir! Frábær fyrirgjöf frá Arnóri Inga sem fer beint á Daníel sem klárar fagmannlega!
9. mín
Gott færi Selfyssinga! Vandræðagangur í varnarlínu Leiknismanna, Valdimar endar með boltann í teignum og tekur skotið en Viktor Freyr ver vel.
5. mín
Sláin! Selfyssingar fá aukaspyrnu í fyrirgjafastöðu. Boltinn berst út á Ívan Breka sem lætur vaða fyrir utan teig og endar boltinn í þverslánni!
1. mín
Leikur hafinn
Guðgeir Einarsson flautar leikinn af stað Gestirnir byrja með boltann.
Fyrir leik
Liðin ganga hér inná völlinn og In The Ghetto er í græjunum, nú styttist í þetta!
Fyrir leik
Byrjunarliðin komin inn! Vigfús Arnar gerir 3 breytingar á liði sínu frá síðasta leik. Þeir Robert Quental, Hjalti Sigurðsson og Ólafur Flóki koma allir í byrjunarliðið.

Dean Martin gerir einnig 3 breytingar á liði sínu frá síðasta leik. Þeir Ívan Breki, Valdimar Jóhannson og Aron Einarsson koma allir í byrjunarliðið.
Fyrir leik
Leikurinn er sýndur í beinni á YouTube
Fyrir leik
Nóg að gerast í breiðholtinu!
Fyrir leik
Aron Jó spáir í spilin Miðjumaður Fram, Aron Jóhannson er spámaður vikunnar.

Leiknir R. 4 - 1 Selfoss

Leiknir eru með spennandi project í gangi og Sindri Björns er arkitektinn. Selfoss menn hljóta að vera með alvöru rútu, ef svo er verður ferðin heim ekki alveg jafn leiðinleg.


Fyrir leik
Selfoss Selfyssingar hafa ekki farið jafn vel af stað. Eins og áður hefur komið fram slógu Leiknismenn Selfyssinga út í 32. liða úrslitum Mjólkurbikarsins.
Selfoss tapaði einnig í fyrstu umferð Lengjudeildarinnar, gegn Aftureldingu 3-1 þar sem Guðmundur Tyrfingsson gerði eina mark Selfyssinga úr víti.

Fyrir leik
Leiknir R. Leiknismenn hafa byrjað tímabilið sterkt. Þeir eru komnir í 16 liða úrslit Mjólkurbikarsins og unnu fyrsta leik í Lengjudeildinni. Þar mættu Breiðhyltingar Þrótti R. og unnu leikinn 3-1. Mörk Leiknis skoruðu þeir Daníel Finns, Hjalti Sigurðsson og Omar Sowe.


Fyrir leik
Leiknismenn slóu Selfyssinga úr bikarnum! Það eru aðeins 3 vikur síðan að liðin mættust síðast en það var í 32. liða úrslitum Mjólkurbikarsins.
Þar gerði Omar Sowe dramatískt siguramark á 89. mínútu leiksins, lokatölur leiksins 1-0.


Fyrir leik
Góðan og blessaðan daginn! Verið velkomin í þráðbeina textalýsingu frá Leiknisvelli, þar sem Leiknir R. tekur á móti Selfossi í 2. umferð Lengjudeildarinnar.
Leikurinn í dag fer fram á iðagrænu gervigrasi Leiknis.

Byrjunarlið:
1. Stefán Þór Ágústsson (m)
2. Ívan Breki Sigurðsson
4. Oskar Wasilewski
5. Jón Vignir Pétursson (f)
6. Adrian Sanchez
10. Gary Martin
17. Valdimar Jóhannsson ('81)
20. Guðmundur Tyrfingsson (f) ('77)
21. Aron Einarsson
22. Þorsteinn Aron Antonsson
45. Þorlákur Breki Þ. Baxter ('70)

Varamenn:
12. Arnór Elí Kjartansson (m)
3. Reynir Freyr Sveinsson
8. Ingvi Rafn Óskarsson ('70)
9. Aron Fannar Birgisson ('81)
15. Alexander Clive Vokes
19. Gonzalo Zamorano ('77)
23. Þór Llorens Þórðarson
77. Hrannar Snær Magnússon

Liðsstjórn:
Dean Martin (Þ)
Ingi Rafn Ingibergsson
Þorkell Ingi Sigurðsson
Stefán Logi Magnússon
Lilja Dögg Erlingsdóttir

Gul spjöld:
Aron Einarsson ('52)

Rauð spjöld: