SKÝRSLAN: Titilvonir KR minnka eftir feilspor í Eyjum
Hvað réði úrslitum?
Bæði liðin sýndu góða spilamennsku í dag og hefði þetta getað farið á báða bóga. Hinsvegar var jafntefli sanngjörn niðurstaða eftir allt saman. Mikil barátta og hiti var í mönnum og skilaði það líka sínu.
Bestu leikmenn
1. Avni Pepa
Fyrirliðinn stóð sína plikt í kvöld. Hann átti alla bolta og vann margar tæklingar auk þess að bakka sína menn upp. Í fyrri hálfleik bjargaði hann upp á sitt einsdæmi Eyjamönnum frá því að fá mark á sig eftir að Þorsteinn Már virtist vera kominn í gegn eftir mistök Hafsteins Briem.
2. Jose Enrique Seoane Vergara
Eins og í flestum leikjum var Sito sprækur í dag. Hann var vinnusamur og mikið í boltanum. Þá skoraði hann eitt mark í dag og var það virkilega vel afgreitt hjá honum. Síðan hann gekk til liðs við Eyjamenn hefur hann staðið sig virkilega vel og er nú kominn með 5 mörk í heild.
Atvikið
Fyrir utan mörkin voru mörg færi í leiknum og í einni sókn Eyjamanna virtist boltinn fara í höndina á leikmanni KR. Fjarlægð blaðamanns frá atvikinu var of mikil til að geta séð þetta greinilega og er erfitt að taka afstöðu til þessa atviks.
Hvað þýða úrslitin?
Þetta eru betri úrslit fyrir Eyjamenn heldur en KR-inga. ÍBV fer með þessu stigi upp úr fallsæti en KR þurfti að vinna leikinn til að halda í við FH og Breiðablik. Eftir leikinn eru KR fimm stigum á eftir toppliðinu með 6 leiki eftir og eiga því ærið verkefni fyrir höndum
Vondur dagur
Pálmi Rafn og Jacob Schoop voru hvergi sjáanlegir í dag. Leikmenn ÍBV náðu að loka vel á þá og fór Schoop m.a. af velli eftir 60 mínútna leik fyrir Hólmbert. Hefðu þeir spilað sinn vanalega leik hefðu úrslitin getað verið allt önnur.
Dómarinn - 6,5
Leikurinn í dag var virkilega erfiður að dæma, það var mikill hiti í leikmönnum og hvorugt liðið hélt til baka. Þrátt fyrir að þurfa ekki að taka neinar stórvægilega ákvarðanir þá dæmdi Pétur Guðmundsson leikinn prýðisvel, lét leikinn fljóta vel og spjaldaði menn þegar við átti. Undir lokin var leikmönnum orðið heitt í hamsi og leikurinn datt aðeins úr höndum hans.


