Fotbolti.net
@alexander_freyrAlexander Freyr Tamimi
Alexander Freyr Tamimi
Pepsi-deild kvenna 2015
Samsung völlurinn
Stjarnan
Stjarnan
0 - 1
Breiðablik
Breiðablik
0 - 149' Fanndís Friðriksdóttir
Dómari: Guðmundur Ársæll Guðmundsson
Myndir: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski

SKÝRSLAN: Níu Blikafingur á bikarnum

Hvað réði úrslitum?

Blikar mættu grimmari til leiks og voru einfaldlega betri aðilinn. Stjörnustúlkur litu ekki vel út í kvöld. Var það ferðaþreyta, taugaveiklun, eða bara gæðamunur á liðunum? Erfitt að segja, en frá fyrstu mínútu voru gestirnir allavega líklegri til sigurs og tóku stigin þrjú sanngjarnt. Þær ætla sér að taka þennan titil og eru á góðri leið með það.

Bestu leikmenn

1. Fanndís Friðriksdóttir

Fanndís var stórhættuleg fram á við, sérstaklega í fyrri hálfleik. Var dugleg að taka góð hlaup og kom með góðar sendingar. Skoraði í þokkabót stórglæsilegt sigurmark Breiðabliks.

2. Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir

Magnaður leikur á miðjunni hjá Andreu. Hún vann eins og vél, tók hverja tæklinguna á fætur annarri og var dugleg að skila boltanum til samherja. Óhætt að segja að hún hafi lagt sig 120% fram í kvöld.

Atvikið

Stórglæsilegt sigurmark Fanndísar. Þetta byrjaði allt með innkasti, Fjolla Shala fékk boltann og lagði á Fanndísi sem var fyrir utan teiginn. Fanndís fór illa með varnarmann og lúðraði boltanum í fjærhornið, gjörsamlega óverjandi. Ekki slæmt að vinna erkifjendurna á svona marki.

Hvað þýða úrslitin?

Blikar eru svo gott sem orðnir meistarar. Þær eru með sjö stiga forskot á Stjörnuna á toppi deildarinnar þegar fjórar umferðir eru eftir. Það er ekki séns að þær séu að fara að missa þetta frá sér. Liðið hefur haldið hreinu í 11 leikjum í röð og það virðist enginn geta stöðvað þær.

Vondur dagur

Brasilíska tvíeykið hjá Stjörnunni gerði alls ekki það sem var ætlast til af þeim. Francielle gaf varla á samherja og lítið kom úr Poliönu sömuleiðis. Þessar landsliðskonur voru fengnar til að styrkja liðið til muna, bæði í titilbaráttunni og í Evrópukeppni, en þær gerðu afar lítið til að hjálpa liðinu í dag.

Dómarinn - 8,5

Guðmundur Ársæll var mjög flottur í kvöld og gerði varla mistök. Hann náði að koma í veg fyrir að leikurinn færi í einhverja vitleysu en lét hann samt fljóta vel. Flott frammistaða hjá fasteignasalanum.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.