0. mín
Góðan og margblessaðan daginn. Hér er bein textalýsing frá viðureign FH og Þórs í 16. umferð Pepsi-deildar karla. Þorvaldur Árnason dómari flautar til leiks klukkan 17 en aðstoðarmenn hans í dag eru Óli Njáll Ingólfsson og Smári Stefánsson.
FH-ingar þurfa á öllum stigunum að halda til að eiga enn von um Íslandsmeistaratitilinn en Þórsarar sitja í áttunda sæti og hafa fjarlægst falldrauginn vel og innilega.
0. mín
Fáir veðja á Þórsara í dag enda stór skörð í þeirra liði. Janez Vrenko tekur út leikbann, Atli Sigurjónsson er staddur í Hollandi þar sem hann er við æfingar hjá úrvalsdeildarliðinu NEC, Alexandar Linta er staddur erlendis og Gunnar Már Guðmundsson má ekki spila leikinn vegna ákvæða í lánssamningi. Þá er Páll Viðar Gíslason þjálfari staddur með Atla í Hollandi og Hreinn Hringsson aðstoðarþjálfari stýrir því liðinu í dag.
0. mín
Leikmenn Þórs eru búnir að taka sér göngutúr um völlinn á meðan vallarstarfsmenn leggja lokahönd á að gera allt klárt. Byrjunarliðin má sjá til hliðar.
Minnum fólk sem skrifar færslur varðandi leikinn að nota hashtagið #fótbolti en valdar færslur rata hingað í textalýsinguna
0. mín
Glöggir lesendur hafa séð að Gunnar Kristjánsson er mættur aftur í leikmannahóp FH en hann hefur ekki spilað síðan hann meiddist gegn Stjörnunni í lok maí. Gunnar er á bekknum í dag.
0. mín
Liðin eru mætt inn á völlinn og eru í þessum skrifuðu orðum að heilsast.
1. mín
Leikurinn er hafinn. Þórsarar sækja í átt að Reykjavík en FH í átt að KFC í Hafnarfirði.
7. mín
FH-ingar eru hættulegri hér í byrjun leiks. Matthías Vilhjálmsson var að fá fínasta færi en skot hans hafnaði í varnarmanni og fór svo aftur fyrir í hornspyrnu. Ekkert varð úr horninu.
17. mín
FH mun meira með boltann en liðinu gengur brösuglega að finna glufur á vörn Þórsara og fátt markvert átt sér stað í leiknum.
21. mín
Gult spjald
Freyr Bjarnason
Þorvaldur dómari búinn að lyfta gula spjaldinu og það fékk blaðamaðurinn Freyr Bjarnason.24. mín
Við heyrðum að Páll Viðar þjálfari Þórs væri hress í Hollandi að skoða þessa textalýsingu. Viljum við því skila kveðju til hans og Atla Sigurjónssonar.
25. mín
Freyr skallar yfir mark Þórs eftir hornspyrnu. Annars lítið sem ekkert að frétta í þessum leik.
28. mín
Gult spjald
Björn Daníel Sverrisson
Smá hiti sem hljóp í menn og endaði það með gulu spjaldi á Björn Daníel sem var allt annað en sáttur við þá ákvörðun dómarans.34. mín
Þórsarar komu boltanum fram á David Disztl sem var heldur einmana og fékk enga hjálp frá samherjum sínum en FH-ingar náðu þó ekki af honum boltanum. Á endanum fékk Disztl svo hjálpina og úr varð hættulegasta sókn Þórs í leiknum þó hún hafi ekki endað með skoti að marki.
37. mín
Björn Daníel með góða rispu og renndi boltanum á Matthías fyrirliða sem var í fínni skotstöðu rétt fyrir utan teiginn. Skot Matthíasar var ekki nægilega öflugt og Rajkovic í marki Þórs átti ekki í vandræðum með að verja.
39. mín
FH-ingar aðeins að ná að opna Þórsvörnina núna og Atli Guðnason fékk fínt færi en skotið beint á Rajkovic. Baldvin Ólafsson átti svo skot af löngu færi hinumegin en Gunnleifur varði auðveldlega.
41. mín
Hólmar Örn Rúnarsson í dauðafæri! Klippti boltann yfir af markteignum eftir fyrirgjöf frá Matthíasi.
45. mín
Hálfleikur. Það er markalaust. FH-ingar náðu aðeins að ógna marki Þórs meira undir lok hálfleiksins. Ég bjóst við markaleik en svo virðist ekki ætla að vera.
45. mín
FH-lögin óma í hálfleiknum eins og venja er. Boltasækjarnir fá að leika sér á vellinum í hálfleik og sýna nokkrir ansi fín tilþrif. Greinilega efnilegir fótboltamenn á ferðinni.
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn. Vonandi verður hann mun skemmtilegri en sá fyrri.
48. mín
Gult spjald
Ingi Freyr Hilmarsson
Fær gult spjald fyrir brot á Matthíasi Vilhjálmssyni.53. mín
Leikurinn fer algjörlega fram á vallarhelmingi Þórsara þessa stundina. FH átt nokkrar álitlegar sóknir og mark frá liðinu virðist liggja í loftinu.
55. mín
Rautt spjald
Björn Daníel Sverrisson
Enn og aftur rautt spjald í leik hjá FH! Björn Daníel fær réttilega sitt annað gula spjald fyrir að brjóta á Inga Frey Hilmarssyni. FH-ingar hafa oftar en ekki verið betri manni færri, spurning hvort það verði aftur núna.61. mín
InnRagnar Haukur Hauksson
ÚtDávid Disztl
Gamla kempan Ragnar Hauksson skokkar á vettvang í forlátum lotto-skóm. Ekki ósvipuðum þeim sem hann spilaði í á Skaganum fyrir langa löngu.
70. mín
Jafnræði með liðunum eftir rauða spjaldið. Lítið um opin marktækifæri.
71. mín
Þarna var Matthías Vilhjálmsson í hörkufæri en frábær markvarsla hjá Srdjan Rajkovic sem sýndi snör viðbrögð og varði meistaralega í horn.
72. mín
Gult spjald
Emil Pálsson
Miðjumaðurinn ungi Emil Pálsson fer í bókina hjá Þorvaldi fyrir að brjóta á Clark Keltie. Brotið var ekki mjög gróft en Emil var nýbúinn að brjóta af sér og Þorvaldur ákvað að spjalda hann núna.74. mín
InnPétur Heiðar Kristjánsson
ÚtÁrmann Pétur Ævarsson
76. mín
InnÁsgeir Gunnar Ásgeirsson
ÚtEmil Pálsson
77. mín
FH-ingar eru líklegri þrátt fyrir að vera einum færri.
78. mín
Gult spjald
Atli Viðar Björnsson
Atli Viðar reynir að fiska víti með því að taka létta dýfu í teignum. Þorvaldur dómari fellur ekki í gildruna og spjaldar Atla réttilega fyrir leikaraskap.80. mín
Stórhættuleg sókn FH. Atli Guðnason fékk nægt pláss til að athafna sig utarlega í teignum og renndi svo knettinum á Atla Viðar sem náði ekki nægilega góðu skoti, Rajkovic varði. Örskömmu síðar fékk Matthías Vilhjálmsson fínt færi en gestirnir björguðu í horn á síðustu stundu. Tíu heimamenn líklegir hérna í lokin.
83. mín
MAAAARK!
Atli Viðar Björnsson
Þetta mark hefur legið í loftinu í nokkurn tíma! Atli Viðar með hnitmiðað skot við vítateigsendann sem fór í bláhornið. Í aðdragandum höfðu tveir varnarmenn Þórsara runnið klaufalega og Atli hirti þá knöttinn.86. mín
MAAAARK!
Atli Viðar Björnsson
Aftur skorar Atli og klárar þennan leik! Skoraði með skalla eftir fyrirgjöf frá Guðmundi Sævarssyni. Það fer Þórsurum ekki vel að vera færri á vellinum.90. mín
InnHákon Atli Hallfreðsson
ÚtAtli Guðnason
93. mín
Rautt spjald
Ingi Freyr Hilmarsson
Annað gult og þar með rautt. Ingi Freyr fær að fara nokkrum sekúndum fyrr í sturtu en samherjar sínir.93. mín
Leik lokið með 2-0 sigri FH. Gríðarlega mikilvæg þrjú stig hjá FH sem hefur unnið fimm leiki í röð og heldur sér í titilbaráttunni.



