Fotbolti.net
@elvargeirElvar Geir Magnússon
Elvar Geir Magnússon
Pepsi-deildin
Vodafone-Hlíðarendi
Valur
Valur
3 - 1
Selfoss
Selfoss
Hörður Sveinsson 2'1 - 01 - 149' Jon Andre RoyraneMatthías Guðmundsson 78'2 - 1Rúnar Már Sigurjónsson 86'3 - 1
Dómari: Guðmundur Ársæll Guðmundsson
0. mín
Komið þið sæl og verið velkomin í beina textalýsingu frá leik Vals og Selfoss í Pepsi-deild karla. Bæði þessi lið unnu leiki sína í fyrstu umferð. Valur vann sigur á Fram 1-0 á Laugardalsvelli en Selfoss vann 2-1 sigur á heimavelli sínum gegn ÍBV.
0. mín
Það verður gaman að sjá hvað tónlistarmaðurinn Ingólfur Þórarinsson gerir í kvöld en hann átti gríðarlega góðan leik í 1. umferð og var valinn leikmaður umferðarinnar hér á Fótbolta.net.
0. mín
Fasteignasalinn Guðmundur Ársæll Guðmundsson er dómari í kvöld. Heyrði einhverstaðar að hann væri hættur í fasteignasölunni en hann heldur samt titlinum. Frosti Viðar Gunnarsson og Haukur Erlingsson sjá um að flagga leikinn.
0. mín
Haukur Páll Sigurðsson á við meiðsli að stríða og ljóst er að hann er ekki í byrjunarliði Vals í kvöld. Slæmt fyrir liðið að vera án hans. Hafsteinn Briem kemur inn í liðið í hans stað. Þá er Hörður Sveinsson í byrjunarliðinu í stað Matthíasar Guðmundssonar.
0. mín
Byrjunarlið beggja liða eru komin og má skoða hér til hliðar.
0. mín
Fyrir þau ykkar sem höfðu áhyggjur.. Geir Ólafs álitsgjafi og toppmaður er mættur í VIP-pið. Sat hress í sófanum þegar fréttamaður gekk framhjá. Sumarið er tíminn.
0. mín
Selfyssingar eru að frumsýna nýja búninga í kvöld! Þeir eru í Argentínubúningnum. Það gefur þessum leik aukið vægi.
0. mín
Valsmenn léttir í lund ómar í hátalarakerfinu meðan liðin ganga út á völlinn.
1. mín
Leikurinn er hafinn. Valsmenn byrjuðu með boltann en þeir sækja í átt að Keiluhöllinni.
Valur
2. mín
MAAAARK!

Hörður Sveinsson

Þvílík byrjun á þessum leik!!! Varnarlína Selfyssingar ekki með á nótunum í byrjun. Matarr Jobe með sendinguna fyrir frá hægri og þar stakk Hörður Sveinsson sér fram fyrir vörnina og skoraði!
4. mín
Skjálftamenn voru að mæta á völlinn. Mættu aðeins of seint og misstu af fyrsta markinu. Þeir gráta það væntanlega ekki. Skjálfti er samt vaknaður og við gleðjumst yfir því.
8. mín
Hörður Sveins skoraði aðeins eitt mark í fyrra... er þegar búinn að jafna það. Er sumarið hans framundan?
10. mín
Vörn Selyssinga óörugg hér í byrjun og nötrar allt þegar Valsmenn nálgast markið.
14. mín
Jæja, Selfyssingar með ágætis sókn. Ivar Skjerve með skot sem fór í varnarmann og svo átti Babacar Sarr skot sem fór langt framhjá. Þrátt fyrir að Valur sé að vinna þá er miklu meiri stemning Selfoss-megin í stúkunni og Skjálftamenn sungið stanslaust síðan þeir mættu.
22. mín
Selfoss í dauðafæri! Jon Andre tók aukaspyrnu frá hægri og fyrirliðinn Stefán Ragnar Guðlaugsson var einn og yfirgefinn, sneiddi boltann rétt framhjá markinu!
30. mín
King Gaupi er mættur í blaðamannastúkuna. Tómas Meyer segir honum sögur af því þegar hann reif upp gítarinn í dag og tók lagið fyrir 70 vinnufélaga sína.
30. mín
King Gaupi er mættur í blaðamannastúkuna. Tómas Meyer segir honum sögur af því þegar hann reif upp gítarinn í dag og tók lagið fyrir 70 vinnufélaga sína.
35. mín
Selfyssingar verið mun meira með boltann síðustu mínútur en eru ekki að ná að ógna gegn vel skipulögðu og þéttu Valsliði.
Valur
39. mín
Gult spjald

Hafsteinn Briem

Groddaleg tækling á Jón Daða aftan frá. Hárréttur dómur hjá fasteignasalanum.
Selfoss
45. mín
Gult spjald

Endre Ove Brenne

46. mín
Flautað hefur verið til hálfleiks. Valur átti hættuleg færi undir lok hálfleiksins. Rúnar Már Sigurjónsson átti stórhættulegt skot eftir aukaspyrnu sem markvörður gestana varði naumlega. 1-0 fyrir Val.
46. mín
Seinni hálfleikur er hafinn.
49. mín
Selfoss í flottu færi, Babacar Sarr með sendingu inn á Ndiaye en Sindri Snær bjargaði með úthlaupi.
Selfoss
49. mín
MAAAARK!

Jon Andre Royrane

Jon Andre fékk boltann utarlega í teignum og kláraði glæsilega með hnitmiðuðu skoti í fjærhornið! Frábært mark sem kemur til greina sem mark umferðarinnar. Tók boltann á lofti.
Valur
59. mín
InnMatthías Guðmundsson
ÚtHörður Sveinsson
Valur
62. mín
InnAndri Fannar Stefánsson
ÚtGuðjón Pétur Lýðsson
Selfoss
69. mín
InnJoseph David Yoffe
ÚtSindri Rúnarsson
Rakarasonurinn mættur inn.
Valur
74. mín
InnKolbeinn Kárason
ÚtAtli Heimisson
Selfoss
75. mín
InnTómas Leifsson
ÚtÓlafur Karl Finsen
Valur
78. mín
MAAAARK!

Matthías Guðmundsson

Matthías sem kom inn sem varamaður áðan hefur skorað gegn gangi leiksins! Selfyssingar verið líklegri. Skot Matthíasar fór í varnarmann og endaði í horninu!
82. mín
Jón Daði með hörkutilþrif, lék á varnarmenn Vals og skaut í slánna!
Valur
86. mín
MAAAARK!

Rúnar Már Sigurjónsson

Kolbeinn Kárason með sendingu innfyrir á Rúnar sem hikaði ekkert við þetta og þrumaði að marki. Boltinn lá í netinu!
Selfoss
88. mín
InnSigurður Eyberg Guðlaugsson
ÚtJon Andre Royrane
90. mín
Athugið! Það vantar nokkrar skiptingar í þessa textalýsingu. Kerfið er að hiksta vegna álags. Skiptingarnar verða settar inn eftir leik.
93. mín
LEIK LOKIÐ Áhorfendur: 1.527
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.