0. mín
Góðan daginn!
Verið velkomin á Stjörnuvöllinn í blíðskaparveðri, þótt kalt sé. Hér á eftir fer fram leikur Stjörnunnar og Fylkis í Pepsi deild karla.
Þetta verður án efa stórskemmtilegur leikur á nýju gervigrasi þeirra bláklæddu og menn hafa verið að spá þessum leik sem markasúpu. Vonandi rætist það.
0. mín
Byrjunarliðin eru komin inn hér til hliðanna.
Athygli vekur að Mads Laudrup, bróðir hins víðfræga Michael, er í byrjunarliði Stjörnumanna en hjá Fylki er enginn Kristján Valdimarsson en hann er frá vegna meiðsla.
0. mín
Vallarþulur Stjörnunnar er án efa með þeim skemmtilegri í bransanum. Hann skýtur hér föstum skotum í aðdraganda leiksins:
\"Við erum ennþá að bíða eftir stuðningsmönnum Fylkis til þess að leikurinn geti hafist\"
Hér verður eitthvað fjör.
0. mín
Stjörnumenn gerðu góða ferð í Frostaskjólið í síðustu umferð þar sem unnu upp tveggja marka forystu KR og náðu jafntefli.
Fylkismenn gerðu slíkt hið sama á sínum heimavelli og náðu 1-1 jafntefli við lið Keflavíkur.
Liðin eru því jöfn að stigum fyrir þessa umferð.
Við minnum jafnframt spennta áhorfendur þessa leiks á að nota #fotbolti þegar tíst er um leikinn.
0. mín
Leikmenn ganga hér út á nýtt gervigras þeirra Stjörnumanna. Bjarni Þórður færir hér Stjörnunni blómvönd í tilefni fyrsta leiks.
1. mín
Leikurinn er hafinn og Stjörnumenn sækja í átt að Hafnarfirði en Fylkismenn snúa rasssinum að IKEA.
6. mín
Leikurinn byrjar afar rólega. Stjörnumenn eru meira með boltann en Fylkismenn verjast aftarlega.
Mads Laudrup hefur mikið verið í boltanum og virkar sprækur.
9. mín
Tómas Þorsteinsson spilar í dag á vinstri kanti og hefur átt tvo fína spretti. Hann var að fiska aukaspyrnu eftir að hafa komist framhjá tveimur Stjörnumönnum.
13. mín
Fyrsta skot leiksins hefur litið dagsins ljós.
Það átti Mads Laudrup eftir að Halldór Orri Björnsson átti fínan sprett.
14. mín
Baldvin Sturluson í dauðafæri! Eftir aukaspyrnu barst boltinn út í miðjan teiginn þar sem Baldvin var einn og óvaldaður en skaut framhjá á ótrúlegan hátt.
Strax eftir það komst Jóhann Þórhallsson í ákjósanlegt færi en skaut beint á Ingvar Jónsson sem greip boltann.
16. mín
Aftur fær Mads Laudrup ágætis skot færi fyrir utan teig Fylkismanna en skaut yfir í annað sinn. Hann fékk reyndar óblíðar móttökur frá Ásgeiri Eyþórssyni sem tæklaði ansi harkalega.
16. mín
Aftur fær Mads Laudrup ágætis skot færi fyrir utan teig Fylkismanna en skaut yfir í annað sinn. Hann fékk reyndar óblíðar móttökur frá Ásgeiri Eyþórssyni sem tæklaði ansi harkalega.
17. mín
Gult spjald
Andri Þór Jónsson
Fyrir að kippa Kenny Chopart niður á miðjum vellinum. Líklega hárrétt.23. mín
Magnús Þórir Matthíasson komst hér aleinn inn fyrir vörn Stjörnunnar og lék laglega á Ingvar Jónsson en skotið var laust og Daníel Laxdal kom boltanum í horn.
Upp úr horninu átti David Elebert alveg frían skalla en á ótrúlega hátt fór boltinn ekki á markið.
Fjörugar mínútur þessa stundina.
28. mín
Tómas Þorsteinsson skildi Halldór Orra eftir og átti flottan sprett upp allan völlinn en Mads Laudrup kom boltanum frá eftir fyrirgjöfina. Vel gert hjá báðum leikmönnum.
30. mín
MAAAARK!
Gunnar Örn Jónsson
Gunnar Örn kemur Stjörnumönnum yfir. Halldór Orri tók aukaspyrnu sem Garðar jóhannsson fiskaði vel og Gunnar Örn lúrði á fjærstönginn og blakaði boltanum yfir línuna. Ansi hreint vafasöm dekkning hjá Fylkismönnum í þessu marki.36. mín
InnDarri Steinn Konráðsson
ÚtKennie Chopart
Kenny hefur meiðst við tæklingu Ásgeirs Barkar sem var karlmannleg.
40. mín
Fylkismenn eru æfir út í Garðar Örn Hinriksson fyrir að dæma ekki víti eftir að Jóhann Þórhallsson féll við í teignum.
Það er mat fréttamanna sem hér voru að þetta hafi væntanlega átt að vera víti.
43. mín
Gult spjald
Garðar Jóhannsson
Fyrir brot á Ásgeiri Berki.45. mín
Þá flautar Garðar Örn til hálfleiks.
Leikurinn verið kaflaskiptur þar sem mest hefur mætt á miðjumönnum liðanna. Mads Laudrup virkar sprækur og Tómas Þorsteinsson einnig.
Verður vonandi spennandi seinni hálfleikur héðan.
46. mín
Leikurinn hafinn að nýju.
50. mín
Eins og fyrri hálfleikur, þá hefur sá seinni farið afar rólega af stað. Við bíðum enn eftir fyrsta skotinu eða fyrsta færinu.
57. mín
Jóhann Þórhallsson var í fínu skotfæri en tókst ekki að trufla Ingvar Jónsson við sólbað. Allt með kyrrum kjörum ennþá.
65. mín
InnFinnur Ólafsson
ÚtMagnús Þórir Matthíasson
Þetta er líklega það markverðasta sem hefur gerst í seinni hálfleik.
66. mín
Tómas Þorsteinsson er með mikinn krampa út við hliðarlínu og Ásgeir Börkur er fljótur til hans og teygir á honum. Samvinna í fyrirrúmi hjá Fylki.
67. mín
Davíð Þór Ásbjörnsson með fínan skalla eftir hornspyrnu en framhjá fór boltinn.
69. mín
InnBjarki Páll Eysteinsson
ÚtGunnar Örn Jónsson
Markaskorarinn útaf.
70. mín
InnRúrik Andri Þorfinnsson
ÚtTómas Joð Þorsteinsson
75. mín
Garðar Jóhannsson var hér dæmdur rangstæður en það er afar umdeildur dómur.
Halldór Orri átti fína sendingu inn fyrir vörn Fylkismanna.
77. mín
Gult spjald
Baldvin Sturluson
79. mín
Rautt spjald
Daníel Laxdal
Fyrir brot á Jóhanni Þórhallssyni. Daníel var aftasti maður.80. mín
MAAAARK!
Ingimundur Níels Óskarsson
Skorar úr vítaspyrnunni.81. mín
InnTryggvi Sveinn Bjarnason
ÚtGarðar Jóhannsson
Mads Laudrup fer í framherjastöðuna fyrir Garðar.
83. mín
MAAAARK!
Jóhann Þórhallsson
Öllum á óvart, Fylkir komnir yfir. Leikurinn hefur gerbreyst eftir að Finnur Ólafsson kom inn á. Hann fiskaði aukaspyrnu sem Ingimundur tók og boltinn barst í gegnum vörn Stjörnunnar þar sem Jóhann var á fjærstöng og lagði boltann snyrtilega í markið.87. mín
Henrik Bödker aðstoðarþjálfari Stjörnunnar fær hér að líta rauða spjaldið og er rekinn upp í stúki, alveg brjálaður.
89. mín
Gult spjald
Ingimundur Níels Óskarsson
91. mín
MAAAARK!
Halldór Orri Björnsson
Ótrúlegur endasprettur. Stjarnan fékk dæmt víti eftir klaufalegt brot Rúriks Andra og Halldór Orri skoraði örugglega úr vítinu.92. mín
InnPablo Punyed
ÚtÁsgeir Börkur Ásgeirsson
93. mín
Stjörnumenn vilja fá annað víti dæmt eftir að Tryggvi Sveinn féll við í teignum eftir viðskipti við David Elebert en Garðar Örn dæmdi ekkert.
95. mín
Rautt spjald
Bjarki Páll Eysteinsson
Fyrir tæklingu inni í vítateig Fylkis.Leik lokið!



